Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1993, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1993, Blaðsíða 9
Dýrakóngurinn er eðalJunduð skepna og margfróð. Frá honum var sagt í síðustu Lesbók. Þjóðsagnadýr á láði og legi III Leggðu það undir lyngorm Svokallað aflróf (power spectrum) gefur upp afl hröðunarþáttarins sem fall af tíðni en útslagsróf gefur upp hröðunina á hverri tíðni. Þegar hröðunin og tíðnin eru þekkt er einfalt að reikna raunverulega færslu yfirborðsins ('há). Hröðunin er mælikvarði á hversu alvarlegur titringurinn er og út frá henni er ákveðið hvernig bregðast skuli við. í Glerárkirkju sást samsvörun milli hring- inga frá kirkjuklukkunum og sveiflna í veggjum en aflið í sveiflunum reyndist á hinn bóginn frekar lítið. Ekki er hægt að útilokað að klukkurnar sprengi múrinn en það verður að teljast frekar ólíklegt. ÁHRIF TITRINGS Á MENN OG VÉLBÚNAÐ Titringur getur verið hvimleiður sem verður oft kveikja að frekari athugun og rannsóknum á honum. Fyrir utan það að vera hvimleiður getur titringurinn skaðað bæði menn og vélhluta. Áhrifín eru ýmist metin út frá færslu yfírborðs, hröðuninni í sveiflunni eða aflinu í sveiflunni. Áhrifín á vélbúnað og burðarvirki geta verið mjög breytileg og það fer mikið eftir efnasamsetn- ingu og nauðsynlegri nákvæmni í stærð og hlaupvíddum vélhlutanna hversu alvarleg áhrif titringurinn hefur. Áhrifín á manns- líkamann eru alvarlegri því þau geta valdið varanlegu heilsutjóni sem erfítt getur reynst að bæta. Hjá nokkrum erlendum staðla- stofnunum hafa verið sett fram mörk um hámarkstitring í vinnuumhverfi rétt eins og þekkt er hér á landi fyrir hávaðatakmarkan- ir. Þessi mörk eru mismunandi eftir því hvort álagið á mannslíkamann er lárétt eða lóðrétt og er ástæða þessa mismunar sú að maðurinn er gerður fyrir mun meira lóðrétt álag en lárétt. En hvaða líkamshluta hefur titringurinn áhrif á? Danska fyrirtækið Bru- el & Kjær (B & K) hefur um langt árabil unnið að rannsóknum á titringi og áhrifum hans. í bókinni Mechanical Vibration and Shock Measurements frá B & K er sett fram líkan af mannlíkamanum sem hefðbundnu sveiflulíkani, mynd 3. Líkanið sýnir að allur líkami manns sem stendur á titrandi gólfi verður fyrir áhrifum af völdum titringsins. Óþarfa slit liðamóta er dæmi um alvarlegar afleiðingar titrings. Öll liðamót hafa hlaup milli beinendanna og í miklum titringi skella þeir mjög oft saman og þó aflið sé ekki mikið hefur þetta óhjákvæmilega í för með sér óþarfa slit liðamótanna. Liðamót eru almennt gerð fyrir stefnuháð álag, t.d. tek- ur hné upp mesta álag þegar fóturinn er beinn. Hné þolir því mun meira lóðrétt álag en lárétt. Auk liðamóta er þekkt að á ákveðnu tíðnibili eru augun viðkvæm og það getur orsakað þreytu og óþægindi í augum og höfði að vera langtímum saman í miklum titringi. B & K hefur sett fram línuritin fyr- ir skaðsemi titrings á mannslíkamann á myndum 4 og 5. Svæði C á myndunum er hættulaust, svæði B er í lagi ef viðvera starfsmanns í titringi varir mjög stuttan tíma en svæði A er heilusspillandi og krefst tafarlausrar úrlausnar ef einhver viðvera starfsmanns er nauðsynleg. Myndirndar sýna vel mismuninn á styrk líkamans gegn lóðréttu og láréttu álagi. SVEIFLUMÆLINGARKERFIÐ SVEIFILL OGFYRIR- BYGGJANDI VlÐHALD Hjá vélaverkfræðiskor Háskóla íslands hefur verið unnið að þróun og smíði mæling- ar- og greiningarkerfis fyrir sveiflumæling- ar. Gögnum frá hröðunamemum er safnað inn á tölvu og unnið úr mæliniðurstöðum með því að reikna tíðni-, afl- og útslagsróf mælingarinnar. Sveifill getur reiknað örvun- artíðnir mismunandi vélhluta (brennsluvéla, skipsskrúfa o.s.frv.) og eigintíðnir t.d. plötu og bita. Einnig er til forrit til að reikna eig- intíðnir flókinna burðarvirkja. í Sveifli er auðvelt að finna orsök og hugsanlega afleið- ingu titrings og kerfið auðveldar notendun- um bilanaleit og samanburð mælinga við hugsanlega sveifluvalda. Hægt er að nota sveiflumælingar á árangursríkan hátt í fyr- irbyggjandi viðhaldi. Með mælingunum er hægt að finna bilun í vélasamstæðu meðan hún er enn tiltölulega skaðlaus og undirbúa viðhaldið eftir fyrirfram ákveðinni vinnu- áætlun. Þetta getur sparað mikinn tíma, óþarfa óþægindi og umtalsverða fjármuni. Magnús Þór Jónsson er dósent við vélaverk- fræðiskor Hl og Þröstur Guðmundsson er sér- fræðingur hjá vélaverkfræðiskor HÍ. Af ormakyni var Lagarfljótsormurinn fremstur meðal jafningja, en víðar voru ormar, svo sem í Skorradalsvatni, og einn þurrlendissormur átti sér bústað í Surtshelli. Texti og teikningar: HARALDURINGI HARALDSSON Ormar Trú á orma í sjó og vötnum stendur á gömlum merg og elsti ormur sem um getur er miðgarðsormur sem lá umhverfis jörðina og Þór renndi fyrir. En á íslandi eru nokkrir ormar í ferskvatni. Einn er í Hvítá og annar í Skaftá og er sá grá- leitur á kvið og svartur á baki. í Skorra- dalsvatni er ormur og í Kleifarvatni einnig, sá sást einkar vel 1749 og lýsti engjafólk honum svo að hann væri 30 til 40 álnir á lengd og að sköpulagi líkastur hval eða skötu. Einnig er sagt frá ormi sem bústað átti í Surtshelli og er hann þá eini þurrlend- isormurinn. Frægastur meðal jafningja er þó Lagar- fljótsormurinn í Lagarfljóti á Héraði. Upp- runa hans má rekja til þess að í fornöld bjó kona nálægt Lagarfljóti. Hún gaf dótt- ur sinni gullhring. Stúlkan spyr þá móður sína. „Hvernig get ég haft mest gagn af gullinu því ama móðir mín?“ „Leggðu það undir lyngorm“ svaraði hún. Það gerir stúlkan og sýnist gullið vaxa. Þá tekur hún orminn og gullið og býr um það í litlum tréöskjum. Nú líður og bíður þar til öskjurn- ar taka að gliðna undan innihaldinu og sér þá stúlkan að ormurinn vex engu síður en gullið, hún hræddist svo mjög að hún henti öskjunum í fljótið. En það var skammgóð- ur vermir því ormurinn óx enn og gerðist brátt mikil óvættur sem spjó eldi og ei- myiju. „Tóku nú Héraðsmenn ráð sín sam- an til að hefta þennan ófögnuð. Var það afráðið að leita til Finna er áður og síðar hafa þótt allra manna færastir og fjölkunn- ugastir. Var nú fenginn sá er færastur þótti til þess að vinna á orminum. Hann var svo fjölkunnugur að hann fór hamför- um hvert er hann vildi og gat breytt sér í ýmissa kvikinda líki. Fór hann nú hamför í gegnum íslandshaf og inn um Lagarfljóts- ósinn og svo upp fljótið að fossinum. Þar varð fyrir honum skrímsli eitt ferlegt og mikið sem ey eða hólmi. Það var í selslíki með bálandi augum. Gat hann komist fram- hjá þessari ófreskju og innfyrir fossinn og hélt upp eftir fljótinu og inn fyrir Steins- vöð, þar varð fyrir honum annað skrímsli engu óferlegra; var það skata og lá nærri landa á milli og hafði níu hala. Hún varði honum leiðina gat hann nauðuglega slopp- ið inn hjá henni en snart hana þó lítíð eitt með litlu tá annars fótar en svo var skatan baneitruð að táin blés upp svo að Finninn varð að fara í land í ey milli Rangár og Einhleypings og höggva af sér tána og binda um ... Eftir það varð ekkert til að hindra för Finnans. Bráðlega varð Finninn þess vís að ormur- inn var ekki hans eins meðfæri. Var þá fenginn annar til með honum. Hugðu þeir nú að ná gullinu og vinna orminn. Köfíiðu þeir til grunns í fljótinu en komu bráðum aftur og sögðu orminn óvinnandi öllum mannlegum verum og því gullinu ónáandi enda sögðu þeir að annar ormur lægi und- ir gullinu og væri sá sýnu verri viðfangs. Fóru þeir þá til í annað sinn og létu eigi fyrr af en þeir gátu bundið orminn: voru þær viðjar magnaðar hinum rammasta galdri er þeir lögðu á orminn, aðra aftan við höfuðið ... hina aftan við halann ... Þuldu þeir og sungu yfir honum fræði sín að lyktum og kváðu eigi mundu losna fyrr en á efsta degi ..." Ormurinn gat þó gert ýmsar skráveifur með því að rétta upp kryppur sínar milli fljótanna og stilltist ekki fyrr en Guðmund- ur biskup Arason góði, lagði Héraðsbúum lið. Þegar gerðar hafa verið myndir af Lagarfljótsorminum hafa yfirleitt erlendar drekamyndir verið hafðar til hliðsjónar en af þeim er til reiðinnar býsn. Það er á hinn bóginn ljóst af þjóðsögum að slíkt dugar engan veginn. Olafur Davíðsson telur að lingormsnafnið sé komið frá Skandinavíu og sé heiti yfír eina eitraða höggorminn sem þar er til og nefnir hann uppá latínu „vipera berus“ en hér hafi það færst yfir á brekkusnigilinn og sé þá þetta gæflynda dýr upphaf ormsins ógurlega. Nú kann sumum að fara svo að þeim finnist upprun- inn ekki nógu konunglegur enda jafnvel risavaxnasti brekkusnigill tæpast nógu illi- legur. Vel má velta fyrir sér öðrum smádýr- um sem draga kvið sinn eftír lyngbrekkum þess lands en það skal ekki gert hér. Höfundur er myndlistarmaður. Heimildir: islenskar þjóðsögur og sagnir sem hafa safnað og fjallað um, Ólafur Davíðsson, Sigfús Sigfússon og Jón Árnason. y. -..ÁÍ Er Lagarfíjótsormurinn ofvaxinn brelckusnigill? Það er ekki heigl- um hent að gera slíkan fjúfling illilegan. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 16. JANÚAR 1993 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.