Lesbók Morgunblaðsins - 09.06.1984, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 09.06.1984, Blaðsíða 13
Ford Ghia APV, sem er byggöur á grunni Ford Escort Turnier, samræmist nokkuð vel hugmyndum um frít/ma- og ferðabíl framtíðarinnar. Sennilega verður þessi bíll þó aldrei neitt annað en skemmtileg „stúdía“. í buahönnun EFTIR JÓN B. ÞORBJÖRNSSON Þetta nýstárlega „egg“ frá Opel heitir Junior, hannað með ungt fólk í huga. grunni ekki stærri bíls en Ford Escort. En því miður verður aðeins um þessa útfærslu á athyglisverðri hugmynd að ræða, a.m.k. fyrst um sinn. Það er ekki ætlunin að setja þennan Allrahanda í framleiðslu í núver- andi mynd og óvíst hvort nokkurntímann verður. Rétt einu sinni hafa Japanir verið fyrstir á ferðinni með að gera góða hug- mynd að veruleika; vel vakandi fyrir möguleikum á nýjum mörkuðum fyrir bílaframleiðslu sína. NÝJUNGAR Frá Opel Og ford Núna á síðustu mánuðum hafa tveir þýskir bílaframleiðendur stigið athyglis- verð skref í þróunarátt hvað framtíð borg- arbílsins snertir, þótt ennþá vanti mikið á að bílarnir séu orðnir innan við 2,5 m að lengd. A bílasýningunni í Frankfurt síðasta haust kynnti Opel útfærslu sína á hug- mynd um bíl, sniðinn eftir þörfum ungs fóiks. í samræmi við það fékk þessi skemmtilega hannaða frumgerð (Proto- typ) nafnið „Junior“. Til nýjunga í sam- bandi við innanstokksmuni þessa fram- úrstefnulega Opel-eggs, má nefna að flest tæki í mælaborði, — þ.á m. klukka með innbyggðum vekjara og rakvél — eru úr færanlegum einingum, sem má skipta um og raða að vild. Hvað heildarlengdina varðar er Junior þó engan veginn tíma- mótamarkandi; hún er 3,41 m. Öðru máli gegnir um glænýja „stúdíu" frá Volkswagen sem er af svipuðum toga spunnin. Sú ber nafnið „Student", og gefur það nokkuð til kynna fyrir hvaða kaup- endahóp þessi útfærsla yrði sniðin, ef um fjöldaframleiðslu væri að ræða. Student er ekki nema 3,13 metra langur (stuttur), það er aðeins skóhornið Austin Mini með sína 3,05 metra sem nær að slá honum við. Jafnvel smæstu bílar Japana eins og Suz- uki Alto og Honda Jazz, sem hefur 3,39 metra heildarlengd, vantar talsvert uppá til þess að geta boðið 4 persónum pláss á jafn litlum fleti. Auk þess er formhönnun „stúdentsins" eilítið fágaðri en gerist hjá japönskum smábílum í dag. Það á ekki síður við um Junior, enda hafa báðir þessir bílar bogadreginna lína lágan vindstuðul, eða um 0,30. Reyndar er Student aðallega hugsaður sem sæmilega sprettharður smábíll með gott rými fyrir tvo, hentugur í borgarum- ferð. Með honum má helst merkja þróun- ina til borgarbíls framtíðarinnar; þróun sem aðstandendur hans mættu vera ánægðir með þar sem almenningur virðist vera það. Því ætti ekkert að vera til fyrir- stöðu með að hefja framleiðslu á bílum eins og Student og Junior, nema kannski verðið? — jb. Junior býr yfír nokkrum bráðsmellnum og óvenjulegum hugmyndum, svo sem klukku með vekjara og rakvél í mælaborði og inn- I byggðum svefnpoka í stað púða í framsætum. Tveir námsmenn af sviði bílaútlitshönnunar (Auto-Design) við Fagháskólann í Miinchen hjá teikningum sínum af framtíðarbílum fyrir borgarumferð. Volkswagen Student er skemmtilega hannaður og bráðlipur „borgarbílT‘, aðeins 3,13 metrar að lengd. LESBÖK MORGUNBLAOSINS 9. JÚNÍ1984 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.