Lesbók Morgunblaðsins - 01.10.1983, Blaðsíða 15
'
Vart voru VW-verksmiðjurnar komnar með glænýjan Polo á markaðinn,
þegar þessi talsvert frábrugðna og sportlega útfærsla birtist að auki.
Með þessu gullstykki; Opel-Patent-Motorwagen, 9 hö, fór Adam Opel af stað
haustið 1898. Síðan hafa verið framleiddir 20 milljón bflar af Opel-tegund og
halda verksmiðjurnar upp á það nú í sumar.
Sierra, arftaki Ford Taunus, hefur mikið af framtfð fólginni í sérstæðri
útlitshönnun og nýrri tækni.
trausts gera framleiðendurnir
ráð fyrir áframhaldandi vinæld-
um „þristsins“, og stefna að
framleiðslu 2,2 millj. eintaka af
þeim nýja. Kannski ekki svo
fjarstæðukennt takmark, því
þetta er vel hannaður bíll að
utan sem innan. Þessa dagana
nemur biðtími pantana á þess-
Skák
Margeir Pétursson
Einn af frumlegustu stór-
meisturum af ungu kynslóðinni
er tvímælalaust John Van der
Wiel, 23ja ára gamall Hollend-
ingur. Hann fer sjaldan troðnar
slóðir í byrjunum og flækjur eru
hans líf og yndi. Honum hefur
vegnað sérlega vel undanfarið
ár frá því hann náði sér í sinn
síðasta áfanga að stórmeistara-
titli á öflugu skákmóti í Novi
Sad í Júgóslavíu síöastliðið
haust. Það var greinilegt, að það
var ekkert endanlegt markmið
hjá Van der Wiel að verða stór-
meistari því síðan hefur hann
tekið þátt í mörgum öfiugum
mótum og þá jafnan staðið sig
mjög vel.
Nýjasta afrekið vann hann á
móti í Árhúsum í Danmörku
sem tölvufyrirtækið Luxtime
styrkti. Þar varð hann einn efst-
ur með sjö og hálfan vinning, af
ellefu mögulegum, á undan
mörgum þekktum skákmönnum.
Á Evrópumeistaramótinu í
Plovdiv í Búlgaríu tefldi hann á
þriðja borði fyrir Holland og
stóð sig með mikilli prýði þótt
um „bestseller" BMW-verk-
smiðjanna hálfu ári.
Sierra í stað Taunus
Nýjasta afurð Ford-verk-
smiðjanna, Ford Sierra, hefur
vakið mikla og verðskuldaða at-
hygli. Hér er um að ræða arf-
mótstaðan væri hörð, hlaut
fjóra vinninga af sjö möguleg-
um.
Þegar Van der Wiel nær sér á
strik teflir hann oft gullfallegar
sóknarskákir, eins og sjá má af
þeim tveimur dæmum sem hér
fylgja með. í fyrri skákinni á
hann í höggi við hinn kunna
enska skákrithöfund og stór-
meistara, Raymond Keen, á
mótinu í Árósum. Eftir að Eng-
lendingnum mistókst að átta sig
á byrjunartaflmennsku Van der
Wiels stóð ekki steinn yfir steini
í kóngsstöðu hans og hver fórnin
rak aðra.
í seinni skákinni, sem tefld
var á Evrópumótinu í Plovdiv,
var andstæðingur hans einn af
öflugustu stórmeisturum Ung-
verja, Gyula Sax. Þar hristi Van
der Wiel nýja og hugvitsama
áætlun fram úr erminni og
fylgdi svo fast eftir, að eftir
rúmlega tuttugu leiki blasir
mátið við Ungverjanum.
Helsti gallinn á skákstíl Van
der Wiels er sá, að hann á erfitt
með að verjast í lakari stöðum
þar sem engin sprell eru á
boðstólum. En aukin reynsla
kemur vafalaust til með að gera
hann þolinmóðari og þá verður
Jan Timman að fara að vara sig
ef hann ætlar að halda sæti sínu
taka Ford Taunus (eða Cortina),
sem var farinn að ganga sér
nokkuð til húðar. Umtalið sam
arftakinn hefur fengið, orsakast
jafnt af mjög sérstæðu útliti
hans, sem rómuðum aksturseig-
inleikum. Þeir þykja vera vel
yfir meðallagi fyrir fjölskyldu-
bíl. Af umsögnunum um hinn
nýja Sierra, sem var hannaður
algjörlega nýr frá grunni, má
helst ráða að Sierra hafi fátt
annað sameiginlegt með fyrir-
rennara sínum en það, að hafa
fjögur hjól til að fara allra
sinna ferða. En þá tækni notað-
ist reyndar forfaðir þeirra
beggja líka við á sínum tíma;
T-módelið. Almennt þykir hönn-
un Sierra hafa tekist mjög vel í
hvívetna, og það verður að segj-
ast að þessi bíll sem kemur
nokkuð spánskt fyrir sjónir til
að byrja með, vinnur á og verður
sem sterkasti skákmaður Hol-
lands.
Hvítt: Keene (England)
Svart: Van der Wiel (Hollandi)
Enski leikurinn
I. Rf3 — c5, 2. c4 — Rc6, 3. Rc3 —
g6.
Þetta afbrigði stendur höllum
fæti í fræðunum.
4. e3 — d6, 5. d4 — Bg7, 6. d5 —
Re5, 7. Rxe5.
Korchnoi lék 7. Rd2 gegn
Fischer á millisvæðamótinu í
Sousse 1967 og fékk heldur betra
tafl.
7. - Bx5, 8. Be2 - Rfi.
Svartur er óhræddur við að
missa biskupaparið eftir 9. f4?!
—Bxc3, 10. bxc3, því peðaveik-
leiki hvíts reyndist þó þungur á
metunum.
9. (H) — g5!?
Slíkur „dónaskapur" er dæmi-
gerður fyrir Van der Wiel.
Dreymir piltinn um að geta haf-
ið mátsókn gegn stórmeistara
strax í byrjuninni?
10. Bd3 — g4, 11. Khl?
Hvítur undirbýr að leika f2-f4
síðar, en það er röng áætlun í
stöðunni. 11. Khl er því hrein
tímaeyðsla.
II. - Hg8, 12. Bd2 — Kf8,13. f4?
Betra var 13. Dc2.
gxf3(framhjáhlaup) 14.gxf3.
14. — Bxh2!, 15. f4.
á einhvern hátt vinalegur þegar
fram í sækir.
Mercedes Benz 190
Mesta athyglin hefur þó
beinst að nýsköpun elstu bíla-
verksmiðju heims, sem af mörg-
um er einnig talin framleiða
bestu bíla heims; Daimler-Benz.
„Nýi Benzinn“, eins og hann er
gjarnan nefndur, er mikið rædd-
ur meðal bílaáhugamanna og
fær mikla og eins og búast mátti
við góða umfjöllun á síðum blað-
anna. Hver bílaframleiðandi
hefur á vissan hátt sína fram-
leiðslufílósófíu eða taktik; nokk-
uð markaðar línur sem farið er
eftir í framleiðslunni, og reynt
að höfða með því til ákveðins
kaupendahóps. Þessi fílósófía
Daimler-Benz lýsir sér í mjög
yfirvegaðri hágæða framleiðslu,
m.ö.o. að kaupandinn megi reiða
Hvítum yfirsást að 15. Kxh2?
er mætt með 15.. .Dd7 og mátar.
15. — Rg4, 16. Re4 — f6! 17. Hf3
— De8, 18. Dfl — Re5! 19. fxe5
— Dh5.
Hvítur er orðinn óverjandi
mát og örvæntingarfull manns-
fórn hans breytir þar engu um:
20. Rxf6 —exf6, 21. Hxf6+ —
Ke8, 22. De2 — Bg4, 23. Hf5 -
Dh3 og hvítur gafst upp.
Hvítt: Van der Wiel (Hollandi)
Svart: Sax (Ungverjalandi)
Sikileyjarvörn
1. e4 — c5, 2. Rf3 — d6, 3. d4 —
cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — g6,
Drekaafbrigðið, uppáhalds-
afbrigði Sax.
6. Be3 — Bg7, 7. f3 — Rc6, 8. Dd2
— 0-0, 9. 0-0-0 — Rxd4.
Á millisvæðamótinu í Moskvu
í fyrra lék Sax 9 — d5!? gegn
Van der Wiel, en eftir 10. exd5
— Rxd5, 11. Rxc6 - bxc6, 12.
Bd4 - e5,13. Bc5 - Be6,14. Re4
— Hb8, 15. c4 tókst honum ekki
að jafna taflið og um síðir tap-
aði hann skákinni.
10. Bxd4 — Be6, 11. Kbl — Dc7,
12. h4 - Hfc8, 13. h5 — Da5.
Baráttan er orðin mjög dæmi-
gerð fyrir drekaafbrigðið. Hvít-
ur sækir stíft á kóngsvæng og
svartur að sama skapi á drottn-
ingarvæng. Sá vinnur sem verð-
ur á undan að máta.
14. hxg6 — hxg6, 15. a3 — Hab8,
16. Bd3!
Áður hefur verið leikið 16.
Re2 eða 16. Bxf6 - Bxf6,17. Rd5
í þessari stöðu með það fyrir
augum að komast í heldur hag-
stæðara endatafl. En það er ekki
sig á, að það er aðeins um þaul-
reynda fyrsta flokks vöru að
ræða sem hann fær frá þeim.
„Við viljum ekki nota kúnnann
sem tilraunadýr," mátti ráða af
orðum eins forsvarsmanna
Daimler-Benz fyrir skömmu.
Kannski hefur manninum verið
hugsað til Audi með þessum
orðum, og ef til vill hefur honum
gramist ofurlítið árangur þeirra
á „aerodynamíska" sviðinu.
Hins vegar er það staðreynd, að
þýskir bílaframleiðendur og
fleiri taka í mörgum efnum nyð
af Daimler-Benz, leynt eða ljóst.
„Fyrst þeir þarna í Stuttgart
leyfa sér að gera svona, þá hljót-
um við einnig að mega það!“ er
hugsunin þar að baki.
Af framansögðu ætti að vera
orðið ljóst, af hverju það telst til
slíkra stórviðburða þegar
Daimler-Benz ákveður að koma
með nýtt módel á markað,
Mercedes Benz 190. Módel, sem
á sér engan fyrirrennara og er
því ekki arftaki nokkurrar
framleiðsluseríu. Nýi Benzinn er
talsvert minni um sig en aðrar
gerðir af Mercedes Benz, sem nú
eru framleiddar; telst til bíla i
millistærðarflokki. Eitt veiga-
mesta skilyrðið sem stjórn DB
setti fram þegar ákveðið var að
fara út í framleiðslu á mun létt-
ari og sparneytnari Benz, var að
það skyldi samt hvergi koma
niður á gæðum, þægindum,
aksturseiginleikum, öryggi eða
úrvali aukabúnaðar, miðað við
aðrar og stærri gerðir af
Merceds Benz. Það liggur í aug-
um uppi, að til þess að sameina
öll þessi atriði í talsvert minni
Framhald á bls. 16
háttur Van der Wiels að ein-
falda taflið, heldur þvert á móti
að flækja það.
16. — b5, 17. Dg5!
Sóknar- og varnarleikur í
senn, því svarta peðið á b5 er nú
orðið leppur.
17. — Dc7, 18. e5 — dxe5, 19.
Bxe5 — Dc5, 20. f4
Nú hótar hvítur einfaldlega
21. Bxb8.
Hb7
21. Bxg6! — fxg6, 22. Dxg6 — Bf7
Eða 22. - Hf8, 23. Hh7 -
Hf7, 24. Hd8+ og mátar.
23. Hh8+! og svartur gafst upp,
því eftir 23. — Kxh8, 24. Dxf7 er
hann varnarlaus gagnvart hót-
uninni 25. Hhl+.
Hver var svo að segja að það
væri ekki einfalt mál að tefla
skák? A.m.k. virðist Van der
Wiel fær um að tefla á svo
frumlegan og öflugan hátt að
jafnvel þrautreyndustu stór-
meistarar á borð við þá Keene
og Sax vita ekki hvaðan á þá
stendur veðrið strax í upphafi
skákar.
Van der Wiel ruglar
stórmeistarana í ríminu
15