Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1986, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1986, Blaðsíða 2
A US T A N U M > H E I Ð I KirkjaOg Skóli Þegar svipazt er um eftir þeim verkmönn- um, er öðrum fremur annast framangreint uppeldi, verður skólinn að öllu sjálfráðu hendi næst. Innan hans kennir raunar margra grasa. Framhaldsnám allt einkenn- ist í sívaxandi mæli af þeirri sundurgrein- ingu, sem öldin hefur af sér fætt. Grunnskól- inn er hins vegar vettvangur samræmdrar uppeldisstarfsemi, sem ætluð er öllum lands- mönnum á bamsaldri. Auðvelt er að færa rök fyrir því, að engin stofnun fari með meiri ábyrgð en grunnskólinn. En hér koma fleiri við sögu. Kirkjan hefur hönd á nærfellt öllum bömum á fjórtánda aldursári. I annan tíma leiðir hún landsmenn sér við hlið á öllum aldri og af sundurleit- asta tilefni. Kirkjan er rammi um líf okkar. Hugmyndalega er hún og sterkari en nokkur aðili annar. Hið síðast greinda stafar ein- faldlega af því, að í fáeinum grundvallarat- riðum veit kirlq'an betur en aðrir, hvað hún vill. íslenzkur samnefnari og viðmiðunar- rammi alþjóðar er að verulegu leyti í höndum kirkjunnar og grunnskólans. Miklu skiptir, að samstarf þessara stofnana sé ætíð hið bezta. Skylt er að benda án afláts á gildi þess samstarfs. Stundum verða hlutir svo sjálfsagðir, að þeir gleymast. Þá gleymsku ber að varast, þegar kirkja og skóli eiga í hlut. Helgistaður Allra ÍSLENDINGA Þessi grein er skrifuð „austan um heiði". Til skýringar skal þess getið, að „heiðin" er Mosfellsheiði, en um hana liggur þjóðleið milli Þingvalla og Reykjavíkur. Þegar talað er um fslenzkan samnefnara, um þjóðaruppeldi, um kirkju og skóla, berst talið með næsta sjálfsögðum hætti að helgi- stöðum landsmanna. Þeirra hæst ber Þing- velli, og er ástæðulaust að rökstyðja þau ummæli. Lög um Þingvelli við Óxará og grenndina þar eru reyndar óvenju berorð umjjetta efni. A hveiju ári þyrpast skólaböm þúsundum saman til Þingvalla í fömneyti kennara sinna. Þar gefst tækifæri til að kynna böm- unum þann samnefnara, sem hér hefur verið gerður að umtalsefni. Þegar sleppir orðræð- um um þjóðarsögu og menningararfleifð, tekur landið sjálft til máls og talar til gest- anna. Aðstaða til þessarar fræðslustarfsemi er þó misjöfn á Þingvöllum. Þar nýtur eigi ævinlega þess blíðviðris, sem einkennt hefur undanfama mánuði. Sjálfur leit ég þennan helgistað í fyrsta sinni á unga aldri í þoku og rigningarsudda. Pór ég þaðan litlu nær í það skipti. Svo er væntanlega fleirum farið. Nokkuð hefur verið rætt um framtíð Þingvalla hin síðari misserin. Sú umræða er þörf, og vonandi verður henni fram haldið í ýmsum tóntegundum á komandi ámm. Hér skal þess að sinni getið, að brýnt er að koma á fót fræðslumiðstöð í nágrenni þingstaðarins foma. Sú bygging gæti hýst þau kennslutæki, sem nútímamenn framast ráða yfir. Væm þau notuð til að gera gestum grein fyrir sögu þessa staðar og náttúm hans í ýmsum efnum. Þaðan gengju menn síðan undir blæ himins, hvort hann nú heldur væri blíður eða stríður hveiju sinni. Þessi þjónusta kæmi ekki einungis böm- um að notum, heldur öllum gestum öðmm. Auðvelt væri að tengja hana frekari aðstöðu og athöfnum, sem ekki verða rædd í þesari grein. Markmiðið væri sú menningarmiðstöð til þjóðamppeldis, sem eðlilegt er að efla á Þingvöllum við Öxará. Höfundur er þjóðgarðsvörður á Þingvöllum. Þjóðaruppeldi Vel má vera, að einhveijum lesenda virðist yfirskrift þessa greinarkoms í meira lagi hæpin. Eru ekki hvor tveggja hugtökin, „þjóð“ og „uppeldi“ á svo tæpu vaði í fjölhyggjusam- félagi nútímans, að þeim verði varla beitt eftir séra Heimi Steinsson „A hveiju ári þyrpast skólabörn þúsundum saman til Þingvalla í föru- neyti kennara sinna. Þar gefst tækifæri til að kynna bömunum þann samnefn- ara, sem hér hefur verið gerður að umtalsefni. Þeg- ar sleppir orðræðum um þjóðarsögu og menning- ararfleifð, tekur landið sjálft til máls og talar til gestanna.“ með marktækum hætti? Sagt er, að þjóðin sé að leysast upp í sundurleita hópa, sem arka í ýmsar áttir. Uppeldi sitt á hver og einn að annast sjálfur að margra dómi. Er ekki tilgangslítið að tefla fram hugmynd um einhvers konar samræmt uppeldi al- þjóðar, þegar svo er komið högum manna. Ekki skal því neitað, að í fjölmörgum greinum kynnu slíkar athugasemdir að vera réttmætar og gagnlegar. Ohófleg samræm- ing getur reynzt frelsi manna háskaleg. En frelsið er ekki aðeins forsenda lífs og gró- andi. Frelsið er lífið sjálft. Frumleg hugsun fæðist tæpast samkvæmt tilskipunum. Orð og athafnir ekki heldur. ÍSLENZKUR SAMNEFNARI Áður en upp er kveðinn áfellisdómur yfir hugmynd um þjóðaruppeldi, er þó rétt, að hver og einn velti fyrir sér þeirri spumingu, hvort Islendingar ekki eigi fleiri og þýðing- armeiri verðmæti sameiginleg en nemur þeim efnum, sem sundra þjóðinni. Svarið við spumingunni verður vísast í flestum tilvikum jákvætt, ef menn gefa sér tóm til að jhuga litróf íslenzkrar menningar. Önnur spuming: Er ástæða til að varð- veita hin sameiginlegu verðmæti? Einnig hér munu menn svara játandi upp til hópa. Samnefnari, sem allir eiga nokkra hlutdeild í, er hverri þjóð nauðsyn, ef hún á að halda áfram að vera þjóð yfírleitt. Einstaklingur lifir heldur ekki í tómarúmi. Hann er hluti af þjóðarheild og verður að jafnaði úti á þeim berangri, sem tekur við honum, þegar rætur slitna og uppruna týnist. Slíks eru hryggileg dæmi. Frelsið sjálft þarfnast viðspymu og ögr- unar. Að öðrum kosti snýst það upp í sljó- leika, sem ekkert fæðir af sér, sízt af öllu líf. Þetta er þversögn, en hún einkennir reyndar tilveru manna á jörðu í hverju efni. Samnefnari þjóðar lifir að verulegu leyti sínu eigin lífi. I raun ætti enginn að hafa of miklar áhyggjur af honum. Eigi að síður getur samnefnarinn orðið fyrir þeim áföll- um, að þjóð stafí hætta af. Einnig getur hlaupið í hann ofvöxtur. En sú þróun mála er ekki á dagskrá á íslandi í svip. Óhjákvæmilegt er, að þjóð láti sér með nokkrum hætti títt um samnefnara sinn, að hann hvorki glatist né afskræmist. Þar kemur til kasta þess þjóðaruppeldis, sem hér er haft að yfirskrift. Ekki verður undan því vikizt að ígrunda það uppeldi seint og snemma. Markmið þess eru til endurskoðun- ar án afláts. Aðferðimar hið sama. Kjamann sjálfan, samnefnarann, þarf að gaumgæfa í sífellu. Höfuðatriði er, að umræða um þjóð- aruppeldi hljóðni aldrei. Á henni veltur hollusta okkar við arfleifð feðranna og ábyrgðin gagnvart hinum, sem erfa munu þetta gestaherbergi, þegar við erum farin.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.