Lesbók Morgunblaðsins - 20.04.1985, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 20.04.1985, Blaðsíða 2
ERLENDAR Æ K U R C. Anne Wilson: Food and Drink in Britain From the Stone Age to Rec- ent Times. Penguin Books 1984. Á marga vegu er matur til- reiddur. A þessum hamborgara- og skyndibitatímum er því fróð- legt að kynna sér ögn eða þá bet- ur, eins og vel er hægt að gera á síðum þessarar bókar, þróun matreiðslu og matar almennt. Þegar mannkynið hafði aflagt að mestu grasát og snúið sér að kjötmeti var þess í fyrstunni neytt eins og það kom af skepn- unni, hrátt, blóðugt og volgt. Seinna fóru menn svo að þurrka ketið og fiskinn reyndar líka, en einhver uppáfinningasamur, eða máski fyrsti skyndibitapostul- inn, hengdi mat sinn hjá eldi og þar með var upp runnin reyk- ingaöldin. Urðu menn harla glaðir við og í stað þess að snæða þránað kjöt, þúsundlitt og trú- lega ólystugt, gátu þeir geymt sér góða bita um nokkra hríð. Salt kom til sögunnar upp úr því, pækill og ís þar á eftir og áður en Napóleon fór í austurveg að berja á Rússum var niðursuðu- tæknin komin af stað. Og svo geyma menn mat og borða og þykir sjálfsagt að drekka með. Á Bretlandi drukku menn fyrst í stað ekki annað en vatn, þá mjólk og jafnvel áður sötrað vín sem gert var með því að blanda saman og geyma hunang í vatni. Síðan tóku þeir að brugga bjór og almennileg vín eins og marg- ar þjóðir aðrar. Og nú geta breskir keypt sér fish and chips og kollu af öli í matarhléum og þurfa ekki að hafa svo miklar áhyggjur af geymslu og tilbún- ingi matar. Þessi bók er góður förunautur eða sessunautur í eldhúsi. MUTERMUFE&ÖIHERCU! i.UNIíX í robekt HENÐRmm QC tan&touMaá > * MomttMMM 'Kwítim • IM H> NSt*Oj> .PMIOWMIW'SWOT <W»IS.*fWS, a.víi, 1 «0KtU ' uuns wiitwc ! wjwrwft »U« MinERMB5f&*0jI Robert Hendrickson: The Literary Life and Other Curiosities. Penguin Books 1983. William Faulkner sagði ein- hverju sinni: Ef rithöfundur neyðist til að ræna móður sína, þá hikar hann ekki; „Gríska skrautkerið" er dýrmætara en allar gamlar kerlingar." Ibsen hafði hangandi yfir skrifborði sínu mynd af Strind- berg. „Hann er óvinur minn og þarna skal hann hanga og horfa á mig meðan ég skrifa." Kipling var mikið fyrir golf. Hann fann upp vetrargolf með því að mála golfkúiuna rauða svo hún sæist í snjónum. Ezra Pound var snjall í jújútsú, ein- hverju sinni varpaði hann Rob- ert Frost yfir öxl sína á virðu- legum matsölustað. Þetta og ótalmargt annað gefst hverjum sem opnar þessa undarlegu bók, „The Literary Life and Other Curiosities", tækifæri að lesa um. Hver til- gangurinn með riti sem þessu er skiptir máski ekki nokkru máli. Lesandi hlýtur að skemmta sér yfir einu eða öðru og fær vitan- lega vitneskju um ýmislegt sem hann grunaði ekki fyrir. Robert Hendrickson, sem safnað hefur í þetta rit, er sjálf- ur rithöfundur og hefur sent frá sér ótal bækur. Þessi er upp á 400 síður og er hún lýst með mörgum teikningum sem safnað hefur Barbara Knight. DENTON WELCH A VOICE THROUGH ACLOUD Denton Welch: A Voice Through a Cloud. Penguin Books 1983. Denton Welch fæddist í Kína 1915. Þar og á Englandi ólst hann upp og gekk í venjulega skóla en þegar hann var kominn á unglingsaldur og settur til frekari mennta undi hann hag sínum þar illa og strauk en var komið í Listaskóla innan skamms. Þegar hann stóð á tví- tugu lenti hann í slysi sem olli því að hann gat ekki á heilum sér tekið líkamlega upp frá því. Eftir langa vist á sjúkrahúsum og hjúkrunarstofnunum leigði hann sér hús í Tonebridge og fór að sýsla við skriftir og malerí. Síðustu árin bjó hann með kunn- ingja sínum, Eric Oliver. Welch lést árið 1933, aðeins 33 ára að aldri. Bækur hans eru nokkrar og frægastur er hann fyrir Maiden Voyage, ferðabók um Kína, og svo þá sem hér er sagt frá. A Voice Through a Cloud hefst á því að tvítugur skólapiltur, sem er sögumaður, stigur á bak reiðhjóli sínu í London, það er hvítasunna og hann hyggst eyða fríinu hjá frænda sínum í Surr- ey. Ekki hefur hann farið langan veg þegar á hann er ekið og hann raknar við á spítala, illa farinn og getur ekki með nokkru móti hrært fætur sína. Hann á erfitt með að sætta sig við orðinn hlut og lýsir bókin á mjög svo nær- færinn máta sorgum og einsemd þessa fatlaða manns sem má þola pínur miklar í einangrun spítalans. Dauðinn er honum ofarlega í huga en að lokum sigr- ar lífið. Eftir langa legu er hann fær um að flytja í eigið hús. Þótt þessi bók sé titluð skáld- saga er ekki um það að villast að hún er í aðra röndina sjálfsævi- saga höfundar. Hún er ófuilgerð, Welch vann að samningu hennar um það leyti sem hann lést, en þrátt fyrir það er hún perla. Guðbrandur Siglaugsson Tók Saman Giinter Grass er listfengur á fleira en orð: Sjáifsmynd með konu, 1982. Onnur hliðá listgáfu skáldsins Rithöfundurinn Giinter Grass sem myndhöggvari og snillingur í Iaugum allra þeirra millj- óna manna, sem lesið hafa verk hans á þýsku, ensku, íslensku eða spænsku, auk fjölmargra annarra tungumála, er Gúnter Grass örugglega þekktastur sem höfundur „Tintrommunnar", rismikillar epískrar skáldsögu um stjórn- arfar þýskra þjóðernissósíalista á valdatíma Hitlers á árunum 1933—1945, en rás atburðanna er skýrð frá sjónarmiði dvergs nokkurs. Þau ritverk sem Gúnt- er Grass hefur síðar látið frá sér fara — þar á meðal sjö skáldsög- ur, sex leikrit og allmargar ljóðabækur — hafa skapað hon- um þvílíkt frægðarorð sem rit- höfundur, að hann hefur um ára- bil verið álitinn einna líklegast- ur til að hljóta bókmenntaverð- laun Nóbels. En það eru vart margir á með- al lesenda Grass, sem hafa feng- ið pata af því, að þarna er líka á ferðinni góður myndlistarmað- ur, en hann hóf listnám sitt skömmu eftir lok seinni heims- styrjaldarinnar. í fyrstu vann hann að gerð lágmynda og út- flúrs á legsteina, en hóf síðar reglulegt nám í höggmyndalist og teikningu við myndlistarskóla í Dússeldorf og í Vestur-Berlin. Núna, þegar 25 ár eru liðin frá því að „Tintromman" kom fyrst út, hefur einmitt verkum frá öðru sviði í listsköpun Gúnters Grass verið safnað saman á fyrstu yfirlitssýningu á mynd- verkum hans, sem nýlega var opnuð í Darmstadt. Þar getur að líta 80 ætingar frá hans hendi, 43 lithografíur, 96 teikningar og 27 höggmyndir og skúlptúra. Efni þeirra myndverka sem á sýningunni eru endurspegla á pennateikningum ýmsan hátt þau bókmenntalegu viðfangsefni, sem Gúnter Grass hefur löngum fjallað um og spunnið söguþráð sinn úr — það er að segja nunnur og hænsni, fiskar og sniglar, matsveinar og múmíur — sem jafnan hafa gengið ljósum logum um sögu- svið rithöfundarins. En mynd- irnar á sýningu Grass bera jafn- framt vitni um listsköpun, er stendur föstum fótum í þeirri þýsku myndlistarhefð, sem Al- brecht Dúrer hóf á sínum tíma upp á hátind listrænnar snilldar. Það var einmitt Dúrer, sem með ódauðlegri list sinni hefur fært sönnur á, að það er fátt mark- vert í heimi hér, sem ekki reyn- ist unnt að leiða mönnum fyrir sjónir á pappírnum í svörtu og hvítu og gráum skyggingum. Gúnter Grass segir raunar líka, að hann kjósi fremur að beita þeirri tækni sem svartlistin býð- ur upp á heldur en að mála með oliulitum. Ástæðuna segir hann Giinter Grass við myndmót- un í vinnustofu sinni. vera þá, að „það eru gráu tón- arnir, sem bregða blæ sínum á og skyggja raunveruleika vorra tíma — eða gera þennan raun- veruleika gagnsæjan". Þeir gagnrýnendur, sem látið hafa í ljós álit sitt á sýningunni í Darmstadt, telja pennateikn- ingar Grass á engan hátt síðri að listrænum innblæstri en bók- menntaverk hans. Sjálfur segist Grass alls ekki líta á þessar tvær listgreinar sem einhver gjör- samlega aðskilin svið. Teikn- ingarnar, segir Grass, verði sér að leiðarljósi við að nota „færri orð“, þegar hann sé að semja skáldverk; Ijóðið bendi honum sem myndlistarmanni á, hvernig „lesa á á milli línanna". Gestir á myndlistarsýningu í Darmstadt sem leiða augum leirmyndina „Bakkar", eiga þar með að geta öðlast innsýn í skáldsögu þá, sem rithöfundur- inn er með í smíðum og hljóta mun titilinn „Rottan". Skáld- saga þessi á að fjalla um lífið í hinu tvískipta Þýskalandi á fyrsta áratugnum eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar. í sögunni má búast við að aðalpersónan í „Tintrommunni", Oskar Matzer- ath, skjóti aftur upp kollinum. Þótt það skjóti ef til vill skökku við að þurfa að fara á myndlistarsýningu til þess að fá einhvern pata af efnisþræði væntanlegrar skáldsögu, þá finnst Gúnter Grass sjálfum það ekki fela í sér neina mótsögn: »Ég er stöðugt að draga upp myndir — jafnvel þótt ég sé ekki að teikna — af þvi að þá er ég að skrifa."

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.