Lesbók Morgunblaðsins - 08.09.1990, Side 14
föstudagskvöldi eftir kvöldmat.
Pjallaferð á laugardegi. Morgun-
verður áður en lagt upp og allir
útbúnir með nesti. Að kvöldi
bíður ferðalanga hvíld og góð
máltíð á hóteli. Kannski skreppa
áður í nýju útisundlaugina í
.nokkurra metra fjarlægð — eða
skokka eftir hlaupabrautum á
íþróttavelli. Á sunnudegi, eftir
morgunverð, er ekið um Njálu-
slóðir undir góðri leiðsögn, með
nesti í farteskinu. Kannski stað-
næmst á Hlíðarenda yfir hress-
ingu, áður en ekið er aftur til
Reykjavíkur. Svona ferð kostar
10-12 þúsund á mann.
— Við gerum líka tilboð í
árshátíðir og einkasamkvæmi. Á
Hvolsvelli eru góðir skemmti-
kraftar. Má þar nefna Helga
Hermannsson og Smára Egg-
ertsson. Þegar einkasamkvæmi
eru á hótelinu, reynum við að
vísa öðrum gestum í nýja gisti-
skálann okkar, sem er afsíðis."
Hlíðarendi er tveggja ára
þjónustumiðstöð við þjóðveginn,
starfrækt í tengslum við hótelið.
Innan dyra er hin hefðbundna
íslenska „sjoppa“, smámatvöru-
búð frá kaupfélaginu, bensínaf-
greiðsla, hamborgarar, pylsur,
kjöt- og fiskréttur að auki. Allt
undir sama þaki, eins og tíðkast
á viðkomustöðum ferðamanna
við þjóðveginn á íslandi, en hér
í skipulögðum básum og stúlkan
sem afgreiðir pysluna, er ekki
með bensínafgreiðslu á hendi.
Fremur vistlegt, en of mikill erill
og umgangur til að setjast niður
og njóta matar síns, enda fá-
breyttur matseðill.
„Hingað til höfum við vísað
gestum okkar í hádegisverð og
kaffi niður á Hlíðarenda," segir
Hrafnhildur, „en við stefnum að
því að vera með allar máltíðir
hér á hótelinu og berum alltaf
fram kaffi fyrir gesti, ef óskað
er.“
Matseðill á Hótel Hvolsvelli.
Forréttir: Súpa kr.480. Reykt-
ur lax með eggjahræru kr. 695.
Fiskréttir: Heilagfiski með
ristuðum sveppum kr.1.210.
Karfi með ijómapiparsósu kr.
í.210.
Kjötréttir: Nautabuffsteik með
rauðvínssósu kr. 1.570. Lamba-
læri með sherrysósu kr. 1.460.
Eftirréttir: ís með súkkulaði-
sósu kr. 395. Ávaxtasalat með
ijóma kr.380.
Gistiverð: Fyrir tveggja manna
herbergi með handlaug kr.3.500;
með baði kr.4.900. Herbergi eru
vistleg.
Oddný Sv. Björgvins
Hótel Hvolsvöllur.
Landsbyggðahótel
Óbyggðir og Njáluslóðir -
heilsurækt og veislumatur
„Er þetta til á íslandi,“ varð mér að orði, eftir að hafa gist á
Hótel Hvolsvelli. Notalegt andrúmsloft, sem minnir á fjölskyldu-
hótel í hinu fullkomna ferðamannalandi Austurríki. Hótel Hvols-
völlur er með kynnisferð frá og með morgundeginum til 13.
september. „Vonandi sú fyrsta af mörgum slíkum,“ segir Hrafn-
hildur Helgadóttir, aðstoðarhótelstjóri. „Viljum sjá hvernig gest-
ir taka því, sem boðið er upp á og aðlaga dagskrána eftir því“.
Það eru ekki mörg íslensk hótel með dagskrá fyrir hótelgesti.
Haustdrungi var að læðast að
og regnsuddi, þegar gengið var
inn á Hótel Hvolsvöll. Kertaljós
voru í hveiju horni. Blóm og
bleikir dúkar á borðum. Hlýlegt
viðmót. Gamlir húsmunir, eins
og dökkir skápar og kistur gefa
notalegan svip. Framan við gisti-
herbergi á annarri hæð er hlýleg
setustofa með sjónvarpi. Þýskir
ferðamenn sátu þar yfír spilum..
Gestir fáir og friðsælt eins og á
rólegu heimili. — Veit ekki hvort
háværir og tillitslausir landar
myndu raska svefnró manna
fram eftir kvöldi, ef hótelið væri
þéttsetið. En erlendir ferðamenn
myndu vissulega taka tillit til
annarra gesta.
En allt býður upp á góða hvíld
og slökun. Á útisvölum er heitur
nuddpottur. Gott gufubað og
ljósabekkur. Og hótelstjórinn,
Friðrik Sigurðsson er góður
kokkur. „Síðan Friðrik tók við
hótelrekstri fyrir ári síðan, hefur
mikið breyst," segir Hrafnhildur.
„Hann breytti húsbúnaði og lita-
vali, — og frá hans hendi er fram-
reiddur veislumatur daglega. Til
að gestir njóti enn betur matar
síns, er stundum leikið á píanó
undir borðum.“
Hótelið var tekið í' notkun
1973. Nýtt anddyri var byggt
fyrir 5 árum. En blómastofa, sem
er hluti af borðstofu, var komin
fyrr. Anddyrið er bæði nýtísku-
legt og fallegt. í einu homi er
borð með söluvarningi, að mestu
búinn til á Hvolsvelli. Fyrir utan
hefðbundna pijónavöru, eru litlar
leirskreytingar í glaðlegum litum
til sölu.
— Hvernig dagskrá er boðið
upp á? „Við leggjum áherslu á
ferðir fyrir alla, ekki aðeins ijalla-
garpa. — Skipuleggjum dagskrá
fyrir hópa. — Miðum við 20-30
manns í hóp. Svæðið býður upp
á ferðir inn í Þórsmörk; um Njá-
luslóðir; inn í Emstrur að skoða
Markarfljótsgljúfur, Tindfjöll og
stórbrotna náttúru. Fjallaferðir
eru undir stjóm heimamanna,
sem þekkja öll ömefni og em
með góða, vel búna bíla.
— Dæmi um helgarferðir fyrir
hópa: - Komið til Hvolsvallar á
Við minjagripaborðið.
Hrafnhildur Helgadóttir í hinu vistlega móttöku-anddyri.
Gist á Hótel
Hvolsvelli