Lesbók Morgunblaðsins - 18.02.1989, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 18.02.1989, Blaðsíða 6
U R SOGU HVERF I SGOTUNNAR Verslað á hverju horni H verfisgata hefur aldrei verið jafn mikil versl- unargata og Laugavegurinn og er ástæðan meðal annars sú að þegar árið 1931 var sett einstefna á götunni í austurátt jafnframt því sem Laugavegur fékk einstefnu í vesturátt. Verslun Ingvars Pálssonar á Hverfísgötu 49 (tv.).Húsið er nú horfíð. Til hægri er húsið Hverfísgata 51 sem enn stendur. Ljósm.: Carl Nielsen/Ijósmyndasafítið. Dæmigerður verzlunarhjallari fyrir Reyhjavík á fyrri hluta aldarinnar. Hér á Hverfísgötu 84 voru lengi matvöru- og nýlenduvöruverslanir. Verslunin Varmá var hér frá 1936 og fí-arn til 1980. Þá var enn hægt að £á steinolíu á fíösku úr handdælu frá tunnu í búðinni, en nú eru slíkir verslunarhættir með öllu af lagðir. Ljósm.Lesbók/Bjami. Eftir GUÐJÓN FRIÐRIKSSON 3. grein Vilhjálmur S. Vilhjálmsson sagði að stundum, er hann fór framhjá Hverfisgötu 50, hafi honum fundist sem hann upplifði aftur lestaferðirnar á Eyrarbakka. Þar hafi verið mergð sveitamanna, vagnar, hestar, ullarballar, pinklar, reiðtygi og bókstaflega allt, sem hann þekkti frá lestaferðunum. Kaupmönnum þótti betra að næla í við- skiptavini sem voru á leið niður í bæinn en út úr honum og tóku því Laugaveginn fram yfir. Engu að síður hefur töluverð verslun verið við Hverfisgötu og verður hér rifjað upp eitt og annað viðvíkjandi henni. HÁMARK BJARTSÝNINNAR Segja má að Garðar Gíslason stórkaup- maður sé eins konar brautryðjandi í verslun við Hverfísgötu og hann og hans fyrirtæki hafa haldið tryggð við götuna allt til þessa dags. Garðar byggði timburhúsið Hverfísgötu 30 árið 1906 og kallaði það Garðarshólma. A neðri hæð hússins hafði hann skrifstofu, sýnishomasafn og vörugeymslu en hann var einn af frumkvöðlum innlendrar heildverslun- ar. Sjálfur bjó hann á efri hæðinni ásamt fjölskyldu sinni. Árið 1909 réðst Garðar Gíslason í það að opna glæsilega fataverslun á þessum stað er hann kallaði Dagsbrún. Fékk hann rúmlega tvítugan mann, Harald Ámason, sem var nýkominn frá námi á Eng- landi til að veita henni forstöðu. Dagsbrún á Hverfísgötu 30 þótti bæjarprýði og auglýs- ingar frá henni voru nýtískulegri en hjá öðr- um verslunum en hún var of langt út úr bænum til þess að hún gæti gengið. Gatan var enn nær óbyggð og eitt forarsvað á þess- um stað og engar gangstéttir. Það var því hámark bjartsýninnar að ætla sér að lokka bæjarbúa þangað í verslunarerindum. Dags- brún var því lokað von bráðar en það er af Haraldi Amasyni að segja að hann átti eftir að verða þekktasti fatakaupmaður landsins um áratugaskeið (Haraldarbúð í Austur- stræti). Garðar Gíslason seldi húsið árið 1913 en færði sig þá innar við Hverfísgötuna eins og kemur fram hér á eftir. HÖLLIN í SKUGGAHVERFI Einhver frægasti kaupmaður á Hverfís- götu á fyrri tíð var Guðjón Jónsson á númer 50. Hús hans, sem enn stendur, var upphaf- lega byggt af Sveini Sigfússyni kaupmanni árið 1904 og þótti það svo tilkomumikið að það var almennt kallað Höllin í Skugga- hverfí. Síðan bjó þar títtnefndur Garðar Gíslason um margra ára skeið en Guðjón keypti húsið árið 1917 og rak þaðan umsvifa- mikla verslun, einkum við sveitamenn, um áratuga skeið. Séra Gísli Brynjólfsson minnt- ist hennar svo: „ ... hér var einu sinni ein mesta sveita- verslun Reykjavíkur, bæði átímum hestvagn- ana og í upphafí bflaaldarinnar. Það var þeg- ar hinn bjartsýni fyrirgreiðslumaður, Guðjón Jónsson, rak sína blómlegu verslun á Hverfis- götu 50 með afkastamiklum og trúuðum starfsmönnum sínum eins og t.d. Guðlaugi Lárussyni og Hróbjarti Ámasyni, svo að ein- hveijir séu nefndir. Þá var hesthús og hesta- rétt við Höllina og svo margt um manninn á stundum að vagnalestin náði frá Klapp- arstíg og inn fyrir Frakkastíg. Svo hurfu vagnamir og bflamir komu í þeirra stað — „kassar" og „hálfkassar". En viðskiptin héldu áfram hjá Guðjóni því hann tók að sér af- greiðslu þeirra og afgreiddi langa pöntunar- lista með bílunum til bænda austur um allar sveitir." Vilhjálmur S. Vilhjálmsson sagði að stund- um er hann fór fram hjá Hverfísgötu 50 hafi honum fundist sem hann upplifði aftur lestaferðimar á Eyrarbakka. Þar hafí verið mergð sveitamanna, vagnar, hestar, ullar- ballar, pinklar, reiðtygi, bókstaflega allt sem hann þekkti frá lestaferðunum og síðar flutn- ingabifreiðir og mikið af fólki. Hann sagði að í kringum Vaðnes á Klapparstígnum og við Hverfísgötu 50 hefðu oft verið eins og sér- stök þorp í borginni, næstum því lítil kauptún utan af landi í miðri borg og sveitafólk sækti inn í þau úr ýmsum áttum. Guðjón Jónsson var einn af fjölmörgum sveitamönnum austan úr sveitum sem freist- uðu gæfunnar við kaupmennsku á Laugavegi eða Hverfísgötu. Nú verslar tengdadóttir hans, Bára, í Höllinni í Skuggahverfí og er allt hljóðlátara í kringum hana en hjá tengda- föður hennar forðum. Gyðingurinn Gangandi Og þá er enn komið að Garðari Gíslasyni. Þegar hann vék fyrir Guðjóni á Hverfisgötu 50 keypti hann nýbyggt stórhýsi sem dular- fullur útlendingur hafði reist á besta stað við götuna; á Hverfísgötu 4, rétt fyrir ofan Lækjartorg. Útlendingurinn hét Obenhaupt og var dansk-þýskur gyðingur. Mikill völlur var á honum og auk þessa stórhýsis reisti hann eitt glæsilegasta einbýlishús bæjarins, síðar kallað Esjuberg við Þingholtsstræti (það hýsir nú Borgarbókasafn Reykjavíkur). Vil- hjálmur Finsen, stofnandi Morgunblaðsins, skrifaði um feril Obenhaupts á íslandi. Hann sagði m.a.: Obenhaupt fór vitanlega undir eins að versla; „kaufen und verkaufen" (kaupa og selja) er orðtak gyðinga hvar sem þeir eru á hnettinum. Hann flutti með sér stórt sýnis- hom af alls konar þýskum vamingi, leigði stóra íbúð í Thomsenshúsi, þar sem síðar var Hótel Hekla, og barst mikið á. Hann drakk nær ekkert sjálfur en hann veitti meira en almennt gerðist í Reykjavík þá. Þegar kaup- menn komu að skoða sýnishomin var þeim ævinlega boðið inn í stofu og flaskan þá dregin upp. Svo var farið að tala um „busi- nessinn" ... Honum vegnaði ágætlega, hann auðgaðist áreiðanlega þrátt fyrir íburðinn... Þegar stríðið skall á kom eitthvert æði eða órói yfír Obenhaupt, en enginn vissi hvað olli því. Ef til vill hefír það verið vegna þegn- réttar hans. Var hann þýskur eða var hann danskur? í æðiskastinu vildi Obenhaupt fyrir alla muni selja bæði verslunarhúsið og „vill- una“. Magnús Sigurðsson, síðar landsbanka- stjóri, annaðist söluna fyrir Obenhaupt, og hann var sá eini sem vissi hina raunverulegu ástæðu til þess að Obenhaupt seldi húsin af svo miklum skyndingi; verslunarhúsið var ekki einu sinni alveg fullsmíðað. Annars var þessi Obenhaupt undarlegur maður, öðmvísi en fólk flest. Hann gat t.d. aldrei átt húsgögn sín nema stuttan tíma. Einu sinni eða tvisvar á ári skipti Obenhaupt um húsgögn, seldi önnur og keypti hin. Og hann var svo sem ekkert að leyna þessari sölu fyrir almenningi... Flestum okkar þyk- ir því vænna um stólinn okkar sem við eigum hann lengur ef stóllinn hefir á annað borð verið fallegur og þægilegur í fyrstu. En Oben- „HöIIin í SkuggahverGHverGsgata 50. Hér rak Guðjón Jónsson kaupmaður umsvifamestu sveitaverslun höfuðstaðarins, bæði á tímum hestvagna og í upp- hafí bUaaldar. Nú verslar tengdadóttir hans, Bára, í húsinu. Ljósm.:Pétur Brynjólfsson/Þjóðminjasafnið. 6

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.