Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1984, Síða 5
Öflin tvö: Yin og Yang
Ikínverskri heimspeki og trúarbrögðum er talað um öflin tvö yin og
yang. Yin einkennir það sem dökkt er, neikvætt og kvenlegt, en
Yang það sem er jákvætt, ljóst og karlmannlegt. Samkvæmt þess-
ari heimspeki hefur samspil þessara afla áhrif á örlög lifandi vera
og hluta. Þeir sem neyta langlífisfæðu (macrobiotic diet) taka margir
mjög mið af þessum öflum, enda hægt að flokka flest undir annaðhvort
yin eða yang.
Eftirfarandi hefur yin-eiginleika: myrkur, kuldi, vatn, raki, mýkt, mót-
tækilegur, þiggjandi, grænmeti, blár, grænn, purpurarauður, sætur, súr,
kryddaður, léttur, vex að sumarlagi, útþenjandi, stór.
Yang-eiginleikar eru m.a.: Ljós, hiti, þurr, harður, gerandi, skapandi,
dýr, gulur, rauður, appelsínugulur, saltur, bitur, vex að vetrarlagi, smár,
dregst saman, þungur.
Af þessu má sjá að kalda loftslagið á íslandi er yin, og þar sem stefnt
er að jafnvægi í þessari lífsspeki er best að neyta þess sem hefur
eiginleika yang svo sem kornmetis og fisks, gulróta, og rótargrænmetis
yfirleitt.
Hér kennir margra grasa: Tóta rið afgreiðslu í búðinni Fríðu frænku.
Frá teppasýningu, sem Tóta héit í Nýlistasafninu.
Fróðleiksmolar
af borði langlífinga
Of mikil saltneysla hefur í för með sér harðlífi og sársauka.
Sömu sögu er að segja um ofneyslu vökva.
Heilsuhraustur maður er mjög viðkvæmur. í Bandaríkjun-
um kitlar aðeins einn af hverjum tíu.
Hefðbundin kveðja Japana er að hneigja sig eins og gras á akri. Á
Vesturlöndum tökumst við í hendur: Við erum kjötaétur.
Kjötætur eru útskeifar, þeir sem lifa á jurtafæði innskeifir.
Mikið sælgætisát deyfir kynhvötina.
Allir vöðvar líkamans taka þátt í að tyggja.
Tyggðu mat þinn vel, mjög vel, og þú munt njóta himnaríkis á jörðu.
Kjötætur verða nærsýnar, en ávaxta- og grænmetisætur fjærsýnar.
Borðið ferskan lífrænan mat, en ekki dósamat, litaðan mat eða mat sem
er efnabættur. Best er að borða þann mat sem vex í sama loftslagi og þú
býrð í sjálfur. Drekkið ekki kaffi, pakkate, gosdrykki. Drekkið ekki með
mat, heldur í smásopum að máltíð lokinni.
lifa því, ég sá engan tilgang í lífinu nema
helst hjá gömlu fólki, og ég hafði ekki þá
frekar en nú áhuga á því að safna sófasett-
um. Ég bað til Guðs að eiginmaður minn
yrði ekki sjómaður. Það var fyrst í öræfa-
sveitinni, en þar var ég í sveit nokkur sum-
ur, að ég kynntist fólki sem var eðlilegt í
sínu umhverfi, en það var meira en hægt
var að segja um Siglfirðinga. Svo kynntist
ég Tomma 1 Menntaskólanum á Akureyri
— fyrst fannst mér hann bölvaður mont-
hani sem ég vildi ekkert með hafa að gera
... en svo kom Jonni í heiminn og nokkr-
um árum síðar vorum við búin að kaupa
okkur litla íbúð við Vitastíginn í Reykja-
vík. Tvö börn eiginlega með barn upp á
arminn og meðan Tommi var að ákveða
hvað hann vildi gera við líf sitt, fann ég að
við vorum að festast í brauðstritinu og ég
hafði aldrei ætlað mér að kafna í því svo
mikið var ég fegin þegar við fórum til
Englands að læra. Við tókum Jonna með
okkur og á Englandi fæddist Rut. Þá var
stundum þröngt í búi hjá smáfuglunum í
útlandinu, kjötið dýrt, og fiskurinn dýrari
en kjötið, en hins vegar ágætis grænmet-
ismarkaður í Leichester þar sem við vor-
um.
— Eruð þið þá einfaldlega grænmetisæt-
ur?
Tommi: Nei, við borðum langlífisfæðu
(Macrobiotic diet). Sumir hafa litið þessa
fæðu hornauga og talið hana stundartísku-
fyrirbrigði sem hippar fluttu til Vestur-
landa frá Japan, en sannleikurinn er sá að
maðurinn hefur neytt þessarar fæðu í ár-
þúsundir í öllum álfum heims. Einkunnar-
orð þessarar fæðu er jafnvægi. Kornmeti
er undirstaða hennar og síðan þær afurðir
náttúrunnar sem vaxa og dafna óspilltar í
næsta umhverfi manns hverju sinni. Það
má kalla þá sem neyta þessarar fæðu lang-
lífinga. Langlífingur er sá sem leitast við
að skynja bæði hvernig líkami hans starf-
ar og lífrænt umhverfi sitt og öðlast þann-
ig sátt við veröldina. Vegna þess að fæðan
sem hann neytir á mestan þátt í því hver
hann er, neytir hann langlífisfæðu til að
ná jafnvægi í lífi sínu og til að njóta hvers-
dagslegra atburða betur.
Sá sem fyrstur kynnti langlífisfæðu
fyrir Vesturlandabúum Georges Ohsawa.
Þegar hann var á táningsaldri tjáðu vest-
rænir læknar honum að hann ætti aðeins
fáeina mánuði eftir ólifaða vegna berkla á
háu stigi og blæðandi magasárs. Honum
þótti illt að una þessum úrskurði, sökkti
sér niður í ævafornar austurlenskar lækn-
ingabækur og kynntist þar lögmálum yin
og yang um sameiningu andstæðna og
læknaði sjálfan sig á skömmum tíma.
Georges dó 74 ára árið 1965 og var þá
orðinn víðfrægur sem helsti talsmaður
langlífisfæðu. Nú eru reknir langlífismat-
sölustaðir víða um veröld, og ganga vel.
— Var Á NÆSTU GRÖSUM, sem þið rák-
uð, ekki slíkur staður?
Tóta: Jú, en rekstrargrundvöllurinn var
ekki fyrir hendi. Svona matreiðsla má
aldrei verða færibandavinna. Við sem að
þessu stóðum, bökuðum okkar eigin brauð
og ætluðum okkur að hafa fyrsta flokks
rétti — því ekki má kasta höndunum til
neins í þessari matreiðslu. En dæmið gekk
ekki upp í þetta sinn.
Tommi: Það hefur ekki verið okkur
minni skóli að iðka þetta mataræði en mitt
háskólanám í Bretlandi var mér. Þó eru
þetta alls engin trúarbrögð heldur sveigj-
anlegur lífsstíll. Hér gilda engin boð eða
bönn, menn geta lagt sér það til munns
sem þeir vilja en þeir verða að gera sér
grein fyrir því hvaða orka það er sem held-
ur manni gangandi, og hvaða fæði það er
sem hefur jákvæð áhrif á heill líkama og
sálar. Eins og kom fram áðan er vitundin
um jafnvægi í náttúrunni grundvöllurinn
að hugsun langlífinga. Þegar maður er far-
inn að skynja samspil yin og yang í sjálf-
um sér og fæðu sinni fer maður að sjá
þetta jafnvægi allstaðar í kringum sig í
hringrás náttúrunnar. Þetta jafnvægi lík-
ama og sálar gerir það að verkum að mað-
ur verður fær um að horfast í augu við
hvað sem er án þess að láta það raska ró
sinni. Ég tala nú ekki um hvað þetta hefur
haft góð áhrif á fjölskyldulífið, ekki síst
börnin, en Rut og Ári, þau tvö yngstu, eru
alin upp á svona fæðu frá því að þau fædd-
ust.
— Hvaða mat eiga þá íslendingar að
borða til að ná þessari ró hugans?
Tóta: Við þurfum að borða eftir árstíð-
um. Undirstaðan i okkar mat eru hýðis-
hrísgrjón allan ársins hring, en svo borð-
um við fisk og grænmeti bæði ferskt á
sumrin og haustin og þurrkað á veturna.
Við borðum lífræna fæðu, en borðum ekki
mikið af kælandi vatnsmiklum mat eins og
ávöxtum. Þeir henta betur þeim sem búa á
hlýrri svæðum jarðar, enda vaxa þeir þar.
ísland gefur af sér feikinóg af afurðum
sem eru hollar og hæfa okkur vel.
Þrjár
uppskriftir
frá Tomma
og Tótu
Tftl * 1
Blomkals-
súpa fyrir 8
2 litlar gulrætur
1 laukur
1 kg blómkál
Vi bolli heilhveiti
2 matsk. kornolía fyrir hveiti.
1 matsk. kornolía fyrir grænmetið
1 lítri sjóðandi Vatn
Steikið laukinn fyrst á pönnu og
síðan grænmetið við háan hita.
Hrærið í á meðan. Ristið hveitið í
feitinni þar til það er gullið. Setjið
grænmetið út í sjóðandi vatnið og
síðan hveitið og eldið í einn
klukkutíma yfir mjög lágum hita.
Sumarsalat
3 litlir laukar
2 stangir sellerí
2 stórar gulrætur
5 hvítkálsblöð
1 næpa eða rófa
2 epli
1 egg
250 grömm af fínt söxuðum fíflablöðum
4 stór salatblöð
skreytið salatið með spírum
Sósan
5 matsk. ólífuolía
3 tsk. hafsalt
safí úr einni appelsínu
Saxið laukana og selleríið smátt, skerið
gulræturnar fínt niður og gufusjóðið i 2
mínútur. Skerið næpuna í smáa bita og
stráið salti yfir. Látið hana liggja í 10
mínútur og þurrkið siðan. Skerið eplin
í þunnar sneiðar og saltið lítillega.
Harðsjóðið eggið. Blandið olíuna með
saltinu og safanum úr appelsínunni.
Öllu grænmetinu er nú blandað saman
og það skreytt með blaðsalatinu, eplinu
og spírunum. Þetta er heil máltíð fyrir
fjóra.
Tempura
Djúpsteikt
grænmeti,
fiskur og
skelfiskur
Deigið
1 bolli heilhveiti
1 V* bolli vatn
XA tsk. salt
1 egg (má sleppa)
Fiskinn og grænmetið má setja í plast-
poka og hrista með deiginu svo það festist
á. Feitin er hituð og fískurinn og græn-
metið sett í. Steikið stutt og borðið strax.
Ljúffengt með nýsoðnu grænmeti.
Eftirréttur
1 epli á mann
Skerið toppinn af eplinu og kjarnann
burt. Fyllið með rúsínum. Bætið ögn af
kanel við og tamari (sojasósa sem fæst
í Kornmarkaðnum) og bakið við lágan
hita í 1 Vfe tíma. (Má vera 4 tíma). Berið
fram með ögn af þeyttum rjóma.
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 27. OKTÖBER 1984 5