Lesbók Morgunblaðsins - 22.10.1983, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 22.10.1983, Blaðsíða 11
Ég er engin hreyfíngamanneskja Hólmfríður Gunnarsdóttir ræðir við Solveigu Eggerz sem hefur skrifað doktorsritgerð um gagnrýni á konur í miðaldabókmenntum Sólveig Eggerz býr í smá- bænum Alexandríu nálægt Washington DC í Bandaríkj- unum. Hún er gift Allan Brownfeld, blaðamanni, fyrir- lesara og rithöfundi. Þau eiga þrjú börn á aldrinum 1—7ára. Sólveig hefur lokið doktors- prófi í bókmenntum, en árum saman hefur hún unnið við blaðamennsku. Hún hefur komið víða við íþeim efnum, skrifað viðtöl og greinar um margvísleg efni. Núna er ærið verkefni að ala upp börnin þrjú og annast heimilið, en öðru hvoru skrifar hún þó í vikublað, sem kemur út í AI- exandríu. Sólveig er dóttir Ingibjarg- ar Pálsdóttur og Pétur Egg- erz, sendiherra. Hún fæddist í Reykjavík, en fluttist tveggja ára með foreldrum sínum til Englands, þar sem fjölskyldan dvaldist í 5 ár. Eftir það bjuggu þau í 6 ár í Bandaríkj- unum, en þaðan fóru þau til Þýzkalands. Hún kom heim til sumar- dvalar hjá frændfólki, þegar hún var 14 ára. Eftir það ákvað hún að ganga í mennta- skóla heima á íslandi. „Kannski festi ég aldrei rætur í Þýzkalandi, “ segir hún. Sólveig var í MA í 2 vetur, en útskrifaðist stúdent frá MR árið 1963. Síðan fór hún íhá- skóla í Berlín og Bonn og lagði stund á stjórnmálafræði. Það- an (ór hún í háskóla í Kansas og stundaði nám í blaða- mennsku og alþjóðastjórnmál- um. Þá var hún komin með BA-próf í þessum fræðum. Næst lá leiðin til Washington, þar sem hún vann á blaði en stundaði jafnframt nám við Katólska háskólann þar í borg. Hún kenndi þýzku og þýzkar bókmenntir meðfram námi í bókmenntum við þenn- an skóla. Þar Iauk hún mast- ers-prófi, og þar varði hún fyrrnefnda doktorsritgerð 1981. Meðfram vinnunni við dokt- orsritgerðina hefur hún, eins og fyrr segir, eignast börn, kennt ritleikni (þ.e. kennt fólki að setja saman læsilegan texta), ritsmíði (composition), jafnframt því að hún hefur skrifað mikið fyrir blöð og tímarit. Nú sem stendur skrifa þau hjón m.a. fyrir tímarit, sem gefið er út af íhaldssömum blökkumönnum, sem berjast fyrir því, að svartir menn séu metnir á sömu vogarskálum og hvítir meðbræður þeirra. Þeir vilja ekki, að þeim sé hyglt vegna litarháttarins, heldur séu þeir látnir standa fyrir sínu tiljafns við aðra. Þeir vilja engin fríðindi til handa svörtum. Þeir segja, að það verði að horfast í augu við þau vandamál, sem við blasi í málum svertingja í Bandaríkj- unum. Fjölskyldan sé í upp- lausn, og uppeldið sé oft á tíð- um gatan. Þetta stefni í voða, og eina ráðið sé að láta hvern og einn standa fyrir sínu. Ritgerð Sólveigar fjallar um háð oggagnrýni á kvenfólk í þýzkum og enskum miðalda- bókmenntum. Þetta þótti mér forvitnilegt efni. Við settumst því út ígarð í sjaldséðri sumarsól fyrir austan fjall og spjölluðum um efni ritgerðarinnar. Sólveig segist vera nútíma- manneskja, sem leiti til miðaldabókmennta sér til af- þreyingar. — Skilningur á þeim málum, sem vefjast fyrir okkur í dag, eykst, ef litið er til lífs og lifnað- arhátta fyrir nokkur hundruð árum. Mannseðlið hefur lítið breytzt, þótt aðstæðurnar séu allt aðrar og hafi þróazt kven- fólki mjög í vil. Ritgerðin heitir Anti-Feminist Satire in German and English Literature of the Late Middle Ages (Ádeila á kon- ur í þýzkum og enskum bók- menntum á síðari miðöldum) og var varin við Catholic Univers- ity of America í Washington DC árið 1981. Helztu niðurstöður eru þess- ar: — Það hefur verið gert rokna grín að kvenfólki um aldaraðir. Sumt grínið er grátt, — annað í léttum dúr. Það fer eftir því, hver tilgangur höfundarins er. Ekkert af þessu tagi í miðalda- bókmenntum er frumlegt. T.d. ætlaði Rómverjinn Juven- al (47—130 e.Kr.) að gagnrýna rómverskt þjóðfélag, sem að hans dómi var orðið rotið og syndum spillt. Til þess notar hann hefðbundin orðatiltæki um græðgi, vergirni, stolt og ráðríki kvenfólks. I gamla daga, á gull- öld Rómaríkis, var kvenfólkið ekki svona slæmt og þjóðfélagið þá ekki heldur. Grófasta skrípamynd Juven- als er hin óseðjandi eiginkona Claudiusar keisara. Þessi „tigna hóra“ faldi höfuð sitt undir hettu og stalst að heiman, á meðan keisarinn svaf, til að sækja „daunill hóruhús". Þar „þjónaði hún heilum hersveitum óbreyttra Rómverja af óseðj- andi ástríðu". Hún var verri en atvinnuhór- ur, því að „hún svitnaði af losta löngu eftir að hinar næturdís- irnar voru farnar heim til sín, — algjörlega uppgefnar". Miðaldamenn sóttu mjög til Juvenals og annarra fornra höf- unda til þess að finna þessi hefðbundnu orðatiltæki um lesti kvenfólks. Gamla testamentið hefur einnig upp á ýmislegt skemmti- legt að bjóða í þessum dúr. T.d. er konum oft lýst í Orðskviðun- um á áhrifamikinn hátt. hinn vitri Salómon varaði karlmenn við lauslátum konum. „Því að hunangseimur drýpur af vörum lauslátrar konu,/ og gómur hennar er hálli en olía. En að síðustu er hún beiskari en malurt,/ beitt eins og tvíeggjað sverð." (Orðskv. 5:3—4). En allar konur fá ekki sömu útreið hjá Salómon. Þvi að „Væna konu, hver hlýtur hana?/ Hún er miklu meira virði en perlur. Hjarta manns hennar treystir henni,/ og ekki vantar að honum fénist". (Orðskv. 31:10-11). Með gagnrýninni á kvenfólkið er oft í raun og veru verið að vara karlmenn við lostanum innra með þeim sjálfum. Saló- mon, sem átti sjálfur margar konur, veit hvað hann syngur, þegar hann ráðleggur karl- mönnum að forðast kvenfólk, áður en þeir verða ástríðunni að bráð. „Getur nokkur borið svo eld í barmi sínum,/ að föt hans sviðni ekki?/ Eða getur nokkur gengið á glóðum/ án þess að brenna sig á fótunum?/ Svo fer þeim, sem hefir mök við konu náunga síns,/ enginn sá kemst klakk- laust af, sem hana snertir." (Orðskv. 6:27-29). Og Iéttúðarkonan er varasöm fyrir góðan dreng. „ ... hávær er hún og óhemju- leg/ fætur hennar tolla aldrei heima/ hún er ýmist á götunum eða torgunum/ og situr um menn á hverju horni.“ (Orðskv. 7: 11-12). Páll postuli greip til hinna fornu orðatiltækja varðandi kvenfólk og gæddi þau sérstök- um biturleika til að þjóna hags- munum kirkjunnar. Hann gagn- rýndi ekki kvenfólk vegna þess, að hann væri kvenhatari, eins og oft hefur verið sagt um hann, heldur til þess að fá sem flesta til að giftast ekki, svo að þeir gætu ótruflaðir útbreitt kristn- ina. í orðum Páls kemur fram undirstöðuatriði í allri alvar- legri ádeilu á kvenfólk. Þetta sama undirstöðuatriði kemur einnig fram í ritum Platós, — þ.e. að sálin og líkaminn eigi enga samleið. Þefr, sem full- nægja þörfum líkamans með SJÁJJÆSTU SÍÐU 11 Sólveig var hér á ferð í sumar og þá var þessi mynd tekin af henni og dóttur hennar.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.