Lesbók Morgunblaðsins - 16.09.1989, Blaðsíða 3
f1 n
T-KBálg
M O R Q U N BLA O 3 l_ N 8.
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvstj.:
Haraldur Sveinsson. Ritstjórar: Matthías
Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoð-
arritstjóri: Björn Bjarnason. Ritstjórnarfulltr.:
Gísli Sigurösson. Auglýsingar: Baldvin Jóns-
son. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Simi 691100.
Taiwan
er eitt þróaðasta land í Suðaustur Asíu. Jóhanna Krist-
jónsdóttir var þar á ferð nýlega og veltir fyrir sér list
og pólitík í fyrstu grein af þremur þaðan.
Ferdablaðið
Suður-Ameríka er ókunnur heimshluti fyrir flesta ís-
lendinga. Mörgum finnst eflaust forvitnilegt að lesa um
ævintýraferð Guðlaugar og Lindu til Ecuador. Allir lifn-
aðarhættir og umhverfi framandi. Eins gott að und-
irbúa sig vel fyrir ferðalag þangað.
Forsíðan
„Eftir Öskju“ nefnir Erla Þórarinsdóttir listmálari mynd-
ina á forsíðunni. Erla opnar i dag, 16. sept., sýningu
í austursal Kjarvalsstaða. Ljósmyndina tók Arni Sæ-
berg.
Hvaðan eru
Hávamál ?
í annarri grein Hermanns Pálssonar um Hávamái segir
höfundur það fjarstæðu að telja Hávamál og önnur
fornkvæði norræn í heild sinni
SIGURÐUR BREIÐFJÖRÐ
Liljan
Liljan mín með laufin smá,
litarfögur, en eigi há,
vært þér vindar rugga
en þér mun vera í þeli kalt,
því þarna stóðstu sumanð allt
sólarlaus í skugga.
Lindin er svo langt þér frá,
létt mun ekki vökva að ná
á klettahillu kaldri.
En því viltu vaxa hér,
hvar vatns og hita skortur er,
því sólin sér þig aldrei?
Þú kemst ekki úr þessum stað,
þér var svona úthlutað,
þinn er þessi blettur.
En máske áttu maka þér,
sem mundi óska að væri hér
á hægri hillu settur.
Egillog Herðubreið
Hvernig stendur á ijalla-
nöfnunum. Skjaldbreið-
ur og Herðubreið?
Hvers vegna ber fjall-
dyngjan fræga á Suð-
urlandi - karlkynsnafn,
en heiti norðlenzka
risans herðabreiða er
kvenkyns? Og hvers vegna Herðubreið en
ekki Herðabreið eða Herðibreið?
Vinur minn Egill Jónasson á Húsavík
spurði mig eitt sinn eitthvað á þessa leið.
Mér varð að vonum svarafátt, og ég spurði
á móti: Hvað hyggur þú?
Egill mun flestum íslendingum kunnur
fyrir kveðskap sinn, einkum stórsnjallar
stökur, sem hann kastaði fram við ýmisleg
tækifæri, oftast fyrirvaralaust, en hirti ekki
um að leggja sjálfur á minnið og var ófáan-
legur til að halda saman til birtingar.
En Agli gat dottið margt snjallt í hug
og fleira en það sem bezt kunni við sig í
„stuðlanna skorðum". Og nú svaraði hann
mér á þessa leið:
Þegar horft er á Herðubreið úr tiltekinni
átt, er líkast því, að þar hafi miklu öxar-
blaði verið höggvið niður í landið; og sú
stálbláa ös er býsna breið um herðuna; hún
er herðubreið.
Þetta þótti mér skemmtileg skýring. Orð-
ið herða er þekkt frá fornu fari, og Árni
Böðvarsson skýrir það m.a. svo: „hinn herti
hluti eggjar á vopni.“ í Eglu segir frá því,
að Skalla-Grímur hjó uxa, og „öxin hljóp
niður í steininn, svo að munnurinn brast
úr ahur og rifnaði upp í gegnum herðuna. “
Á öðrum vísum stað segir um öxi, að hún
sé „herðugóð". Trúlega hefði Herðubreið
þótt tilvalið öxarnafn hér fyrr á tíð.
Ég hvatti Egil til að birta þessa tilgátu,
en því tók hann heldur fálega, og ekki varð
úr. Nú er Egill látinn, og þá sýni ég honum
þá frekju að hafa orð á skýringu hans held-
ur en að hún fari með honum í gröfina.
Ekki veit ég fremur en Egill sjálfur vissi,
hvort á henni kunna að finnast fræðilegir
agnúar. Einungis er ég ekki jafn-gætinn
og hann, og kalla engu spillt þótt á reyni.
Um hugsanlegan aldur nafngifta, sem
þetta flall varða, er að líkindum torvelt að
verða margs vísari. Fátt mun þar um heim-
ildir. Auðvitað hef ég ekki gert þar neina
meiri háttar leit, enda rekizt á fátt annað
en það, að í Hrafnkötlu er getið um Herði-
breiðstungu, sem mun vera í grennd við
Herðubreið, enda kemur Herðibreiður fyrir
sem nafn á fjalli þessu á fáeinum stöðum
í fornbréfum. Dæmin eru frá svipuðum tíma,
öll frá 16. öld. Ekki er fráleitt að Herðibreið-
ur sé yngra nafn og til komið sem nærtæk
„lagfæring“ á nafninu Herðubreið, sem vel
kann að hafa þótt ambögulegt, án þess þó,
að endurbótin gæti ráðið niðurlögum eldra
nafns.
Það er athyglisvert, að Sveinn Pálsson
kallar fjallið einlægt Hörðubreið, sem að
líkindum er tilraun til lagfæringar eða skýr-
ingar á Herðubreiðar-nafninu; enda kemur
fyrir í hinum danska texta Ferðabókar hans
nafnið Herdebreden. En sú skýringarþörf
bendir til þess, að svo hafi einnig verið um
nafnið Herðibreiður. Enn má geta þess, að
Eggert Ólafsson telur að fjallið heiti Herða-
breiður. Kynni þar að vera komin ein lagfær-
ingartilraunin enn, af sama toga og Herði-
bréiður fyrr.
Orðið herða hefur að líkindum snemma
gerzt fátítt í mæltu máli, og merking þess
í ijallsnafninu ekki legið hveijum sem var
í augum uppi, svo að lík orð og fýsileg, eins
og herðar, fóru að láta til sín taka, þótt
merking væri allt önnur.
En sjálfsagt mun ýmsum þykja réttmætt
að leggja trúnað á það sem elzta heimild
segir til um, enda þótt hending hljóti að
ráða miklu um það, hvenær slík nöfn lenda
á skrifuð blöð sem varðveitast.
Að sönnu væri nafnið Herðibreiður líka
vel til fundið, og hefði hugsanlega getað
afbakazt í Herðubreið. Ef á annað borð
hefði orðið þar breyting á, er líklegt að hún
hefði einmitt beinzt í þá átt, þar eð b-ið gat
hugsanlega valdið kringingunni. Hins vegar
er sú nafnbreyting ekki mjög sennileg.
Hafi nafnið Herðibreiður einhvern tíma ver-
ið alls ráðandi, er líklegast að svo héti íjall-
ið enn í dag.
Þess skal getið, að skammt frá Eldgjá
er fjall sem nefnt er Herðubreið. Heldur er
það tilkomulítið í samanburði við Herðu-
breið hina miklu; en sennilega hefur það
verið eftir henni nefnt, hvenær sem það
hefur gerzt.
Hér virðist tvennt hugsanlegt: Annars
vegar, að fjallið mikla hafi í upphafi heitið
Herðibreiður, en það nafn af einhverjum
sökum breytzt í Herðubreið. Hins vegar,
að nú heiti fjallið Herðubreið vegna þess
að svo hafi það alla tíð verið nefnt. Sé það
rétt, virðist hugmynd Egils Jónassonar
hæfa beint í mark; raunar væri önnur skýr-
ing vart hugsanleg. Þá hefði einhvern tíma
fram komið „lagfæringin" Herðibreiður sem
misskilin leiðrétting, en ekki náð endanlegri
fótfestu. Hér mun að líkindum erfitt úr að
skera með vissu; og um líkur má sýnast
sitt hveijum.
En sé gert ráð fýrir því, að fjallið hafi
verið nefnt Herðibreiður í upphafi, má með
sanni segja, að það hafi hreinlega skipt um
nafn, þegar farið var að kalla þ'að Herðu-
breið, sem að óbreyttu hlýtur að merkja
allt annað. Og væri þá ekki réttmætt að
hafa einmitt þá merkingu í huga fremur
en merkingu nafnsins Herðibreiður, sem að
réttu lagi á þar ekki við. Því Herðubreið
er nafn, sem annað hvort er upprunalegt
eða hefur gersamlega sigrað og eitt verið
notað um langan aldur? Hitt er svo annað
mál, að hafi orðið herða einhvern tíma ver-
ið torkennilegt í nafninu og þess vegna far-
ið að draga dám af orðinu herðar, þá mun
það ekki síður gleymskunni hulið nú á dög-
um, svo að enn eru „herðarnar" jafn-áleitn-
ar og fyrr.
Hér var í upphafi minnzt á fjallið Skjald-
breið. Víst væri skemmtileg merkinga-
samsvörun nafnanna tveggja, nafna sem
dregin væru af breiðum skildi og herðu-
breiðri öxi.
Þess skal getið, að vafasamt er, hvort
eða hversu lengi fjallið Skjaldbreiður hefur
borið karlkynsnafn fyrir daga Jónasar
Hallgrímssonar. Sjálfur notar Jónas alltaf
kvenkynsnafnið Skjaldbreið nema í kvæðinu
Fjallið Skjaldbreiður. Og jafnvel þar virðist
hann hafa kvenveru í huga að upphafi, þar
sem hann lætur fjallið „skauta faldi“, þótt
síðar í kvæðinu tali hann um „háan Skjald-
breið“. En samsvörun nafnanna er söm,
hvort heldur er. Þó mætti ætla, að fjarlægð-
in milli þessara fjalla væri meiri en svo, að
um nokkurn skyldleik nafnanna geti verið
að ræða, enda þótt bæði láti þau að sér
kveða, annað á Suðurlandi, en hitt norðan
jökla. En hér er á fleira að líta.
í Ódáðahrauni eru þijú fjöll, sem bera
mjög af í landslaginu, og þau eru Herðu-
breið, Dyngjufjöll og Trölladyngja. En þess
er að geta, að TröIIadyngja er þar nýlegt
nafn, sem Þorvaldur Thoroddsen virðist
hafa komið á, því það fjall hét áður Skjald-
breiður. Raunar segir Björn Gunnlaugsson
að fjall þetta heiti Skjaldbreiður eða Trölla-
dyngja\ og Sveinn Pálsson kallar það
Dyngju. Svo virðist sem allmikill ruglingur
hafi verið á fjaltanöfnum um þessar slóðir
á síðari öldum. Hafi það verið Þorvaldur sem
endanlega slökkti á Skjaldbreiðs-nafmmi,
er ekki gott að segja hvað honum hefur
gengið til, því það nafn virðist hæfa fjallinu
betur en hitt. Ef til vill hefur hann viljað,
að „Skjaldbreiður Jónasar“ sæti einn að því
glæsilega nafni. Smáhóll í grennd við Heklu,
sem nefndur er Skjaldbreið, hefur honum
þá ekki þótt skipta máli, og enn síður Skjald-
breiðar-nafnið á landsvæði því í Vestur-
Skaftafellssýslu sem áður fyrr var dálítið
byggðarlag en er nú í eyði.
En víkjum nánar að fjöllunum í Ódáða-
hrauni. Dyngjufjöll eru sem næst miðja vegu
milli Herðubreiðar og Tröiladyngju, sem eins
og fyrr segir hét áður Skjaldbreiður. Frá
þeim kögunarhóli blasa þessi tvö fjöll við,
sitt á hvora hönd. Annað minnir á breiðan
skjöld, en hitt á herðubreiða öxi. Raunar
sjást þau í senn allvíða að. Skyldi ekki geta
verið, að þessar „vígalegu" fjallamyndir
tvær, sem setja svip sinn á sama landsvæð-
ið, hafi leitað eftir samræmdum nafngiftum
ámóta vígalegum, skjöldurinn Skjaldbreiður
og öxin Herðubreið? Sé það hugsanlegt,
birtir enn yfir tilgátu Egils Jónassonar.
Án efa hefði Egill sjálfur gert þessu
máli betri skil; að minnsta kosti hefði hann
verið vís til að leggja út af þessari hugmynd
sinni á einhvern bráðskemmtilegan hátt, því
flest varð skemmtilegt í meðförum hans.
Ef mér væri ekki með öllu fyrirmunað
að setja saman boðleg eftirmæli um vini
mína, þá hefði Egill ekki sloppið. Þar hefur
skeikað að sköpuðu. En þessa frainhleypni
vona ég að hann fyrirgefi mér.
Helgi Hálfdanarson
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 16. SEPTEMBER 1989 3