Lesbók Morgunblaðsins - 20.04.1985, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 20.04.1985, Blaðsíða 11
 10 prestar og biskupar — niðjar Guðrúnar í Tungufelli Séra Ófeigur Vigfússon, Fellsmúla Séra Ásmundur Gud- mundsson, biskup Séra Sigurgeir Sigurðs- Séra Jón Jakobsson, son, biskup Bíldudal Séra Jóhann Hlíðar, Vcstm.eyjum og víðar Séra Pétur Sigurgeirsson, biskup Séra Hannes Guðmunds- son, Fellsmúla Séra Gísli Kolbeins, Stykkishólmi Séra Ólafur Skúlason, vígslubiskup uppreisn 10. febrúar 1797 og var embætt- islaus til 1802 er hann fór aftur sem að- stoðarprestur til séra Jóns Ormssonar fékk Stað í Grunnavík 1814 en Eyri í Skut- ulsfirði 1821 og lét af prestskap 1848. ís- lenskrar æviskrár segja þetta um séra Eyjólf: „Hann var gáfumaður og góður ræðumaður, söngmaður mikill og fjörmað- ur, glaðlyndur og kom sér allvel, búhöldur í betra lagi.“ Kona séra Eyjólfs var Anna María Pétursdóttir kaupmanns Kúlds í Flatey áttu þau 9 börn og koma 2 dætur þeirra hér við sögu. Jóhanna Friðrikka Eyjólfsdóttir átti séra Ólaf Sívertsen í Flatey, og var sonur þeirra séra Eiríkur Kúld í Stykkishólmi en hann var í 4. lið frá Guðrúnu í Tungufelli. Þóra Katrín Eyjólfsdóttir átti Jón silf- ursmið Þórðarson að Kirkjubóli í Skut- ulsfirði en synir þeirra voru prestarnir séra Janus Jónsson í Holti í Önundarfirði og séra Eyjólfur Jónsson á Árnesi en þeir bræð- .i voru í 4. lið frá Guðrúnu í Tungu- fel.i. Synir séra Eyjólfs Jónssonar í Árnesi voru bræðurnir séra Böðvar í Árnesi og séra Eyjólfur Kolbeins á Staðarbakka, þeir voru í 5. lið frá Guðrúnu. Sonur séra Eyjólfs Kolbeins var séra Halldór Kol- beins prestur í Vestmannaeyjum í 6. lið, en sonur hans er séra Gísli Kolbeins í Stykk- ishólmi og er hann í 7. lið frá Guðrúnu í Tungufelli. Meðal barna séra Kolbeins var Margrét, hún giftist fyrst Þórði stúdent Sæmundssyni og voru þau barnlaus, síðan Hiliríusi Illugasyni presti á Mosfelli í Grímsnesi og þau barnlaus, síðast giftist hún séra Jóni Jónssyni í Klausturhólum og var dóttir þeirra Ragnhildur kona Björns Jónssonar á Búrfelli og var sonur þeirra séra Jón Björnsson fyrst prestur á Bergs- stöðum, þá á Hítarnesþingum en síðast á Stokkseyri, hann var í 4. lið frá Guðrúnu í Tungufelli. Meðal margra barna séra Kolbeins voru dætur tvær, sem báðar hétu Guðrún. Guð- rún eldri giftist séra Sigurði Ólafssyni að- stoðarpresti hjá séra Kolbeini í Miðdal en varð síðar seinni kona Eiríks Vigfússonar dannebrogsmanns á Reykjum á Skeiðum og meðal margra barna þeirra voru Ing- unn og Eiríkur, síðar bóndi á Reykjum faðir Eiríks bónda á ólafsvöllum föður Sigurðar regluboða föður Sigurgeirs bisk- ups, föður Péturs biskups Sigurgeirssonar og er hann í 7. lið frá Guðrúnu í Tungu- felli. Ingunn dóttir Eiríks dannebrogs- manns giftist Ófeigi ríka í Fjalli og var sonur þeirra Vigfús bóndi í Framnesi á Skeiðum, faðir séra Ófeigs Vigfússonar í Fellsmúla, föður séra Ragnars í Fellsmúla og voru þeir feðgar í 5. og 6. lið frá Guð- rúnu í Tungufelli. Guðrún yngri Kolbeinsdóttir er í heim- ildum talin skáldmælt. Hún var fyrri kona Einars Bjarnasonar bónda í Bryðjuholti, en meðal barna þeirra var Arndís, fyrri kona Guðmundar Magnússonar í Birtinga- holti og var dóttir þeirra Guðrún, kona Helga Magnússonar í Birtingaholti en þau voru foreldrar séra Guðmundar í Reyk- holti, séra Magnúsar á Torfastöðum og séra Kjartans í Hruna. Þeir bræður voru í 5. lið frá Guðrúnu í Tungufelli. Sonur séra Guðmundar í Reykholti var Ásmundur biskup og var hann í 6. lið frá Guðrúnu í Tungufelli. Fjórði bróðirinn frá Birtingaholti var Ágúst Helgason hreppstjóri og bóndi í Birtingaholti, faðir Sigríðar móður séra Ólafs Skúlasonar vígslubiskups og er hann í 7. lið frá Guðrúnu í Tungufelli. Nú hef ég lokið upptalningu allra þeirra presta, sem ég hef fundið meðal afkomenda Guðrúnar Hallvarðsdóttur í Tungufelli en 6 presta aðra mætti rekja til Eiríks dannebrogs- manns á Reykjum en formóðir þeirra er fyrri kona hans, Ingunn Eiríksdóttir frá Bolholti. Myndlistaræðin Frá Jóni Lesara Heill hópur af þjóðkunnum lista- mönnum eiga einnig ætt sína að rekja til Guðrúnar í Tungufelli. Við upptalningu á þessu listafólki verður stiklað á stóru og ekki nefndir aðrir en þeir, sem kunnastir eru, enda þótt til allra átta séu listamenn af ýmsu tagi, sem minna eru þekktir. Lít- um þá fyrst á þann ættlegg, sem frá séra Kolbeini er kominn. Eins og fram hefur komið var kona séra ólafs Sivertsen í Flatey Jóhanna Frið- rikka Eyjólfsdóttir Kolbeinssonar, en börn þeirra voru séra Eiríkur Kúld eins og fyrr er um getið og Katrín kona séra Guð- mundar Einarssonar á Breiðabólstað á Skógarströnd, en dóttir þeirra var Theo- dóra Thoroddsen skáldkona og var hún í 5. lið frá Guðrúnu í Tungufelli. Systir Theo- dóru var Ásthildur Jóhanna, sem átti Pét- ur J. Thorsteinsson kaupmann í Bíldudal, en þau voru foreldrar Guðmundar (Muggs) Thorsteinssonar listmálara og var hann í 6. lið frá Guðrúnu í Tungufelli. Þá má nefna Sigurð Ágústsson tónskáld í Birt- ingaholti, sem er í 6. lið frá Guðrúnu, en hann er móðurbróðir séra Ólafs Skúlason- ar vígslubiskups og Helga Skúlasonar, leikara. Föðursystir Sigurðar Ágústssonar í Birtingaholti var Katrín, kona séra Ólafs Briem, prests á Stóra Núpi, en sonur þeirra er Jóhann Briem listmálari og er hann í 6. lið frá Guðrúnu í Tungufelli. Þá vil ég geta þeirra listamanna, sem komnir eru frá Jóni lesara. Sonur Jóns lesara, séra Jón á Barði, átti dóttur þá, sem Guðlaug hét, hún giftist Sveini Sveinssyni hreppstjóra í Haganesi í Fljót- um og var sonur þeirra Sveinn í Haganesi faðir Guðlaugar Helgu, konu Jóns Ant- onssonar í Arnarnesi við Eyjafjörð, en dóttir þeirra var Kristín Jónsdóttir list- málari kona Valtýs Stefánssonar ritstjóra. Hún var í 6. lið frá Guðrúnu í Tungufelli. Eins og fyrr er um getið var Halldór í Jötu hálfbróðir séra Jóns á Barði, en frá Hall- dóri í Jötu eru þeir listamenn komnir, sem nú verða nefndir. Snorri Halldórsson á Kluftum átti tvær dætur, önnur var Guð- rún Snorradóttir í Hörgsholti, sem fyrr hefur verið nefnd, og Guðlaug, sem gift var Gísla hreppstjóra í Vatnsholti í Flóa, Helgasyni frá Grafarbakka. Dóttir þeirra var Guðlaug kona Jóns Guðnasonar bónda í Suður-Rútsstaðakoti, en þau voru for- eldrar listmálaranna Jóns og Ásgríms Jónssona og voru þeir bræður í 6. lið frá Guðrúnu í Tungufelli. Helga Halldórsdóttir í Bolafæti, sem fyrr hefur verið nefnd, átti þrjá syni, sem allir koma hér við sögu. Elstur þeirra var Jón Bjarnason bóndi í Galtafelli, sem fyrr hefur verið nefndur og var sonur hans Einar Jónsson myndhöggvari. Hann var í 5. lið frá Guðrúnu í Tungufelli. Annar í aldursröð þeirra Bolafótsbræðra var Guð- mundur bóndi á Stórafljóti í Biskupstung- um, en synir hans voru Bjarni bóndi á Bóli, faðir Eiríks lagasmiðs og harmoníkuleik- ara í Hveragerði, sem var í 6. lið frá Guð- rúnu og Gísli bóndi í Laugarási og Úthlíð í Biskupstungum, faðir Jónínu Þorbjargar konu Sigurðar Jónssonar bónda í Uthlíð, en sonur þeirra er Gísli Sigurðsson list- málari og blaðamaður, f. 3.12. 1930. Hann er í 7. lið frá Guðrúnu í Tungufelli. Sonur Gísla bónda í Úthlíð er Erlendur fyrrum bóndi að Dalsmynni í Biskupstungum en sonur hans er Eyvindur Erlendsson leik- stjóri og kvikmyndahöfundur, f. 14.2.1937, en hann er í 7. lið frá Guðrúnu í Tungu- felli. Yngstur þeirra Bolafótsbræðra var Helgi bóndi í Miðfelli í Hrunamanna- hreppi, faðir Guðmundar trésmiðs í Reykjavík, föður Guðrúnar Nielsen móður Alfreðs Flóka listmálara f. 19.12. 1938, en hann er í 7. lið frá Guðrúnu í Tungufelli. Til þessarar frásagnar vil ég enn nefna tvær dætur Halldórs í Jötu, Guðfinnu og Ingibjörgu. Guðfinna átti að fyrri manni Eirík Bjarnason bónda í Miklaholti, en fyrir seinni mann Ingimund Tómasson frá Helludal. Þau bjuggu í Miklaholti í Bisk- upstungum en síðar í Efsta-Dal í Laugar- dal. Sonur þeirra var Jón Ingimundarson bóndi og hreppstjóri í Skipholti en sonur hans var Þorgrímur veggfóðrari og söðla- smiður í Laugarnesi við Reykjavík en son- ur hans er Gestur Þorgímsson mynd- höggvari. Hann er í 6. lið frá Guðrúnu í Tungufelli. Ingibjörg Halldórsdóttir sem fædd var á Kotlaugum 1794 átti að fyrri manni ísak Jónsson bónda á Fossi í Hrunamannahreppi, en fyrir seinni mann Vigfús Vigfússon bónda í Lambhúskoti í Biskupstungum. Sonur þeirra var Halldór Vigfússon bóndi á Ósabakka á Skeiðum, faðir Ingibjargar konu Benjamíns Jóns- sonar bónda í Syðri-Gegnishólum í Flóa, en dóttir þeirra er Guðbjörg Sigríður móð- ir Eiríks Smith Finnbogasonar listmálara f. 9.8. 1925. Hann er í 7. lið frá Guðrúnu í Tungufelli. Einn af sonum Halldórs í Jötu var Jón Halldórsson bóndi og skáld á Efra-Seli í Hrunamannahreppi. Sonur hans var Guð- mundur bóndi á Efra-Seli, faðir Tryggva verzlunarmanns á Seyðisfirði og síðar gjaldkera í Reykjavík. Dóttir hans var (Jónína) Nina Tryggvadóttir listmálari, hún var í 6. lið frá Guðrúnu í Tungufelli. Dóttir Nínu Tryggvadóttur er Una Dóra Copley listmálari, f. 26.5. 1951. Hún er í 7. lið frá Guðrúnu í Tungufelli. Þá hef ég lokið við að telja upp bæði presta og lista- menn en vil þó geta þess að hjónin á Efra- Seli, þau Valgerður Bjarnadóttir og Guð- mundur Jónsson, afi og amma Nínu Tryggvadóttur, voru systkinabörn. Valdemar Guðmundsson er fyrrverandi yfirfanga- vörður I Reykjavlk og einn þeirra sem er I 7. lið frá Guðrúnu I Tungufelli. SVEINBJÖRN BEINTEINSSON Stökur Skríða menn í hraðför hjá hlíðar fenniköfum skíðum renna röskir á ríða tvennum stöfum. Nóg af rökkri nóttin bar norðan myrkurvegi. Yfir það sem aldrei var annað en rönd af degi. Vorið léttum lófa strauk landsins kalda vanga. Veglaus út í veðrið rauk vetrarnóttin stranga. Bæði liggur burt og heim brautin sem við fundum, verður samt á vegi þeim villuþoka stundum. Veðrahaminn hirða fljótt huldur gamanstafa þegar saman sól og nótt seiðinn framið hafa. Kvöldin voru lystileg létt mig báru fætur þennan mjóa meðalveg milli dags og nætur. Meðan bleikur máni skín móti frosnum heiðum óska ég mér inn til þín eftir hugans leiðum. Þótt um löng og lokuð sund leið ég enga sjái alla jafnt og eina stund okkar fund ég þrái. Banna fundi örlög öll inn til þín á meðan. Kveð ég mig um fönnug fjöll fullum rómi héðan. Drauma skerða vöku völd, varla sökin rengist, strauma herða kjörin köld, krappa vökin þrengist. Hnykkir á stöfum stuðlafars stormur veiðibráður. Nú er inn til veðurvars verri leið en áður. Gamli vinur, gangsvip þinn glöggt ég sé og þekki. Grunnt er vaðið góði minn gusur skortir ekki. Þótt í vetur verði kalt vil ég engu kvíða, hjá þér verður árið allt eintóm veðurblíða. Margt ergeymt í glöðu Ijósi, góðar heimtur tíðkast þar, hafi streymt að einum ósi allt sem dreymt og hugsað var. Stefnt í voða virðist mér völtum gnoðum þegar skaps á boða bylta sér bylgjur hroðalegar. Dularmögn frá eldri öldum óspillt þögnin dró að sér. Rímuð sögn af römmum völdum rökkurfögnuð veitti mér. Yfir haga fannafreðinn fornra laga tóninn ber líkt sem bragur langt að kveðinn Ijós og fagur virðist mér. Sveinbjörn Beinteinsson er bóndi og allsherjargoði á Draghálsi. í LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 20. APRlL 1985 11

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.