Lesbók Morgunblaðsins - 05.05.1990, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 05.05.1990, Blaðsíða 5
Laugardagur 11. maí 1940. MORGUN BLAÐID Hinn geigvænlegi hildarleikur liafinn Þjóðverjar og Vesturveldin ber j ast í Hollandi og Belgíu .iiiiiiiiiiiiiininiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMniiiiiiiiiiiiiniiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiliiiiniir Luxemburg á valdi | Kort af Hollandi og Belgíu Þ)áðver)a Churchiil for- sætisráðherra Bretlands Mr. Chamberlain sagði al sjer í gær Mr. Chamberlain fór á fund George Bretakonungs í gœr, og baSst lausnar sem for- sætisráðherra. Fimm mínútum síðar gekk Mr. Wiston Chur- chill á konungsfund, og var honum falið að mynda nýja t ., ;»tjorn. Mr. Chamberlain skýrði frá þessum atburðum í ræðu, sem hann flutti í breska útvarpinu gærkvöldi. Mr. Chamberlain sagði að Hitler miskildi bresku þjóðina,. ef hann hjeldi að hún nivndi á alvörutímum eins og þessum láta deilur um innan. ríkismál dreifa kröftum sínum. Hann kvaðst ekki ætla að dvelja lengi við umræðurnar, sem fram fóru í þinginu í vik- unni, en hann kvaðst hafa sann- færst um það í þessum umræð- um, að eitthvað þyrfti að gera til þess að vekja að nýju traust ' þjóðarinnarogþingsins tilstjórn- arinnar. Hann sagðist hafa hug- leitt þetta mál með vinum sín- um í fyrradag og í gær, og kom- iat að þeirri niðurstöðu, að ráð- stafanir þyrfti að gera til að stjórnarandstæðingar gætu tek- ið þátt í stjórninni. En þegar hann hefði komist að því, að þeir vildu ekki taka þátt í stjóm þar sem hann væri forsætisráð- herra, þá hefði hann ákveðið að beiðast lausnar. flann hefði mselt með því við konung, að vinur sinn og starfs- bróðir Winston Churchill, sem ætti' traust þjóðarinnar og þingsins yrði falið að mynda stjórn. Mr. Chamberlain sagði, að Mr. Churchill hefði óskað þess mjög eindregið að fá að njóta starfskrafta hans í stríðsráðu- neytinu og að hann hefði með únægju orðið við þeirri ósk. FRAMH. Á SJÖUNDU 8ÍÐU. INN GEIGVÆNLEGI hildarleikur milli Þjcðverja og vesturveldanna er hafinn. Þjóðverjar hófu kl. 5.30 í gærmorgun inn- rás í Holland, Belgíu og Luxembourg og stjórnir þessara ianda báðu þegar Breta og Frakka um hjálp. Milli kl. 7 og 8 í gærmorgun voru landamæri Belgíu og Frakklands opnuð og breskar hersveitir, skriðdrekar, brynvarðar bif- reiðar, bifhjól og flutningavagnar hjeldu í endalausum röðum inn í Belgíu. Þannig hittast Þjóðverjar og vesturveldin að nýju eftir 25 ár í baráttu upp á líf og dauða á belgiskri grund. Á BREIÐUM VÍGSTÖÐVUM. 1 hernaðartilkynningu Þjóðverja í gær segir, að innrásin i Holland, Belgíu og Luxemburg hefir verið gerð á breiðum víg- stöðvum. Fregnir um hernaðaraðgerðir á landi eru þó óljósar, en svo virðist, sem barist sje alla leið sunnan frá Mosel í Frakk- landi og norður að Norðursjó. Á landamærðum Frakklands og Þýskalands var hinsvegar alt sagt rólegt í gær. 1 Luxemberg eru bardagar sagðir mjög harðir. En í gær- kvöldi hermdu fregnir að Þjóðverjar hefðu lokið við að leggja undir sig furstadæmið. Stórfurstinn og fjölskylda hans komust undan til Frakklands. Hernaðaraðstaðan á landamærum Belgíu og Þýskalands er nokkuð óljósari.' Hermálaráðherra Belga lýsti yfir því, í belg- íska þinginu i gær, að Þjóðverjum hefði hvergi tekist að brjót- ast í gegn, og að Belgir hefðu þannig borið hærra hlut í fyrstu atrennu. Megin innrás Þjóðverja virðist vera gerð hjá Aachen á þýsk-belgísku landamærunum. HARÐIR BARDAGAR í HOLLANDI. Það er kunnugt að Belgir hafa öflugar víggirðingar þarna við landamærin, en undirbúningur hafði þar verið gerður til að | hersveitirnar gætu hörfað aftur í nýjar varnarstöðvar, ef þeir] yrðu að yfirgefa landamæravíggirðingarnar. ^ Hörðust virðist sókn ÞjóSverja hafa verið í Hollandi. Hersveitir þeirra eru sagSar hafá' fariS yfir Iandamærin á m. k. fjórum stöðum. Nyrst í landinu virðist enn barist rjett viS landamærin. Um miSbik landsins virðast her. sveitir Hollendinga hafa hörfaS undan samkvæmt áætlun til öflugra vígstöðva á vinstri bakka Ijsselfljótsins. I suður frá Ijssel liggur varnarlína þeirra meðfram vinstri bakka Maasfljótsins suSur að belgisku landamærunum. 1 tilkynningu hollensku herstjórnarinnar í gær, segir, að herinn hafi hvarvetna haldið velli í vígstöðvum sínum hjá Ijssel og Maas. í gærkvöldi bárust þó fregnir um að Þjóðverjar hefðu brotist vestur yfir Maas og náð á sitt vald öllu Limburg-hjer- aðinu. Limburghjeraðið er í suðausturhluta landsins. Þjóðverja sækja fram með skriídrekum og brynvörðum bifreiðum, studdar af flugvjelum. I FALLHLÍFAHERSVEITIR ÞJÓÐVERJA. Flugvjelarnar hafa einnig á annan hátt stutt sókn Þjóð- verja með því að flytja herlið vestur í landið og látið það falla niður í fallhlífum. Með því að koma Hollendingum á óvart á þenna hátt tókst þeim þegar í morgun að ná mörgum flugvöll- um í landinu á sitt vald. í Snemma í gær voru taldar um 100 stórar þýskar herflutn- ■ ingaflugvjelar á vesturströnd Hollands nálægt Haag. Settust þær á sjóinn og settu herlið á land á ströndina. Jafnmargar eða fleiri herflutningaflugvjelar sáust yfir Rotterdam, Leiden og víðar og voru hermennirnir þar látnir falla niður í fallhlífum. BARIST 1 ROTTERDAM. Þjóðverjum tókst a8 ná flugvellinnm í Rotterdam Á þessu korti af Ilollaiuli og Belgíu sjást vamarvirkjalínur laþid- anna. Á Ilollandskortimi cru varnarvirkin sýnd með lithim kross- nm og mcð stjörmim á Belgíuko rtinu. Fyrir austan Liege sjást borgirnar Eupen og Malmedy, en þau lijeruð fengu Belgíiýnenn frá Þýskalandi með Versalafriðnum. Við tiSfum ú óbundnar hendur“ Lofthernaður inn að færast algleyming E FRAMH. Á SJÖUNDU SÖTU. ITTHVERT ALVARLEGASTA sjónarmiðið í sambandi við hina ægilegu styrjöld, sem nú er hafin í Vestur-Evrópu, er hinn aukni loft- hernaður. Vegna loftárása Þjóðverja á bæi í Hollandi, Belgíu og Frakklandi í gær, hefir því verið Iýst yfir í Frakklandi, að Bandamenn telji sig nú hafa rjett til að gera hæfilegar gagnráðstafanir. Um sama leyti og innrás Þjóðverja hófst í Niðurlönd- unum í gærmorgun, gerðu sveitir þýskra flugvjela ákaf- ar loftárásir á flugvelli í mörgum helstu borgum Frakk- lands. í borgunum Lille og Nancy varð nokkuð manntjón, fórust 13 í annari borginni, en 16 í hinni, og um 30 manns særðust í hvorri þeirra. Flest af þessu fólki voru óbreytt- ir borgarar. FRAMH. Á SJÖUHDU SÍÐU. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 5. MAÍ1990 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.