Lesbók Morgunblaðsins - 03.09.1988, Side 10
Niki de Saint Phalle og
Tarotgarðurinn í Toscana
f lífíð er eins 0£ að spila á spil, þá er okkur
boðið að vera með án þess að vita hvað spilin
merkja. En þó verðum við að taka þátt í leikn-
um.“
Þetta er meðal þess sem Niki de Saint
Phalle hefur sagt í sambandi við „Tarotgarð-
inn“, sem hún hefur í mörg ár verið að
koma upp á fallegu, hæðóttu landsvæði
ekki langt frá ströndinni í suðurhluta Tos-
cana á Italíu. Tarotgarðurinn er nú smám
saman að verða fullgerður.
Tarotspilin eru 22 (jafnmörg og stafimir
í elzta stafrófinu, hinu fönikíska). Þar af
leiðandi verða styttumar jafnmargar í Tar-
Páfinn og hin flæðandi sól
otgarðinum. Þær em flestar sérstæðar
byggingar. Allt frá því er hún sýndi högg-
myndina „Hún“ í Nútímalistasafninu í
Stokkhólmi árið 1966, hefur hún átt sér
draum, sem hún hefur viljað gera að vem-
leika: Samsafn stórbrotinna höggmynda
sem hún gæti litið á sem æviverk sitt saman-
lagt. „Paradís“ á Skeppsholmen í Stokk-
hólmi var aðeins liður í undirbúningnum og
eins „Golem" í Jerúsalem og hinn risastóri
„Dreki“ í Knokke-le-Zut í Belgíu og svo
húsaþyrping, sem hún byggði í Suður-
Frakklandi í lok 7. áratugarins.
Hvað er Tarot? Eða hið mikla „Arkan-
um“? („Launþekking.") Vafalaust meira en
spil. Sennilega eiga táknin, myndimar, ræt-
ur sínar að rekja til hins forna Egypta-
lands. Móses á að hafa flutt þau með sér
til ísraels, þar sem þau nefndust „Thora“,
og að minnsta kosti er samband á milli hinn-
ar hebresku Kabbala og Tarots.
Tarot felur einnig í sér gullgerðarlist og
ýmsa aðra launþekkingu. Því hefur verið
haldið fram að þegar kristnin hafi smám
saman verið að ná undirtökunum í Egypta-
landi, hafi egypzku prestarnir þjappað vizku
sinni saman í hin 22 tákn og samsetningar-
aðferð þeirra. Þannig gátu þeir haldið þekk-
ingu sinni leyndri fyrir öllum nema þeim
innri hring, sem kunni reglurnar.
Það er auðskilið, að manneskja á borð
við Niki der Saint Phalle, sem hneigist svo