Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1986, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1986, Blaðsíða 7
Efst: Á hlaupum. Akrylmynd, 150x150 sm. ímiðið: ísland. Akrylmynd. Neðst: Undirfuliu tungli. Acrylmynd. Ámi Sæberg tók myndirnar. hvetju. Ég meina samt ekki lífsgæðakapp- hlaupið. Þetta geta alveg eins verið innri hlaup." „Ætli lífsgæðakapphlaupið sé ekki alveg eins það sem þú kallar innri hlaup. En hvað um það; það er mjög í tízku núna að tjá sig um sálarástand. “ „Já, það er óhætt að segja það. Þegar ég var að læra úti í Basel, voru listamenn talsvert örvæntingarfullir vegna ástandsins í umhverfinu að ekki sé nú talað um víg- búnaðinn. Hér á íslandi virðist fólk ekki f samskonar snertingu við þessi vandamál, en hér getur ríkt örvænting fyrir því — bara út af einhveiju öðru. Þessi angist, sem virðist jafnt hjá ungu fólki og fullorðnu úti í Evrópu, er ekki nein tilgerð og það er virkilega hjartans mál ungra listamanna, þegar þeir vilja gera sitt til að spoma við óheillaþróun eða jafnvel fleygiferð fram af einhveiju hengiflugi. Þeir eru ekki bara að herma eftir öðrum og ég held að fullyrða megi, að þessi angist eigi stóran þátt í tilurð þessa nýja, þýzka expressjónisma.“ „En hefur ekki náttúran austur í Þjórs- árdal og kyrrðin þar alveg gagnstæð áhrif?“ „Jú, svo sannarlega. Þar hleð ég batterí- ið. Eins finnst mér gott að vera í Freiburg; það gildir jafnt fyrir músíkina og myndlist- ina.“ „En það kemur ekki yfir þig þama austur í Gnúpvetjahreppi að langa til að mála Heklu eins og Asgrímur og fleiri?“ „Nei, ekki á þann hátt. Að vísu hef ég málað Heklumynd, en úr því varð fantasía, þar sem tunglið kemur heilmikið við sögu.“ „ Verður næsta töm ef til vill í slagverk- inu, þegar þessari sýningu lýkur?“ „Það gæti hugsast. Síðastliðið vor tók ég þátt í alþjóðlegri gjörningahátíð rétt hjá Basel. Þar lék ég á hljóðfærasafnið mitt tónverk sem ég kalla hljómstyttuna. Það gerði ég með því að ég hengdi utan á mig íslenzka steina, en hafði jám á puttunum og spilaði þannig á steinana. Ég á upptöku af þessu og sýningargestum í Asmundarsal gefst kostur á að hlusta á músíkina um leið og þeir skoða myndimar.“ Gf SLI SlGURÐSSON Þorbjörg Elsa Fjallið Ergnauðar vetrar vindur veðraður Hólmatindur gnæfír með fögru fellin fjölbreytileg og hnellin. Er vors þau skrýðast skrúða skín allt með daggarúða. Hér átti eg æskustundir var ægilegt fjallinu undir ergengu gríðar veður grjót hrundi fjallið niður svo fell og fagrar grundir fóru skriðumar undir. En síðar er kveldið kyrrði kom mynd þess í Reyðarfirði Langhamrar og Hólmaborgir hurfu skjótt búmannssorgir. Fjallið nú dvaldi ídróma. dýrðlegt íaftanljóma. Kristinn Reyr Þú liggur / ládeyðu laugardagseftirmiðdagsins innvígður andrúmslofti ömurleikans. Ekki svo mikið sem einmana hugsun á almættisvegum hreyfi sinn hæverska fingur að hringja bjöllunni á aðalbóli umkomuleysisins ogheilsa upp á háttvirtan hellisbúann. Ellegar sómakær sam vizkurödd sími að bjóða þér út í bíltúr um borgina oginn á fyrsta flokks vínstúku upp á freyðandi brim úrforláta kristallsglasi út á lognið ogládeyðuna. Þú liggur ílandvari á lystadúni einstæðingsskaparins meðhégómann undirhöfðinu og allsleysið fyrir ábreiðu. Kristinn Reyr, skáld og rithöfundur, býr í Reykjavík. Jón Valur Jensson Til Ijóðsins Lifir æ Ijóðið ftjóa, lífgarhug, kvíða bugar, hressirönd, eykuryndi, orðum með snjöllum gleður. Klingirhátt kvæðið létta, kot og bý fyllir hlýju. Vísanyl veitirsálu, von og trú saman brúar. Jón Valur Jensson er guöfræöingur. Kristján frá Djúpalæk Þrflindir Tileinkað Einari Pálssyni Endurbirt vegna prentvillu Við þrílindir þessar sem þylja mérfræði eryndi að una. Þær flytja mér óma af framandi ströndum, úrfjarlægum tfma: Spekimálalda sem einar þær muna. Þær hertaka hug minn svo hverfur mér nútíð með skvaldur og skugga. Ogyl er ég vafinn frá útbrunnum sólum ogeldum sem dóu. Að ódáinsveröld þær opna mérglugga. Kristján frá Djúpalæk er skáld á Akureyri. LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 15. MARZ 1986 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.