Lesbók Morgunblaðsins - 18.02.1989, Qupperneq 8
Hluti af náttúrubyggð. Hér hugsar arkitektinn sér að nokkur hús standi saman innan í veðurhjúp undir bitum og gleri.
U M H V E R F I
NÁTTÚRUBYGGÐ
Um vistkerfistengdar byggingar
undanförnum árum hefur áhugi fólks á vist-
fræði aukist á meginlandi Evrópu. Orsakirnar
til þess eru einkum þau augljósu áhrif, sem
aukin umhverfismengun hefur í för með sér.
Er þar nóg að nefna: Skógardauðann, vatna-
Nú þegar er unnt að sjá
fyrir sér náttúrubyggð:
Hverfi samansett af
einskonar
garðbýlishúsum og 10
-15 þeirra látin mynda
þyrpur í góðri fjarlægð
hver frá annarri. Yfir
þessa byggð yrði síðan
gerður veðurhjúpur og
allur úrgangur leystur
með þurrkerfi.
Eftir EINAR ÞORSTEIN
ÁSGEIRSSON
dauðann og nú síðast alvarleg áföll í vist-
kerfí innhafa Evrópu.
Hérlendis hafa nokkur félagasamtök
starfað í anda vakningarinnar í Evrópu um
árabil, en vegna tiltölulegs, blessanlegs
hreinleika „okkar" lofts, lands og láðs er
almennur skilningur á þýðingu þessa mála-
flokks enn ekki fyrir hendi í neinum mæli.
A Norðurlöndunum hafa verið mynduð
heildarsamtök á því sviði vistfræði, sem
tengir daglegt líf almennings við vistkerfí
náttúrunnar. Þau kallast Nordisk Netværk,
en þar skortir það á í norrænni samvinnu
að Island verði með. Vafalaust er kominn
tími til þess að sams konar félagasamtök
hér tengist norrænu starfseminni því að
þessi mál hafa engan veginn farið framhjá
okkur eins og áður segir.
Þegar rætt er um vistkerfi umhverfís
okkar, vistkerfí jarðarinnar, má taka á mál-
um á tvennan hátt: Endurbætur á því sem
.aflaga hefur farið og í öðru lagi: Pyrirbyggj-
andi aðgerðir, sem grundvallast á þeirri
heildrænu hugsun, að allar okkar gerðir
hafi afleiðingar fyrir umhverfíð.
Flestum er að verða ljóst, þó að í smáum
mæli sé, að endurbæta þarf marga þætti í
umhverfí okkar vegna mengunar. Þetta á
bæði við um vatn, loft og land. Þá þarf einn-
ig að huga að jafnvægi í stærð ýmissa dýra-
stofna: Björgun tegunda jafnt sem fjölgun
og fækkun tegunda. Dæmi um hið síðast-
nefnda er óeðlileg fjölgun hrafnsins og ann-
arra vargfugla hér á landi, sem orsakast af
kæruleysi ýmissa fískvinnslufyrirtækja með
úrgang vinnslunnar.
Starfsemi þeirra sem setja útrýmingar-
hættu ýmissa dýrategunda á oddinn hefur
fengið einna mesta umfjöllun í fjölmiðlum
vegna þeirra árekstra hagsmuna og tilfínn-
inga, sem þar óhjákvæmilega verða. En hlið-
amar eru miklu fleiri þótt minna, áberandi
séu og standa einstaklingnum nær en marg-
ir gera sér grein fyrir f fljótu bragði. Til
dæmis er það ekki óalgengt að sjá alvarlega
þenkjandi umhverfíssinna með sígarettu: Oft
er betra að koma auga á annarra vandamál
en sín eigin.
Seinni þátturinn, þ.e. fyrirbyggjandi aðgerð-
ir, verður ekki framkvæmdur nema að fyrir
liggi skilningur á hringrás vistkerfis jarðar-
innar, m.ö.o. heildræn hugsun umhverfís-
mála.
Hér erum við komin að meginefni þessa
pistils: Vistkerfístengdum byggingum. Hug-
takið inniheldur þá hugsun að öll kerfí bygg-
inganna sem hafa áhrif á umhverfið, t.d.
mengun þeirra, eru þannig útbúin að þau
starfa í samræmi við náttúruna. Þau starfa
ekki móti henni og flokkast því undir fyrir-
byggjandi aðgerðir á vistfræðisviðinu.
Tökum dæmi til þess að þetta verði skýr-
ara: Það virðist ekki vera stórmál fyrir
nútímamann að sturta niður úr einni klósett-
skál á dag út í sjó. En sé það haft í huga
að 250 þúsundir manna sturta niður 365
sinnum á ári á einu litlu landi, þá lítur
dæmið öðruvísi út. Vildi nokkur verða á
vegi þó ekki væri nema eins dags niðurskol-
un íslenskra klósetta? Þegar hver hugsar til
þess sem hún eða hann gerir sýnist málið
ekki stórt, en þegar heildin er tekin getur
það orðið geigvænlegt vandamál.
í framhaldi af þessu er rétt að líta nánar
á þessa stórkostlegu, já á sinni tíð stórkost-
legu uppfinningu: Vatnssalemið. Það er
vissulega eitt af kerfum innan bygginga, sem
hafa bein áhrif á umhverfíð. En hvemig
starfar það? Því er ætlað að láta úrgang
hverfa með skjótum hætti og flytja hann
síðan eitthvað ótiltekið í burtu. í leiðinni a)
mengar það hreint vatn í tugum tonna á
mann á ári b) dreifir síðan úrgangi og bakt-
eríum um stærra svæði en án vatnsskolunar