Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.1990, Blaðsíða 14
7V^^
U ,.**«,
íslenskur hóp-
ur hreyfihaml-
aðra á ferðalagi
erlendis.
Ferðalög fyrir hreyfihamlaða
Rætt við Guðríði Ólafsdóttur um hvernig við mætum ferðaþörfiim þeirra
Á Ferðamálaári Evrópu er áhersla lögð á að skipuleggja og
auðvelda ferðalög fyrir fólk með sérþarfir — einkum hreyfi;
hamlaða og aldraða. Hvað gera íslenskar ferðaskrifstofur? I
öllum þeim litskrúðugu ferðabæklingum sem gefnir eru út hér
er engin ferð auglýst sérstaklega fyrir hreyfihamlaða. Ferða-
blaðið hafði samband við Guðríði Olafsdóttur, sem hefur unn-
ið mikið að ferlimálum þeirra.
Of dýrar ferðir
„í fyrra gerði Sjálfsbjörg
samning við Útsýn um að skipu-
leggja eina ferð fyrir okkur ár-
lega. Ferðabær var líka með
Þýskalandsferð í fyrrasumar,
sem 20 manns tóku þátt í," seg-
ir Guðríður. „Vandamálið er
hvað þessar ferðir eru kostnað-
arsamar. Með því að hafa að-
stoðarfólk á launum eru ferðirn-
ar tvöfalt dýrari en aðrar sam-
bærilegar ferðir. í þeim ferðum
sem Sjálfsbjörg hefur staðið fyr-
ir er aðstoðarfólkið í sjálfboða-
vinnu og þannig hefur kostnaði
verið haldið niðri."
— Hvað eru margir hér á
landi sem þurfa á aðstoð að
halda í ferðalögum? „Við vitum
ekki þörfina. Vitum aðeins að
hún er mikil. Fólk, sem er bund-
ið við hjólastól, eða er á ein-
hvern hátt hreyfihamlað, hefur
geysilega þörf fyrir að geta ferð-
ást og skoðað sig um. En yfir-
leitt er þetta fólk með litla pen-
inga og opinberir ferðastyrkir
þekkjast ekki. Til er ferðasjóð-
ur, sem styrkir íbúa í Hátúni
12. Landsvirkjun er eina fyrir-
tækið, sem boðið hefur fotluðu
fólki í ókeypis skoðunarferð. Og
þá sáum við hve þörfin er mik-
il, en fleiri hundruð manns not-
færðu sér boðið og fóru til að
skoða virkjunina.
Vantar örugg og góð tilboð
frá ferðaskr ifstofum
— Annað vandamál er skort-
ur á upplýsingum. Okkar fólk
fær ekki góða þjónustu hjá
ferðaskrifstofunuin. Til dæmis
sendi ferlinefnd Kópavogs
dreifibréf til allra ferðaskrif-
stofa í fyrra og bað um upplýs-
ingar. Oljós svör bárust aðeins
frá 3 þeirra! Réttar upplýsingar
eru mjög nauðsynlegar. Fólk er
hrætt að fara, ef ekki liggur
fyrir herbergisstærð, hurðar-
Allir á fleygiferð að mynda og skoða.
breidd, snyrtiaðstaða og fleira.
Nokkrar ferðaskrifstofur eru
farnar að sýna myndbönd frá
gistibúnaði, sem er töluverð bót,
en þau sýna ekki nóg.
— Ef örugg og góð tilboð
væru fyrir hendi frá ferðaskrif-
stofum, kæmi þörfin í ljós. Það
er fullt af fólki, sem ekki treyst-
ir sér vegna óöruggra upplýs-
inga um gististaði. Norðurlanda-
samtökin eru með sérstaka
ferðaskrifstofu fyrir hreyfihaml-
aða og svo er víða erlendis. Það
vantar að íslenskar ferðaskrif-
stofur séu með góð sambönd við
slíkar sérhæfðar skrifstofur og
séu með handbærar, áreiðanleg-
ar upplýsingar frá þeim.
Aðstaðan innanlands
— Fyrir nokkrum árum gaf
Samband gisti- og veitingahús-
eigenda út bækling, með al-.
Guðríður Ólafsdóttir sem mik-
ið hefur starfað hjá ferlinefnd
Kópavogs í málemum hreyfi-
hamlaðra.
þjóðlegri merkingu fatlaðra inn
á mörgum hótelum. En því mið-
ur reyndist þessi merking röng
í flestum tilfellum. Forráðamenn
hótelanna gáfu rangar upplýs-
ingar — höfðu ekki þekkingu á
hvað þarf að vera til staðar.
Aðeins fólk með sérþekkingu
getur tekið út gistingu fyrir fatl-
aða. Félagsmálaráðuneytið hef-
ur einn slíkan starfsmann, en
hann er aðeins í hálfsdagsstarfi.
Það er augljóst að sá starfstími
nægir ekki til að taka út gist-
ingu innanlands! En það má
segja að íslensk hótel hafa mik-
ið tekið sig á í þessu efni. Núna
bindum við miklar vonir við
starfandi ferðamálanefnd — að
hún leggi okkur lið og setji
ákvæði, sem auðveldi okkur að
ferðast um ísland."
O.SV.B.
VETRARGOLF
ÍARIZONA
lýsingunum og brautirnar mjókka
eftir því sem fjær dregur frá teig-
unum, svo betra getur verið að
fara með öllu í gát í upphafs-
höggunum. í hótelinu við völlinn
eru 487 herbergi í 27 tveggja
hæða húsum, sem mynda einskon-
ar þorp.
Þegar kemur í Sólardalinn, er
um marga og eftirminnilega golf-
velli að ræða. Fyrstan skal telja
THE POINTE GOLF CLUB á
Útsýnisfjalli (Lookout Mountain),
þar sem leikið er í mótaröð banda-
rísku öldunganna. Á vegum
þriggja dvalarstaða sem allir heita
The Pointe eru tveir 18 holu vellir
í dýrlega fallegu eyðimerkur-
landslagi og það er víst alveg
hægt að mæla með smávegis dvöl
- þarna, því enginn dvalarstaður er
eins marg-verðlaunaður. Þar má
nefna viðurkenninguna Mobil Five
Star, aðra sem heitir „Fimm dem-
antar" og er veitt af Félagi
Bandarískra bifreiðaeigenda.
Á vegum Resort Management
of America er hægt að komast á
úrvals goifvelli við Tucson, þar á
meðal KARSTEATgolfvöIlinn við
háskólann, sem nefndur er eftir
framleiðanda Ping golfkylfa, Kar-
stein Solheim. En völlinn hefur
teiknað sá frægi arkitekt Peter
Dye.
Annar möguleiki norður af
Phoenix er STONECREEK Golf
Tignarlegt
teigstæði á
Boulders-
vellinum
innanum
risa-björg
ogkaktusa.
Club og allir eru þessir vellir opn-
ir almenningi.
Ef ætlunin er að nota dvölina
og tækifærið til þess að komast
í góða golfkennslu, þá má benda
á STRATTON/SCOTSDALE
golfskólann í McCORMIC
RANCH golfklúbbnum, þar sem
þekktur kennari, Keith Lyford,
ræður ríkjum og kennir. Á viku-
námskeiðum í vetur kennir hann
24 nemendum saman og með í
' pakkanum er gisting á Registry
Hotel.
Einn af hátindunum þarna er
dvalarstaðurinn SCOTTSDALE
PRINCESS með 525 gestaher-
bergjum, heilsulihdum og heilsu-
bótarstöðvum. Nú í vetur er boðið
uppá þriggja daga dvöl þar með
gistingu í tvær nætur á rúmar
18 þúsund krónur á mann. Inni-
falið í verðinu er aðgangur að
golfvöllunum og golfbíll. Þar er
einn af meiri háttar keppnisvöllum
atvinnumanna í golfí, THE TO-
URNAMENT PLAYERS CLUBS
STADIUM COURSE. Þar fer t.d.
fram keppnin Phoenix Open. Við
hlið hans er THE DESERT CO-
URSE, sem Tom Weiskopf hefur
teiknað.
Við borgina Scottsdale í Ariz-
ona er golfstaður, sem heitir
McCORMIC RANCH og er á
bökkum Camelback-vatnsins, þar
sem hægt er að sigla einnig.
Þarna er boðið uppá „pakka", sem
virðist álitlegur, því hann veitir
aðgang að 10 úrvals golfvöllum í
nágrenninu, þar á meðal TATUM
RANCH og SCOTTSDALE CO-
UNTRY CLUB með golfvelli, sem
Arnold Palmer hefur teiknað.
Fimm nátta dvöl kostar 44 þús.
kr. á mann, vallargjöld og golf-
bflar innifalin.
Einn frægasti dvalarstaður í
Arizona er THE WIGWAM RES-
ORT, starfræktur síðan 1929. Þar
eru nú þrír 18 holu vellir og er
þetta stærsti einstakur golfstaður
í Arizona. Frægastur vallanna er
THE GOLD COURSE, sem Ro-
bert Trent Jones hefur teiknað
og hefur Golf Digest valið hann
sem einn af 75 beztu golfvöllum
í Bandaríkjunum. Þetta er dýr
lúxusstaður.
ARIZONA GOLF RESORT í
Mesa, örskammt frá Sky-Harbour
flugvellinum, hefur verið mjög
vinsæll og fjölsóttur. Þar er gist-
ing í 162 herbergjum eða húsum
úti á golfvellinum. Þar er boðið
uppá ýmsa möguleika, t.d. fyrir
tvenn hjón saman í húsi með stofu
og tveimur svefnherbergjum. Þá
kostar dagurinn 12 þúsund kr.
fyrir þau öll. í apríl og mai er
ásóknin farin að minnka og þá
lækkar verðið. Fimm dagar með
gistingu, aðgangi að golfvöllum,
morgun- og kvöldverði, kosta 24
þús. kr. á mann.
Það verður æ vinsælla að bjóða
uppá golfkennslu með mynd-
bandatækni, svo maður sjái sjálf-
ur hvað sveiflan er átakanleg.
Slíkir möguleikar bjóðast á TAT-
UM RANCH GOLF CLUB og tek-
ur námskeiðið 5 daga. Kennsla
er frá morgni til kl 3 síðdegis, en
kvöldin eru frjáls og síðan eru
möguleikar á að reyna völlinn,
sem lagður er í hólótt eyðimerkur-
landslag og líkist skozkum völlum.
Golfskólinn á Tatum Ranch, hefur
einnig helgarnámskeið og
„mini"-skóla, sem tekur aðeins
yfir hálfan dag, fyrir þá sem eiga
gífurlega annríkt.
Annað árið í röð var dvalarstað-
urinn THE BOULDER RESORT
sæmdur þeirri viðurkenningu að
vera „númer eitt" af Iesendum
tímaritsins Hidaway Report. Það
er leiðarvisir um friðsæla og
óspillta staði. Golfvöllurinn þar,
teiknaður af Jay Moorish, hefur
einnig verið kjörinn meðal 75
beztu valla í Bandaríkjunum.
Staðurinn er skammt norður af
Scottsdale og eins og sést von-
andi af meðfylgjandi mynd, eru
brautirnar eins og dökkgrænt
gólfteppi, sem lagt er í allskonar
sveigum inn á milli gulbrúnna
kletta. Það skal tekið fram að
lokum, að þessi samantekt er
byggð á bandaríska golftímaritinu
Golf Digest. GS.
14