Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1986, Qupperneq 5

Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1986, Qupperneq 5
W' .w ”E^0pr ^vrr- ast fyrir tugi milljarða bandaríkjadala á ári hveiju. Síðustu fimm árin hefur 3 milljörðum verið varið í nýjar fjárfestingar á þessu sviði efnahagslífsins. Bemskuskeið líftækniiðnaðarins hefur ekki verið án vaxtarverkja fremur en tölvu- iðnaðurinn á sínum tíma. Fjármagnseigend- ur sem hrifust af líftækni á áttunda áratugn- um og fyrstu árin á hinum níunda komust brátt að því að sem skammtímafjárfesting var líftækni ekki vænlegur kostur með tilliti til arðsins af því að enn mundu líða nokkur ár þar til allar helztu tegundir framleiðsl- unnar kæmust á markað. „Þannig litu fjármagnseigendur á líf- tæknina sem efnilegt hugarfóstur," segir Jennifer Byme framkvæmdastjóri hjá sjóði einum í Blue Bell, Pennsylvaníu, sem hefur það hlutverk að fjármagna tæknilegar nýj- ungar á sviði læknisfræði. „Á spákaup- mennskumarkaðnum 1982—’83 var enginn sem hafði áhuga á krabbameinslækningum en þá fór að birta til á líftæknimarkaði." Stór Fé Lagt Undir Það gefur til kynna hve miklar fram- farimar hafa orðið í líftækniiðnaði, hvort sem mælikvarðinn er vísindalegur eða við- skiptalegs eðlis, að nýlega festi Bristol- Myers Company, sem er umsvifamikið lyfja- fyrirtæki, kaup á Genetic Systems Corporat- ion, líftæknifyrirtæki einu í Seattle. Kaup- verðið var andvirði 294 milljóna dala í hluta- bréfum í Bristol-Myers. „í líftækniiðnaði" segir Parag Saxena framkvæmdastjori heilsuvemdarsjóða hjá Citibank í New York „verða næstu tvö árin afar spennandi." Um leið og liftækniiðnað- urinn kemst á þetta nýja stig komast nokkur sjálfstæð fyrirtæki í forystu, að sögn Saxena og fleiri sérfræðinga, og þar á meðal em Cetus, Genetech (í San Francisco), Biogen (í Cambridge, Massachusettes) og Centocor (í Malvem, Pannsylvaníu). Hvemig Ron Cape og Cetus hefur tekizt að koma ár sinni fyrir borð svo vel sem raun ber vitni er svo önnur saga og hún er um nýja kynslóð fmmkvöðla í bandarísku efnahagslífi — líffræðinga sem verða kaup- sýslumenn. . Stundum stendur Ron Cape við gluggann til að fylgjast með því hvenær sólin sígur á bak við hlíðar Marin County. Hann er 53ja ára og lítur út fyrir að vera í mjög góðri líkamlegri þjálfun og það er hann svo sann- arlega. Hann er mikil! skíðamaður og hefur litlu bætt við þyngd sína síðan hann útskrif- aðist frá Princeton 1953, en hann er 170 sm á hæð. Hann útskrifaðist með „summa cum laude“ og hlaut gráðu í efnafræði og var efstur í sínum bekk. í Princeton átti hann meira að segja tal við sjálfan Einstein. Á ári hveiju ferðast Ron Cape meir en 400 þús. km vegalengd til að taka þátt í fundum, bera vitni fyrir Bandaríkjaþingi og halda fyrirlestra fyrir vísindamenn og kaup- sýslumenn. Á þessum tíðu ferðalögum gætir hann þess að vera einungis með handfarang- ur til þess að spara tíma. Hann gengur hröðum öruggum skrefum, örlítið lotinn, og þar sem hann gengur um flugstöðina — með ferðatösku og skjalatösku í höndunum og fatapoka og ferðatölvu hangandi yfír öxlina — minnir baksvipurinn á Groucho Marx legghlífalausan. ÁSTRÍÐA HANS ER LÍFTÆKNI Hvað svo sem hann gerir að umræðuefni um þessar mundir þá tekst honum jafnan að víkja talinu að Japönum á enn einu sviði hátækni: „Við keppum við Japani um forystu á sviði líftækninnar, á sama hátt og við kepptum við Rússa um að komast út í geim- inn. Japanir sigruðu okkur í stáliðnaði, þeir sigruðu okkur í bflaiðnaði, þeir sigruðu okkur í vefnaði, þeir sigruðu okkur í raf- eindaiðnaði, og næst munu þeir sigra okkur í líftækninni. Nú er ég þeirrar skoðunar að á þessu sviði muni sagan endurtaka sig. við erum í þann veginn að afhenda enn eina ameríska uppgötvun í hendur annarra." Það er bjargföst skoðun hans að Bandaríkja- stjóm eigi að grípa til gagnráðstafana og auka en ekki minnka framlög til frumrann- sókna. Ástríða Rons Cape varðandi líftæknina er auðskilin.Þrátt fyrir allt er hann einn fyrsti líffræði-kaupsýslumaðurinn. „Þegar við byijuðum með Cetus,“ segir hann, „voru tvö ár í það að aðferðin til að endurraða DNA uppgötvaðist. En við fylgd- umst með þessum mikla sköpunarmætti á sviði líffræði og því að úthlutað var öllum þessum Nóbels-verðlaunum. Þess vegna vissum við að þama hlaut að vera á ferðinni arðvænlegur atvinnuvegur." Það var af fundvísi sem honum hug- kvæmdist að fara inn á þessa braut og þá var hann í viðskiptaferð á vegum snyrtivöru- Cetus fékk fyrsta einkaleyfið sem veitt var til framleiðslu & eggjahvítuefnisem gefur fyrirheit um aðmeðþvimegilækna krabbamein. Þanniglíta tilraunaskammtar af IL-2 út. fyrirtækis föður síns. Victor Cape var sonur rúmenskra gyðinga sem fluttust til Kanada. Hann átti sex lyfja- og snyrtivörubúðir og lifði þægilegu lífí í Montreal ásamt konu sinni og tveimur sonum. Hann bjóst við því að eldri sonurinn tæki við af sér en Ronald Cape hafði önnur áform. Þegar hann fór í Harvard-háskóla að loknu prófí í Prin- ceton var hann að vissu leyti að fresta því að taka við fjölskyldufyrirtækinu. Og þegar hann gat ekki lengur slegið því á frest varði hann meir en áratug til þess að starfa í snyrtivörufyrirtækinu og sjá um rekstur þess. Það var á Heimssýningunni í Seattle árið 1962 sem Ronald Cape fann sína eigin framtíð. í einum sýningarbásnum var líkan af Meselson-Stahl tilrauninni sem varð til þess að varpa ljósi á DNA. Það var eins og opinberun fyrir hann og hann minnist þess að hafa þá sagt við sjálfan sig: „Þetta er virkileg hreyfíng — og ég er að framleiða og selja snyrtivömr!“ Árið 1971 stofnaði hann og §órir félagar hans, Donald A. Glaser sem fékk Nóbels- verðlaun í efnafræði 1960 og er jafnframt sameindalíffræingur, Peter J. Farley efna- fræðingur með MBA-gráðu; Calvin Ward vísindamaður og Moshe Alafí sérfræðingur í áhættufjármögnun, Cetus-vísindarann- sóknastofumar sem nú heita einfaldlega Cetus Corporation. Ron Cape varð stjómar- formaður og framkvæmdastjóri. 30 MILLJÓNDALA Fjármörgnun Stofnendumir leituðu eftir íjármagni hjá peningamönnum á Flóasvæðinu. Tímasetn- ingin var rétt. „Þeir sem leggja fyrir sig áhættufjármögnun eru þannig gerðir að þeir vilja leggja undir fjármuni svo þeir hafí eitthvað til að láta sig dreyma um. Við sögðum þeim að næsta bylting yrði á sviði líffræði og það var það sem þeir vildu heyra." „Ronald Cape sagði þeim líka að Cetus væri eina fyrirtækið sem vit væri í á þessum slóðum og það var það vissulega um árabil. Þannig fékk Cetus 2 milljónir dala árið 1972 og 3 milljónir 1973. Árið 1980 hafði Cetus fengið alls 30 milljónir dala frá umsvifamiklum fjármögnunarfyrir- tækjum. Ronald Cape hafði oft á orði við slíka fjármagnseigendur fyrstu árin að Cetus „mundi fínna svör við_ spumingum sem enginn þekkir enn.“ „Ég hafði lifað og hrærzt í iíffræðinni í tíu ár og ég skildi eðli þeirrar þekkingar sem unnt væri að beizla þótt ég sæi kannski ekki fyrir mér í hvaða mynd framleiðslan sjálf yrði.“ Hann skírskotar til Kólumbusar. „Hann var fram- sýnn. Kannski vissi hann ekki nákvæmlega hvert hann var að fara en hann vissi að hann var í stórkostlegum landkönnunarleið- angri og að hans biðu stórkostlegir hlutir. Eins er það með okkur. En þar til maður hefur komizt að kjama máisins er ekki ráð- legt að fara of geyst. Það gæti þá orðið úr of háum söðli að detta." Fram til 1980 starfaði Cetus að ýmsum verkefnum, m.a. á sviði lyfjaiðnaðar og áfengisframleiðslu, en þetta haust var stundin mnnin upp. 14. október seldust hlutabréf í öðm lfftæknifyrirtæki, Gen- entech, á gífurlega háu verði. Byltingin í líftækniiðnaði var hafin. Fimm mánuðum síðar stóðu jöfrar á sviði fjármögnunar, s.s. Lehman-bræður, Roth- schild, Unterberg og Towbin, fyrir sölu á hlutabréfum í Cetus með þeim afleiðingum að fyrirtækið fékk til umráða 108 milljón dali, en það var hærri upphæð en áður hafði þekkzt í slíkum viðskiptum. Helzti samkeppnisaðili Cetus hefur verið Genentech, en Ron Cape og Robert A. Swanson helzti forvígismaður Genentech hafa þekkzt í 11 ár og reyndar ræddu þeir um það fyrir 10 ámm að Swanson sem er sérfræðingur í áhættufjármögnun kæmi til starfa hjá Cetus. Nánasti samstarfsmaður Ron Capes er Bob Fildes, 47 ára gamall brezkur doktor í lífefnaerfðatækni, sem áður starfaði hjá fyrirtækinu Biogen í Cambridge, Massac- husetts. Frammistaða hans hjá Cetus hefur vakið óskipta athygli á fjármagnsmarkaðn- um en í sameiningu hafa þeir stóreflt fyrir- tækið. Fyrstu Krabbameinslyfin Á MARKAÐ 1988 Lengi framan af gætti Ronald Cape þess vandlega að vera sem minnst í sviðsljósinu. Nú viðurkennir hann að þeir hjá Cetus hafí lært mikið af Genentech varðandi almanna- tengsl. „Það bar alltof lítið á okkur. Það fór svo lítið fyrir okkar að þegar Wall Street Transcript efndi til hringborðsumræðna um líftækni sat ég þar ásamt sérfræðingum sem ég hafði hvorki hitt fyrr né átt tal við.“ Síðan fór hann að leggja á það áherzlu að kynna sjálfan sig og Cetus í fjarmálaheimin- um, með þeim afleiðingum m.a. að vegur fyrirtækisins hefur farið sívaxandi á hluta- bréfamarkaði. Það hefur nú um 600 manns í þjónustu sinni og þar af er um þriðjungur þeirra 320 sem starfa á rannsókna- og þró- unarsviði með doktorspróf. Á síðasta fjár- hagsári nam beinn hagnaður fyrirtækisins 1,2 milljón dala en eins og gengur og gerist hjá öllum líftæknifyrirtækjum er hagnaður á þessu stigi málsins að mestu fólginn í vísindalegum niðurstöðum og árangri í þró- un og ekki í sölu framleiðslunnar. Talið er að enn muni líða tvö til þijú ár þar til fram- leiðslan fer að gefa verulega af sér. Ráðgert er að Cetus sendi tvö fyrstu krabbameinslyf sín, IL-2 og beta interferon, á markað árið 1988, en öll ný lyf eru prófuð á mönnum og dýrum um nokkurra ára skeið áður en þau hljóta viðurkenningu Matvæla- og lyfja- stofnunar Bandaríkjanna. „Það er viðtekin regla að til þess að þróa nýtt læknislyf þurfí 25 milljónir dala og sex ár, og við erum að þróa sex lyf,“ segir Cape. Lyfín eru: IL-2, beta-interferon, æxlisdrepandi efni, efnishvati til ræktunar sambúa-1 og tvö ónæmiseiturlyf — en öll eiga þessi lyf það sameiginlegt að koma að gagni í viðureign við veirur og krabbamein. „Ég minnist nú allra þeirra lyflafyrir- tækja þar sem ég var rekinn á dyr á áttunda áratugnum,“ segir Cape um leið og hann virðir fyrir sér kassa með IL-2 sem er verið að búa um áður en hann er sendur einum af yfír 400 vísindamönnum sem eru að gera tilraunir með mutein víðsvegar um heiminn en eins og önnur lyflafyrirtæki lætur Cetus viðurkenndum vfsindamönnum í té ókeypis sýnishom. „Ég man ekki hversu margir þeir voru, allir þeir rannsóknastjórar og allir þeir fram- kvæmdastjórar hjá þessum ljfyafyrirtækj- um, sem sögðu mér að endurraðað DNA væri nokkuð sem þeir hefðu engin not fyrir. Það segja þeir ekki lengur." Og það má til sanns vegar færa því að nú eru efnafram- leiðendur, orkuffamleiðendur, matvæla- framleiðendur og ljfyaframleiðendur í hópi þeirra sem hafa gert sér ljósa grein fyrir mikilvægi líftækninnar, enda eru gífurlegir ijármunir í húfí eins og m.a. má ráða af því að fyrirtækjasamsteypur á borð við Smith Kline Beckman, Du Pont, Schering- Plough og Eastman Kodak, svo dæmi séu nefnd, hafa að undanfömu varið hundruðum milljóna til að koma á fót líftæknirannsókna- stofum eða skapa sér aðstöðu á þessu sviði. Leiðin í Hákarlavöðuna Þegar til langs tíma er litið er við því að búast að einungis fáein af þeim mörg hundmð líftæknifyrirtækjum sem nú em starfandi sandist samkeppnina og eigi glæsta ffamtíð fyrir höndum. „Eina leiðin til að komast inn í hákarla- vöðuna er að komast þangað á hákarli," segir Bob Fildes um þetta atriði og í þessu skyni hefur Cetus gengið í félag með öflugu markaðsfyrirtæki sem nefnist W.R. Grace & Company og starfar á sviði landbúnaðar. Hefur verið stofnað nýtt fyrirtæki af hálfu þessara aðila og nefnist það Agracetus. „Við höfum gert okkur ljóst frá upphafí," segir Cape, „að það tæki langan tíma að þróa nýjungar í landbúnaði og að nauðsjm- legt væri að hafa á bak við sig sterkan markaðsaðila á borð við Grace sama hversu fullkomin framleiðslan væri.“ Hann hefur haft ánægjuna af því að fylgjast með nýrri vísindagrein verða til. „Hér áður fyrr gerði maður erfðafræðitil- raunir með lokuð augun. Nú em þau galop- in. Við getum hannað konin upp á nýtt, ekki tilviljunarkennt heldur þannig að við vitum gjörla af hveiju brejdingamar stafa. Það er óheppilegt að nota orðalagið „hönnuð kon“ í glensi því að þetta er einmitt ná- kvæmlega það sem um er að ræða. Samsetn- ing konanna er nefnilega nákvæmíega eins og verkfræðingur mundi hafa hannað hana. Það er nánast útilokað að skilja hversu stór- brotið þetta undur er um leið og það er svo sára einfalt." Þegar Ron Cape hafði horft á sólina setjast sneri hann sér við og sagði: „Það höfðaði ekki til föður míns að ég skyldi sækjast eftir æðri menntun. Samt kallaði hann mig „prófessor" í mörg ár — eða þar til ég var í þann veginn að verða það. Það var ekki fyrr en Cetus fór að blómstra að hann gerði sér ljóst hvað ég var að fást við. Þá sagði hann: „Þetta höfðar til mín.“ ■ ^ 1986 i.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.