Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.1991, Page 15
tifrí*
tági‘ spni Danir heimfæra uppá
heiðlendi. Völlurinn hefur umfram
allt náttúrulegan karakter; braut-
irnar eru til að mynda afar óreglu-
legar í lögun, sumstaðar mjóar og
sumstaðar mjög breiðar og flatirn-
ar eru með afbrigðum góðar og
yfirleitt iagðar á landið til að halda
hinu náttúrulega svipmóti. Nýr 9
holu völlur kemut' í gagnið á miðju
sumri, svo samtals verðut' um 27
holur að ræða.
Þótt hér hafi golfmeistaramót
Danmerkur farið fram og einnig
Norðurlandameistaramót, er þessi
völlur styttri en í Silkiborg, lengd
af öftustu teigum er 5.762m. og
SS-skor þaðan er 71. Af klúbbteig-
um er það 70. Aðeins þtjár holur
geta talizt strembnar út af lengd
og einna tilkomumest er sú 12, sem
er par-5, 508 metra löng, mest upp
í móti og með stórum sandglomp-
um. Ef völlurinn stendur undir því
að vera einn af 10 beztu í Evrópu,
kostar lítið að leika á honum borið
saman við suma aðra í þeim flokki.
Á virkum dögum kostar það kr.
1500 fyrir fullorðna, en 1800 um
helgar. Golfsett eru til leigu á 800
ísl.krónur, og að leigja sér kerru
kostar ísl. kr. 250.
Hér hefur verið bóndabýli og
bæjarhúsunum hefur verið breytt
í klúbbhús og ein álma byggð við.
Kosturinn við þennan völl er, að
hann ætti að vera hverjum miðl-
ungs kylfingi vel viðráðanlegur af
klúbbteigum. í annan stað má
nefna frábærar flatir og fallegt,
náttúrulegt umhverfi.
Furesö-völlur á Sjálandi
Furesö-völlurinn er við Hestköb-
vænge 4 í Birkeröd, einum af út-
bæjum Kaupmannahafnar. Þessi
völlur kemur verulega á óvart fyr-
ir það hvað hann er mishæðóttur.
Hann er mun opnari en hinir vell-
irnir þrír og vegna þessa getur
verið vindasamt þar eins og þessi
skrifari fékk að reyna. Samt er
skógur á víð og dreif og skógar-
lundum er víða þannig fyi'ir kom-
ið, að þeir hafa veruleg áhrif og
maður verður beinlínis að leika
völlinn með tilliti til þeirra. Það
borgar sig til dæmis sumstaðar að
slá fremur með járni en tré af teigj
ef tryggja á farsælt framhald. I
annan stað koma vötn og tjarnir
nokkuð víða við sögu, svo og sand-
glompur.
Það er til fyrirmyndar þarna,
að á leiðinni út á 1. teig er gengið
framhjá æfihgasvæðinu. Æfinga-
boltar kosta ekki neitt og alveg
sjálfsagt að slá nokkra áður en
röðin kemur að manni. Það er líka
gott, að þarna er „biðstofa" spöl-
korn frá 1. teigi, svo þeir sem bíða
trufla menn ekki við upphafshögg-
ið.
Furesö er viðráðanlegur völlur
hvað lengd áhrærir. Af öftustu
teigum er lengdin 5.672 og lengstu
holurnar eru sú 3., sem er 500
m. löng par-5, sú 15. sem er 399m
löng par-4 og sú 17. sem er 190m
löng par-3, upp í móti. En inn á
milli eru stuttar par-4 brautir, um
300-330 m.
Flatargjaldið á virkum dögum
er 1600 ísl. kr. fyrir fullorðna, en
2.400 um helgar, sem er með því
hæsta í Danmörku. Gestir verða
að sýna forgjafarkort og kylfingar
með forgjöf yfir 36 fá ekki að-
gang. Klúbbhúsið er í fallegu,
gömlu húsi, sem bendir til að þarna
hafi fyrrum verið herragarður.
Fyrii' þá sem eru á ferðinni í
Kaupmannahöfn og rétt hafa tíma
til að taka einn hring á velli í ná-
grenninu, er hiklaust hægt að
mæla með Furesö.
Að lokum: Margir möguleikar eru
í sambandi við golfferð til Dan-
merkur. Flugleiðir og SAS eru með
' reglubundið áætlunarflug milli
Keflavíkur og Kastrup og í fram-
haldi af því væri hægt að fljúga
með innanlandsflugi SAS til Jót-
lands og taka bilaleigubíl þar - eða
taka hann strax á-Kastrup. Eina
ferðaskrifstofan hér sem gengst
sérstaklega fyrir golfferðum til
Danmerkur er Alís í Hafnarfirði.
Verður fyrsta golfferðin á hennar
vegum nú í mai og fleiri verða
farnar í sumar.
Gísli Sigui'ðsson
I r
■ÍK. \ | irgöa öiv böív 'iumsjl 'iugöjlS .icrn i
i sumar
— inn í miðja Evrópu
Flugleiðir eru nú óðum að
opna flugleiðir gamla Arnar-
flugs. 15. júní er fyrsta ferð
þeirra til Kloten-flugvallar í
Ziirich. Flogið verður alla laug-
ardaga og mánudaga fram til
9. september.
Kloten þykir þægilegur flug-
völlur. Hann er ekki mjög stór en
þó er flogið þaðan út um allan
heim. Auðveldar samgöngur eru
út frá vellinum. Helstu bílaleigur
eru með skrifstofur á Kloten. I
kjallara er lestarstöð og þaðan
liggur lestarnet út í öll landshorn.
Lestarferð inn í miðborg tekur
um 10 mínútur en rúmlega
þriggja tíma ferð yfir þvert landið
til Genf.
Vandalaust er að koma far-
angri úr flugi niður á brautarstöð
— hjólavagnar Kloten eru hannað-
ir fyrir rúllustiga. Og SBB, svissn-
eska lestarfélagið, er með þjón-
ustu á mörgum lestarstöðvum,
tekur við farangri og kemur hon-
um í flug gegn vægu gjaldi.
Um helgar og á kvöldin er oft
mikið að gera í verslunum
Kloten-flugvallar, sem eru opnar
frameftir á kvöldin og um helgar.
íbúar Zúrich eru þá að kaupa það
sem gleymdist á venjulegum
verslunartíma!
700 áraafmæli
1991 er merkisár Svisslend-
inga. 700 ár eru liðin síðan
bændahöfðingjar Ijallafylkjanna
Uri, Schwyz og Unterwalden sóru
þess eið á Rutli-engi að standa
saman og láta engan segja sér
fyrir verkum. Habsborgarar réðu
ríkjum í kringum þá og voru
ráðríkir við fjallabændur. Nú eru
svissnesku kantónurnar orðnar
26. Sjálfstæðiskennd Svisslend-
Skyldu bændahöfðingjarnir forðum hafa blásið í fjallalúðra?
inga er enn sterk, en hvort hún
er jafn sterk og 1291 á eftir að
koma í ljós þegar Svisslendingar
taka afstöðu til EB. Fjöldi hátíða
og sýninga er vítt og breitt um
landið í tilefni afmælisins. Bent
verður á sérstaka atburði síðar.
Basel og fjallalestin
til Engadín
Kaupsýningar í Basel eru
þekktar og draga til sín fólk alls
staðar að. Islendingar sækja þær
mikið og þó nokkuð af vörum í
verslunum hérlendis koma þaðan
óbeint. Oft er erfitt að fá gistingu
í Basel. Dýragarðurinn „Zolli“ í
Basel þykir fallegur. Þar eru um
5.000 dýr af 580 tegundum. Garð-
urinn er í miðbænum og tekur
um 10 mínútur að ganga þangað
frá aðalbrautarstöðinni. Börn
kunna að meta „barnahornið" þar
sem þau mega gefa og klappa
dýrunum.
Skíðabærinn Engadín er þekkt-
ur fyrir árlegt gönguskíðamót.
Þangað er þriggja tíma lestarferð
frá Zúrich. Hraðlest gengur til
Chur, en þar tekur við rauð fjalla-
lest — Ratische Bahn — sem
hlykkjast um dali og gljúfur á
leiðarenda. Fjallalestin er víðkunn
— sumir farþegar Flugleiða frá
Ameríku fara sérstaklega til Sviss
vegna hennar!
Veturinn sprengdur í burt
I Zúrich er „vetur konungur
sprengdur" árlega um miðjan
apríl. Þá ganga karlmenn prúð-
búnir (ekki konur!) í skrúðgöngu
um miðbæinn og þiggja blóm frá
elskunum sínum. Um kl. 6 síðdeg-
is safnast fólk saman á opið svæði
og horfir á öskrandi karla á hest-
um þeysa í kringum bálköst. Efst
á kestinum er líkan af snjókarli
sem verður að skjóta niður, til að
sumar geti gengið í garð. Þegar
„vetur konungur“ springur í loft
upp, hljóma allar kirkjuklukkur í
Zút'ich.
Pex fargjald til Zúrich er kr.
50.090. „Flug og bíll (fl. B) miðað
við tvo í bíl, í eina viku kr. 65.400
Vinnuferðir á
friðlýst svæði
á vegum sjálfboðasamtaka um
náttúruvernd
Sjálfboðasamtök um náttúru-
vernd voru stofnuð vorið 1986
og hafa því starfað í 5 sumur.
Skráðir félagar eru nú um 100.
Samtökin skipuleggja vinnu-
ferðir á friðlýst svæði og sjálf-
boðaliðar eru velkomnir.
Tilgangur starfsins er: Að
vernda náttúruna; veita fólki
tækifæri til að vinna að náttúru-
vernd; auðvelda fólki umgengni
við náttúruna með auknum kynn-
um. Mest hefur verið unnið á
svæðurn í umsjá Náttúruverndar-
ráðs, en einnig Ferðafélags ís-
lands, sveitarfélaga og einkaaðila.
Oftast er unnið í tengslum við
gönguleiðir, t.d. í Skaftafelli, Jök-
ulsárgljúfrum, Landmannalaug-
um, Krísuvík, Kerinu, Valahnjúk
í Þórsmörk, Dimmuborgum og
Hveríjalli.
Stofnun samtakanna og vinnu-
ferðirnar hafa aukið áhuga á
umhverfismálum. Alúð hefur ver-
ið lögð í undirbúning ferðanna og
verkunum fylgt eftir með sífellt
betra verklagi og skipulagningu.
Margir vilja taka til hendinni og
hlúa að hinni fögru náttúru lands-
ins okkar. Vinnuferð með sjálf-
boðasamtökunum er gott tæki-
færi fyrir holla og lærdómsríka
útivist. Þar vinnur hver eftir getu,
hittir fólk með sama áhugamál
og kynnist landinu á skemmtileg-
an hátt.
Tilhög'un ferðanna
Ferðir á vinnustaði eru oftast
ókeypis fyrir sjálfboðaliða. Matar-
kostnað greiða þeir sjálfir. Matar-
innkaup eru sameiginleg og mats-
eld skipt niður á þátttakendur.
Gisting er oftast í húsum, en fyr-
ir kemur að gist er í tjöldum. Sjálf-
boðaliðar þurfa að hafa með sér
vinnuföt, regnföt, stuttbuxur,
vinnuhanska, svefnpoka, vasa-
söngbók, góða skapið — og er þá
ekki allt upp talið?
Félagsstarfið liggur ekki niðri
yfir veturinn. Strax á jólaföstu
er farið að huga að dagskrá næsta
sumars. Félagsmenn eru kallaðir
á rabbfundi og hvattir til að koma
með tillögur um vinnustaði.
Stjórnin kannar síðan áhuga for-
ráðamanna svæðanna um sam-
starf og skipar verkstjóra í hverja
ferð. Síðari hluta vetrar eru líka
fundir með stúttri dagskrá og lögð
áhersla á að hittast og rabba sam-
an.
Gönguleið afmörkuð við Kerið.
Frekari upplýsingar hjá stjórn-
armönnum samtakanna. Hafið
líka auga með smáauglýsingum
dagblaðanna þar sem vinnuferð-
irnar eru auglýstar. Jóhanna B.
Magnúsdóttir, formaður: heima-
sími: 91-680019, í vinnu: 91-
27488. Eygló Gísladóttir, ritari:
heimasími: 91-666981, í vinnu:
91-674700. Ragnheiður E. Jóns-
dóttir, meðstjórnandi: heimasími:
91-52119. Sólveig Baldursdóttir,
ritstjóri: heimasími: 91-46165.
Vigalegur hopur við Kerið sl. suntar.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 11. MAl 1991 15