Lesbók Morgunblaðsins - 16.04.1988, Síða 19
LESBOE
M ÍO| ÍRj [g] U N. B L A ;Ð| S [ i j N [sj
16. APRÍL 1988
Grieg-höllin í Bergen
Ný stefiiumótun
í norskum
ferðamálum
Er þetta ævintýrið — slökunin á milli erfiðra funda?
' KW&-'
k . Mti
í jspw1
W'4 {
Oddný Björgvinsdóttir
skrifar um ferðamál
Á Norðurlöndum, einkum í
Svíþjóð, Finniandi og Noregi
hefur veruleg breyting átt sér
stað á skömmum tíma i stefnu-
mótun í ferðamálum. Atvinnu-
greinin er smám saman að taka
við rekstri ferðamálaráða við-
komandi landa og styður fjár-
hagslega — ásamt hinu opin-
bera — stofnanir sem hafa tek-
ið við hlutverki þeirra. Þannig
hefur hlutverk „hefðbundnu"
ríkisreknu ferðamálaráðanna
minnkað, jafnframt því sem
hlutdeild atvinnugreinarinnar
sjálfrar hefur stóraukist — sér-
staklega i hinni mikilvægu
markaðssetningu.
í Noregi er stofnunin NORTRA
einskonar markaðsarmur sem
leiðir alla markaðsstarfsemi á er-
lendum vettvangi og sér um undir-
búning hennar og yfirstjóm í höf-
uðstöðvunum í Osló. Fram-
kvæmdaaðilar NORTRA eru virk-
ir þátttakendur í norskum ferða-
málum og bera bæði ábyrgð og
skyldur ásamt hinum opinberu
aðilum. NORTRA gefur út ferða-
blaðið Reiseliv. í síðasta mars-
blaði þess ber margt á góma, sem
hér verður stuttlega rakið.
Ný norsk markaðsstefna
í Noregi standa ríkisstjómin,
samtök útflytjenda og ferðaþjón-
ustuaðilar saman að nýjum leiðum
í markaðssetningu. Reiselivet
fagnar þessari nýju stefnumótun
og vitnar í framkvæmdastjóra
NORTRA, Torbjörn Föysnes, sem
telur brýna þörf á nýrri, endur-
skoðaðri markaðssteftiu fyrir all-
an norskan útflutning á vörum
og ferðaþjónustu. Framkvæmd og
stefnumörkun yrði undir forystu
norska Útflutningsráðsins í sam-
starfí við NORTRA og fleiri aðila.
Áhersla yrði lögð á frekari upp-
byggingu ferðaþjónustu sem fæli
í sér vaxtarbrodd í norsku at-
vinnulífi um allt land, þar sem
umfang atvinnugreinarinnar nær
til fjölmargra atvinnustétta, sérs-
taklega úti á landsbyggðinni. Tal-
að er um að hvetjar 20 norskar
krónur, sem lagðar em í markað-
skynningu, gefí af sér andvirði
um 500 norskra króna í keyptum