Lesbók Morgunblaðsins - 22.10.1983, Side 2
Blómasölustúlkan í búningl hefðarkonu: Kagnheiður Steindórsdóttir fer með
hlutverk Elísu og mun birtast leikhúsgestum í þessum veglega kjól, en
myndina tók Páii A. Pálsson í Lystigarðinum á Akureyri.
Leikfélag Akureyrar frumsýnir söngleikinn My fair Lady í
leikhúsinu á Akureyri föstudaginn 21. október. Söngleikinn
sömdu þeir Lerner og Loewe eftir leikritinu Pygmalion eftir Bern-
ard Shaw. My fair Lady var frumsýnd á Broadway 1956 og hefur
síðan farið sigurför um allan heim. Hún var sýnd í Þjóðleikhús-
inu 1962 við miklar vinsældir, þar sem Vala Kristjánsdóttir og
Rúrik Haraldsson voru í aðalhlutverkunum.
My fair Lady er viðamesta verk, sem komið hefur á fjalirnar á
Akureyri. Með leikurum, dönsurum, hluta Passíukórsins og
hljómsveit Tónlistarskólans á Akureyri taka um 50 manns þátt í
sýningunni. Þórhildur Þorleifsdóttir leikstýrir og semur alla dansa
í sýningunni og Roar Kvam æfir og stjórnar tónlistinni. Búninga-
hönnuðurinn Una Coilins kemur frá Bretlandi, Jón Þórisson hann-
ar leikmyndina og Viðar Garðarson lýsinguna.
Efni leiksins er á þá lund að málvísindamaðurinn Henry Higg-
ins (Arnar Jónsson) veðjar um það við vin sinn Pickering ofursta
(Marinó Þorsteinsson) að á 6 mánuðum muni honum takast að
kenna blómasölustúlkunni Elísu (Ragnheiður Steindórsdóttir) að
tala óaðfinnanlega ensku og mannasiði, svo vel að hægt verði að
kynna hana sem hertogaynju á sendiráðsdansleik án þess að
nokkurn gruni uppruna hennar. Með söng og leik er síðan sögð
sagan um tildrög þessa veðmáls, dvöl Elísu á heimili Higgins og
togstreitu þeirra, og síðan árangur og eftirköst veðmálsins. Fjöl-
margir skemmtilegir karakterar koma við sögu úr skuggahverf-
um og hástétt Lundúnaborgar. í helstu hlutverkum öðrum eru
Þráinn Karlsson (Doolittle, faðir Elísu), Þórey Aðalsteinsdóttir (frú
Pearce, ráðskona Higgins), Sunna Borg (móðir Higgins og frú
Hopkins), Gestur E. Jónsson (Freddy og Jamie), Theodór Júlíusson
(Zoltan Karpathy og Harry) og fleiri.
Leikfélag Akureyrar mun sýna My fair Lady á þriðjudögum,
fimmtudögum, föstudögum, laugardögum og sunnudögum fram í
desember. Flugleiðir og ferðaskrifstofan Farandi verða með
pakkaferðir frá Reykjavík á sýninguna og hópar utan af landi fá
afslátt af miðaverði.
a
Akur-
eyri
Reynir Antonsson
Bernard Shaw
og rómantíkin
Grein í tilefni sýningar LA á My Fair Lady
í kringum miðbik þessarar
aldar voru gerðar í Bandaríkjun-
um allmargar tilraunir til þess
að endurlífga og endurskapa
hina vinsælu Vínaróperettu.
Söngleikurinn My Fair Lady er
vafalítið eitt þekktasta og best
heppnaða afsprengi þessara til-
rauna, en nú á haustmánuðum
mun Leikfélag Akureyrar ráðast
í það stórvirki, að ekki sé sagt
þrekvirki, að flytja Norðlending-
um og öðrum landsmönnum
þetta vinsæla leikhúsverk. Mun
þetta vera í fyrsta skipti sem
Broadwaysöngleikur er fluttur á
sviði norðan heiða. Höfundar
söngleiksins eru þeir félagarnir
Alan Jay Lerner, sem samdi
textann, og Frederick Loewe,
sem sá um tónlistina, en til gam-
ans má geta þess að tónlist þessi
komst nýverið í fréttirnar, því
það var einmitt hún sem áhang-
endur Glistrups hins danska
sungu þegar þeir fylgdu honum
til fangelsisins þar sem afplánar
dóm sinn fyrir skattsvik. Eins og
títt var um marga ameríska
söngleiki á þessum tíma, er My
Fair Lady byggt á eldra leikhús-
verki, að þessu sinni leikriti háð-
fuglsins breska G. Bernard
Shaw, Pygmalion, en það leikrit
nýtur enn talsverðra vinsælda
og er oftlega á fjölunum víða um
heim.
Drykkfelldur faðir
George Bernard Shaw fæddist í
Dublin á írlandi árið 1856, og
hann lést á Englandi háaldraður
árið 1950. Faðir hans var minni-
háttar embættismaður og drykk-
felldur með afbrigðum. Var hinum
unga Bernard aldrei um föður
sinn gefið af þessum sökum, en
sjálfur var hann alla ævi ofstæk-
isfullur bindindismaður bæði á
áfengi og tóbak, auk þess að vera
grænmetisæta. Vera kann að
fyrirmyndin að Alfred P. Doo-
little, föður Elisu í Pygmalion, sé
sótt til föður hans. Móðir Shaws
yfirgaf þá feðgana þegar hann var
á unga aldri og hélt til London, en
Bernard fylgdi á eftir árið 1876, en
svo virðist sem hann hafi ávallt
metið móður sína mikils, enda
mun hún hafa kennt honum frum-
atriði tónlistar og dráttlistar, og
yfirhöfuð að meta fagrar listir.
Fyrstu árin vann hann fyrir sér
sem tónlistar- og leiklistargagn-
rýnandi við ýmis blöð og var oft
hart í ári hjá honum. A þessum
árum hneigðist hann að sósíal-
isma og gerist félagi í Fabianfé-
laginu, sem var kunnur félags-
skapur sósíaldemókrata. Shaw
taldi sig alla ævi sósíalista, en það
fældi hann ekki frá því að lýsa
yfir aðdáun sinni á Mussolini og
Hitler, og tala máli bæði hins
menntaða einveldis og stjórnleys-
is. Ferill Shaws sem leikritahöf-
undar hófst árið 1894, og áður en
yfir lauk hafði hann sent frá sér
yfir fimmtíu leikrit. Meðal hinna
þekktustu eru: Vopn og maður
(1894), Candida (1895), Caesar og
Kleópatra (1898), Menn og ofur-
menni (1901—1903), og meistara-
verkið Heilög Jóhanna (1923). í
öllum þessum verkum fer saman
meitlaður stíll, leiftrandi háð, bit-
urleiki en jafnframt næmur skiln-
ingur á mannlegu eðli og mann-
legum örlögum. Samúðin er alltaf
með hinum undirokaða í samfé-
laginu, þó svo hann sé á stundum
sýndur í harla skoplegu ljósi mis-
kunnarlausrar kaldhæðni.
Pygmalion
Goðsögnin um Pygmalion og
Galateu hina fögru er upprunnin í
Grikklandi hinu forna, og síðar
tekin upp af skáldinu Ovid sem
stílfærir hana og færir nær sam-
tíð sinni. Þar er Pygmalion
myndhöggvari sem verður yfir sig
ástfanginn af einni af styttum sín-
um, svo ástfanginn að guðirnir
veita honum það að styttan gæðist
lífi. Þessa sögu tekur svo Bernard
Shaw upp á arma sína, lagar enn
til og færir til nútímans I leikriti
sínu Pygmalion sem frumsýnt var
í London árið 1913. Hér er Pyg-
malion prófessor nokkur í málvís-
indum, Henry Higgins að nafni.
Hans helsta ástríða .í lífinu er
hljóðfræði. Eitt sinn þegar hann
er að sinna þessari ástríðu sinni
fyrir utan Covent Garden-óperuna
rekst hann á blómasölustúlku
eina, Elisu að nafni, og af sam-
skiptum þeirra leiðir að hann
veðjar við vin sinn Pickering
ofursta um að hann geti gert þessa
stúlku að svo óviðjafnanlegri hefð-
arkonu á sex mánuðum, að hann
geti tekið hana með sér í veislu
2