Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1993, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1993, Blaðsíða 2
STEINUNN ÁSMUNDS- DÓTTIR Dísyrdi -brot- IV Þú snertir mig alls staðar um mig flæðir algleymi varir mætast jafnt í kyrrð sem ofsa á millum sálna okkar er strengur svo styrkur að orða er ekki þörf líf okkar samofið gulli og silfri tilfinninga tár, angur og unaður í ólgandi röst. V Manstu að mig dreymdi ég hjúfraði mig undir stórum, fiðruðum væng, kúrði mig í hlýtt myrkrið? Held það hafi verið þú sem mig dreymdi. Jú — ég fann það sterkt þegar þú luktir mig örmum. Þannig líður inér líka þegar þú heldur utan um mig á nóttunni. Svona eins og undir stórum hlýjum og traustum væng. VII Ég skal segja þér vinur hvernig þetta er allt saman. Gefðu mér fjóluvönd gefðu mér kinnhest og þú færð mig og missir í sömu andrá hatar mig en getur ekki gleymt mér vegna þess þú elskar mig. Gættu þess bara að þú getur aldrei eignast mig. Höfundur er ung Reykjavíkurstúlka. Ljóöiö er brot úr stærri bálki úr nýrri Ijóðabók sem eínnig heitir Dísyrði. Forlagið Goðorð gefur út. STEINÞÓR JÓHANNSSON Garðyrkju- maðurinn Langanir, þrár, hvatir og fýsnir umlykja hug minn í þinn garð. Svo er sagt að fólk eigi að rækta garðinn sinn. Þegar ég vökva, slæ og snyrti langanir, hvatir og fýsnir huga míns finnst mér grasið enn grænna hinum megin. Ljóðið er úr nýrri Ijóðabók höfundarins; hún ber heitið „Eigum viö" og útgefandi er ísafold. Daði Guðbjörnsson listmálari hefur myndskreytt bókina. Skammdegisganga austur í Grímsnes fyrir 83 árum Ferð sú er hér verður sagt frá hófst í Reykjavík hinn 8. desember 1909, en þá var ég 17 ára. Ég hafði fengið leyfi föður míns til þess að læra sund, en í þá daga var Reykjavík eini staður- inn á landinu þar sem sundkennsla fór fram. Sundkennari var þá Páll Erlingsson. Ég dvaldi mánaðartíma í Reykjavík við sundnámið, jafnframt var ég í kvöldskóla Ásgríms Magnússonar. Nú var farareyrir minn þrotinn og var því ekki um annað að ræða en að halda heim. Foreldrar mínir bjuggu þá í Vatnsholti í Grímsnesi og er það 90-95 km vegalengd frá Reykjavík. Ekki var um annað að ræða en að fara gangandi. Ég ákvað að leggja af stað frá Reykjavík að morgni þess 8. desem- ber og fara Mosfellsheiði. Ég hafði daginn áður hitt mann frá Skógarkoti í Þingvalla- sveit, sem ætlaði af stað austur þennan dag og talaðist svo til að við yrðum samferða. Hann var gangandi eins og ég. Ég var nú orðinn svo auralaus að ég gat ekkert' keypt mér í nesti. Ég átti ekki í buddunni nema tvær krónur og var það tæplega fyrir nætur- greiða þar sem við urðum að gista. Ekki hafði ég annað hlífðarfata en svokallaðan stormjakka, sem þá var algengt að vera í utan yfir vaðmálsjakka. Við lögðum af stað frá Reykjavík laust eftir hádegi og var ákveð- ið að gista í Miðdal í Mosfellssveit. Veður var gott, þýðviðri og úrkomulítið. Við komum að Miðdal í rökkurbyrjun og feng- um þar gistingu. Morguninn eftir þótti mér vissara að vita hvað ég skuldaði fyrir mat og rúmið kvöldið áður, áður en ég færi að biðja um mat um morguninn, kostaði þetta tvær krónur og gat ég greitt þær, en hafði svo engan eyri eftir til þess að geta keypt mat um morguninn. Samferðamaður minn var víst ekki eins illa staddur fjárhagslega og ég, því að hann fékk sér vel að borða. Húsmóðirin í Miðdal undraðist að ég skyldi ekki fá mér mat líka, en ég þóttist ekki hafa lyst á að borða svo snemma að morgni. Mun hún þá hafa haldið að ég hefði matarbita með mér, en svo var ekki. Var ekki laust við að ég öfundaði samferðamann minn, því auð- vitað hafði ég fullkomna matarlyst. Frá Miðdal fórum við í birtingu og lögðum á Mosfellsheiði. Var þá veður þannig að útlit var fyrir slyddu eða snjókomu, enda fengum við bleytusnjó er við komum austur undir Sæluhúskofann, sem er á miðri heiðinni. Þar hvíldum við okkur um stund en hvorugur tók upp nesti, því nú vorum við báðir jafnir að Nú er rennt á tæpri klukkustund úr Reykjavík og austur í Grímsnes, ef ekkert er að færð. Erfitt er að ímynda sér hvað sú ferð útheimti mikið þrek og kjark áður en vegir og bílar komu til sögu. Unglingurinn úr Grímsnesinu, sem hér segir frá, hafði verið að læra sund í Reykjavík og varð að komast á eigin spýtur heim, skammdegið grúfði yfir og allra veðra von. Auðvitað var það ekki annað en flan og ungs manns fyrirhyggjuleysi að leggja í þessa för nestislaus — en aurarnir voru búnir. Stefán Diðriksson, síðar bóndi á Minniborg, slapp samt lifandi frá þessari raun - og seinna skráði hann ferðina sjálfur. Stefán Diðriksson. hafa ekkert nesti með okkur. Nú dreif niður snjómuggu og versnaði færð, óðum við krap- ið í ökla og urðum því rennblautir í fæturna, því við vorum í heimagerðum leðurskóm eins og Jþá gerðist. Eg þekkti vel Gjábakkahjónin Hallmund Eiríksson og Margréti konu hans og var ég ákveðinn í að komast þangað um kvöldið. Þá er við komum austur á móts við Skógarkot var orðið aldimmt, mun klukkan þá hafa ver- ið um 6 e.h. Vildi samferðamaður minn að ég kæmi heim með sér og yrði þar um nótt- ina, enda var allmikil snjódrífa og veðurútlit ekki gott. Ég þóttist vel rata að Gjábakka og kvaddi samferðamann minn og hélt af stað. Gekk mér vél austur fyrir Hrafnagjá, en er þangað kom var snjórinn orðinn það mikill að ég tapaði veginum, enda var nú orðið aldimmt. Var ég í tvo klukkutíma að villast frá gjánni að Gjábakka og þegar ég loksins komst þangað var klukkan farin að ganga níu um kvöldið. Ég þóttist nú hólpinn er ég var kominn til kunningjafólks. Hugði ég gott til þess að fá nú að hvílast vel og fá nóg að borða, því nú var hungrið farið að sverfa að mér, þar sem ég hafði ekkert nærst frá því kvöldið áður. Ég kvaddi dyra og Hallmundur kom út. Ég heilsaði honum og baðst gistingar, hann kvað mig ekki sækja vel að heimilinu, því að þar lægju allir í mjög slæmri blóðkreppusótt, hann yrði að reyna að vera á fótum þó hann væri sárlasinn. Samt sem áður taldi hann alveg ófært fyrir mig að fara lengra, en til þess að forðast að ég bæri veikina með mér heim og veiktist sjálfur taldi hann öruggast að ég reyndi að hreiðra um mig í auðum fjós- bás hjá kúnum, þar væri hlýja og myndi ég geta sofið þar eitthvað. Við þessi tíðindi brá mér mjög og kom nokkurt hik á mig hvað ég ætti nú að gera. Ég spurði hann hvort ekki myndi óhætt að hann gæfí mér sýrublöndu að drekka, ekki ætti hún að smita mig. Hann bjóst við að það væri óhætt. Þá er ég hafði drukkið nægju mína hresstist ég allvel og fann ekki eins til hungurs. Ég fór með Hallmundi í fjósið, hann mjólk- aði fulla könnu handa mér, náði í fullt fang af heyi og fleygði í auða básinn og sagði mér að hvílast þar um stund, helst til morg- uns. Ég lagði mig þar og var hvíldinni feg- inn. Ekki var Hallmundur lengi með fjósverk- in því ekki voru kýmar margar, líklega tvær til þijár. Féll nú kyrrð yfir. Ég hugsaði ráð mitt, ætti ég að sofna eða drífa mig áfram austur að Laugarvatni? En ekki ríkti kyrrðin lengi, ég fór að heyra smáþrusk í kringum mig og fljótlega skyldi ég að mýs voru þarna á sveimi. Ég þurfti þá ekki lengri umhugsunarfrest en spratt upp og ákvað að halda áfram. Nú birti um stund í lofti og sá til tungls, sem þá var nýkomið upp. Ég vissi að tunglsbirta myndi aukast ef ekki héldi áfram að snjóa. Ég ákvað að halda áfram í trausti þess að ég myndi geta haldið götunum austur í Barmaskarð og farið svo með fjöllum austur að Laugar- vatni. Ég bjóst við að götumar væru ekki orðnar fullar af snjó, því að þær eru mjög djúpar, en ekkert hafði skafið því frost var vægt og blautur snjórinn. Lét ég nú Hall- mund vita að ég væri ákveðinn í að fara. Hann dró úr mér með að halda áfram sem hann gat, en ekkert stoðaði. Ég kvaddi hann með þökkum og hélt af stað. Ég reyndi að finna götumar austur af Laugarvatni en þær vom fullar af snjó og ekki hægt að halda þeim. Éljagangur var en tunglskinsglæta á milli og paufaðist ég áfram og sá loks glitta í Arnarfell, ég var alltof sunnarlega. Ég hafði einu sinni farið þetta áður og þekkti því fjöll- in. Ég breytti því um stefnu. Eftir langa göngu er ég kominn fast að Dímon. Nú er ég kominn of norðarlega hugs- aði ég. Ég mundi frásögn um piitinn frá Mið- dal í Laugardal, sem sendur var til Reykjavík- ur að sækja varning til jólanna. Hann kom síðast að Gjábakka og spurðist svo aldrei til hans meir. Skyldi fara eins fyrir mér? Ég sat þama um stund og reyndi að átta mig vel á stefnunni. Nú reið á að finna Barminn. Reyð- arbarmur er hraunrani sem gengur til suðurs meðfram Laugarvatnsvöllum að vestan. Ég hvíldi mig þama um stund en gætti þess að sofna ekki. Ég var löngu farinn að iðrast þess að þiggja ekki gistingu í Skógarkoti og afdrif piltsins sóttú mikið á hugann. Hóf ég nú gönguna á ný. Undir morgun sá ég loks móta fyrir Barminum og nú fór smátt og smátt að birta en ég kom að suðurenda Reyð- arbarms. Þama hvíldi ég mig um stund. Nú tók ég þá ákvörðun að fara ekki að Laugar- vatni heldur reyna að fara beina línu austur Lyngdalsheiði að Neðra-Apavatni. Þó ég væri bæði þreyttur, svangur og syfjaður fylltist ég bjartsýni og lagði nú ótrauður á heiðina. Kristín móðursystir mín sem ég hélt til hjá í Reykjavík gaf mér poka með bijóstsykri til að gefa systkinum mínum þegar ég kæmi heim. Nú var ég farinn að fá mér mola og mola og hélt því áfram austur heiðina. Það hressti mig heldur. Mig minnir að klukkan hafí verið um eitt þegar ég kom að Neðra- Apavatni. Þar var mér ástúðlega tekið að venju og hlustað með athygli og alvömsvip á ferðasögu mína. Nú var mér borinn matur og síðan drifinn niður í gott rúm. Þama svaf ég svo í 4-5 tíma. Þegar ég mmskaði og ætlaði að fara heim í Vatnshplt var ekki nærri því komandi, enn meiri matur og hvíld og svo var spilað við systkinin um kvöldið. Svaf ég svo þama um nóttina og hélt heim til mín að morgni. Þar með er þessi ferðasaga á enda. Það ér af sögumanninum, Stefáni Diðriks- syni, að segja að hann varð svo lánsamur að setjast í gagnfræðadeild Flensborgarskóla tveimur árum eftir að þessi atburður gerðist. Lauk hann gagnfræðaprófi þaðan. Heim í sveit sína? Grímsnesið, fór Stefán að loknu prófí og gerðist fljótlega kennari í sveitinni. Hann kenndi þar til hann varð kaup- félagsstjóri við kaupfélagið á Minniborg, og síðar bóndi og oddviti þar. Einnig kenndi hann á námskeiðum fyrir Ungmennafélagið Hvöt þar í sveit og þá sérstaklega glímu. Ekki var aðstaða til sundkennslu um þetta leyti í sveitum. Stefán var góður glímumaður og vann oft til verðlauna, m.a. fyrstu verð- laun á móti á Þjórsártúni árið 1922 og önnur verðlaun á móti hjá UMFÍ í Reykjavík sama ár. Stefán tók að sér margvísleg félagsmála- störf í sveit sinni og var lengi virkur félagi í Ungmennafélaginu Hvöt. Þessir fyrstu fé- lagar í Hvöt höfðu mikinn áhuga fyrir skóla- málum sveitanna, enda varð Stefán einn af frumkvöðlum að stofnun Héraðskólans að Laugarvatni og í byggingamefnd. Hann lagði mikið á sig við flutninga og útvegun á efni til skólans. Til gamans læt ég hér á blað hvemig Stefán fór að því að fjármagna veru sína í skólanum. Ögmundur skólastjóri í Flensborg hafði verið. beðinn að útvega for- mann á bát sem gerði út frá verstöð sem var í Seley, en það er eyja úti fyrir Reyðarfirði. Skólastjórinn leitaði til þriggja nemenda sinna með þetta og vom þeir allir kallaðir í viðtal til útgerðarmannsins. Svo talaðist til að Stef- án tæki þetta að sér. Má það heita þó nokk- ur dirfska þar sem Stefán hafði aldrei á sjó komið og var aðeins um tvítugt þegar þetta gerðist, en allt fór þetta vel. Ég held að hann hafi alltaf verið dálítið stoltur af sjómennsku sinni í Seley. Stefán var næstelstur átta systkina, barna Diðriks Stefánssonar bónda í Vatnsholti í Grímsnesi og konu hans, Ólafar Eyjólfsdótt- ur. Stefán gifti sig haustið 1920 Ragnheiði Böðvarsdóttur frá Laugarvatni og lifir hún mann sinn. Faðir minn, Stefán Diðriksson, hefði orðið 100 ára 15. desember nk. ef hann hefði lifað, en hann lést 18. janúar 1957 að- eins 65 ára að aldri. ÓLÖF STEFÁNSDÓTTIR

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.