Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.1990, Síða 12
4-
■
talsvert á um það, hvort þessi Citroén sé
með fallegustu bílum, en flestir eru sam-
mála um að hann sé framúrskarandi að
innan. Bæði er útfærslan frumleg og ólík
flestu öðru, en um leið rökræn. Til þessa
hefur það háð flaggskipinu, að frágangur
hefur aldrei þótt í hæsta gæðaflokki, þótt
mikill munur sé orðinn á frá því sem áður
var, þegar mikill losarabragur einkenndi
hvaðeina að utan sem innan. Citroén XM
er hvað frágang snertir talinn sambærileg-
ur við aðra lúxusbíla á svipuðu verði, enda
þýðir naumast að bjóða uppá annað. í
erlendu bílapressunni er hvarvetna lokið
miklu lofsorði á loft-og vökvaijöðrunar-
kerfið, sem nú er orðið rafeindastýrt og
því ennþá betra en áður. í þýzka bílablað-
inu Auto Motor und Sport var sagt, að
þrátt fyrir þessa tæknilegu fullkomnun,
væri fjöðrunin ekki betri en í nýju Fim-
munni frá BMW, en bætti við, að það hlyti
líka að teljast vel af sér vikið að ná fjöðrun-
inni jafn góðri.
Nú hafa Citroén XM bæzt nýjar viður-
kenningar. ítalskir bílablaðamenn, 120
talsins, veita ári hveiju viðurkenningu,
„Prix Auto Europa“. í ár féll þessi viður-
kenning í hlut Citroén XM, sem fékk 408
stig. Næstur varð Lancia Dedra með 281
stig, þá Mercedes Benz 500 með 258 stig,
Ford Fiesta með 208 stig og loks Audi
V8 með 172 stig.
Og meira í safnið hjá Citroén XM: „Bíll
nútímans", verðlaun, sem finnska tímaritið
Tuulilasi veitir og „Gyllta snjókornið",
verðlaun, sem franskt tímarit um vetrar-
sport veitir. Að lokum hefur „Hjólhýsa-
klúbbur Stóra Bretlands“ veitt Citroén XM
viðurkenninguna „Towing Car of the
Year“, sem sýnir að þessi mjúki Fransari
er enginn aukvisi þegar til þess kemur að
draga hjólhýsi.
„Bíll nútímans",
Snnsk viðurkenning
1990.
Afburða dráttarhestur -
brezk viðurkenning
1990.
Citroen XM Bíll ársins“ 1990 - Verðlaun og viðurkenningor úr öllum áttum.
CITROEN XM
sankar að sér verðlaunum
Flaggskip Citroén, sem
auðkennt er með XM, var
kjörinn . „Bíll ársins“ í
stærðarflokki bíla með
yfír 2000 rúmsm. vél nú
í ár. Það eru 57 evrópskir
bílablaðamenn frá 17
löndum, sem standa að
því vali. í fyrra hlaut hann hinsvegar
„Gullna stýrið“ í sama stærðarflokki á
vegum stórblaðsins Bild am Sonntag í
Þýzkalandi. Flaggskipið þykir hafa til að
bera sterk karaktereinkenni, sem greini
það vel frá öðrum bílum, en ólíkt þvi sem
tekizt hefur til dæmis hjá Mercedes Benz,
hafa hönnuðir Citroén misst niður það
sérstæða svipmót, sem löngum einkenndi
Citroén DS fyrr á árum. Ef til vill er það
vegna þess, að Bertone hinn ítalski tók í
sínar hendur að ráða útlitinu og hann
hefur fyrst og fremst sett sinn svip á grip-
inn. Eins og ævinlega áður, greinir menn
WOOfti
mmu
G332X0P
„Gullna stýrið“ 1989 í
sínum stærðarflokki.
W
36 þúsund stykki voru framleidd af ’57
módelinu, þar af fjögur þúsund með tusku-
topp. Safnarabókin okkar segir helstu kost-
ina vera aksturseiginleika og hörku vélar-
afl, sem kom frá V-8 260 hestafla Hemi-
vél. Gallamir eru hins vegar að hann er
viðkvæmur fyrir ryði og fírnadýr í rekstri.
Verðið á Ameríkumarkaði er 4.500 til 6.000
dollarar fyrir góðan bíl, eða 270 til 360
Gamli tíminn
Einn með öllu
Hér er ein þvottekta
amerísk drossía með
öllu sem einkennt gat
þessa risavöxnu dreka
sjötta áratugarins.
Dodge Custom Royal
Lancer D-500, svipur-
inn er ótvíræður frá öll-
um hinum Chrysler bílunum, en þó er eitt-
hvað öðru vísi. Sá frægi hönnuður Virgil
Exner fór nefnilega höndum um teikninguna
og frá honum er komin útfærsla vængjanna
og sjálft dollaragrínið: Ríkmannlegt grillið.
Þessi er árgerð 1957 og hafði upp á nýjan
Ijaðrabúnað að bjóða að framan: Vindingsás
á hvoru hjóli. Auk þess var hann með einni
helstu tækninýjung þessa tíma, sjálfskipt-
ingu, sem stjórnað var með því að styðja á
hnappa í mælaborðinu og kölluð er takka-
skipting. Bíllinn seldist vel enda smekklega
teiknaður, það er eins og hann sé akkúrat
skapaður til að fara á rúntinn í sól og æsku-
fjöri. Hins vegar stóðu þeir sig ekki jafn
vel sem á eftir komu og ’59 þótti hann orð-
inn þungiamalegur og salan minnkaði. Um
þúsund krónur. I fullkomnu lagi kostar hann
6.500 til 8.500 dollara, eða 390 til 510
þúsund krónur. Hins vegar er hann býsna
góð íjárfesting, því að bókin okkar spáir
um 50% verðhækkun á honum á næstu
árum.
Þ.J.
12