Lesbók Morgunblaðsins - 18.02.1989, Side 14
t
<r
Á Longboat Key við Sarazota eru margir golfvellir. Þangað er ekki langt að fara frá St. Peters-
burg, þar sem flöldi íslendinga hefur dvalið.
sumum er reyndar varla hægt að
mæla með - en Pasadena-völlur-
inn í St. Petersburg er ágætur
völlur með dæmigerðum Florida-
einkennum: Skógi, vötnum og
víðáttumiklum sandglompum. Og
flatimar þar em framúrskarandi
hraðar og hafa leikið suma
íslenzka golfleikara grátt.
Golfstaðurinn Grenelefe
Það sem flesta golfleikara
dreymir um á þessum slóðum, er
að geta búið hjá golfvelli, annað-
hvort á golfhóteli, sem hefur sinn
eigin völl eða velli, eða í íbúð, sem
er þá venjulega í stökum húsum
(bungalow) umhverfis völlinn. Þá
er stefnt að því að kaupa í matinn
í næsta kaupfélagi og hafa að
minnsta kosti morgunverðinn
heima, eða borða þar alfarið. Þeir
sem vilja hafa meiri stæl yfir dvöl-
inni, velja fremur goifhótel með
morgunverði og kvöldverði og
mæta í hann í sínu fínasta pússi.
Sem dæmi um framúrskarandi
golfstað, þar sem gestum gefst
kostur á að búa í stökum húsum
og borða þar - eða í veitingahúsum
á staðnum- er Grenelefe, sport
og ráðstefnustaður með áherzlu á
golf og tennis. Nokkrir íslenzkir
kylfingar hafa reynslu af þessum
stað og heimild blaðsins um hann
er einn þeirra. Að sögn hans var
almenn ánægja ríkjandi í hópi,
sem þangað fór á síðastliðnu
hausti; þar er flest sem einn golf-
stað má prýða og verðið telst við-
ráðanlegt. Eftir upplýsingum frá
íslenzkri ferðaskrifstofu kostar 10
daga ferð þangað nú í febrúar
Doral í nánd við Miami er einn af fínu og dýru golfstöðunum á
Florida. Sandglompurnar eru víða eins og hér má sjá; heil flæmi
með graseyjum.
auðveldastur að skora af völlunum
þremur. Austurvöllurinn þykir
lítið eitt strembnari, en ella eru
vellirnir bráðfallegir og skemmti-
legir; allsstaðar eru vötn og skóg-
ur, en hann er ekki mjög þéttur.
Mikið fuglalíf er þama og
krókódílum bregður fyrir í vötn-
unum. Yfírleitt em stórar flatir á
þessum völlum og verður að lesa
þær vel og vandlega, ef gera á
atlögu að vallarmeti. Þær em
látnar halla á ýmsa vegu, en
gagnstætt því sem víða gerist í
Florida, em þessar flatir taldar
hafa normal hraða og veitist okk-
ar mönnum ekki erfitt að aðlag-
ast þeim. Öll hirðing er til fyrir-
myndar. Þarna eins og víðast í
Florida er skylda að vera á hjóla-
tík. Fyrir þær em sérstakar braut-
ir og er sætið selt á 12 dollara.
Á Grenelefe er ekki golfhótel á
einum stað, heldur fá menn inni
í stökum húsum, sem standa við
54.900 (flug, íbúð fyrir tvo og
vallargjöld) Um páskana er toppur
í verðlagi og eftirspum og þá
mundi sami tími kosta 67.900, en
þegar kemur fram í apríl slaknar
á eftirspum og þá bjóðast kosta-
kjör: 46.400 fyrir samskonar 10
daga ferð.
Grenelefe er um það bil 45
mínútna akstur frá flugvellinum
við Orlando og þaðan er um
hálftíma akstur á Disney World.
Þarna er völ um þijá golfvelii:
Vesturvöll, Suðurvöll og Austur-
völl, sem allir em 18 holur. Mikið
orð hefur farið af Vesturvellinum,
sem Robert Trent Jones hefur
teiknað og hefur hann sjö sinnum
verið valinn bezti golfvöllur
Florida. Hann er að sjálfsögðu
langur; 6.592 metrar af öftustu
teigum, en 5.579 af hvítu teigun-
um.
Suðurvöllurinn er mikill vatna-
völlur, en þó talinn léttastur og
Á Grenelefe. Vötn og skógur er alltaf í nánd, en sandglompurn-
ar eru grunnar.
Einn 'af þeim innfæddu: Alligator, sem er smávaxinn krókódíll,
sést víða í vötnunum á Florida og stundum er hann að sóla sig
á golfbrautunum, en flýtir sér venjulega í vatnið, þegar menn
nálgast.
vellina. Og þegar ferð er keypt
héðan, þá er selt í einum pakka
flugið til Orlando, gisting í húsi,
sem búið er heimilislegum hús-
gögnum, ísskáp, sjónvarpi og öllu
sem þarf í eldhúsi. Vallargjöld
geta líka verið innifalin, en þau
em annars 33 dollarar.
Gestamóttaka er miðsvæðis og
^þar fæst allskonar þjónusta. Þar
em tveir veitingastaðir; annar
þeirra fínn, hinn hvunndagslegur.
Og þar er verzlun með matvæli
og drykkjarföng. Á sama stað em
tvær sundlaugar, klúbbhús fyrir
alla vellina og golfbúð. Fyrsti teig-
ur á Austurvellinum er uppi á
klúbbhúsinu, framan við golf-
búðina; þar er slegið af gervigrasi.
Öll þjónusta er til fyrirmyndar.
Ekki þarf annað en taka upp
símann, þá er komið frá miðstöð-
inni og menn em sóttir og farið
með þá hvort sem þeir vilja á ein-
hvem af völlunum þremur, eða á
æfingabrautina.
Ekki munu vera stórmarkaðir
eða „mall“ þama í námunda og
verða þeir sem em í verzlunar-
hugleiðingum að skjótast spöl-
korn, t.d. til Disney World eða
Orlando. Ekki er heldur hægt að
segja, að margt merkilegt sé að
sjá þama í næsta nágrenni og
ekkert sérstakt við að vera annað
en sportið. Þessvegna er ættu
þeir sem ekki leika golf að velja
sér aðra staði fremur. Þetta er
fyrst og fremst frábær golfstað-
ur, þar sem einnig er hægt að
dvelja sér til hvíldar, njóta þeirrar
sérstöku náttúmfegurðar sem
þarna er vissulega - að ógleymd-
um nautasteikunum og bjómum,
sem aldrei er betri en þá er kom-
ið er inn í klúbbhús að leik loknum.
í næsta ferðablaði Lesbókar
verður vikið að fleiri golfstöðum
á Florida.
GÍSLI SIGURÐSSON
Vegvísar og vegakort
Að finna
réttu leiðina!
EITT af því, sem ökuþórar í sumarfríi á ókunnum slóðum, þurfa
að verða sér úti um — er vegakort. Þeir sem skipuleggja ferðina
vel fyrirfram, liggja kannski yfir leiðakorti áður en lagt er af stað,
merkja við áhugaverða staði, velja hraðbraut (merkt með- grænu á
evrópskum vegakortum) á milli staða, ef þeir eru tímabundnir eða
aka um hægfara hliðar- eða sveitavegi (merktir með bláu), til að
sjá meira og njóta ferðalagsins betur. Uppgefin tímalengd á milli
staða er miðuð við meðalhraða á hraðbrautum. Reikna má með
þriðjungi eða helmingi lengri tíma, ef þræddir eru sveitavegir.
Tveir eða tvö á ferð geta unnið
skemmtilega saman eða eins og
keppendur í spennandi rallakstri —
skipst á að vera undir stýri eða
lesa á' kortið og vegmerkingar.
Merkingar á vegum á meginlandi
Evrópu og í Bandaríkjunum eru
það góðar, að mjög auðvelt er að
rata. Hugsið ykkur aumingja ferða-
mennina, sem hingað koma og eru
stundum 3 daga að villast eftir
þjóðveginum til Akureyrar —
hvemig skyldi þeim ganga annars
staðar á landinu? Sá sem er einn
á ferð, verður að læra vegmerking-
ar utan að og aka á milli pósta,
sem hann velur sjálfur. Oft er
skemmtilegra að stjóma ferðinni,
en að vera undir stýri! Notkun á
vega- eða leiðakortum krefst þess
(1) að hafa undirstöðuþekkingu í
landafræði og (2) hafa áttaskyn.
Vegakort eru misjafnlega gerð.
Gamansamur maður sagði, að Sov-
étmenn gæfu út ónákvæm vega-
kort til að villa um fyrir ónæðissöm-
um ferðamönnum! En yfirleitt má
telja að vegakort séu það vel gerð,
PARK
f)ntiru‘
f' A3ANT/ Aá41_L tÍ.
/ T? ,'"
Ms.
fWwcfcö
IWÍ
,f. Cheapyt
rx>yfc«
?£&r'
.*• i (*'/j
e»iii :
Að villast af réttri braut!
14