Lesbók Morgunblaðsins - 09.06.1984, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 09.06.1984, Blaðsíða 4
Sigrún Klara Hannesdóttir er lektor í bóka- safnsfræði við Háskóla íslands, en bókasafns- fræði er tiltölulega ný fræðigrein hér á landi. Kennsla í greininni hefur þó átt sér stað frá árinu 1956, en var eingöngu í höndum háskóla- bókavarðar og stundakennara til 1975 þeg- ar Sigrún Klara hlaut lektorsstöðuna. Hún hefur þvi átt sinn drjúga þátt í því að móta starfið innan þessarar greinar í Háskólanum. Kennarar eru nú tveir í fastri stöðu, stundakennarar 17, en nem- endur um 100 talsins. Það segir sitt um breytt viðhorf til fræðigreinarinnar og vaxandi þörf á fólki með þessa menntun að fyrir 10 árum stofnuðu bókasafnsfræð- ingar með sér félag. Þá voru félagar 13, en eru nú rúmlega 100 talsins og atvinnuleysi í greininni er óþekkt. Menntuninni í þessu fagi er skipt í þrjú stig. í fyrsta lagi er um að ræða eins árs nám og þá er bókasafnsfræðin tekin sem aukagrein, í öðru lagi: tveggja ára nám1 með öðru fagi og loks þriggja ára nám velji menn bókasafnsfræði sem sérgrein. Að- eins seinni valkostirnir tveir veita mönnum rétt til að kalla sig bókasafns- fræðinga. Þetta kom fram í upphafi samtals við Sigrúnu Klöru á dögunum, sem tvímæla- laust má telja brautryðjanda nýrra við- horfa gagnvart bókasafnsfræðum hérlend- is. Hún var beðin að rekja sinn feril og segja frá stöðu mála á þessu sviði nú. „Upphaflega var það hrein tilviljun að ég lenti á þessari braut,“ segir Sigrún Klara. „Á unglingsárunum hafði ég engan metnað til langskólanáms. Ég er frá Seyð- isfirði, var í unglingaskóla þar, í síld á sumrin og saltfiski, en var af slysni innrit- uð í landspróf á Éiðum og lét það gott heita. Eftir landsprófið fóru nokkrir nem- endur í Menntaskólann á Akureyri og ég barst með hópnum þangað. Eftir stúdentsprófið fór ég í ensku í Há- skólanum í þrjú ár, skipti svo yfir í ís- lensku en vantaði eitt stig til BA-prófs og tók þá bókasafnsfræðina sem aukagrein. Svo það er ekki af neinni hugsjón frá upp- hafi að ég starfa á þessu sviði. Að loknu háskólanámi hér 1967 fór ég til framhaldsnáms í bókasafnsfræðum til Bandaríkjanna. Ég fékk styrk í gegnum Fulbright-stofnunina hjá alþjóðlegum kvennasamtökum sem nefnast Delta Kappa Gamma og eru samtök kvenna í fræðslustörfum. Eftir námið vann ég eitt ár við upplýsingadeildina í háskólabóka- safni í Michigan. Ég varð óskaplega hrifin af öllu fyrirkomulaginu þar og fannst stórkostlegt hvað notendur fengu mikla þjónustu. Menn sem leituðu til safnsins fengu leiðbeiningar og svör við bókstaflega öllum spurningum sem hægt er að veita um bækur og úr bókum, og til þess var ætlast af starfsfólkinu að það gæti veitt þessa þjónustu. GATAN Gekk í Bylgjum Og Rifnaði Eftir ársdvöl þar fór ég til Perú á vegum Bank of Inter American Development með það verkefni að endurskipuleggja háskóla- bókasafnið í Trujillo, sem er önnur stærsta borg í Perú. Trujillo er um 500 km frá höfuðborginni Lima og þar eru um 200 þúsund íbúar. Ég dvaldist þar um tíma áður en ég skyldi hefja störf og lærði spænsku held ég á mettíma. En þetta fór allt á annan veg en ætlað var. Ég átti að mæta til vinnu 1. júní, en 31. maí varð Átökin gleymast þegar hjólin fara að snúast segir SIGRÚN KLARA HANNES- DÓTTIR lektor í bóka- safnsfræði við Háskóla íslands í samtali við Huldu Valtýsdóttur 4

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.