Lesbók Morgunblaðsins - 22.10.1983, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 22.10.1983, Blaðsíða 9
ir Svein Þórarinsson og mynd eftir Höskuld Björnsson. Alveg frá menntaskólaárunum 1924— 30 hefur Sverrir fylgst með mál- verkasýningum á höfuðborg- arsvæðinu og málverkasafn þeirra hjóna spannar allt þetta tímabil, frá 1930 og fram á okkar dag. I safni Ingibjargar og Sverris er margur dýrgripurinn og að sjálfsögðu bæði erfitt og til- gangslaust að gera þar upp á milli. Myndir verða hverjum og einum misjafnlega minnisstæð- ar og eftir að hafa virt fyrir sér safnið nokkrum Sinnum er mér undrunarefni ennþá einu sinni, hvað þeir gömlu standa sig vel: Ásgrímur Jónsson og Jóhannes Kjarval. Mynd Ásgríms Vetrar- sólhvörf í Hafnarfirði frá því um 1930, hlýtur að teljast meðal öndvegisverka hans. Sú stemmn- ing, sem Ásgrímur nær að galdra fram í þessari mynd, verður minnisstæð. Tvö stór og mögnuð verk eftir Kjarval heyra til þessu safni og myndir eftir Karen Agnete Þórarinsson af þingeyskum sveitakonum eru mjög eftirminnilegar og sterkar. Að auki má nefna góð verk eftir Gunnlaug Blöndal, Flóka, Bene- dikt Gunnarsson, Jóhannes Jó- hannesson, Kjartan Guðjónsson, Eyjólf Eyfells, Guðmund frá Miðdal, Veturliða, Þorvald Skúl- ason, Nínu Tryggvadóttur, Sverri Haraldsson, Jón Stef- ánsson, Jón Engilberts, Júlíönu Sveinsdóttur, Jón Þorleifsson, Kristínu Jónsdóttur, Magnús Jónsson prófessor, Pétur Frið- rik, Sigurð Sigurðsson, Snorra Arinbjarnar, Svein Björnsson, Sigríði Björnsdóttur, Valtý Pétursson, Tryggva Magn- ússon, Ágúst Pedersen, Braga Ásgeirsson, Eirík Smith, Einar Hákonarson og Einar Baldvins- son. Ýmsir þeir sem eignast hafa myndverkasöfn, stór og smá, hafa látið þau orð falla, að fátt eða ekki neitt af jarðneskum eig- um þeirra jafnist á við myndirn- ar, sem oft hefur kostað tölu- verðar fórnir að eignast og orðið hafa svo að segja sál heimilisins. Það er mikil ákvörðun að gefa frá sér slíkt safn, en Sverrir kvaðst lengi hafa verið staðráð- inn í því, að láta safnið ekki sundrast. Alllangt er síðan sú hugmynd fæddist, að gefa Hafn- arfjarðarbæ safnið og á 75 ára afmæli bæjarins þótti gott tæki- færi til að kunngera hugmynd- ina og láta hana verða að veru- leika. í samkomulagi, sem gert var milli gefendanna og Hafnar- fjarðarbæjar af þessu tilefni eru ákvæði um, að myndunum megi ekki dreifa, t.d. í bæjarstofnanir eða annað. Þar er einnig gengið frá því, að Hafnarfjarðarbær skuli byggja við húsið að Strandgötu 34 samkvæmt teikn- ingum Ingimars H. Ingimars- sonar arkitekts, sem fyrir liggja, og til að gefa hugmynd um útlit hússins fylgir hér með útlits- teikning Ingimars af suðurhlið hússins. Eins og teikningin gefur hugmynd um, verður þetta veg- leg bygging og verðugur sama- staður fyrir safnið. Gjöf Ingibjargar og Sverris, málverkin sem verða kjarni og uppistaða í framtíðar listasafni Hafnarfjarðar, hafa nú verið al- menningi til sýnis í eina viku í sýningarsalnum Háholti. Sýn- ingin stendur framyfir þessa helgi. Gísli Sigurðsson Hjónin Ingibjörg Sigurjónsdóttir og Sverrir Magnússon lyfsali hafa gefið Hafnarfjarðarbæ 115 málverk eftirýmsa kunnustu listamenn þjóðarinnar og þar að auki húseign, sem verður framtíðarstaður safns- ins og menningarmiðstöð íHafnarfirði. Þorvaldur Skúlason: Frá myrkri til ljóss, 1969. Jóhannes Jóhannesson; Málverk. mmm Jóhann Briem: Hvítur hundur horfir á himininn, 1959. Kjartan Guðjónsson, Balinn, 1982. 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.