Lesbók Morgunblaðsins - 27.08.1988, Qupperneq 19
j þtJU
n
iKéW ií.,,
HUIUS — > ; t
Gamla gufuskipið, Markowitch að sigla eftir Dóná
Náttúrufegurð Austurríkis
heillar jafnt með skíðasnjó á
veturna sem og fjölbreyttu
blómskrúði á sumrin. í ökuferð
um landið er oft erfitt að
ákveða sig hvar á helst að nema
staðar: Við vatn eða í fjalli -
kastala eða klaustri - hlýlegu
þorpi eða gömlum miðbæjar-
kjarna - njóta listalifs eða
þeirra fjölbreyttu iþróttaiðk-
ana, sem landið býður upp á.
Kortið „Austria from the
inside“ aðstoðar ferðamanninn
við leiðaval, en þar eru merktar
inn á eftirtaldar leiðir: Frá
kastala til kastala; frá höll til
hallar; klaustur og kirlgur; í
fótspor mikillar tónlistar; eða
leiðin „líka fyrir bömin“, sem
gæti höfðað tíl fjölskyldufólks.
Ferðaritari staðnæmdist i litla
vinekrubænum KREMS, sem
stendur við Dóná i Neðra-
Austurriki og undi sér að hjóla
um „póstkortalandslagið“.
Að sameina hjólreiðar- og
lestarferðir
Lestin frá Vín bar okkur á
klukkutíma niður í mjúkt landslag
Neðra- Austurríkis. Það er
tvimæ&laust meiri hvíld -og ódýr-
ara- að sitja í lest en að taka bíl
á leigu og auðvelt að hoppa út,
ef maður vill skoða eitthvað nán-
ar. Ferðamátinn að sameina lest
og hjól er bæði ódýr og skemmti-
legur. Hjól er allsstaðar hægt að
fá leigð, en þau fylgja líka oft
með á gististað. Hægar, öruggar
hjólreiðabrautir liggja meðfram
vegum og maður nýtur hressandi
útiveru um leið og landslagið
rennur hjá.
Hlýlegt umhverfi, umvafið
blómum
Á „Am Förthof“ í útjaðri
KREMS mætir heimilislegt við-
mót hótelgestum - sérkennandi
fyrir austurrísk fjölskylduhótel.
Gamlir „safngripir" og ekta teppi
njóta sín vel í gömlu veiðihöllinni
hans Jósefs II., sonar Maríu Ther-
esíu keisaraynju. Umhverfíð er
umvafíð gróðri: grænar stofup-
löntur - kastanSutré í garði - blóm-
strandi begóníur á trésvölum -
blómamynstur í stólsetum og
veggfóðri. Setu- og borðstofa
renna saman í eitt þar sem hér
er geysimikil alúð lögð við hvíla
hugann um leið og borðað er, en
hótelið er þekkt fyrir matargerð-
arlist.
Að njóta lífsins í KREMS
Ferðamaður í hvíldarfríi vill
náttúrufegurð og listaverk; blóm
og gróður; kyrrð og frið til að
njóta lífsins - og helst að landslag-
ið búi yfir sögum og sögnum í
gömlum byggingum til að hægt
sé að gleyma sér við að lesa gamla
tímann. Allt þetta og meira til fær
hann í KREMS. Hjólið stendur
og býður við útisundlaugina. Og
síðan er hjólað niður með Dóná
eftir litlum hjólreiðastígum með
tijágreinum slútandi yfir. Stór
útisundlaug með sólbaðsaðstöðu -
Syngjandi og
dansandi eftir strætunum
Hjólað meðfram
Dóná í litla bænum Krems
ODDNÝ SV. BJÖRGVINS
skrifar um ferðamál