Lesbók Morgunblaðsins - 14.05.1988, Side 17
Söguhetja greinarinnar á sólríkum sumardegi í Kópavoginum. Á neðri myndinni
er greinarhöfundurinn ásamt Landróvernum umrædda sumarið 1972.
Nánustu gæðingar pólitíkusanna flutu með
í þessu úrvali, skömmtunarleið þessi var
vitanlega kjörlendi hagsmunapots og póli-
tískrar spillingar. Hversu mjög sem menn
úr röðum almennings langaði í svona land-
búnaðartæki var engin leið fyrir þá að nálg-
ast það. Og þó. Einn klókur bóndi norður
í Húnaþingi uppgötvaði hvemig komast
mætti yfír jeppa án þess að vera einn hinna
útvöldu. Hann giftist einfaldlega ljósmóður
sem hafði fengið einum Landróver úthlutað!
Eftir því sem nánustu fregnir herma fyrir-
fínnst jeppinn ekki lengur, en kærleikar
góðir ku hins vegar enn vera með þessum
heiðurshjónum.
Gerður var listi yfír þær 200 persónur
sem höfðu fengið úthlutað leyfí til jeppa-
kaupa. Sá listi komst með krókaleiðum í
hendur þeirra aðila sem fluttu inn þessar
tvær tegundir jeppa sem þekktust í þá daga,
Willys sem Egill Vilhjálmsson hafði umboð
fyrir og svo Land Rover. Þar með upphófst
mikið kapphlaup innflutningsaðilanna að
hafa tal af sem flestum rétthöfum og sann-
færa þá í tíma um ágæti hvorrar tegundar-
innar um sig. Svo fór að Hekla hf. sigraði
naumlega í þessari fyrstu en ekki síðustu
j'eppakeppni" sem háð hefur verið á ís-
landi, náði að selja 103 landróvera á móti
97 Willysum Egils. Kannski að þetta hafí
verið upphafði að þeim landlæga jepparíg
sem lengst af stóð milli Willys og Landróver?
innar, sýningarbílinn R 1611, en ferðuðust
engu að síður að hluta til með strandferða-
skipinu ms „Herðubreið" þar sem ekki var
fært landleiðina til allra staðanna. Með
þessu móti var hver og einn hinna hundr-
aðogþriggja nýju jeppaeigenda heimsóttur
í hringferð um landið (og miðin). Skipt var
um olíur, bflamir stilltir og hertir upp og
grennslast fyrir um akstursháttu og hún
leiðrétt eins og tök voru á ef með þurfti.
Ef til vill hafa svo vönduð vinnubrögð í
upphafí leitt til þess að þessir fyrstu
Landróverar þóttu standa sig með stakri
prýði og endast einstaklega vel.
Næst rýmkaðist um innflutningshöftin
árin 1954 og 1955 sem leiddi til þess að
óvenju mikið varð um árgerð '55 í umferð,
meðal annars það eintak sem undirritaður
eignaðist. í millitíðinni hafði Landróverinn
verið settur í plankastrekkjara og hjólhafíð
aukið úr 80 í 86 tommur. Aftur varð breyt-
ing á hjólhafí ’60-árgerðarinnar, þá var það
aukið í 88 tommur. Þar með var Landróver-
inn kominn í þá mynd sem flestir muna
eftir þegar rætt er um hann.
Haustið 1961 var innflutningur á jeppum
gefinn ftjáls og því kom skríða af jeppum
til landsins árið 1962. Allt frá því hafði
Landróver vinninginn umfram Willys-inn í
eintakafjölda. Sennilega hefur díselvélin og
hurðin á afturgaflinum ráðið mestu um.
fyrir bænduma var það nefnilega svo skolli
Tvöfalt stórafmæli: Finnbogi Eyjólfsson í Heklu ásamt Óla M. ísakssyni, starfs-
manni hjá Heklu um áratuga skeið. Myndin er tekin á níræðisafmæli Óla við
fyrsta Landróverinn fertugan.
Landróverinn hefur oft verið farartæki visindamanna. Hér er Trausti Einarsson
viðmælingará segulsviði& Skólavörðuholti 1956ásamt frönskum vísindamanni.
því meir að Landróvemum sem stóð á plan-
inu fyrir utan stofu 33 og af öðmm bflum
bar. Þá varð til, í óskiigreindri samvinnu
okkar þriggja, „Landróverblúsinn" sem átti
eftir að verða einkennislag Blúsbandsins um
langan aldur og gott er ef er ekki enn.
Þessi ágæti Landróverblús er sunginn með
sínu lagi sem reyndar er alls ekki blús, enda
í C-dúr, svona fyrir þá sem vilja reyna sig
við hann:
Er mér verður út um litið gluggann
eitt þá bara augun f mér sjá
það er gamla græn’ og hvíta skruggan
Landróverinn, Landróverinn, já.
Hans litur stingur engan mann íaugun
ofsalega litrfkur er þó
hann tekur allar píumar af taugum
og trekkir þær og trekkir þær ó hó.
Viðlag:
Að stara oft ég stend mig að
stjömudýrkun virðist það.
En græni bfllinn grúví er
hinn geigvænlegi Laaaaandróver.
Axlir yfir aðra bfla ber hann
Blak sjálfur sýnist næsta smár1
fímleg’ yfír ófærumar fer hann
flýgur þær létt sem fuglinn smár (eða
knár eða blár).
Að stara oft... o.s.frv.
Seinna meir bættist síðasta erindi Land-
róverblússins við.
Af planinu að missa þann mæta bfl
mikill var skaði
Nonni Baldur og bfllinn f prófíl
voru bræður — marmelaði.
Að stara oft ég stend mig að
stjömudýrkun virðist það.
En græni bfllinn grúvf er
hinn guðdómlegi Laaaandróver.
Sumarið eftir seldi ég þennan eðalvagn
til verktaka í raflínulagningu. Það frétti ég
síðast af fyirum félaga mínum í blíðu og
stríðu að dag einn var hann færður grindar-
brotinn ofan úr Holtum inn á kaupfélags-
verkstæðið á Hellu. Þar fór Haukur Jóns-
son, fyrrum verkstæðisformaður, höndum
um vagninn en taldi að honum yrði ekki
öllu lengri lífdaga auðið, „brúnátan“ væri
búin að leika grind og önnur burðarvirki
bflsins grátt.
Þjóðráð Að Kvænast
Ljósmóður
Framleiðsla þessara vinsælu landbúnað-
arfarartækja hófst í Englandi árið 1948
undir áhrifum hins eina og sanna ameríska
jeppa, Jeep. Heildverslunin Hekla krækti
fljótlega í umboðið en reglulegur innflutn-
ingur bflanna hófst ekki fyrr en árið 1951.
Á þeim tíma var allur innflutningur bfla
háður innflutningsleyfum frá Qárhagsráði.
Bflar voni sem sagt stíft skömmtuð munað-
arvara. Árið 1951 fengust innflutningsleyfí
fyrir 200 jeppum. Þeir heppnu sem fengu
leyfunum úthlutað voru fyrst og fremst
menn í þannig stöðum að þeir þyrftu á jepp-
um að halda. Læknar og ljósmæður, ein-
staka vísindamenn, prestar og pólitíkusar.
Vísm Að Kerfisbundnu
VlÐHALDI
Finnbogi Eyjólfsson, núverandi blaðafull-
trúi Heklu hf., er sá maður sem hvað mest
hefur haft með Landróver að gera í gegn
um tíðina. Á þeim árum þegar Landróver
var að taka sín fyrstu spor hér á landi var
Finnbogi lærlingur í bifvélavirkjun hjá
Heklu. Þegar Hekla fékk umboðið fyrir
Landróver var hann sendur til Birmingham
til að sérmennta sig í viðhaldi þeirra. Síðan
afhenti hann hvem og einn hinna 103 bfla
úr fyrstu sendingu og lagði viðtakendum
línumar í meðferð bflanna ásamt tilheyrandi
hamingjuóskum.
Einsýnt þótti að þrátt fyrir góðar leið-
beiningar voru mönnum nokkuð mislagðar
hendur í meðferð þessara tækja. Því lagði
Finnbogi af stað um haustið við annan
mann til þess að grennslast fyrir um líðan
bflanna, hlúa að þeim og ráðleggja mönnum
varðandi áframhaldið. Var þetta fyrsti visir
að kerfísbundnu viðhaldi bfla á íslandi. Þeir
Finnbogi höfðu eðlilega Landróver til farar-
gott að geta kippt með sér einni rolluskjátu
eða tveimur þama afturí þegar komið var
utan af túni eða skroppin bæjarleið.
VEIGAMIKIL BREYTING 86
Eina byltingarkennda breytingin sem
gerð hefur verið á Landróvemum á flörutíu
ára ferli hans kom fram með ’86-árgerð-
inni. Þá var skipt algjörlega um vélar og
undirvagn á þann hátt að kramið úr Range
Rover var sett undir „sauðargærana" af
Landróvemum. Einnig var boðið upp á nýja
2,5 1 díselvél, fáanlega með túrbfnu. Fyrir
skömmu átti ég þess kost að setjast upp í
einn hjá Höldi sf. norður á Akureyir, með
8 strokka bensínvél, gormaflöðran og öðra
slíku sem ég hefði ekki látið mig dreyma
um að yrði nokkum tímann sett í Landró-
ver. Skyndilega var allt þetta horfið sem
áður var; einkennandi vélarhljóð, gijóthöst
Qöðranin og brakið þegar skipt var í annan
gír. Nokkuð sem hönnuðum Landróver tókst
ekki að ná úr gamla gírkassanum á 38 ára
ffamleiðslutíma hans. Og nú sat ég uppi
með suð eins og í þotu í stað vélarhljóðsins
áður, aflhemla, vökvastýri og annan munað
sem gerði mig hálffeiminn við að aka þess-
um bfl. Samt hafði ég á tilfinningunni að
eins og þessi bfll hafði nú samsvarað sér
vel áður — allur hæfilega grófur og einfald-
ur — þá væri hér eitthvað komið á hjól sem
reyndar bar nafnið Landróver en stemmdi
ekki almennilega að öðra leyti. Eins og
þegar aðeins er skipt um hluta af gömlu
pústkerfi í bfl í stað þess að skipta um það
allt. Því gladdi mig kannski meir en ella
að sjá að hurðarhúnninn, þetta einkennis-
tákn Landróversins, hafði sloppið óskaddað-
ur frá þessu breytingaskeiði og opnaðist
eftir sem áður upp.
í Ijörutíu ára sögu Landróversins hafa
verið framleidd jrfir 2 milljónir eintaka af
honum sem hafa verið flutt út til flestra
landa á jarðarkringlunni. Þar af hafa íslend-
ingar keypt um 4.000 eintök frá upphafi,
áreiðanlega fleiri en nokkur þjóð önnur —
miðað við fólksfjölda að sjálfsögðu.
Hötundur er bílaverkfræðingur.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 14. MA( 1988 17