Lesbók Morgunblaðsins - 18.02.1989, Qupperneq 13
**4L'X a &
rt hi «tit trntt mi ititttitt * m»iti S111 minttt! hh 11 *4t
LESBOE
M ® [r ! [g] 0 [ nJ [b] E [aJ \p\ \s\ [jH S1E
18. FEBRÚAR 1989
Miðsvæðis á Grenelefe er þjónustumiðstöð og klúbbhús.
Fyrsti teigur Austurvallarins er uppi á þaki hússins.
Vetrargolf í Florida
eru frægir fyrir að hreyfa sig með
svipuðum hraða og gamlar kýr,
þegar þeir leika golf, enda getur
það tekið þá 5-6 tíma. Þegar hit-
inn er kominn um og yfir 25 stig
vilja menn lýjast á göngu og þá
er í raun og veru betra að vera á
golfbíl til þess að golfið fari ekki
í vaskinn útaf þreytu, enda þótt
við séum vanir því einu að ganga
á golfvöllum hér. Þess ber líka
að gæta þegar farið er í vetrar-
golf, að þá eru menn líklega úr
æfingu og þrekminni orðnir eftir
hreyfíngarleysi margra vetrar-
mánaða og þá eru meiri líkur til
að leika sæmilega, ef maður er á
bíl og þá óþreyttur.
A Florida er eins og nærri má
geta mikið úrval í öllum verð- og
gæðaflokkum. Það er hægt að
komast á svokallaðan byijenda-
völl við Disneyland nálægt Or-
lando og það er sennilega lægsti
gæðaflokkur, sem hægt er að
finna. Og á hinum endanum eru
staðir eins og Doral suður við
Miami og Grand Cypress Resort,
einnig nálægt Orlando, sem verðs-
ins vegna hljóta einungis að vera
fyrir þá ríku.
Þar á milli eru geysilega marg-
ir og ágætir golfstaðir, sem of-
bjóða ekki efnahag venjulegs
fólks og urmull af golfvöllum, sem
opnir eru hverjum sem er gegn
vallargjaldi. Fjöldi íslendinga hef-
ur dvalið í St.Petersburg og þá
er gjaman verið á bílaleigubílum,
því annað kemur naumast til
greina þar. Þá er líka hægt að
aka á svo sem 15 mínútum á
nokkra golfvelli í grenndinni, -
Sjá næstu síðu.
í FLORIDA eru eftir því sem bezt er vitað 800 golfvellir og aðr-
ir vetrargolfetaðir svo sem á Spáni og í Portúgal, eru eins og
agnarlitið brot af því sem í boði er á Floridaskaganum. Ástæðan
fyrir þessari dæmalausu útþenslu þarna suðurfrá er þríþætt: í
fyrsta lagi og þyngst á metunum er veðrið; ákjósanlegur hiti
þegar grimmdarkuldi getur verið norðar í Ameriku og þá flykkj-
ast Bandaríkjamenn og Kanadamenn þangað. Önnur ástæða er
sú, að efnaðir eftirlaunamenn i Bandaríkjunum flytjast unn-
vörpum suður til Florida og margir kaupa sér hús við hliðina á
golfvelli, þar sem þeir dunda sér út ævikvöldið eftir því sem
heilsan leyfir. í þriðja lagi er Florida alþjóðlegur ferðamanna-
segull, sem dregur til sín fólk úr víðri veröld.
Golfvellir í Florida draga dám
af þeirri staðreynd, að landið má
teljast marflatt. Þeir eru margir
mjög áþekkir; vatn kemur meira
við sögu en menn eiga að venjast
frá öðrum löndum; vellirnir eru
flestir með aragrúa af sandglomp-
um, sem eru á ameríska vísu:
Næstum alltaf grunnar en
víðáttumiklar og stundum með
graseyjurh. Á sumum völlum er
samfellt kraðak af sandglompum
og graseyjum svo sem 100 metra
út frá flötunum og þeir sem hafa
mikinn beig af því að nota sand-
járn, geta lent í því að vera að
moka sandi tímunum saman.
Sumum sem líta til hinnar
klassísku skozku og ensku fyrir-
myndar, finnst þetta komið nokk-
uð út í öfgar, en Kanar benda
hinsvegar á, að ekki sé betra að
lenda ofaní mannhæðar djúpum
bunker í Skotlandi. Sem sagt;
þetta er annar stíll, annað yfir-
bragð.
Tré koma víðast hvar mjög við
sögu, en skógurinn á Florida er
yfirleitt ekki hávaxinn. Víða eru
brautir lagðar meðfram vötnum
og þá er gjarnan höfð röð af sand-
glompum í hinum brautarkantin-
um og þar fyrir utan rís skógur-
inn. Það er með öðrum orðum
betra að vera beinskeyttur. Flat-
irnar eru gjarnan mishæðóttar,
ákaflega vandlesnar og víða eru
þær geysilega hraðar. Mjög víða
er kylfingum skylt að taka golfbíl.
Að sjálfsögðu er það gert til að
auka tekjurnar, en einnig til að
flýta fyrir leik og í þvi sambandi
er vert að taka fram, að Kanar
Séð yfir hluta af Vesturvellinum á Grenelefe, sem ár eftir ár hefúr verið valinn bezti
golfvöllur Florida. Auk hans eru tveir aðrir 18 holu vellir á Grenelefe.
Mikki ipús á Magnolia-vellinum þjá Disney World. Mikki er tákn-
mynd staðarins. Fleiri vellir eru í nánd við Disney World, þar á
meðal sérstakur byijendavöllur.