Lesbók Morgunblaðsins - 17.11.1984, Side 14
Vélin er að framan þótt ótrúlegt megi virðast. En hún rar bönnuð uppá nýtt til að geta náð þessu lagi á bílinn.
Skutlan er einn af tímamótabílunum í ár, sem sýna alveg nýja hugmynd um
útfærslu og er trúlegt að hún fái verulega útbreiðslu. Breytingin felst í
stórauknu innra rými.
Skutlan er enginn smáræðis flutningabíll, þótt bann sé aðeins tæpir 4
metrar á lengd.
hestafla vél, sem ekki er stærri
en saumavél og að sjálfsögðu
þverstæð. Þessi vél er mikill
kostagripur; svo sparneytin, að
eyðslan er samkvæmt Revue
Automobile 6—9 lítrar á hundr-
aðið. Viðbragðið er samt mjög
gott, á að giska 11 sek. í hundr-
aðið og hámarkshraðinn er 160
km á klst. Skutlan er þar að auki
framúrskarandi lipur í snúning-
um og liggur vel á vegi. Öll
stjórntæki eru eins þægileg og
framast verður á kosið.
Þegar inn er litið blasir við, að
heildarrýmið er ekki minna en í
amerískum skutbíl af stærstu
gerð. En nýting þess er margfalt
betri og hér hafa Japanir sann-
ariega lagzt undir feld og hugsað
málið. Bíllinn er fimm dyra og
hurðin á afturendanum er stór
og opnast upp. Ekki hefur verið
hægt að sameina í aftursæti
fyllstu þægindi og þá hreyfi-
möguleika, sem þar eru. ÞEir
möguleikar gera það nauðsyn-
legt að bak og seta aftursætisins
séu með bólstrun í þynnra lagi
og sætið verður því fremur hart
viðkomu. Framsætin eru allt
öðruvísi útfærð og í alla staði
góð.
Það er lyginni líkast, hvað
hreyfimöguleikarnir að innan
eru margvíslegir. Hægt er að
leggja framsætisbökin aftur, en
fletja úr aftursætinu, þannig að
samfellt rými myndist og þá er
Skutlan rúmgóð til að sofa í
henni. Með einkar hugvitssam-
legum búnaði er einnig hægt að
legt notagildi að innan. Það er
búið að sýna og sanna, m.a. með
bílum eins og Honda Shuttle, að
hægt er að finna góða málamiðl-
un: Bíl sem vinnur vel, eyðir
samt litlu og hefur rými til að
flytja 12 heybagga uppí hesthús,
ef því er að skipta. Bíll sem þú
getur flutt í stóran borðstofu-
skáp, eða sofið í, en telst samt
samkvæmt lengdarreglunni í
flokki smábíla. Það er næstum
ótrúlegt.
Eins og allir nýju bílarnir frá
Honda er Skutlan afburða vel
teiknuð og ekki ólíklegt að tölu-
vert mið verði tekið af þessu út-
liti í bílaiðnaði á næstunni. Af
smáatriðum sem auka notagildið
má nefna, að varadekkið er
talsvert minna en dekkin undir
bílnum og því er ekki ætlað
meira hlutverk en að koma bíln-
um á næsta verkstæði. En vegna
þess hve lítið fer fyrir því, hefur
verið hægt að koma fyrir skúffu
til að hafa í smáfarangur undir
gólfinu aftast. Og önnur
geymsluskúffa er undir sæti að
framan.
Skutluna er hægt að fá með
sóllúgu á þaki; einnig er völ á
Hondamatic-sjálfskiptingu, eða
5 gíra kassa. Óg að sjálfsögðu er
drifið á framhjólunum. Hvað
kosta svo þessi herlegheit? Sam-
kvæmt nýjustu verðskrá er verð-
ið á Skutlunni með 5 gíra út-
færslunni kr. 375 þúsund að
viðbættri ryðvörn og skrán-
ingarkostnaði.
GÍSU SIGUKÐSSON
breyta aftursætinu á ýmsan hátt
og fá t.d. slétt gólf frá framsæt-
um og afturúr, — eða haga þvi
þannig til, að þar sé sæti fyrir
einn farþega.
Það var deginum ljósara á
bílasýningunni í vor, að Skutlan
var framúrstefnulegasti bíllinn,
sem þar var sýndur. Hér er án
efa einn af bílum framtíðarinnar
kominn á götuna: Hann sýnir og
sannar, að Japanir eru hættir að
gá til annarra eftir fyrirmynd-
um til að stæla eins og þeir
gerðu löngum. Þeir eru að ýmsu
leyti í fararbroddi; urðu t.d.
fyrstir til að bjóða fólksbíla með
drif á öllum hjólum fyrir skikk-
anlegt verð (Toyota Tercel og
Subaru). Það liggur i loftinu, að
Skutlan verði komin með drif á
öllum að skömmum tíma liðnum;
eiginlega er sú lausn það eina
sem vantar uppá að þessi bíll
hafi allt til brunns að bera.
Eitt af því sem einkennir
Skutluna er, að ökumaður situr
hátt, — maður sezt upp í sætið
og það er feikilega góð tilfinning
að ekki sé nú talað um þá yfir-
sýn, sem þessi lausn veitir.
Alvöru sportbílar eru yfirleitt
með sætið niðri í gólfi og þessir
stælar hafa stundum verið tekn-
ir upp í svokallaða sportlega
fólksbíla. Toyota var t.d. með
fallega teiknaðan bíl á bílasýn-
ingunni, sportútfærslu af Cor-
olla. Þegar sezt var í framsætið,
var mælaborðið komið upp í
aúgnahæð. Til hvers? Ekki eykur
það öryggið að minnsta kosti. Á
bílasýningu í Design Center í
London í vor mátti sjá, að þessi
Iausn er á undanhaldi á sama
hátt og það þykir ekki boðlegt
lengur að bjóða einungis ytri
stæla, en lítilfjörlegt rými og lé-
Myndirnar sýna þrjá möguleika á þrí að leggja sætin niður. Ef búa þarf
út svefnstað, eru öll sætin lögð niður.
Honda Shuttle
Með skutlunni hefur
Honda gerst þátt-
takandi í nýsköp-
un, sem fram hefur
komið á þessu ári og sjá mátti
t.d. á bílasýningunni hér í vor.
Þessi nýsköpun hefúr einkum og
sér í lagi birzt í tveimur jap-
önskum bílum, Honda Shuttle og
Mitsubishi Space Wagon, sem
áður hefur verið skrifað um í
Lesbók. Hér er á ferð alger upp-
stokkun á hugmyndinni um nýt-
ingu og án efa framtíðarlausn.
Reynt hefur verið að kalla þessa
útfærslu rýmisbíla á íslenzku, en
fremur er það vandræðaleg þýð-
ing og er hérmeð lýst eftir betri
nafngift.
Þessa útfærslu á Hondunni
liggur hinsvegar beint við að
kalla Skutlu, samanber geim-
skutlu. Það liggur í orðinu, að
skutla er ekki stórgripur, en lip-
ur og fljót í ferðum. Það sem
fljótt á litið sýnist athyglisverð-
ast er, að hér er búinn til stór
bíll úr venjulegri Hondu, sem er
aðeins 3,99 m á lengd — fáeinum
sm lengri en Honda Civic
þriggja dyra, en aðeins styttri en
fjögurra dyra útfærslan, sem
nefnd er Ballade. Hæðin á venju-
legum Honda Civic er 134 sm, en
148 sm á Skutlunni og í því felst
munurinn meðal annars. Vélar-
lokið virðist nú svo stutt og
niðurhallandi, að naumast er
hægt að búast við því að vélin sé
þar, heldur aftur í. En svo er
ekki. Honda hefur þróað fjög-
urra strokka, 1488 rúmsm, 85
vita þeir s
ótt vestur-íslenska
skáldið Káinn sé fræg-
astur fyrir gamanvísur
sínar og drykkjuljóð
• sem kunnugir eru ljóða-
gerð hans, að hann átti marga og
ólíka strengi á hörpu sinni. Hér
eru nokkur sýnishorn:
1.
Gaman er að gleðja fólk
á gömlu tungu Braga,
hún hefur verið móðurmjólk
mín um lífsins daga.
2.
íslensk freyja björt á brá
bið ég Ijóð mín geymi,
fegra meyja úrval á
engin þjóð í heimi.
3.
Lausnarinn blíður lífs um ár
lini sorg og pínu,
ef heims í stríði svöðusár
svella í hjarta þínu.
4.
Lánið blíða lið þér sitt
leggi stundir allar,
dyggðin prýði dagfar þitt,
uns drottinn burt þig kailar.
5.
Hreina ást og hjartans yl
hefi ég ekki að bjóða,
en allt sem skást er í mér til
áttu, barnið góða.
6.
Undur falleg, frjáls og góð,
af fljóðum öllum ber hún,
dóttir Elli, ung og rjóð,
Æska kölluð var hún.
Káinn var fæddur í Eyjafirði,
en fór ungur til vesturheims og
átti aldrei afturkvæmt. Hann
hét fullu nafni Kristján Níels
Jónsson f. 1860, d. 1936. Kviðl-
ingar hans komu út þegar hann
var sextugur 1920, önnur útgáfa
í Reykjavík 1945, úrval 1965.
Undarlega oft kemur það fyrir
í daglegu lífi að við erum minnt
á vísur eftir skáld og hagyrð-
inga, vísur, sem við höfum
ósjálfrátt lært, þegar við heyrð-
um þær eða rákumst á þær í
fyrsta sinn. Svo er um þessa
gömlu stöku Sigurðar Breið-
fjörð:
Þegar ég geng og hengi haus,
menn halda það skáidadrauma.
En þá er ég svo þankalaus
sem þorskurinn lepur strauma.
Þessi er gömul og um höfund-
inn veit ég ekki:
Listugt blaka laufín fríð,
þar landið fagurt er,
sólin skín á sumartíð.
Sælan fylgi þér.
Staðarhóls-Páll orti:
Hjá mér leiði ég stolt og stríð,
steypir sjálfum heift og níð,
svo er mér létt um lífið mitt,
lofa, guð drottinn, frelsi þitt.
Skáld-Rósa orti:
Langt er síðan sá ég hann,
sannlega fríður var hann,
allt sem prýða mátti einn mann,
mest af lýðum bar hann.
Uppörfandi bréf höfum vér
fengið frá sjálfum allsherjargoð-
anum Sveinbirni Beinteinssyni á
Draghálsi og skipar hann oss í
sveit með betri vísnamönnum
hvað smekkvísi snertir. Yfir
slíkum viðurkenningarorðum er
varla hægt að þegja. Bestu þakk-
ir. Smávegis aðfinnslum sting-
um við aftur á móti undir stól,
enda kalla þær á málalengingar.
Vísa var með í bréfinu og sver
hún sig í góða ætt í goðorði
Sveinbjarnar, og óþarft að nefna
höfundinn. Hún er svona og ný-
ort:
Hún, sem þó af hreinni náð
heldur fyrir mér vöku,
minnir á, ef að er gáð,
ófullgerða stöku.
Bréfinu lýkur allsherjargoð-
inn svo með annarri stöku, sem
minnir á að fleiri lystisemdir en
til er höfðað í þeirri fyrri þykja
sjálfsagðar hjá Ásatrúar-
mönnum:
Lífíð hefur hliðar tvær,
héöan sé ég báðar þær,
yfir hugann ókyrrð slær
ölið, sem ég drakk í gær.
J.GJ.