Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1988, Side 12

Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1988, Side 12
VINNANERSVO FRJÓSÖM Rætt við SIGURÐ ÞÓRI myndlistarmann, sem opnar í dag stóra einkasýningu á Kjarvalsstöðum eftir KRISTÍNU ÓMARSDÓTTUR Myndir Sigurðar Þóris eru stórar, þá er ekki bara verið að mæla þær með málbandi eða tommustokk. Hann málar fólk. Manneskjur í nærmynd. Og þessar manneskjur standa svo sannarlega nálægt þér þaðan sem þær blasa við þér, af veggnum. Líka þó stundum standi þær eins og í draumi. Þar má sjá konuna sem á ekkert nema stólinn ... og faðmlagið að degi til sem eins gæti verið nótt... tvær uppstilitar mann- eskjur, líklega á vormorgni; önnur einarð- leg, hina dreymir, önnur heldur á, hin er í faðmi. Seglskúta og maður sem lítur til him- ins ... fjólublár veggur... von í augum ... hann leitar, hún hikar . . . Þar má sjá... Við keyrum í bíl og Esjan rís meira en hvít uppúr djúpbláum sjó. Sólin skín á sunnudegi og fjarlægðin er gulllituð. — Það vantar ekki fegurðina, segir hann. — Svo sannarlega ekki, segi ég. Gatan er „strandvejen" þangað til komið er að flöngum lágreistum pakkhúsum, og inní hverfí slíkra húsa þarsem hurðimar eru bflskúrshurðir og grýlukertin glær og mikið stærri en heima, keyrum við og stoppum. — Hér var einu sinni næturklúbbur, seg- ir hann, áður fiskverkunarhús. Ég er í gamla aðgerðarsalnum. — Aðgerðarsalnum? Framhjá stöflum. af kökkenrúllum, upp mjóan stiga, komum við inní vinnustofu Sigurðar Þóris myndlistarmanns. »— Hvaðan ertu? — Ég er Reykvíkingur í húð og hár og alinn þar upp. Að vfsu var ég alltaf í sveit á sumrin og kynntist eiginlega tveimur heimum, bænum og sveitinni. Ég náði í skottið á því að sitja á gamalli rakstrarvél með hesti fyrir. Ég var alltaf teiknandi sem strákur og unglingur sá ég Kjarvalssýningu sem verk- aði mjög sterkt á mig. En það tók mig nokkur ár að safna kjarki til að þora að fara inní Myndlista- og handíðaskólann. Ég hélt hann væri yfírfullur af snillingum. Ég bytjaði þar tvítugur. Eg var í skólanum i tvo vetur, kenndi í Þorlákshöfn ■ aðra tvo, fór þá til Kaup- mannahafnar og var þar í listaakademíunni í rúm fjögur ár. Fyrsta veturinn þar stóð ég og teiknaði módel frá níu til fímm. Það var rosalega góður skóli fyrir mig. Bara módel og aftur módel. Síðan var ég í grafík. En allan tímann þama úti var ég líka með vinnustofu með Ameríkana og þar málaði ég. í skólanum málaði ég aldrei neitt. Sigurður Þórir í vinnustofu sinni við Kleppsmýrarveg.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.