Lesbók Morgunblaðsins - 04.05.1985, Page 12

Lesbók Morgunblaðsins - 04.05.1985, Page 12
t ► - Freud með höndum og stjórnáði eins og hershöfðingi. Þátttakendur á annarri ráðstefnu sál- greina í Nuernberg 1910 segja að þá þegar hafi ráðstjórnarandi svifið yfir vötnunum. Stjórnin varð að fá allar ræður til aflestr- L ar áður en þær voru fluttar og var einung- is þeim hleypt að sem fylgdu skoðunum Freuds. Hvergi var gefið eftir í umræðum og þeir sem villtust af götu fengu alvar- lega áminningu. \ Freud, hinn hrífandi postuli sem taldi sig „ráða yfir sannleikanum" var þá á há- tindi sköpunarferils síns. Hann hikaði ekki , við að líkja byltingarkenndum skoðunum sálgreiningarinnar við afrek manna á borð við Darwin og Kópernikus. i Bandaríski blaðamaðurinn Janet Mal- colm sem skrifað um vísindi líkir Freud við hryðjuverkamann sem vinnur að sprengju til að þeyta brugghúsi í loftið en finnur óvart upp atómsprengjuna og sprengir með henni hálfan heiminn í loft i upp. Þótt ekki hafi enn verið færðar sönnur á | árangur af sálgreiningarmeðferðinni hef- ur það ekki heft. alþjóðlega útbreiðslu : hreyfingar Freuds en hún er nú andlegt stórveldi þótt postular hennar hafi við- haldið sama ráðstjórnarandanum og ríkti á ráðstefnunni 1910. Gagnrýni Látin Sem VINDUR UM EYRU ÞJÓTA Þessir menn hafa ætíð látið alla gagn- rýni sem vind um eyru þjóta og samtök þeirra virðast enn helst þjóna þeim til- gangi að afskrifa mótbárur sem „tauga- veiklunar-mótþróa" rétt eins og Freud var vanur aö gera þegar einhver var honum ósammála. Því líkist saga sálgreiningarinnar einna helst langdreginni rekistefnu út af trúvill- ingum. Skapandi hugsuðir á borð við Carl Gustav Jung (en hann var vinur Freuds), Alfred Adler og Athur Janov gengu úr hreyfingunni í illu og með bölbænir hinna rétttrúuðu á bakinu og stofnuðu eigin „sálar-söfnuði", sem þeir skipulögðu á svipaðan hátt og Freud sína hreyfingu á sínum tíma. Hemminger heldur því fram að þeir all- ir, jafnt rétttrúaðir sem villuráfandi, séu innst inni sannfærðir um að sálgreiningin sé annað og meira en lækningaraðferð fyrir geðveikt fólk: hún bjóði mannkyninu hvorki meira né minna en „svör við þýð- ingu lífsins". Læknirinn og náttúruvísindamaðurinn Freud lofaði sjúklingum sínum að vísu ekki öðru en að breyta „móðursýkiskvöl" þeirra í „þolanlega vanlíðan", en Erich Fromm segir að sá Freud sem bæta vildi heiminn hafi ljáð hreyfingu sinni „Messí- asar-hvötina“. Þessi hvöt geri fylgisvein- um hans óhægt um vik að taka rökstuddri gagnrýni eöa að þróast á skapandi hátt. Menntun sálgreina er í svo föstum skorðum að siðbót og ný hugsun á þar enga lífsvon. „Þar er lítið svigrúm fyrir gagn- rýni, efasemdir eða mótþróa" segir Fred- rick C. Redlich, prófessor í læknisfræði við Yale háskólann. Hann segir að einungis stórfelldar breytingar geti bjargað djúp- sálarfræðinni frá endanlegu hruni. En flestir vísindamenn sem gagnrýnt hafa Freud trúa því ekki að kenningum hans verði bjargað. „Sálgreiningin mun hverfa" segir bandaríski geðlæknirinn Thomas Szasz, „enda er hún jafn dauða- dæmd og óþörf og breski frjálslyndi flokk- urinn“. Minningargreinarnar eru þegar farnar að birtast. Þar er helst fjallað um hvað af mikilfenglegu æviverki Freuds standist tímans tönn. Þeir velviljuðu hyggja að sú grundvall- arsýn Freuds muni lifa að mannskepnan stjórnist ekki að skynseminni einni saman heldur teymi hvatir mannsins og ástríður hans hann á asnaeyrunum um alla ævi og allan aldur. Virða beri Freud fyrir að hafa unnið þessari bölsýni sinni brautargengi þegar samtíðarmenn hans trúðu statt og stöðugt á framfarir og aftur framfarir. Thomas Mann og Freud voru pennavin- ir. Skömmu áður en nasistar komust til valda í Þýskalandi skrifaði Mann Freud bréf og hrósaði honum fyrir að draga bældar hvatir mannsins fram í dagsljósið, án þess þó að sleppa beislinu fram af „það-inu“, órökvísu og hættulegu afli. Líffræðingurinn Medawar á von á því að sálgreiningin leggi upp laupana innan skamms. Sagnfræðingurinn Sulloway sem er sennilega einn mikilhæfasti gagnrýn- andi Freuds um þessar mundir er honum ekki sammála. Sulloway segir að sú goð- sögn sem skapast hefur um prófessorinn frá Vínarborg muni halda áfram að vernda kenningar hans enn um hríð. Grein þessi birtist I þýska vikuritinu „Der Spieg- el“ á jóladag 1984. Prestshjónin á Stóra-Hrauni, Kristín ísleifsdóttir og séra Gísli Skvlason, með börn sín, Skúla og Sigríði. Sumardvöl á Stóra- Hrauni að var miðsumar 1983 — eitt mesta rosa- sumar á Suðurlandi um áratugi. Við erum stödd nokkurn veginn miðja vegu milli Eyrarbakka og Stokkseyrar — á afleggjar- anum niður að Gamla-Hrauni. Við veginn stendur aflögð beinamjölsverksmiðja og skammt frá er tengivirki Rafmagnsveit- unnar — hvorttveggja nauðsynleg nútíma- mannvirki en bæði dálítið framandi í þessu umhverfi, þar sem grasið hefur völd- in og grundirnar gróa í þessari miklu sprettu- og vætutíð. Það hefur lagst flatt undan þungum regnskúrum dagsins og liggur eins og hráblautur feldur yfir jörð- inni. Og þar sem búið er að slá, glittir í vatn milli bleikra múga. Þetta eru með öðrum orðum auðséðar afleiðingar óþurrk- anna enda þótt hér standi ekki lengur býli né rekinn búskapur eins og í gamla daga. Hér er oröin mikil umbreyting frá því fyrir 50—60 árum þegar, sá sem þetta rit- ar, dvaldi 3 sumur — góðrar minningar hér á Stóra-Hrauni — prestsetrinu, stór- býlinu, sem nú er bókstaflega horfið af yfirborði jarðar svo að þess sjást engin merki, síðan húsin voru rifin og jafnað yfir rústirnar árið 1937. „Hefðu þau sögulok einhverntíma þótt ekki sennileg" segir dr. Guðni Jónsson í bók sinni: Saga Hrauns- hverfis. Voru þá liðin 280 ár frá því að Benedikt Þorleifsson, Skálholtsráðsmaður flutti bæinn frá Gamlahrauni og byggði hann upp á þeim stað sem hann stóð til síns lokadægurs. Stóra-Hraun er nú horfið. Bærinn stóð á milli Eyr- arbakka og Stokkseyrar og þar var prestsetur. Greinarhöfundur var sendur þangað í sumar- vinnu að afloknu inntöku- prófi í Menntaskólann í Reykjavík vorið 1924. Eftir séra Gísla Brynjólfsson. Ferðin Austur Það var í júní 1924 — að afloknu inn- tökuprófi í Menntaskólann — að haldið var austur fyrir fjall í hina fyrirhuguðu sumardvöl á Stóra-Hrauni. Þetta var fyrir daga áætlunarferða og rútubíla, svo að hver og einn hlaut að verða sér út um sæti í þeim ferðum, sem til féllu með öðrum flutningum. Július Ingvarsson var þá smiður og vörubílstjóri á Eyrarbakka og hélt uppi ferðum til Reykjavíkur. Með hon- um fékk ég far austur. Lagt var af stað seinni part dags í björtu og góðu veðri og virtist ekkert að vanbúnaði. Bíilinn var þunghlaðinn byggingarefni o.fl. dóti og stundi oft mæðulega undan þungum farm- inum á holóttum malarvegi. Við vorum 3 farþegar í tveggja manna plássi í húsinu við hlið bílstjórans. En þrengslin komu ekki svo mjög að sök, því að ég var ungur og fyrirferðarlítill, en þó öllu frekar vegna þess að samferðafólkið — piltur og stúlka — austan af Stokkseyri voru ákaflega trúlofuð og tóku alls ekki nema eins manns pláss. Kom það sér raun- ar vel, eins og á stóð. Þegar kom upp í Svínahraun fór bíllinn að láta eitthvað óeðlilega að aftan. Ekki gerði ég mér neina grein fyrir því hvað var að — enda var þetta ein mín fyrsta bílferð. En bílstjórinn vissi betur og sagði eins og í hálfum hljóðum: „Ja, hvert þó í heit- asta!!“ Og þegar nánar var að gáð gafst á að líta — sprungið að aftan. Var þetta nokkurt mál? Tók það nema örstutta stund að skipta um dekk. Það skyldi maður nú halda. En það var bara ekki svo einfalt, því að það var ekkert varadekk með. Hvað var þá til ráða? Hjól- ið skrúfað undan, slöngunni náð út, límt og bætt. Allt tók þetta talsverðan tíma, já, Iangan tíma eða svo myndi okkur finnast á þessari hraðans öld. — En okkur lá ekkert á. Og það væsti sannarlega ekki um okkur í heitu sólskininu þennan vorlanga dag. Þetta var bara tilbreytni í ferðalaginu. Síðan gekk allt eins og í sögu. Segir nú ekki af ferð okkar fyrr en við komum á vegamótin: Eyrarbakki — Stokkseyri. Lengra náði bílfarið ekki. Þar urðum við farþegarnir að stíga út og leggja land und- ir fót. Mér var bent á hvar Stóra Hraun var, drjúglangan spöl frá veginum og ætl- aði að halda þangað beint af augum yfir hraun og vegleysu. En mér var sagt, að réttara væri að fylgja þjóðveginum nokk- uð áleiðis og ganga svo afleggjarann heim að bænum. Fylgdi ég því ráði og var það vitanlega hárrétt. Við Hraunsafleggjar- ann skildu leiðir. Unga parið frá Stokks- eyri leiddist áfram austur þjóðveginn út í tilhugalífið og sumarnóttina, en ég hélt einn míns liðs heim að ókunnum bæ og löngu kominn háttatími. Allt var vitanlega lokaö og læst. Ég barði að dyrum en eng- inn ansaði. Ég gekk kringum húsið og reyndi að gera vart við mig. Jú, ekki bar á öðru. Það sást einhver hreyfing bak við hvíta náttgardínu á annarri hæð. Síðan var gluggi opnaður og í honum birtist and- lit miðaldra manns, sem mér, strax við fyrstu sýn, virtist vera einhver fallegasti maður sem ég hafði séð á ævi minni. Það var presturinn á Stóra-Hrauni, sr. Gísli Skúlason: „Hvað er þér á höndum, drengur rninn?" „Ég á að vera hér í sumar." „Jæja, það verður komið niður til þín.“ Nú leið ekki á löngu áður en útihurð opnaðist og Rannveig Halldórsdóttir birt- ist í dyrunum. Hún lét í ljósi nokkra undr- un yfir því hve seint ég var á ferðinni, en hún átti samt von á mér, bauð mig vel- kominn í vistina, gaf mér brauð og mjólk og vísaði mér á rúm þar sem ég svaf langt fram á dag. TVÖ HEIMILI Þótt við minnumst nú hins horfna Stóra-Hrauns sem gamals prestseturs, var þar ekki vígðra manna ból nema nokkra áratugi. Þar bjuggu aðeins tveir prestar, sr. Ólafur Helgason keypti jörðina er hann fékk Stokkseyrarbrauð árið 1893, reisti þar stórt tveggja hæða hús og gerði að prestssetri. Þá kvað Magnús Teitsson: Miðlar Guði af málunum, með því þjóðin launi. Sorgarinn fyrir sálunum situr á Stóra-Hrauni. Árin, sem hér segir frá — 1924—26 — voru tvö heimili á Stóra-Hrauni: Prests- hjónin, sr. Gísli og frú Kristín, voru þar búlaus með börnum sínum, Skúla og Sig- ríði, en á jörðinni bjó Hálfdán, sonur frú- arinnar af fyrra hjónabandi. Ráðskona hjá honum var Þórhildur (Dúa) systir hans. Þetta fyrsta sumar mitt á Hrauni dvaldi hún suður á Englandi. Hálfdán hafði allstórt bú, einkum sauð- fé, enda var Hraunið flutningsjörð og talið 12

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.