Lesbók Morgunblaðsins - 18.02.1989, Blaðsíða 16
Passat GL er nýr
og breyttur.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
inni en víst myndi maður treysta
sér til að aka þessum bíl milli
Egilsstaða og Reykjavíkur án þess
að á oft á leiðinni - og jafnvel til
baka daginn eftir. Allt mælaborð
er skýrt og greinilegt og ökumað-
ur nær á augabragði til allra
stjórntælq'a. Klukka í mælaborði
er kannski óþarflega stór og hefði
verið eðlilegra að setja þar snún-
ingshraðamæli.
Miðstöð er fjögurra hraða og
er fljót að bregðast við nánast
hvaða óskum sem vera skal. Enn
verður þó að taka fram að ekki
voru þær aðstæður að reyndi á
kælingu hennar á heitum sumar-
degi! Speglar báðum megin veita
mikla hjálp eins og reyndar alltaf
enda skyggja farþegar í aftursæti
og höfuðpúðar alltaf eitthvað út-
sýni með baksýnisspegli. Höfuð-
púðar eru hins vegar nauðsynleg-
ir og hef ég sannreynt að þeir
gera sitt gagn hjá Passat.
Svo aftur sé vikið að akstrinum
sjálfum er í raun ekkert nema
gott hægt að segja um hann.
Gírskipting er sérlega góð og
vinnsla bílsins með ágætum, hann
bregst fljótt og vel við hvort sem
um er að ræða vél eða stýri og
Passat GL
Nýr bfll frá grunni og
handhafi Gullna-
stýrisins í flokki
bflameðlSOl —
2000 rúmsm. vél
Passat kom í iiýrri og breyttri
mynd á markað í haust og er
fáanlegur sem skutbíll og
fólksbíll. Þó hann sé aðeins
íjórum sentimetrum lengri en
fyrirrennarinn virðist hann þó
mun stærri og allur rúmbetri
hið innra. Hér er um nýjan bíl
að ræða í flestu tilliti og í aug-
lýsingum verksmiðjunnar í
haust var sagt að allt væri nú
nýtt hjá Passat nema nafnið.
TVúlega er það ekki langt frá
sannleikanum. Passat hefur
enda verið vel tekið og fékk
viðurkenninguna Gullna stýrið
í Þýskalandi nú fyrir áramótin.
Við lítum nánar á Passat GL
fólksbílinn í dag.
Passat er nýr frá grunni. Fljótt
á litið virðist hann kannski í útliti
minna á marga aðra bíla þar sem
áhersla hefur verið lögð á mjúkar
línur fyrir bíl sem hafa skal sem
minnsta loftmótstöðu í hrað-
brautabruni. Víst eru mjúku
línumar fyrir hendi hér og loft-
mótstaðan lítil en þar fyrir utan
sker bíllinn sig úr fyrir laglegt
útlit. Framendinn er fremur lágur
sem gefur um 15% stærri framr-
úðu og hefðbundnu grilli hefur
nú verið sleppt. Þetta gefur
bílnum mjög sérstakan svip.
Framstuðarinn er voldugur en
fellur vel inn í heildarmyndina og
línur út frá honum aftur með hlið-
unum í afturstuðarann. Að aftan
er bíllinn fremur hár enda tekur
farangursrýmið nú 578 lítra eða
50 lítrum meira en eldri gerð.
Gullna stýrið
Sem fyrr segir hlaut Passat
þýsku viðurkenninguna Gullna
Mælaborðið er vel úr garði gert.
stýrið í flokki bíla með 1501 til
2000 rúmsentimetra vélar. Með
því að athuga nánar hvað felst í
þeirri viðurkenningu fæst nokkuð
góð mynd af því hvað Passat hef-
ur upp á að bjóða en það eru bíla-
blaðamenn og ýmsir sérfræðingar
úr bílaiðnaði sem veita hana.
Passat var númer tvö hvað snerti
útlit og í þriðja sæti hvað verðið
áhrærir. Hins vegar var hann í
fyrsta sæti hvað varðar flest innan
stokks, fyrir hversu rúmgóður
hann er, fyrir þægindi í akstri,
fyrir alla meðferð og umgang um
bílinn og fyrir sparneytni svo og
fyrirkomulag og hagkvæmni
varðandi viðhald.
Helstu mál og tölur eru sem
hér segir: Lengd 4,57 m, breidd
er 1,70 m og hæð 1,42 m. Lengd
milli hjóla er 2,62 m og beygju-
hringurinn er 10,7 m. Bensintank-
ur tekur 70 lítra og bíllinn er á
14 þumlunga hjólbörðum. Vélin
er 1,8 1 og 112 hestöfl og fímm
gíra kassi, hið sama í skutbíl og
fólksbíl. Bíllinn vegur 1.150 kg
og 1.660 fullhlaðinn. Hámarks-
hraðinn er sagður vera 169 til 206
km á klst. og hröðun í 100 km
er 11,3 sekúndur. Eyðsla í borga-
rakstri er gefin upp 11.9 lítrar á
hundraðið en getur farið jafnvel
niður fyrir 6 lítra sé ekið á jöfnum
og hæfilegum hraða við bestu
skilyrði. Verð fólksbfls er 1.186
þúsund kr. og skutbílsins 1.244
þús. kr. miðað við staðgreiðslu.
Báðar gerðir eru með vokvastýri
og samlæsingu.
Farangursými tekur 578 lítra
og hefur verið stækkað talsvert.
Leggja má niður hluta aftursætis
og auka rýmið enn. Lokið opnast
vel og auðvelt er að hlaða inn í
það dóti.
Aksturinn
Passat GL fer með með farþega
sína sem ökumann. Bíllinn er sér-
lega hljóðlátur og þægilegur í
akstri. Ókumaður situr vel undir
stýrinu og það er vel búið að hon-
um í sætinu. Það er auðstillanlegt
og gott að laga það að óskum
ólíkra ökumanna. Útsýni er gott
Allt innan stokks er vandlega úr garði gert og á þann hátt að vel
á að fara um ökumann og farþega.
og eins og hið ytra er allt innan
stokks með nýju sniði. Mjög gott
rými er í aftursætum og má hik-
laust telja Passat með rúmb-
estubílum hvað það snertir jafnvel
bílum sem hafa þótt stærri og eru
dýrari. Gildir þetta um fætur,
handleggi, rýmið er nóg og menn
geta látið fara vel um sig enda
eru sætin stillanleg og mönnum
eru líka búin þar lesljós ef ferðin
gerist leiðigjörn.
Hönnuðum var falið að hafa
galdra fram gott vinnuumhverfí
ef svo má segja - þeir áttu að
hafa í huga að öll stjórn bílsins
reyndi sem minnst á ökumann.
Það var að vísu ekki hægt að
sannreyna við tveggja daga akst-
ur á stuttum leiðum í höfuðborg-
ekki þarf að kvarta yfir dugleysi
hans í ófærð. Eftirtekt vakti
hversu hljóðlátur bíllinn er.
Að lokum
Passat GL er áhugaverður bíll
fyrir margra hluta sakir. Hann
er skemmtilegur í akstri og þægi-
legur, rúmgóður, hljóðláturogþað
er óhætt að fullyrða að hér sé í
alla staði um vandaðan bíl að
ræða. Viðkynningin vekur traust
manns og gerir bílinn eftirsóknar-
verðan og vekur þær vonir að hér
sé á ferðinni bíll sem dugar vel
jafnt á hraðbrautum heimalands-
ins sem íslensku vegakerfi. Vissu-
lega kostar hann sitt og þar verð-
ur hver og einn að meta fyrir sig
hvað hann leggur í mikið í krónum
Og aurum. Jóhannes Tóniasson.
16