Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1984, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1984, Blaðsíða 12
Kannski kemur fátt á óvart nú orðið — ekki einu sinni í heimsreisu austur á Bali. En jafnvel kaupmað- ur úr vesturbænum getur orðið dálítið undrandi, þeg- ar honum er umsvifalaust boðið barn til kaups. Barn fyrir ollar Guðlaugur Guðmundsson kaupmaður og böfundur greinarinnar ásamt Zopbaníasi Zopbaníassyni austur á Baii. Fjóröa heimsreisa Útsýn- ar hófst 6. nóvember 1983 og lauk þann 24. sama mánaðar. Fariö var til austurlanda fjær. Það var löng ferð og skemmtileg, sem skilur eftir sig minningu og myndir, sem seint gleymast. Vegalengdin sem farin var mun hafa verið milli 30 og 40 þúsund km og fargjaldið eftir því verið innan við 2 krónur á km. Alls var lent 16 sinnum á leiðinni. Það var víða komið við. Og vissulega erum við ferðafé- lagar þakklátir fyrir að hafa upplifað öll þau ævintýr sem fyrir augu bar í ferð þessari. Alls voru 130 manns með í för, þar af 4 fararstjórar. Við í þessum stóra hóp, vorum úr öllum stéttum hins íslenska þjóðfélags. Bændur, verkamenn, kaupsýslumenn og eftirlauna- menn. Fólk, sem hefur unnið hörðum höndum, krafist meira af sjálfum sér, en minna af öðr- um. Lengstan tímann dvaldi hóp- urinn í Bali í Indónesíu eða um 10 daga alls. Við bjuggum á Hót- el Nusa Dua Beach, það var nýtt. Byggt af 3 þúsund manns á þremur árum. Móttakan á þessu hóteli var stórkostleg í ljósa- dýrð, dansi og söng, og mundum við vilja lýsa henni þannig. Það voru þreyttir heimsreisu- farar Útsýnar sem þann 8.11. 1983 gengu að upplýstum dyrum hótels Nusa Dua Beach eftir 11 V2 tíma ferð frá Bangkok í Thai- landi, um Singapore Djakarta til Bali. í forsal hallarinnar lék ljósa- dýrð og víðfeðmi, sem enga veggi né þak virtist eiga, þó fylltist þessi heimur himneskum tónum, er hreif sál manns til hærri hæða og úr fjarlægð komu fram verur, sem tóku á sig mynd ■ kvenna, með æskuroða í kinnum. 'í fasi og hreyfingum eggjandi að uppsprettu lífsins. Þær fögnuðu okkur með blómaregni og opn- uðu hliðin á höllinni. Þetta var eins og ævintýri eða draumur æskumanns, sem byggir hallir er koma og fara. Við heims- reisufarar gengum óþreyttir inn um hallarhliðin. í hugum okkar íslendinga var Bali paradís á jörðu, fögur og gjöful. Fólkið fallegt og elsku- legt, virtist þó ekki hafa neitt af því sem þróuð þjóðfélög hafa EFTIR GUÐLAUG GUÐMUNDSSON Karlar og konur baða sig, en kynin eru aðskilin. upp á að bjóða. Það lifir víðast á því sem landið gefur. Byggingarsamþykkt Bali segir svo að hús fólksins megi ekki vera hærri en hæstu tré, þar af leiðir að hugur og hönd manns- ins brýtur ekki lögmál náttúr- unnar. Trúarskoðanir Bali-búa eru gjörólíkar okkar trú og menn- ingu. Þeir eru að meirihluta hindúar. Trúa líka á anda, bæði góða sem illa, og færa þeim dag- lega fórnir í til þess gerðum andahúsum, mjög skrautlegum. Barni má ekki klappa á höfuðið. Höfuðið er bústaður sálarinnar og hreinleikans og höndin sem margt snertir má þar engu spilla né óhreinka. Bali-búar eru félagslyndir, allt þeirra daglega líf snýst um trúna og að yrkja jörðina. Ekki . Listiðnaðarmaður á Bali beldur hlutnum með fótunum, en heggur gripinn með höndunum. Kristleifur á Húsafelli atbugar uppskeru á hrísgrjónaakri. er þar um vélvæðingu að ræða, heldur er sigðin og höndin það afl sem hreyfir hlutina. Hrís- grjónin eru lífsmáttur fólksins, jafnt að sjá í þéttbýli og dreif- býli. Lífskjör fólksins virðast samt misjöfn og býr í því sjálfu. Orka mannsins er misjöfn þar eins og annars staðar. Við fórum nokkr- ar stuttar ferðir um Bali. Lengsta ferðin var upp til fjalla, þar var veglegur heiðingjastaður á hæð mikilli. Fagurt útsýni var í kring yfir álitleg fjöll. Eldfjall eitt mikið var að sjá í eina átt- ina, það hafði síðast gosið 1963. Rauð hrauntunga frá því klauf skógarþykknið, langt niður fyrir rætur þess. Mannabústaðir með smá ökrum voru allt í kring, enda dalurinn frjósamur. Lengst inni í botni hans var stöðuvatn, blágrátt að lit, minnti okkur á Öskjuvatnið heima. Já, þarna var fallegt, tignarlegt, milt og litríkt land. Á heimleið ókum við þvert yfir fallegan djúpan dal, á rann eftir honum. Hlíðar hans voru brattar og á fagurlega hlöðnum stöllum er gengu þvert á brekkuna, hver upp af öðrum; þar uxu hrísgrjón. Og í ánni mátti sjá stóra hópa fólks baða sig, flest skýlulaust, en kynin aðskilin með nokkurri fjarlægð, þar þvoðu konur líka þvott sinn og breiddu síðan til þerris á jörðina. Fólkið virtist svo rólegt og yfirvegað, enginn var að flýta sér. Næst var stanzað við hof eitt mikið og fornt; þar var eins og annars staðar á ferðamanna- stöðum fullt af sölufólki allt frá börnum upp í gamalmenni. Þetta fólk seldi allskonar varning, úr tré, járni og klæði og teppi, allt handunnið, og sumt meistara- lega vel gert. Vanalega fékk maður hlutinn fyrir helming þess verðs sem hann var boðinn á í upphafi. Við Zophanías Zoph- aníasson settumst á bekk undir laufríku tré, sem skýldi manni fyrir sólarhitanum. Að okkur streymdi sölufólk sem við bönd- uðum frá okkur. En svo kom stúlka með lítinn dreng í fangi, fallegan og hraustlegan. Hún var á að giska 15 ára og drengur- inn um tveggja ára. Stúlkan bauð okkur barnið til kaups á einn dollara. Við spurðum hvort hún væri móðir drengsins. Já, svarði hún og bætti við „kaupið hann“ og um leið rétti hún barn- ið til okkar og vildi fá einn doll- ar. Við vikum okkur undan, vild- um ekki láta reyna á það hvort henni væri alvara. Það gat verið óþægilegt að standa uppi með barn á þessum slóðum. Við gáfum stúlkunni engu að síður einn dollar og það fór fal- legt bros um varir hennar og augun lýstu þakklæti. En at- burður þessi líður ekki úr minni, og vekur upp spurningar. Að lokum þetta. Þó maður hafi séð þetta land og þessa þjóð á hvítu tjaldi, þá er það aðeins skugginn af því, sem augu manns sjálfs nema. Við sjáum ekki eftir þeim krónum sem fóru í þessa heimsreisuferð. Hún skil- ur eftir nýtt viðhorf til lífs og gæða. Og Ingólfi Guðbrandssyni og starfsliði hans er hér með þakkað fyrir gott skipulag.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.