Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1984, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1984, Blaðsíða 9
Garðurinn rið Listasafn Einars Jónssonar eftir að bann rar endurskipaður og komið fyrir íbonum 25 afsteypum úr eir. Aþessu ári eru liðin 30 ár frá því Einar Jónsson lézt. Óhætt mun samt að slá því föstu, að hann sé jafn ástsæll listamaður með þjóðinni og hann var þá; jafnvel hugs- anlegt að hann eigi fleiri aðdáendur. Höggmyndir Einars Jónssonar eru ekki lengur innilokaðar í alltof miklum þrengsl- um Hnitbjarga. 25 þeirra hafa verið steyptar í eir og fengið glæsilegan samastað í garðinum við lista- safnið — og við það er eins og safnið innan dyra hafi stækkað. Höggmyndalistin i heiminum hafði svo til alfarið runnið í farveg formdýrkunar um langt árabil. Táknrænt innihald og skáldskapur átti ekki uppá pallborðið og var yfirleitt afgreitt með mikilli óbilgirni sem glataðar fortíðarleifar. En allt gengur í hringi í tilverunni; hreinn og klár formalismi hefur gengið yfir og myndhöggvarar hafa sem aðrir myndlistarmenn farið að leita sér að nýj- um gildum. Listamenn koma ævinlega aft- ur og aftur að manninum sjálfum sem myndefni — aðeins á nýjan hátt. Uppá síðkastið hef ég orðið þess var margsinnis, að verk Einars Jónssonar höfða ákaflega sterkt til ungs fólks; það á varla orð til að lýsa hrifningu sinni, enda er mörgu ungu fólki ýmislegt betur gefið en tjá sig með orðum. En þar að auki á Einar ótrúlega sterk ítök í þeirri kynslóð, sem var honum að einhverju leyti samtíða. Það hefur kom- ið berlega í ljós af þeim viðtökum, sem afsteypur af frummyndum Einars hafa fengið. Sjálfur ætlaði ég að eignast Öldu aldanna, þegar hún var steypt fyrir nokkr- um árum, og þóttist fara tímanlega í Hnit- björg, þar sem afgreiða átti myndina. En þegar ég sá að biðröðin var að minnsta kosti 200 metrar, gafst ég upp og hvarf frá öllu saman. Síðan hafa verið gerðar afsteypur af þremur frummyndum Einars og allar hafa þær runnið út: öreigar komu næst á eftir Öldu aldanna, þá Konungurinn í Thule og loks Fæðing sálarinnar. í októberbyrjun kemur enn ein á almennan markað: Ung móðir frá 1905, frekar lítið þekkt mynd, en falleg í látleysi sínu og með svipaðri raunsæisútfærslu og Öreigar. Upplagið hefur verið 50—200 og hver mynd númer- uð. Af Ungri móður verða steypt 250 ein- tök, en verðið er ekki ennþá ákveðið. 25 VERK í GARÐINUM Breytingar og endurbætur hafa nú átt sér stað á Safni Einars Jónssonar og hefur verið staðið að þeim með verðugum mynd- arbrag, svo safnið er nú mun betra og nær Það er eins og Aida aldanna fagni frelsinu og teygi sig til bimins. Þetta er aðeins efsti bluti myndarinnar. Síbreytilegt sólarljósið gefur myndunum nýtt líf. í ríkari mæli þeim tilgangi sínum að kynna verk Einars sem bezt. Jafnframt hefur orðið til stórkostlega fallegur höggmyndagarður, þar sem einungis var lokaður trjágarður áður. Þar standa nú 25 verk Einars steypt í eir og hægt að ganga í kringum þau og njóta þeirra með þeim hætti sem telja verður nauðsynlegt, þegar um höggmyndir er að ræða. Segja má, að mörg þessara verka sjáist nú í alveg nýju ’ljósi — og ljósið er einmitt lykilorð hér: Þegar sólin skin og gengur sinn daglega gang, breytast skuggarnir í myndunum sí- fellt og gefa þeim nýjar og nýjar áherzlur. LESBOK MORGUNBLAÐSINS 27. OKT0BER 1984 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.