Lesbók Morgunblaðsins - 26.06.1982, Síða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 26.06.1982, Síða 13
Jafn í þriðja sæti: Chevrolet Camaro. Jafn í þriðja sæti: Pontiac Firebird. Jafn í þriðja sæti: Porsche 911/930. í sjöunda sæti: Ferrari 365. í áttunda sæti: Jaguar XJ6. Ferrari 3&5GTB4 Daytona t níunda sæti: Studebaker Starliner, árgerð 1953. í tíunda sæti: Lincoln Continental, árg. 1961. Jafn í tíunda: Lamborghini Countach. 1963—67 í þriðja sæti. Meðal gagnrýnenda féllu atkvæði þann- ig, að efstur varð Jaguar E-type, í öðru sæti Chevrolet Camaro Z28 og jafnir í þriðja sæti Studebaker Starliner frá 1953 og Cisitalia, lítið þekktur ítalskur bíll, sem Pinin- farina teiknaði og var framleiddur í skamman tíma á Italíu rétt eftir stríðið. Fyrirtækið lognaðist útaf 1949. En Cisitalia var talinn lista- verk og nokkur eintök eru til á söfnum, þar á meðal Museum of Modern Art í New York. Hver eru þá hin raunverulegu úrslit, þegar öllu er á botninn hvolft? Þau eru, að sigurvegarinn og handhafi titilsins „Fegursti bíll í heimi" samkvæmt þessari könn- un, er Jaguar E-týpan, sem fram; leidd var á árunum 1961—1967. í öðru sæti verður Cord 810 og jafn- ir í þriðja sæti: Ferrari 208, Chevrolet Camaro Z28 árg. 1970—81, Pontiac Fire- bird/TransAm, árg. 1970—81, og loks Porsche 911/930. í næstu sætum þar á efti koma Ferrari 365, Jaguar XJ6, Stude- baker Starliner frá 1953, Lincoln Continental frá 1961, Lamborgh- ini Countach og Cisitalia. Að sjálfsögðu fengu margir fleiri atkvæði. Þar á meðal voru sportbíllinn Mazda RX7, Jaguar XK 120, 1955—57-árgerðin af Thunderbird, 1963—67-árgerðirn- ar af Chevrolet Corvette, Merc- edes Benz 300 SL, sportbíllinn með vængjahurðunum, 1955-árgerðin af Chrysler 300, 1967-árgerðin af Cadillac Eldorado, Renault 5 (Le Car), Citroén DS 19 frá 1955 og Citroen CX, Aston Martin, enskur sportbíll, 1932-árgerðin af Ford V-8 Roadster, 1913-árgerðin af Ford, T-módeli, 1967-árgerðin af Buick Riviera og Buick Roadmast- er frá 1942 , Cobra 427, NSU R080 og 1936-árgerðin af Talbot Lago, svo einhverjir séu nefndir. Sigurvegarinn, Jaguar E-type, verðskuldar heiðurinn fyllilega enda er löngum til hans jafnað, svo og annarra Jaguar-tegunda, sem um árabil hafa verið meðal allra bezt teiknuðu bíla heimsins. E-týpan frá 1961—67 var sannur sportbíll, straumlínulagaður svo sem bezt gat orðið, en í þá dag var straumlínan ákvörðuð eftir aug- anu, en ekki samkvæmt vindstuðli eftir prófanir í vindgöngum. Það sem einkenndi þennan Jaguar um- fram allt, var þessi feiknarlanga og framhallandi vélarhlíf, enda hægt að fá 12 strokka vél, og tíðk- ast það enn hjá Jaguar. Það var og nýstárlegt á þessum rennilega Jaguar, að framljósin veittu enga mótstöðu, því þau voru innfelld og gler yfir eins og myndin ber með sér. Enda þótt ýmislegt misjafnt megi segja um brezkan bílaiðnað verður þó aldrei af Bretanum skafið, að hann hefur alla tíð framleitt frábæra bíla handa yfir- stéttinni sinni, hvort heldur það var Jaguar, Rover, Aston Martin, Lotus, Bentley eða Rolls Royce. Þegar Bretinn leggur sig allan fram og tækið má vera dýrt, eru ekki margir sem slá honum við. Jaguar hefur löngum verið í þess- um flokki og bíl eins og þann, sem valinn hefur verið sá fegursti í heimi, nefna Bretar gjarnan „a gentleman’s car“. Séntilmaðurinn hefur þá sportbíl af þessu tagi fyrir sjálfan sig og sína heittelsk- uðu, enda aðeins tvö sæti í bílnum og að sjálfsögðu skinnklædd. í mælaborðinu tíðkaðist — og tíðk- ast enn — að hafa hnotu — sént- ilmönnunum hefði orðið óglatt af öllu því plasti, sem nú tíðkast að Jafn í tíunda: Cisitalia, árg. 1947. hafa í bílum. E-týpan var fáanleg með venjulegu, hörðu þaki, en séntilmenn kusu þó öllu fremur blæjuna. Einn, sem skilaði áliti með atkvæði sínu, þótti hitta nagl- ann á höfuðið, þegar hann sagði: „Jaguarinn er svo fallegur, að maður gæti þvegið hann allan daginn.“ Cord 810 er sá einasti úr flokki gamalla bíla, sem kemst á blað, en nær líka öðru sæti og það verður að teljast athyglisvert, þegar um er að ræða bíl, sem aðeins var framleiddur um tveggja ára skeið. Það var árið 1935, að höfundur hans, bílateiknarinn Gordon Bue- hring fékk einkaleyfi á framhjóla- drifnum bíl. En þarna var of margt nýtt á ferðinni og hinir vélrænu kvillar voru svo margvís- legir, að 2500 bílar höfðu selzt, þegar verksmiðjan varð gjald- þrota 1937. Þetta var á miðjum kreppuárunum og erfitt um útveg- un á fjármagni. Fyrir fáeinum árum var sett á laggirnar verksmiðja í Bandaríkj- unum í því augnamiði að fram- leiða nákvæma stælingu á Cord, en tæknilega séð átti sá bíll að vera eins og aðrir nútímabílar. Ekki fara sögur af því, hvort þetta fyrirtæki hefur lánazt, en það sýn- ir, að Cord hefur lengi átt ítök og til hans hefur verið jafnað. Langt vélarhús borið saman við farþega- rými einkennir hann eins og Jagu- ar E-type og hjólin eru til muna stærri en tíðkast á bílum nú orðið. Það eru síðan þrír bílar af af- skaplega ólíkri gerð og Cord, sem hljóta jöfn stig og hafna í þriðja sæti. Allt eru það sportbílar; þar af einn „alvöru" sportbíll og kannski bezta verkfæri þeirrar tegundar, sem völ er á í heiminum: Ferrari 308 TSi. Þetta er mjög háþróaður hraðakstursbill, sem nær rétt um 300 km hámarks- hraða. Þetta er tveggja sæta bíll og vélinni er komið fyrir framan við afturhjólin. Þessi gerð var fyrst kynnt á bílasýningunni í París 1976 og höfundurinn er Pin- infarina yngri. Jafnir honum að atkvæðum urðu Chevrolet Camaro og Pontiac Firebird, ágætlega vel teiknaðir bílar, en fyrst og fremst í uppáhaldi í Ameríku og þá hjá bílaáhugamönnum, sem einmitt greið -atkvæði í könnun sem þess- ari.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.