Lesbók Morgunblaðsins - 18.02.1989, Side 4

Lesbók Morgunblaðsins - 18.02.1989, Side 4
I Eftir BERGLINDI GUNNARSDÓTTUR Frederico Garcia Lorca og sviðsmynd úr Yermu. „Hve sælt að dvelja með þér dauði minn ...“ Skáldið FREDERICO GARCIA LORCA byrjun 20. aldarinnar kemur fram á sjónarsviðið í Evrópu og báðum álfum Ameríku nýr straumur lista sem vildi sópa til hliðar öllum gömlum gildum og hefja upp merki ungrar listar á nýjum tímum vel- 'gengni og tæknilegra framfara. Til Spánar blésu „Paradís, Lokuð Fyrir MARGA“ Sagt hefur verið, að á Spáni, einkum á Suður Spáni, hafi allt fram á þessa öld verið við lýði svokölluð menning dauðans, sem skýrast megi sjá í ýmsum hefðum, svo sem nautaatinu og trúarathöfnum páskavikunnar. Saga Spánar er raunar full af ofbeldi og leik að dauða. En með því að ögra dauðanum má sleppa frá honum með sæmd og öðlast á þanh hátt yfirráð yfir honum. vindar stefnu þessari einkum frá Suður- Ameríku og Frakklandi og á 3. áratug aldar- innar kemur þar fram efnilegur hópur ungra ljóðskálda sem nefndur hefur verið 27- kynslóðin. Þessi ungu framúrstefnuskáld höfnuðu skilyrðislaust tengslum við fortíð- ina, sneru baki við gamla Spáni myrkurs og miðalda og beindu sjónum sínum til Evrópu og þess sem þar var helst að ger- ast. Þeir hrifust af fýrirbærum nútímans, tækninni og framförum hennar, og ortu ljóð um símann, ritvélina, útvarpið, flugvélina og jafnvel íþróttir. Hinar gömlu og viður- kenndu stefnur, rómantík jafnt sem raun- sæi, urðu að hopa úr ljóðum þessum. Ljóðið skyldi hreinsa af mannlegum kenndum og tilfinningum; á oddinn var sett hið „hreina ljóð“. Þessari viðamiklu menningar- og andófs- stefnuskrá fylgdi einnig þátttökuleysi og andstaða við stjómmálastarf í landinu. En er nær dró spænska borgarastríðinu, er stóð frá ámnum 1936—1939, veittist skáldunum erfiðar að halda sig við stefnuskrá sína. Og eftir stríðið og sigur Francos var þar með endi bundinn á þessa gróskumiklu og skapandi hreyfingu og tímabil er kallað hefur verið af ýmsum silfuröld spænskra bókmennta. Skáldin ungu tvístruðust um allar jarðir, fóru í útlegð til annarra landa, lokuðu að sér og létu lítt á sér bera. Eyði- leggingin á öllum sviðum menningar og lista var alger eftir stríðið. í þeim gífurlegu umbrotum sem fylgt höfðu fæðingarhríðum hins unga lýðveldis og afnámi konungsveldisins voru Spánveij- ar, allir sem einn, knúnir til að taka af- stöðu. í hópi skáldanna ungu sem fylktu sér í baráttusveit fyrir hinu unga lýðveldi voru m.a. þeir Rafael Alberti og Federico García Lorca. En þeir félagar voru samt býsna ólík- ir. Alberti snerist til fylgdar við heimsbylt- inguna og gekk í Kommúnistaflokk Spánar. Lorca var á hinn bóginn ekki pólitískt með- vitaður á sama hátt; hann neitaði því að hann væri bundinn neinni pólitískri hug- myndafræði og samt eignaði spænsk alþýða sér verk hans fremur en nokkurs annars af þessari kynslóð. „Dijúgur hluti verka hans er sem sé alþýðlegur í þeim skilningi að þau eru þrungin hálfmeðvituðum tilfinn- ingum þjóðar hans, efldum og auknum af list hans og höfðuðu því til almennings. Sú tilfinningaorka, sem hann leysti úr læðingi, varð vatn á myllu hinna óskipulegu bylting- arafla Spánar, hvort sem honum líkaði bet- ur eð verr.. segir Arturo Barea. Af þessu má ljóst vera að Lorca höfðaði mjög til tilfinninga fólks f verkum sínum, andstætt hinu „hreina ljóði" 27-kynslóðar- innar. Og hann leitaði einnig fanga í þjóðleg- um alþýðukveðskap og blandaði í verk sín ævintýri og veruleika, dansandi sígauna- meyjum, flýjandi stigamönnum og dauða. * þýðing: Hannes Sigfusson. Sjá Tímarit Máls og menningar, 1959. Federico García Lorca fæddist þann 5. júní 1898 og ólst upp í sveitum Granada sem er í syðsta héraði Spánar, Andn,,’aíu. Faðir hans var dugmikill bóndi sem eignað- ist jarðir og komst í góð efni svo að hann gat sent böm sín til náms. Móðir Federicos var kennari, listræn kona og hæfileikarík sem studdi alla tíð son sinn á þeirri braut er hann valdi sér. Eftir því sem Federico segir sjálfur erfði hann ástríður föður síns og gáfur móður sinnar. En ef til vill einnig næmleikann því það var móðir hans sem kenndi honum að lesa og ræktaði með hon- um listfengi og virðingu fyrir manninum. Og af vinnufólkinu og bamfóstrum sem vistuðust hjá foreldmm hans lærði hann ógrynnin öll af þjóðvísum og gömlum sögu- sögnum sem geymdust honum í minni og varð honum óþijótandi efniviður síðar meir í skáldverk sín. Borgin Granada á sér enduróm í ljóðum Lorca. Hún er sérkennileg og fögur; austræn í gerð sinni með vestrænu ívafi. A þessum tíma, í bytjun aldarinnar, lifði hún í minn- ingu sögufrægðar sinnar og bar minna á henni en öðrum stærri borgum í Andalúsíu, svo sem Sevilla, Málaga og Córdoba. Hún stóð sem tákn um endalok aldar sem rann sitt skeið á enda er kristnir menn unnu borgina af márum á öldum áður og settu hjól endurreisnarinnar í gang. Með harðri hendi drottnuðu kristnir menn síðan yfir íbúum borgarinnar sem flestir voru márar og gyðingar. Og borgin sjálf ber merki þessa. Hlið við hlið standa dýrmæt djásn máranna, eins og til að mynda hin fræga Alhambra-höll, og byggingar hinna kristnu sem oft á tíðum skyggja á yfirlætisfullan hátt á finlega arabíska drætti sem fínna má í þröngum öngstrætum. Innan um ríkulega skreyttar byggingar og mannvirki þreifst svo víða mikil fátækt íbúanna, að stóru'm hluta betlarar og nunnur. Það var eins og borgin væri, mitt í and- legri ládeyðu sinni, full af djúpum söknuði eftir róstusamri og horfínni fortíð: Paradís, lokuð fyrir marga. Við þessa borg tók Lorca ástfóstri og um i 4

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.