Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1987, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1987, Blaðsíða 10
Gelaey Kirkland - eiturlyf og beinþynning á glæstri framabraut ballettdans- meyjar. HARMSAGA GELSEY KIRKLAND Fimmtán ára að aldri hafði Gelsey Kirkland tek- ist það, sem þúsundir kornungra stúlkna dreymir um: Hún var ráðin við New York City Ballet og fékk að dansa þar hlutverk plómudís- arinnar í „Hnetubrjótnum“ eftir Tsjaikovsky. Skúlptúr: Þröng. Er á sýningu í Þýska- landi. (Sigrún, 1987.) Eins gott fyrir menn að vera ekki með neinn brussugang á slíkum stað. Hér hafa þau hugsað sér að vera með helgargallerí í framtíðinni og bjóða fólki að koma sem áhuga hefur á list þeirra. Undan- farin ár hefur það þó alltaf verið siður hjá þeim að halda jólabasar fyrstu helgina í des- ember, þar sem þau selja lítt gallaða glermuni og ætla þau að halda þeim sið áfram. En hver hefur þróunin verið í Bergvík síðustu fímm árin? „Þegar við byijuðum var ég ein að blása því Saren var að kenna I Myndlista- og handí- ðaskólanum," segir Sigrún. „Það má segja að hálfgerður tómstundabragur hafí verið á þessu í fyrstu. Glasið varð til á staðnum og ýmsar hömlur voru á handverkinu, enda fer ég oft hjá mér þegar ég sé fyrstu glösin sem ég gerði, en ég hugga þó fólk með því að segja að þetta séu fyrstu glösin sem fram- leidd voru á íslandi. Aður þróaðist varan um leið og hún var framleidd, en núna er ekkert glas sett á markaðinn nema það hafí einnig verið þróað á pappímum áður. Hugarfars- breytingin verður um leið og tæknin og handverkið er orðið aukaatriði. Þegar hugur- inn er óháður handverkshömlum þá flýgur hann áfram og hægt er að skapa hluti sem ekki var mögulegt áður. Hugmynd kemst aðeins til skila ef efni og handverk eru í lagi.“ Nytjamunimir, glös og önnur ílát, eru þeirra daglega lifíbrauð. Frá átta á morgn- ana til fjögur á daginn vinna þau við að framleiða flát sem búið er að hanna, en nú eru þau með 34 mismunandi vörunúmer. Þess má geta til gamans, að þegar Holme- gaard-glerverksmiðjan í Danmörku framleið- ir af einni glasategund um 700 glös á ári þá framleiða þau Sigrún og Seren af einni tegund um 200—300 á ári. Það verður því aldrei um flöldaframleiðslu hjá þeim að ræða og fráleitt að líkja þeirra verkstæði við stór- ar erlendar verksmiðjur. Að Lifa Af List Sinni En þau anna ekki eftirspum. „Fólk hefur tekið okkur ákaflega vel og við höfum aldrei mætt mótspymu, einungis velvilja og stuðn- ingi. fslendingar eru líka svo sérstakir, se'nnilega er sú þjóð ekki til sem kaupir jafn- mikið af frummyndum og þeir. Og fólkið vill meira en gler. Stundum getur það bæði verið gott og slæmt að vera í svona nánum tengslum við viðskiptavininn. Við erum svona eins og kaupmaðurinn á hominu. Það kemur fyrir að fólk verði óánægt ef við tökum ein- hveija ákveðna glasategund úr framleiðslu, því margir safna glösum okkar og kaupa kannski bara eitt i einu, en yfirleitt hefíir þó fólk sýnt skilning á því að verkstæði eins og okkar þarf að þróast. Hins vegar getur það líka verið gott að hafa viðskiptavinina svona nálægt sér, því það er ekki svo sjald- an, sem þeir koma með ábendingar og athugasemdir, sem við síðan höfum notfært okkur. í rauninni erum við sérréttindafólk, því við getum selt vöru okkar og þar með lifað af list okkar. En það er meira en hægt er að segja um marga erlenda glerlistamenn." Breytingar í Bergvík Eftir hinn venjulega vinnutíma tekur svo hin ftjálsa listsköpun við. Þá vinna þau við skúlptúra sina og myndvasa, sem þau hafa fengið viðurkenningar fyrir, ekki síður en fyrir nytjamuni sfna. Þau hjónin hafa haldið fjölda sýninga á munum sínum, en þann 9. september sl. var þeirra fyrsta sameiginlega einkasýning er- lendis opnuð í Bremen í Vestur-Þýskalandi. En þetta er röð sýninga og verður sú næsta haldin í Brussel, síðan í Rheinbach og að lokum í Miinchen. Sýningin í Rheinbach verð- ur i listasafninu þar og mun sendiherrann i Bonn opna þá sýningu. Karöflur: Gerðar fyrir karöflusýningu i Gallerí Langbrók. (Sigrún og Soren, 1983.) Byijunin: Glösin sem fóru fyrst í fram- leiðslu. (Sigrún og Seren, 1982.) „Þetta sýningarátak er mjög örvandi því það ýtir undir ftjálsari listsköpun og opnar nýjar leiðir. Við vonumst til að geta leikið okkar meir með ftjálsar tilraunir í framtíð- inni," segja þau Sigrún og Seren. En það er fleira að gerast hjá glerlista- mönnunum í Bergvík. Þau eru nú að eignast sitt óskaverkstæði, eins og þau segja. Hingað til hafa þau kynt ofnana með olíu og í blaða- viðtali fyrir fímm árum lét Seren svo um mælt, að ef þau hefðu ætlað að láta ofnana ganga eingöngu fyrir rafmagni, þá hefði það orðið ansi kostnaðarsamt, nógur var víst kostnaðurinn fyrir. „Því lögmál glersins er mikil framleiðsa og mikill kostnaður." En draumar rætast alltaf hjá dugmiklu fólki. Á miðju gólfi verkstæðisins stendur nú rafmagnsofninn og verður tekinn í notkun um áramótin. „Rafmagnsofninn mun gefa betri bræðslu og þar af leiðandi betra eftii og efnið skiptir jafnmiklu máli og hugmynd- in,“ segir Soren. „Hávaðinn frá olfudælunni mun nú hverfa og þetta verður eins og í gamla daga þegar ofiiamir voru kyntir með kolum og viði. En þetta fyrsta flokks tæki kostar eina og hálfa milljón. Það er mikil flárfesting, svo nú er að duga eða drepast." Börnin Betri í Skíðabrekkunum Sennilega fer nú að læðast sá grunur að mönnum að þessi ungu hjón unni sér engrar hvfldar, skyldu þau kannski aldrei þurfa að sofa eins og aðrir? „Ojú, ætli það ekki,“ ansar Sigrún bros- andi, „en satt er það, að stundum höfum við þurft að vinna nótt og dag því við erum með dýr framleiðslutæki og eftirspum er mikil. Það hefur stöku sinnum flögrað að mér, svona þegar mest gengur á, hversu notalegt það væri nú að vinna á fínum kontór þar sem blóm em í vösum og svona lágvær músík, en sú hugmynd er alltaf fljót að gufa upp.“ Saren segir ekkert, en brosir í kampinn, kannast greinilga við hugmyndina. En hvað með flölskyldulífíð og bömin? Hvemig hafa þau tekið þessum langa vinnu- tíma pabba og mömmu? „Þau hafa verið alveg einstök, alltaf sýnt okkur þolinmæði og virt okkar vinnutíma. En við rejmum að vera eins mikið saman og við getum. Fyrir tveim árum eða svo fómm við að fara á skíði með þeim og eftir að við tókum okkur einn frídag í viku, en það höfum við gert siðan haustið ’86, þá fömm við reglu- lega á skíði á vetuma. Krakkamir em auðvitað miklu betri en við i íþróttinni. Mart- in, sem er 14 ára, er farinn að keppa á skíðum og dóttirin Lóa, sem er ári eldri, æfir nú stíft með bróður sínum, svo hver veit nema hún fari einnig sfðar í keppni." Þau sem sagt stinga ykkur af í brekkun- um? „Já, það er víst, en þetta em afskaplega skemmtilegar stundir sem við eigum saman á skíðum og við emm alsæl og svo þægilega þreytt þegar við komum heim, stundum seint á laugardagskvöldum. Við yfírgefum „himnariki" og fömm aftur niður í hitann á verkstæðinu. „Langar þig ekki til að sjá inn í ofninn?" spyr Seren, og opnar þennan 1300 gráðu heita ofn, sem orkar beinlínis ógnvekjandi á ókunnugan og dregur máttinn úr hnjáliðunum. „Já, nú sérðu inn í helvíti," segir Sigrún sposk. Og svo standa þau grafkyrr eitt andartak og horfa með ástúð inn í logann. Hún komst á hátindinn í ballettheiminum, dansaði með Baryshnikov og varð ástkona hans og gerði allt til að mæta ómennskum kröfum um fullkomnun: Svelti sig, lét breyta útliti sínu en fór svo að neyta kókaíns og þá var þess skammt að bíða að hún hrapaði niður af tindinum. Eftir LAURU SAPHIRO Þegar hún var orðin 28 ára hafði hún um langan tíma verið ein allra frægasta og dáðasta balletdansmey Bandaríkjanna. Hún var líka eiturlyfjaneytandi. En núna hafa velflestir aðdáendur hennar auðvitað þegar lesið um eiturlyfjaneyslu fólks, sem verið hefur í sviðsljósinu í öllum mögulegum greinum: Rokkstjömumar deyja rétt rúm- lega tvítugar, frægur skopleikari venur sig á amfetamín; dánarorsök hans köfnun. Einn besti homaboltaleikmaður í einu háskólaliði Bandaríkjanna deyr af völdum of stórs skammts af kókaíni. Og nú er röðin komin að heimi listdansaranna, þar sem glæstar tálsýnir virðast vera alveg jafti haldlausar og hættan leynist við hvert fótmál. Frami,HvaðSem HannKostar Frásögn Gelsey Kirkland í bókinni „Danc- ing On My Grave“ („Dansað á eigin gröf“) er annað og meira en saga eiturlyfj aneytanda — hún er um leið greinileg aðvörun til ann- arra. Bókin fjallar ekki síst um átök milli framagimi ungrar stúlku og bamslegra við- horfa hennar og það í heimi listdansins, þar sem enginn hefur ráð á því að misstíga sig hið minnsta. í okkar augum eru listdansarar eiginlega fullkomið tákn þeirrar þráhyggju nútíma- manna er varðar lýtalausan og fagurskapað- an líkama. En þessar dansandi mannverur, sem birtast okkur i glæsilegu stökki fram á sviðsvænginn, enda oft á tíðum lokaðar inni í búri sjálfsefasemda, fljótvirkra megrunar- kúra, tíu tíma vinnudags og miskunnarlauss spegils. Einmitt af því að sannir listdansarar eru svo heillaðir af því að fá að dansa eru þeir vísir til að gera hvað sem er til þess að geta haldið áfram að koma fram á sviði — þeir grípa jafnvel til þess að reyna að ljúga að sínum eigin líkama. Sem táningur fór Gelsey Kirkland að láta betmmbæta likama sinn með því að stækka bijóstin og gera varimar þrýstnari og stút-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.