Lesbók Morgunblaðsins - 01.03.1986, Page 11

Lesbók Morgunblaðsins - 01.03.1986, Page 11
Rannsóknir búi afburðamanna Einstein hefur orðið tákn um full- komnun og hámark mannlegrar full- komnunar. Reynt hefur verið að grafast fyrir um það, hvers vegna hann var svo snjall með því að rann- saka heilann úr honum. telja taugunga og stoðfrumur — rannsökuðu vísindamennirnir frá Kalifomíu heila Ein- steins. Þeir virðast þannig hafa talið að hafi óvenju öflug notkun á einstökum hluta heila hans átt sér stað er hann glímdi við stærðfræðileg viðfangsefni kynni það að hafa orsakað hlutfallslega fjölgfun á stoð- frumum í þessum sama hluta heilans. Vísindamönnunum var kunnugt um að Einstein hefði eitt sinn látið svo um mælt að fijó hugsun væri „sprottin af samspili tákna og mismunandi ljósra svipmynda". Því óskuðu vísindamennimir eftir sýnum úr hægra og vinstra hveli heila hans frá svæð- um sem nefnast „9“ og „39“ en þessi heila- svæði töldu þeir að kynnu að eiga þátt í sh'ku samspili. Þeim komust að þeirri niðurstöðu að í svæði 39 í vinstra heilahveli Einsteins hefðu verið allmiklu fleiri stoðfmmur á hvem taugung en var að fínna á sömu svæðum í öðrum heilasýnum sem þeir höfðu til saman- burðar, en þau vom úr fólki sem ekki var vitað til að hefði verið gætt sérstökum hæfileikum. Þetta gaf þá vísbendingu að taugungana, sem næstir vom og störfuðu af sama krafti og ætla mátti að þeir gerðu á þessu svæði í heila Einsteins, skorti þá aðstoð við efnaskipti sem stoðfmmumar létu í té. Fyrirbærið Snilld ErFlókið Engu að síður leiðir rannsóknin af sér vandamál sem em svo erfíð viðfangs að þörf er fyllstu aðgátar þegar niðurstöðumar skulu túlkaðar. Þannig hefðu niðurstöðumar t.d. verið áreiðanlegri hefðu svæði í heila Einsteins, sem vom ekki talin eiga þátt í Eftir Walter Reich Æðri andlegum athöfnum, ekki verið frá- bmgðin sömu svæðum í þeim heilum sem hafðir vom til smanburðar en þeir vom úr sjúklingum á sjúkrahúsi á vegum stofnunar þeirrar í Bandaríkjunum er annast þjónustu við uppgjafahermenn. Ekkert lá fýrir um sjúkrasögu þeirra sjúklinga, andlegt heil- brigði eða næringargildi þeirrar fæðu sem þeir höfðu tekið til sín á lífsleiðinni. Þó em þeitta atriði sem hefði mátt rekja niðurstöð- urnar til — a.m.k. hefðu þau getað haft á þær áhrif. Þessir aðferðafræðilegu erfiðleikar hafa, auk annarra atriða sem sum hver vom vís- indamönnunum óviðráðanleg, orðið til þess að ýmsir aðrir sérfræðingar í líffærafræði taugakerfisins hafa tekið þá stefnu að fresta því að leggja dóm á niðurstöður Einstein- rannsóknarinnar. Þá er þess að geta að málið er þess eðlis að erfitt er að setja rannsóknunum ákveðna forsendu. Áhætta er í því fólgin að bera saman heila í rottu sem hefur verið höfð í örvandi umhverfi og heila snillings í stærðfræði. Fyrirbærið snilld, hversu sérhæft sem svið hennar er, hlýtur að vera afar flókið í eðli sínu. Þar koma ekki einungis til greina vitsmunalegir hæfíleikar heldur margvíslegir andlegir hæfileikar aðrir. Snilld er því alveg áreiðan- lega afleiðing af samverkun margra svæða í heilanum. Að ætla sér að leita skýringar- innar með því að athuga aðeins þetta eða hitt svæði þessa líffæris, eða jafnvel að taka sér það fyrir hendur að reyna að rekja svo þokukennd einkenni sem „samspil tákna og mismunandi ljósra svipmynda" til þess, er fráleitt og í andstöðu við það litla sem við emm fær um að gizka á varðandi það hvemig maðurinn hugsar, og þar em sér- stakir hæfíleikamenn ekki undanskildir. Þegar hafðar em í huga hinar tímalegu og huglægu hindranir sem standa í vegi sérhvers vísindamanns er gerir tilraun til þess að finna líffræðilega orsök snilldar, hvemig stendur þá á því að vísindamenn hverrar kynslóðarinnar af annarri em að fást við þetta viðfangsefni? í fyrsta lagi þá hlýtur hugsanleg niður- staða að vera mjög eftirsóknarverð og enda þótt fyrirbærið snilld sé flókið þá er sú til- hugsun að unnt sé að afmarka það og skoða það í hnotskurn svo heillandi að ýmsir sér- fræðingar í líffræði taugakerfisins munu eflaust halda slíkum tilraunum áfram um ókomna tíð, ekki sízt þeir sem hafa tækifæri til að rannsaka heila úr heimsfrægum snill- ingi sem nýtur viðurkenningar um allan heim. Venjuleg Mannleg Greind ErMerkileg Mikilvægari kynni þó sú ástæða að vera er lýtur að almennu áliti á snilld sem slíkri. Að mati vísindamanna sem annarra er sönn snilld svo fátíð, svo merkileg og svo fjarlæg skilningi þorra manna að sá sem henni er gæddur hlýtur að vera öðmm mönnum frá- bmgðinn í aðalatriðum, þannig að t.d. mætti ætla að heili hans væri samansettur með öðmm hætti en heiiinn í venjulegu fólki. Eða liggur ekki beinast við að meta þannig fólk sem skilur það sem öðmm er hulið? Fólk á borð við Newton sem gerði sér grein fyrir eðli hluta, Darwins sem gerði sér grein fyrir eðli eðlisins, eða Shakespeare sem gerði sér grein fyrir því hvemig ætti að breyta hlutum, eðli og mannsandanum í orð sem ná til okkar og breyta lífi okkar og hugsun. Menn hafa rannsakað af mikilli nákvæmni heila Einsteins, Len- ins og fleiri manna, sem taldir voru búa yfir óvenjulegum gáf- um — en spurningin er, hvort það hefur verið ómaksins virði. Heili Lenins var skorinn niður í 34 þúsund sneiðar og Sovétstjórnin fól vísindamanni að rannsaka hann og helzt átti hann að komast að upp- sprettu hinnar pólitísku og heim- spekilegu snilldar Lenins. Frá sjónarmiði sérfræðings í líffræði taugakerfísins kynni nú að vera rökrétt að halda áfram þessari líkingu og gera hana raunvemlega með því að leita að rót snilldar- innar í heila sem væri þannig frábmgðinn venjulegum heilum. Slíkt væri skiljanlegt og gæti jafnvel reynzt rétt ákvörðun. Ef til vill hafa vísindamennirnir í Kalifomíu ein- mitt fundið svæði í heila Einsteins sem skýrt getur snilld hans — fyrir heppni eða fyrir frábært innsæi. En jafnvel þótt vísindamönnunum hafí tekizt þetta þá er nauðsynlegt að hafa í huga að enda þótt snilld Einsteins hafí verið mikil þá vom þeir hæfileikar hans sem gerðu hann líkan öðm fólki fleiri og meiri en þeir hæfíleikar sem gerðu hann frábrugðinn því. Venjuleg mannleg greind og hæfileikar em nefnilega þrátt fyrir allt svo merkileg fyrirbæri í sjálfum sér. Þótt gumað hafí verið af því nýlega að tekizt hafi að þjálfa nokkra apa í meðferð tákna er vert að minnast þess að bilið milli mannsins og annarrar skepnu er afar breitt. Það er reginmunur á hæfíleika apa til að gera sig skiljanlega og hæfni mannsins til að kunna orð, mæla þau af munni fram og skrifa þau — og sá reginmunur er óendanlega miklu meiri en munurinn á þeim sem eiga tungu- mál og þeim sem kunna að beita því eins og Shakespeare. Sá mismunur sem síðar- nefnda dæmið er tekið um er að vísu mikill en þó er þar aðeins um að ræða mismunandi leikni, þ.e. stigsmun en ekki eðlismun. Það er hugsanlegt að einhvemtíma verði úr því skorið hvort heili snillinga sé í raun- inni fullkomnari en heilinn í venjulegu fólki, en vitneskjan um það hvort hann er full- komnari og þá á hvern hátt hann er það fæst sennilega ekki með því að búta niður fleiri heila og telja í þeim frumumar. Unz fundnar verða árangursríkari aðferðir til að rannsaka heila og snilld en vísindamenn hafa nú á færi sínu væri kannski ráð að láta sér nægja að dást að þeim snillingum sem eiga það skilið og sýna þeim þá virðingu að láta heila þeirra í friði eftir andlátið. LESBÓK MORGUNBLAOSINS 1. MARZ 1986

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.