Lesbók Morgunblaðsins - 07.10.1989, Síða 11
FERÐALÖG
Leiðir allra Austfirðinga liggja upp á Hérað. Og gistikjarni
allra ferðamanna, sem þangað sækja er Hótel Valaskjálf. Hvað
býður hótelið helgargestum að vetrarlagi? Hótelstýran, Sigurborg
Kr. Hannesdóttir verður fyrir svörum.
„Hótel Valaskjálf breytist í
skemmtistað á veturna. Hér er
oftast dansað um helgar. Héraðs-
búar finna alltaf tilefni til að koma
saman og skemmta sér. Núna er
til dæmis mikið um árshátíðir.
Bændahátíðin er stór árlegur við-
burður. Hún er alltaf haldin fyrsta
vetrardag, 21. október í ár. Síldar-
hóf er haldið hér í vertíðarlok.
Alltaf er óvissa hvenær vertíð lýk-
ur, en það verður trúlega í seinni
hluta nóvember. í næsta síldar-.
hófi, langar mig til að láta ver-
stöðvarnar keppa innbyrðis, til
dæmis hver kemur með bestu
síldarréttina.
Mig langar til líka að endur-
vekja Héraðsvökurnar með
breyttu sniði. Að halda Fáskrúðs-
fjarðar- eða Seyðisfjarðarkvöld-
vökur, þar sem hver fjörður kem-
ur með sín skemmtiatriði. Kvöld-
vökurnar væri síðan hægt að aug-
lýsa með einhverjum fyrirvara,
svo að gamlir Austfirðingar gætu
mætt á staðinn. Talandi um Hér-
aðsvökur, þá er örugglega leitun
að annarri eins stemmningu og
ríkir á þorrablótum á Héraði.
Mörg lítil sveitafélög eru hérna,
sem halda öll sín þorrablót, úti í
sveitum og inni í kaupstað. Menn
fara að jafnaði á ein fjögur þorra-
blót!
stutt er héðan niður á firði. Auð-
velt að fá góðan afslátt hjá bíla-
leigunum yfir vetrarmánuðina.
Og heilsurækt er hægt að stunda
ýsundi, með göngu og á skíðum.
Útisundlaugin er í tveggja
mínútna göngufæri. Hún er opin
daglega síðdegis, nema rétt yfir
jól og áramót. Fallegar gönguleið-
ir eru í Egilsstaðaskógi innan um
haustlitina og ekki síður í vetr-
arríki fyrir gönguskíðafólk. En
eftir að snjór fellur, helst hann á
Fjarðarheiði og _ þar eru alltaf
troðnar brautir. A Héraði eru ótal
heiðavötn með góða veiði. Má þar
nefna Ekkjuvatn, Krókavatn,
Falleg jöklasýn er fr'á Höfn.
Sænautavatn, Þríhyrningsvatn og
Ánavatn. Við gætum boðið ferða-
mönnum upp á að veiða í gegnum
ís, ekkert síður en þeir á Mý-
vatni. Það hefur líka komið til
tals að búa til íslenska revíu, sem
yrði sýnd á hótelinu. Við látum
heyra frá okkur síðar“, segir Sig-
urborg.
Bærinn báðum megin við fljótið, sem geymir hinn fræga Lagar-
fljótsorm!
*
Italíukynninff í Krinsrlunni:
--------*Z----£2-------Q
Verða Ítalíuferðir vin-
sælar að vetrarlagi?
Ítalíukynningin í Kringl-
unni var með miklum glæsi-
brag í síðustu viku. Alls stað-
ar héngu ítalskir fánar yfir
vörum frá Ítalíu. Næsta fróð-
legt að sjá, hvað við flytjum
mikið inn þaðan. ítölsk hljóm-
sveit spilaði og tískusýning
var á efri hæð. í tengslum
við kynninguna voru kynntar
Italíuferðir á hagstæðu verði,
sem ganga strax í gildi.
Auðvitað hefur alltaf verið
hægt að fljúga með áætlunar-
flugi til Ítalíu. En núna hafa
Flugleiðir og ítalska flugfélagið
Alitalia gert samkomulag um
hagstæð verð í daglegum flug-
ferðum. Boðið er upp á flug í
gegnum Kaupmannahöfn og
þaðan til Rómar eða Mílanó.
En líka er hugsanlegt að fljúga
í gegnum aðra viðkomustaði
Flugleiða erlendis og hafa þar
viðdvöl. Farþegar eiga síðan
kost á að halda áfram til borga
innan Ítalíu. Möguleikar eru á
viðdvöl í hverri borg fyrir sig.
Hægt er að flakka á milli fjög-
urra borga á Ítalíu. Einu skil-
yrðin eru, að dvalið sé yfir helgi
og að ferðinni ljúki innan 30
daga. Flugleiðir og ferðaskrif-
stofur sjá um að bóka hótel í
viðkomandi borgum.
Hér opnast möguleikar á að
skoða hin stórkostlegu menn-
ingarauðæfi ítölsku borganna
utan aðalferðamannatímans.
Og líka til að njóta mildrar veðr-
áttu við Miðjarðarhafið að vetr-
arlagi. Fátt jafnast á við ítalska
hönnun, ef fólk er í verslunar-
hugleiðingum. Mílanó þykir
stórkostleg verslunarborg. Ferð
til Rómar kostar 49.210 kr. Til
Mílanó 45.900 kr. Feneyja
49.150 kr. Písa 51.370 kr. Rim-
ini 51.960 kr. Napólí 54.940
kr. Kataníu á Sikiley 57.170.
Hægt er að ferðast til fjögurra
borga fyrir um og yfir 50 þús-
und kr.
Egílsstaðir:
Tekst að endurvekja
héraðsvökurnar?
Héraðsvökur og Fjarðarvökur - Gönguskíðasvæði á
Fjarðarheiði og stutt að skreppa niður á firði
Höfii:
Leikfélagið æfir og
frumsýnir á Litlu
Sögu 27. október
Flugleiðir bjóða að venju ódýrar
helgarferðir til margra lands-
byggðarbæja í vetur. Margir
spyrja eflaust, hvaða afþreyingu
landsbyggðjn býður upp á? Hót-
elsljórinn, Arni Stefánsson verð-
ur fyrir svörum á Hótel Höfn í
Hornafírði.
„Það er alltaf eitthvað um að
vera á hótelinu um helgar, alveg
eins og á Hótel Sögu í höfuð-
borginni. Enda gengur hótelið und-
ir nafninu „Litla Saga“ eða „Smá-
saga“ meðal heimamanna! Við
bjóðum oft upp á hið vinsæla sjáv-
arréttahlaðborð um helgar. Og það
er hægt að stunda hér heilsurækt.
Heilsuræktarstöð með fullkomnum
tækjum, ljósabekkjum og gufubaði
er opin_ alla daga, nema sunnu-
daga. Útisundlaugin er opin frá
kl. 10-2 á sunnudögum og kl. 5-8
á virkum dögum, en kannski verð-
ur henni lokað yfir háveturinn.
Hótelgestir geta alltaf komist í
Byggðasafnið, ef þeir óska. Það
er í elsta húsi bæjarins, gömlu
verslunarhúsi, sem var flutt frá
Papósi í Lóni. Einnig er alltaf kost-
ur á skoðunarferðum um nágren-
nið fyrir litla hópa. Helsta nýjung-
in í ferðamálum hérna á suðaustur
horninu eru snjósleðaferðir uppi á
jökli, sem hafa mælst mjög vel
fyrir. En þær liggja niðri að vetrar-
lagi. Seinni hluta vetrar er gott
skíðasvæði upp af Höfn. Þar er
stutt toglyfta.
Við hringdum líka í formann
leikfélagsins, Þorstein Sigurbergs-
son.
Hvað er á fjölunum hjá ykkur
í vetur? „Við erum að æfa tvo ein-
þáttunga á fullu, sem verða frum-
sýndir 27. október á Hótel Höfn.
Þeir eru „Já, herra forstjóri", sem
leikfélag á Blönduósi hefur tekið
fyrir og „Afleiðing", sem Alþýðu-
leikhúsið sýndi, ásamt fleiri ein-
þáttungum á Hótel Borg fyrir 2-3
árum. Sýningar verða trúlega á
föstudags- og sunnudagskvöldum,
en hótelið er með dansleiki á laug-
ardagskvöldum.
Höfúðborg
Vestíjarða hét
áður„Eyri við
Skutulsíjörð"
og liggur í
skjóli stórbrot-
ins fjallahrings
ísafjörður:
Margt í boði í höfuðstað Vestfjarða
Þéttbýlisbúum er boðið upp
á ódýrar helgarferðir út á
landsbyjggðina. Hvað býður
Hótel IsaQörður, í höfúðstað
Vestfjaröa, gestum sínum? Hót-
elstýran, Aslaug Alfreðsdóttir
verður fyrir svörum.
„Við bjóðum okkar gestum
fyrst og fremst upp á frið og
góða hvíld. Það er ekki dansstað-
ur á hótelinu. En við bjóðum upp
á fjölbreyttan matseðil í vistlegu
og rólegu umhverfi. Ovíða úti á
landsbyggðinni er betri funda- og
ráðstefnuaðstaða, en nýja Stjórn-
sýsluhúsið er við hliðina á hótel-
inu. Tveir eða þrír skemmtistaðir
sjá um fjörið fyrir heimamenn og
helgargesti. Við erum með Sjalla
eins og Akureyringar! Síðan eru
það Staupasteinn og Krúsin, sem
eru sambland af krám og dans-
stöðum eins og gengur og skipta
oft um eigendur og nöfn ekkert
síður en skemmtistaðir í
Reykjavík!
Agætis innilaugar eru bæði á
ísafirði og Bolungarvík. Gufubað
er í sundlaug ísafjarðar. Hér er
góð aðstaða til að stunda heilsu-
rækt, bæði tækjasalir og sólbaðs-
stofur. Mjög áhugavert sjóminja-
safn er í Neðsta kaupstað, sem
er elsti hluti bæjarins. Og alltaf
er hægt að setja upp skoðunar-
ferðir fyrir litla hópa, ef óskað
er. Bíóið er með daglegar sýning-
ar. Og Litli leikklúbburinn tekur
alltaf fyrir a.m.k. tvö verkefni
yfir veturinn. Sýningar hjá leik-
klúbbnúm hefjast í nóvember. En
það er skíðasvæðið sem heillar
flesta til sín. Góður skíðasnjór er
yfirleitt frá lokum janúar fram
yfir páska“.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7. OKTÓBER 1989
I
11