Lesbók Morgunblaðsins - 26.06.1982, Side 10
ista-
saftiið
á
Hótel
Holti
ólíkan svip á svona yrkisefni og aðrir
samtíma málarar. Myndin hefur verið
máluð 1945, en hún er búin að vera í
eigu Þorvalds í um 10 ár.
MHekla séð úr Þjórsárdal,
70x80, olíumálverk eftir
Kristínu Jónsdóttur. Enda
þótt ártal vanti, er auðséö
aö myndin er máluð fyrir Heklugosið
1947, þegar lögun fjallsins breyttist
nokkuð. í þessari ágætu mynd Kristín-
ar má sjá þaö fyrirbæri, sem á Suður-
landi er kallaö austantórur: Gulleit
birta viö sjóndeildarhring í austri, en
dimmt yfir landinu aö öðru leyti.
Röð frá konungskomunni
1907. Málað hefur m.a.
hirðmálari Friöriks 8. Carl
Locher, sem var afi Bodil
Begtrup sendiherra á Islandi og raun-
ar einnig prófessor við Akademíiö.
Hann þótti mála sjávarmyndir vel á
sínum tíma og var í fylgdarliði kon-
ungs 1907. Myndirnar eru allar af
skipum á siglingu við strendur íslands,
en þær eru ekki allar eftir Locher. Ein
er af Islandsfarinu Tyru og Öræfajökli
í baksýn, en á hinum er konungs-
skipið. Myndina af Tyru eignaðist Ein-
ar Benediktsson skáld og flutti hana til
íslands, en hinar eru keyptar í Kaup-
mannahöfn.
Á ganginum inn í matsalinn
eru tvær myndir, sem njóta
sín ekki alveg til fulls vegna
þrengsla, en eru engu að
síöur athyglisverö verk.
Reykjavíkurhöfn, 110x90, olíumál-
verk eftir Jón Þorleifsson, ekki ársett,
en frá þeim tíma um eöa uþpúr 1940,
þegar málarar uppgötvuðu, aö lífiö viö
höfnina var gott myndefni, t.d. Þor-
valdur Skúlason og Snorri Arinbjarn-
ar. I baksýn er Esjan. Myndin er mjög
áþekk ýmsum öörum, sem Jón geröi á
svipuðum tíma frá höfninni.
Bátar við bryggju, olíumálverk eftir
Finn Jónsson; einnig frá Reykjavíkur-
höfn. Finnur var ekki eins þaulsætinn
við höfnina og sumir aðrir, en hér hef-
ur hann séö seglbáta við bryggju.
Myndin er 120x90 cm, mjög gróft mál-
uð.
10
Nokkur hluti þeirra 65 teikninga — flestar af ákveönum mönnum — sem prýöa nýja barinn á Hótel Holti.