Lesbók Morgunblaðsins - 04.05.1985, Síða 7
anlegt, að leifar þess sé að finna í jarðlög-
um undir yfirborðinu.
Víkingarnir færðu sönnur á, að það
væru vindar, en ekki vötn, sem mótuðu
yfirborð Mars núna. Hitastigið á hinum
tveim lendingarstöðum sveiflast um meira
en 90°C frá miðnætti til hádegis. Meðal-
hitastigið er um mínus 40°C, en hitinn
kemst upp fyrir frostmark á miðbaug.
Hinar miklu hitasveiflur geta hrundið af
stað stormum í hinu þunna andrúmslofti,
sem fara með hundraða km hraða á klst.
og valda stundum sandstormum um alla
reikistjörnuna á borð við þá, sem háði
Mariner 9. svo lengi. Jarðvegur Mars er úr
efnafræðilegu einföldu bergi (svipuðu bas-
alti á jörðu), sem inniheldur gnægð járn-
ildis eða ryðs, sem veldur hinum rauðleita
lit reikistjörnunnar. Slíkt berg myndar
hinar aflíðandi hlíðar eldfjalla á Mars, svo
sem dyngjunnar Olympíufjalls, sem er
þrisvar sinnum hærra en Everest-fjall.
GEIMFAR TlL MARZ 1990
Áður en fyrstu mennirnir stíga fæti á
Mars, vænta menn þess hjá NASA, Banda-
rísku geimferðastofnuninni, að búið verði
að afla verulegrar vitneskju í viðbót um
reikistjörnuna. Víkingur 1., sem dugði
lengst hinna fjögurra, hætti ekki að senda
útvarpsmerki fyrr en sl. nóvember og vís-
indamenn eru enn að vinna úr upplýsing-
um frá honum og félögum hans. Meiri upp-
lýsingar munu koma frá geimfari, sem
sent verður á braut umhverfis Mars 1990 í
687 daga eða eitt Mars-ár. Hlutverk þess
verður að fylgjast með loftslagi og árstíða-
breytingum á pólhettunum sem og að kort-
leggja hnöttinn með hliðsjón af jarðefnum
þar. Þegar að því kemur, að geimfarar
verða tilbúnir að leggja upp í för til Mars,
ætti handbók ferðamanna á rauðu reiki-
stjörnunni að vera orðin þykkt bindi.
Þannig hugsa menn sér friðsælan fjalladal á Marx, eftir að menn bafa komið sér þar fyrir.
HELGI
SÆMUNDSSON
HVÍTUR
ÖRN
— í minningu Guö-
mundar G. Hagalín
Hvítur örn
hefst á flug
hátt af akranesi.
Breiðum á vængjum
ber hann skjótt
brott að lokinhömrum.
Veit hann þar
vestur í fjörðum
veröld sér að skapi:
haf og fjall,
hraun og dal,
heiði, vík og skaga.
Vesturför
verðurgóð
vordægur heiðfagurt
ara sem
ötull og glöggskyggn
átthaganna vitjar.
Bíður hans
bjargi í
bólstaður dvergs og vættar.
Hvítur örn
hreiður á sér
húsum manna ofar.
Helgi Sæmundsson er skáld og ritstjóri I Reykja-
vik.
Carl Sagan rið stjörnukíkinn f LoweH-
stjörnuathugunarstöðinni.
jafngamlar reikistjörnur að ræða, sem
þróazt hafa í námunda hvor við aðra í
sama sólkerfi, og á annarri kviknar líf og
dafnar, en ekki á hinni. Hvers vegna?
Þarna er sígilt vísindalegt viðfangsefni
fyrir hendi, sem krefst tilrauna og skoðun-
ar.
Hinn vísindalegi ávinningur af frekari
rannsóknum á lofthjúpi Mars, yfirborði
hans og innri gerð er augljós. Hið hagnýta
gildi er einnig greinilegt: Betri skilningur
á Mars leiðir til meiri þekkingar á okkar
eigin litlu plánetu.
En það er önnur ástæða til þess að
kanna Mars. Og þótt erfitt sé að rökstyðja
hana til nokkurrar hlítar gera margir sér
mjög ljósa grein fyrir henni. Útþrá, leit og
könnun hefur auðkennt mennina, frá því
er þeir voru veiðimenn og hirðingjar.
Könnun óþekktra heima — með hugvit-
samlegum vélmennum, en þó sérstaklega,
ef hún er gerð af lifandi mönnum — snert-
ir eitthvað, sem býr djúpt í brjósti okkar.
Hugsum okkur til dæmis dauðhreinsuð
vélmenni vera að lenda einhvers staðar á
hinum drungalegu stöðum á Mars, og síð-
an reiki þau um til að skoða nánar hinar
óendanlegu furður rauðu reikistjörnunnar.
Og við myndum fylgjast með þessu á sjón-
varpsskerminum heima hjá okkur á hverj-
um degi í meira en ár og alltaf sjá ný og ný
undrunarefni. Yfirborð Mars er nær ná-
kvæmlega jafnstórt þurrlendi jarðar. Það
er sannarlega ærinn vettvangur nýs könn-
unartímabils.
AÐSTÆÐUR Sem
RÉTTLÆTA FYRIRTÆKIÐ
En hvað um geimferð manna til Mars?
Vegna kostnaðarins er mjög erfitt að rétt-
læta slíkan leiðangur e.invörðungu frá
sjónarmiði vísinda. En ég get ímyndað
mér þær aðstæður, sem réttlættu slíkt
fyrirtæki af öðrum ástæðum. Hugsum
okkur, að jarðarbúar væru svo lánsamir,
að þeir yrðu þess varir einn góðan veður-
dag, að nýir menn hefðu tekið við í Wash-
ington og Moskvu og væru þess albúnir að
taka upp nýja stefnu. Og til marks um
hina nýju tíma hefðu þeir ákveðið að vinna
sameiginlega að stórfenglegu fyrirtæki,
einhverju á borð við Apollo-áætlunina, en
nú myndu þeir vinna að því að ná markinu
meö samvinnu, en ekki í samkeppni. Meiri
háttar geimferðaáætlanir gætu einnig
auðveldað þær breytingar, sem yrðu á
mörgum framleiðsluháttum þar að lút-
andi, er vikið yrði af braut vígbúnaðar-
kapphlaupsins, sem nú er, og stefnt að
friðsamlegri markmiðum. Gætum við gert
út leiðangur manna til Mars fyrir það fé,
sem þráfaldlega er veitt til vopnafram-
leiðslu á jörðu? Og því virðist óhætt að
svara játandi.
Lendingarförin úr Víkingaleiðangrinum,
sem nú eru að ryðga á Mars, eru fyrstu
táknin á annarri reikistjörnu um nærveru
mannkynsins. Þau minna á það, sem okkur
væri auðið að gera enn. Hin sama tækni,
sem fær knúið gjöreyðingarvopn heims-
álfa á milli, gæti einnig gert að veruleika
fyrstu ferð manna til annarrar reiki-
stjörnu. En slíkur leiðangur til Mars er
engan veginn hið eina, né heldur aö mínu
áliti hið bezta, sem við gætum notað þá
peninga til, sem við gætum sparað með því
að hörfa til baka frá barmi tortímingar af
völdum kjarnorkustríðs. En hann gæti í
rauninni táknað val milli tveggja goð-
sagnakenndra kosta: Reikistjörnunnar,
sem heitin er eftir hinum forna herguði,
eða brjálæðisins,_sem við hann er kennt.
— SvÁ — þýddi úr „Discover“
ii! "i,iiniu mmmmmmmmammm:
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 4. MAf 1985