Lesbók Morgunblaðsins - 26.06.1982, Síða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 26.06.1982, Síða 5
urinn Richini latneska versagerö — bæöi fræöilega og meö hagnýtum æflngum í skáldskap — og kirkjusöng, og þaö átti eftir aö hafa mikilvæg áhrif á sérhljóöartka íslenzka sönghefö. íslenzku Biskupa sög- urnar lýsa því hvernig þetta lærdómssetur dró til sín „margra góöra manna börn“, bændabörn, sem voru send til þess aö lesa heilög rit; sumir skrifuöu, aörir sungu, enn aörir lásu eöa þá kenndu. Lærdómurinn breiöist út meöal þjóöarinnar. Og ef ég nú vildi skjóta inn í svo óskyldu efni sem kvenréttindum á okkar dögum, þá mun nútíma lesandi ekki verða svo lítið hissa þegar hann les nöfn þeirra sem voru viö nám á hinu norölæga islandi snemma á 12. öld og kemst aö raun um aö hér var engínn greinarmunur geröur á körlum og konum. Af þeim sem sérstaklega er getið fyrir lærdóm, er „hreinferöug jómfrú, er Ingunn hét“. Þessi Ingunn á aö hafa verið afburöa vel aö sér í (latneskum) bókmenntum og málfræöi: Á Þingeyrum var Benediktaklaustur. Annaö var á Munka-Þverá, en þar var Nikulás Bergsson ábóti um miöja 12. öld. Hann var einn af hinum mörgu hálæröu íslenzku klerkum á þessari tíö. Víðförli ábótinn, Nikulás, skrifaöi ekki einungis leiöbeiningar handa þeim sem fóru til italíu og Landsins helga (pr. í Symbolas ad geographiam medii aevi), hann var líka skáld. Eftir ábótann hefur varðveizt í allar þessar aldir smábrot (þrjú vers) úr drápu um Jóhannes postula (Jónsdrápa) og enn minna brot úr Kristsdrápu. Á þessum dögum gerist þaö og aö Þor- lákur Þórhallsson gengur í skóla hjá Eyjólfi Sæmundssyni „hins fróöa“ í Odda. En Eyj- ólfur haföi tekiö viö stjórn á lærdómssetr- inu eftir fööur sinn, Sæmund Sigfússon. Þorlákur sem átti þaö eftir aö verða einn af mestu andlegum vökumönnum í Sögu is- lands (og tekinn í tölu helgra manna 1199, sex árum eftir dauöa hans), fór síðan til Frakklands til frekara náms viö Sankti- Viktors klaustriö í París og því næst til Englands þar sem hann var líka viö nám í Lincoln. Þetta eru sömu staðir sem gera má ráö fyrir aö annar áhugaveröur stúdent hafi dvaiiö nokkru fyrr: Sá maöur var Ey- steinn Erlendsson, síðar erkibiskup í Niöar- ósi (sem vígöi Þorlák til Skálholts 1178). Meö þeim var náin samvinna. Þaö eru hliöstæður meö þeim tveim og öörum mikl- um kirkjuhöföingja frá hér um bil sama tíma. Á ég hér viö enska erkibiskupinn, Thomas Beckett af Kantaraborg, sem myrtur var í dómkirkjunni 1173. Allir þrir höföu þeir úrslitaáhrif á kirkjuna í heima- landi sínu. En áöur en Þorlákur varö biskup lagöi hann grunn aö nýrri andlegri miöstöö á íslandi. Hann stofnaöi Þykkvabæjarklaust- ur á suöurströnd landsins og varö fyrsti ábóti þess og innleiddi þá bókmennta- menningu sem síöan setti svip sinn á þetta klaustur. Þar var Brandur Jónsson síöar ábóti. Hann geröi þýöingu á norrænu á Alexanderssögu fyrir Magnús, son Hákon- ar konungs. Og ennþá seinna hittum viö í klaustrinu munkinn Eystein Ásgrimsson, sem ort hefur fegursta kristna kvæöiö frá miööldum Norðurlanda. Bróölr Eysteinn orti „Lilju“-kvæöiö, sem leysti „Geisla" af hólmi sem fyrirmynd kristinna kvæöa. Einar Skúlason kemur fram á þeim dög- um, þegar stórkostleg andleg hreyfing er á feröinni bæöi í Noregi og á Islandi, og er á íslandi forboöi þess blómatíma sem koma skal m.a. meö Snorra Sturlusyni næstu hundraö árin. I „Geisla“ ber þetta tímabil hæst, þar mætir goöafræöi gamla tímans hinum nýja guðdóms-geisla, geisla yfir- jarönesks Ijóss, og þar er líka aö finna hljómbotn þeirrar ritmenningar sem einnig umlykur Einar Skúlason þar sem hánn er í Niðarósi og yrkir kvæöi um kónginn helga. Þaö má t.d. benda á Niðrstigningarsögu, sem nú er að mestu gleymd, og snýst um för Jesú til helvítis, norræn þýöing á æva- fornu gnostíkaríti. Einar þekkti mörg sagnasöfn um heilaga menn og Mariu mey, og umfram allt hlýtur hann aö hafa veriö kunnugur hómilíu-bókum. I þessu bók- menntaumhverfi var einnig aö finna bækur eins og t.d. Rímbeyglu og Physlologus, bækur þar sem forn spásagnafræöi og fornegypzk náttúrufræöi voru tekin upp í kirkjulega þjónustu. Maöurinn sem heilsar konungsbræörum og erkibiskupi svo kurteislega í Kristkirkju 1153 er afkomandi Egils Skallagrímssonar: Hann hefur varöveitt gömlu skáldaheföina, en í nýtt andlegt umhverfi sækir hann myndina sem er nógu áhrifamikil til þess aö sameina gamalt og nýtt: Ólaf. I Ólafs- mynd Einars Skúlasonar ummyndast saga og samtíö jöfnum höndum og hefur staðið stööugt og faliö í sér mátt til aö lifa langt fram á lúterska öld. Sighwatur fra ek at segdi soknbradr konungs daadir spurt hefir awlld at orti. Ottar vm gram drottar. Þeir hafa þeingil Mæra þui er syst frama lystann helgum lyt ek er hetu hofuöskaalld fira jofri. („Geisli“, 12. vers.) „Geisli" er ekki án fyrirmynda, hvorki sem norrænt helgikvæði eöa Ólafskvæöi. Elzti vitnisburöur um helgikvæði í Norræn- um bókmenntum er ágrip eftir Eilíf Guörún- arson í Snorra-Eddu: Kristur er þar kallaö- ur Rómar-konungurinn, og situr viö Urðar- brunn. Skömmu áöur en „Geisli" varð tll,. orti rómverskur riddari, „Plácitusar“- drápu, sem er um heiðinn rómverskan riddara, Plácitus aö nafni sem mætir hirti meö lýsandi kross milli hornanna. Hér um bil frá sama tíma og „Geisli" er líka „Lelö- arvísan", sem ræöir um sunnudaginn, og lýSir því hve mikla þýðingu sunnudagurinn hefur haft í öllum stærstu viðburöum heimsins. En „Geisli“ er ekki einungis elzta helgi- kvæöiö sem varöveizt hefur óstytt, þaö er fyrst og fremst áhugavert fyrir þaö aö vera Ólafs-kvæði. Einar Skúlason nefnir sjálfur Sighvat skáld og Óttar svarta, báðir voru þeir hiröskáld hjá Ólafi Haraldssyni, og báöir ortu þeir kvæöi um konunginn meö- an hann var á lífi — Óttar lagöi beinlínis líf sitt aö veöi. Sighvatur orti þar aö auki erfi- drápu um konunginn um þaö bil áratug eftir orrustuna á Stiklarstööum, þar sem konungurinn helgi kemur fram. Eldri en erfidrápa Sighvats er samt „Glælognskviöa“ eftir Þórarin Loftungu, ort fáum árum eftir fall konungs. Þaö er æriö þverstæöukennt aö drápan er í lofkvæöa- stíl og til mótherja Ólafs, Sveins Alfífusonar Danakonungs. Þar biöur skáldiö konung Dana aö aöhyllast dýrkun Ólafs helga. „Glælognskviða" er elzti bókmenntalegi vitnisburðurinn um aö Ólafur er helgur haldinn: Þar fáum viö aö heyra aö hann var ekki raunverulega dauöur þegar hann var lagöur í gröf. Enn vaxa hár og neglur á honum, í kirkjunni hringja klukkurnar sér sjálfar og Ijós kvikna af sjálfu sér. Þar aö auki komumst viö aö raun um aö fatlaðir og blindir staulast og þreifa sig áfram til þess aö leita lækninga hjá helgikónginum. í „Erfidrápu“ fáum viö ennfremur aö heyra af hálfu Sighvats skálds — meö greinilegri bendingu til Golgata — um sólmyrkvann sem á aö hafa átt sér staö á Stiklarstööum meðan á orrustunni stóö. En allt eru þetta undanfarar. í „Geisla“ er þaö mynd Ólafs er drottna skal um norrænar miöaldir og fengiö hefur fyllingu: Kraftaverkamaöurinn, sem læknar þá sem líða, himinriddarinn, hinn eilífi konungur og löggjafi — og ekki hvaö sízt: spegill Krists. „Geisli“ eða Ólafsdrápa, hefur dregiö nafn sitt frá fyrsta og sjöunda versi, þar sem Ólafur er kallaður „gunnöflugur geisli“ — vígdjarfur geisli — „miskunnar sólar“ — frá miskunnar sól (1. vers) og „alstyrkur geisli guös hallar" — reginstekrur geisli Guös hallar (7. vers). Þannig er þaö hinn himneski Ólafur sem veröur á vegi okkar, píslarvættiskonungurinn, sem er tekinn inn í her himnanna sem riddari Guös og fær allt sem han óskar frá „gram sólar“ — sólarkonunginum. Kvæöiö er drápa — 71 vers — undir dróttkveönum hætti meö stefi, konunglega bragarhættinum sem um leið er allra hátta erfiðastur. Kvæöiö er byggt upp meö seytján versa inngangi ásamt fyrsta stefversinu, þar sem skáldið snýr sér fyrst til heilagrar þrenning- ar og biöur um hjálp og segir frá því aö hann syngi Ólafi lofsöng. Ennfremur setur hann fram í stuttu máli frásögn af fæðingu Jesú, dauða og upprisu á þriöja degi. Hann heldur áfram aö segja frá hinum miklu andagáfum, sem mönnum eru gefnar, og aö kirkjan var sett á stofn. Ólafur er síðan leiddur inn sem dýrölegur sterkur geisli sem okkur öllum ber aö dýrka. Þá snýr skáldið sér beint aö konungsbræörunum þremur og biöur þá aö beina huga sínum aö þeim undrum sem gerzt hafi um Ólaf, eins býöur hann Jóni erkibiskupi aö hlýða á kvæðiö, hiö sama býöur hann „gildu fólki“, sem er í kirkju þennan dag og loks öllum Norðmönnum. Hann heldur áfram í stuttu máli aö ræða um jarðneskt líf Ólafs, Stikla- staðarorrustu og drauminn um himinstig- ann fyrir píslarvættisdauöann. Þá kemur miöhlutinn, 27 vers (níu af þeim svokallaöur stefjabálkur hver þrjú vers) sem fela í sér eiginlegt erindi Einars Skúlasonar meö kvæðinu: Þaö er ekki jaröneskt líf Ólafs sem hann vill skýra frá — þaö hafa þeir Sighvatur og Óttar gert — heldur lífi hans eftir dauðann, um hin mörgu og miklu jarteikn sem geröust — og hafa gerzt fyrir Ólaf. Það byrjar þegar meö sólmyrkvanum þegar konungurinn var ráö- inn af dögum og Ijósinu sem kviknaöi yfir líki konungs. Á eftir fara frásagnir um blindan mann sem fékk málið fyrir náð konungsins helga. Þaö er fariö meö okkur til Hlýrskógsheiöar (í Slésvík), þar sem hann veitir Magnúsi syni sínum hjálp, gegn Vindunum heiönu. Því næst kemur lýsing á orrustunni viö Öngulsey í írlandshafi, sem áöur hefur veriö talaö um, þá um danska konu þar sem brauöið breyttist í stein af því aö hún fór aö baka að kvöldi Ólafs- messu, ennfremur tvær nýjar kraftaverka- lækningar á tunguskornum mönnum. Einar snýr sér síðan aö byzanzka heiminum þar sem Ólafur veitir Væringjahirðinni liö í bardaga viö heiöingja. Undir lokin fáum við svo sagnir um jar- teikn sem nýlega höföu gerzt. Um prest einn sem haföi verið hart leikinn, en hafði verið læknaöur af Ólafs hreinu hönd af beinbrotum, skorinni tungu og augum sem stungin höföu veriö úr honum. Lík krafta- verkakonungsins hvílir hér í kirkjunni, í skrautskríni, segir Einar: En hann sem linar neyðina, „nú lifir hraustr af hæstri himna valldz þar er alldri faarskeröandi fyrda fridarsyn gledi tyniz". Þaö lætur undarlega í eyrum nútímales- enda aö undir lokin ber skáldiö beinlínis fram ósk um þokkalega borgun — í gulli — fyrir hiö snjalla kvæöi, en aö skáld geröu það var ekki svo fátítt á þessum dögum: Hann minnist „Sigurðar eldra“ (þ.e. Sigurö- ar Jórsalafara), sem Einar haföi áöur verið tengdur nánum böndum, minnist áhuga hans á góöri gullhringsgjöf. Þaö var ekki nema sanngjarnt að minna á þetta. Svo er aö minnsta kosti sagt, aö þegar skáldið lauk kvæöinu, hafi Niöarósdóm- kirkja fyllzt dýrlegum ilmi:- Þaö var helgi konungurinn sjálfur sem meö nýju jarteikni lét í Ijós aö hann kynni aö meta kvæðið. Sú Ólafsmynd sem okkur er gefin í „Geisla“ er alls ekki ótvíræö. Eitt af því sem kemur okkur skýrast fyrir sjónir er Ólafur sem spegill Krists. Þaö á t.d. viö um sól- myrkvann yfir Stiklarstöðum, sem áöur hefur verið komiö aö. Sighvatur skáld get- ur þess aö slíkur sólmyrkvi hafi átt sér stað, en Einar Skúlason fullyrðir þaö sem Sighvatur aöeins drepur á. — Hér er um hliðstæður aö ræöa: Ölafur og Kristur: eitt sinn áður týndist álfröðullinn bjartur: herra himins deyði, hlýt ég því aö mæla. Að hér er talaö um píslarsögu Krists sem færö er yfir á Ólaf, bendir glöggt til viðauka sem seinna hefur oröiö til. Stjörnufræö- ingar hafa sýnt fram á aö sólmyrkvinn varö ekki fyrr en 31. ágúst 1030. Þetta er einmitt það sem Olav Bö prófessor kallar „ekki stjarnfræðilegt, heldur sögulegt myrkur". „Geisli veröur til í sama andrúmslofti og dómkirkjan nýja. Og í dómkirkjunni, í húsa- gerðarlistinni, geta menn fundiö á þessum tíma samsvarandi hliöstæöu — Kristur- Ólafur — í hinum einkennilega átthyrningi þar sem geymdar voru jaröneskar leifar Ölafs. Enga fyrirmynd aö honum er aö finna nema í grafarkirkju Krists, Anastasíu, og lengra veröur varla gengiö að gera Ólaf aö norrænni Kristsmynd. En þaö var hér ekki aðeins um aö ræöa aö svipur Krists og saga væru færö yfir á Ólaf, það kom og úr annarri átt: frá gamla 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.