Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1986, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1986, Blaðsíða 3
mgnrtg @ @ H Ea] [u] 0 [1B H [g p IU 0 ffl Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvstj.: Haraldur Sveinsson. Ritstjórar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoó- arritstjóri: Björn Bjarnason. Ritstjómarfulltr.: Gísli Sigurðsson. Auglýsingar: Baldvin Jóns- son. Ritstjóm: Aðalstrœti 6. Sími 10100. Halley halastjaman er í heimsókn og nú stafar ekki af henni nokkur ógn eins og fyrr á öldum og engum dettur í hug heimsendir af hennar völdum. Fyrir tveimur dögum náði könnunarhnötturinn Giotto inn að kjama halastjömunnar og nú verða menn margs vísari. Líftæknin ér heillandi vísindagrein og mun koma okkur til bjargar í vaxandi mæli. Nú er til dæmis verið að þróa nokkur mismunandi krabbameinslyf með tilstilli líftækninnar og þessi lyf verða væntanlega komin á markað eftir nokkur ár. Forsíðumyndin er af málverki eftir Eyjólf Einarsson list- málara, sem verður á sýningu háns, sem nú er að hefjast á Akureyri. Eyjólfur hefur haldið margar sýningar í höfuðstaðnum og lengst af málað abstrakt, en hefur um skeið verið að þróast í átt til hins fígúratífa eins og myndin sýnir. Músíkterapía málverk ogtónsmíðar á slagverkshljóðfæri era viðfangsefni, sem Gunnar Kristinsson leggur stund á jöfnum höndum. Viðtalið sem birt er við Gunnar er í tilefni málverkasýn- ingar, sem hann opnar í Ásmundarsal eftir viku. JÓHANN SIGURJÓNSSON (1880-1919) Hvíslar mér hlynur Hvíslar mér hlynur hár í skógi sögu sviplegri. „Ox mér við hlið ei fyrir löngu burkni blaðmjúkur. Drakk hann að morgni mungát nætur, geisla um hádag heiðan; hugði hann sól og sumarástir vara ævi alla. Kom hin haustkalda hélu-gríma skalf þá veikstilka vinur: „Svikið hefur mig sól í tryggðum. Nú mun ég bana bíða.“ Brosti ég að hans bamslyndi, mundi ég eigin æsku. Falla munu blöð þín bleik til jarðar, en víst mun stofn þinn standa. Leið nótt, Lýsti nýr dagur. Huldi héla ijóður. En vininn minn veikstilka sá ég aldrei aftur.“ Drúpir dimmviður dökku höfði, dagur er dauða nær. Hrynja laufatár litarvana köldum af kvistsaugum. Jóhann Sigurjónsson, Ijóðskáld og leikritahöfundur, er fæddur á Laxa- mýri í Þingeyjarsýslu 1880 og eftir nám við latínuskólann í Reykjavik og dýralæknanám í Kaupmannahöfn, sneri hann sér alfariö að ritstörf- um og skáldskap. Hann lézt árið 1919. BÚHYGGINDI Kjarasamningarnir sem nýlega vora gerðir fylla marga bjartsýni eftir erfið ár. Loks virðast menn einhuga um að snúa við blaðinu og hverfa frá úrræðum sem reynslan hefur dæmt einskis nýt en leita þess í stað leiða sem í fljótu bragði virðast skynsamlegar. Að sjálfsögðu vitum við ekki hversu skynsamlegar þær eru fýrr en á herðir, en verðlækkun á opinberri þjón- ustu og aðgerðir í vaxtamálum bæta margra hag og drýgja litlar kjarabætur. Við höfum þrásinnis orðið þess áskynja að krónufjöldi í launaumslagi gefur sáralitla vísbendinu um almenna afKomu. Það gleðilegasta við þessa samninga er sú vísbending að stjómvöld og aðilar vinnu- markaðarins séu samtaka í að sýna dálítil búhyggindi. Fyrir slíkum hyggindum hefur lítið farið eftir síðari heimsstyijöld þegar stoðunum var svipt undan gömlum dyggðum og bylting varð á lífsháttum. — Sígandi lukka er bezt, segir máltækið, en þau risa- skref sem við tókum út úr moldarkofum og timburhjöllum vora slík að mörgum hlaut að verða fótaskortur. Það er bara í ævintýr- inu sem Öskubuska breytist umsvifalaust í prinsessu með einum töfrasprota. Sam- kvæmt venjulegum lögmálum þurfa róttæk- ar breytingar tíma og aðlögun. Annars rista þær aldrei djúpt en geta skekið granninn sem allt hvílir á. Við fengum hvorki tíma né aðlögun og kannski vildum við hvoragt. Fáar þjóðir hafa veið jafneitilharðar við að afneita fortíð sinni og íslendingar. Þótt aðeins 30—40 ár séu liðin frá því að reykur liðaðist upp úr torfbæjum á annarri hverri jörð, víða um land, hefur unga kynslóðin varla heyrt talað um hlóðaeldhús og grútar- lampa. Nokkrir áratugir virðast í margra Ijósára ijarlægð og sú barátta sem háð var upp á líf og dauða í bókstaflegri merkingu langt fram eftir þessari öld. Ekki tók ég 'þátt í þeirri baráttu sjálf, en vel man ég eftir ömurlegum mannabústöðum til sjávar og sveita, þar sem einu heimilistækin vora kolavélar. Á þeim tímum tíðkaðist enn að nýta alla skapaða hluti og gera sér mat úr hvetju því smáræði sem til féll. Búhyggindi gátu skipt sköpum fyrir afkomu fjölskyld- unnar. Það gekk glæpi næst að fleygja matarafgöngum. Systkini og frændfólk gengu í sömu flíkinni mann fram af manni og þegar efnið var orðið snjáð hið ytra var henni einfaldlega sprett upp og saumað úr henni á röngunni. Slíkar frásagnir hljóma eins og þjóðsögur f eyram bama og unglinga sem kveina yfir því að geta ekki fylgzt með sérhveijum duttlungum tízkunnar. Við höf- um líka unnið ötullega að því að breiða yfír þessa fortíð í kapphlaupinu við að fleygja gömlu og kaupa nýtt. Ég man eftir gömlum manni sem tók að sér ýmiss konar viðvik fyrir fólk gegn vægri þóknun. Hann tók skýrt fram að hann vildi fá greiðsluna í eintómum 25-eyringum, og þegar hann var beðinn um skýringu á því svaraði hann ósköp einfaldlega: „Nú, krónan er alltaf að falla." Að sjálfsögðu fleyttu þessi búhyggindi gamla manninum ekki langt áleiðis í baráttunni gegn verðbólgunni, enda var 25-eyringurinn bráðlega úr sög- unni. Og gömlu dyggðimar hurfu ein af annarri, nýtni, sparsemi og jafnvel heiðar- leiki urðu úrelt fyrirbæri á fáeinum misser- um. Allir töldu sig þurfa að græða á verð- bólgunni og dansinn í kringum gullkálfinn varð æðisgengnari með ári hveiju. Sólar- landaferðir vora óþekkt hugtak fyrir 20 áram, en skyndilega vora þær orðnar hveij- um Islendingi lífsnauðsyn. Þeir sem ólust upp í bragga eða þröngum timburhjalli vora ekki í rónni fyrr en þeir gátu breitt úr sér í 300 fermetra einbýlishúsi. Og búhyggindi fólust í því einu að eyða áður en aflað var. Og skyndilega vaknaði Öskubuska upp við það að verðbólgan var ekki bara töfra- sproti, sem breytt hafði hreysum í hallir heldur meináta sem hafði nagað efnahag þjóðarinnar ofan í rót og svipt margan öryggi og festu. Meira að segja nýkrónan var orðin jafngild þeirri gömlu. Þá var tími til kominn að söðla um. Svo virðist sem aðilar vinnumarkaðarins hafi lagt talsvert að mörkum til að ijúfa vítahringinn. Þótt fólk uni misjafnlega við sinn hag og margir telji sig hafa borið skarðan hlut frá borði við skiptinu þjóðar- tekna er brýnt að allir leggist á eitt við að koma búskapnum á réttan kjöl. Þegar öllu er á botninn hvolft er fólk orðið langþreytt á efnahagslegum kollsteyp- um og því öryggisleysi sem þær hafa í för með sér og getur valdið þyngra álagi og meiri upplausn en skortur á lífsgæðum. Núna eram við reynslunni ríkari og getum farið að búa hyggilega í landinu okkar. GUÐRÚNEGILSON LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 15. MARZ 1986 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.