Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1993, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1993, Blaðsíða 4
Merki og tákn trúarinnar Sáttmálsörkin er helgileif öllum helgum dómum meiri: gullinn kassi með boðorðunum 10 í, skrif- uðum á stein með eigin hendi höfundarins, guðs, tveir og hálfur ferhyrningur að lengd og hálfur annar á breidd og hæð samkvæmt þeim ná- Leitin að kraftaverkavél eða að sátt við náttúruna Davíð Erlingsson þýddi og skrifaði eftirmála. kvæmu fyrirmælum sem drottinn gaf Mós- esi. Ekkert dýrlingshár kemst í samjöfnuð við þetta, engin flís né bein né blæja né neitt annað af þeim samtíndu leifum sem rómversk-kaþólskir klerkar hafa boðið fyrir peninga, auðgað sig eða kirkjuna þannig á hjátrú fólks og stuðlað um leið að siðbreyt- ingu. Örkin er miklu meira en venjuleg heilög leif, því að hún er merki og innsigli jarðlegr- ar návistar hins gyðinglega og kristna guðs, hún er fyrsta áþreifanleg sjónbirting Jahves og þess vegna í nokkrum skilningi grunn- steinn siðmenningar okkar. Hún var óttaleg- ur hlutur, þótt ekki væri nema lítill kassi, því að sá kassi blés eldi, flatti út fjöll, stöðv- aði ár og eyddi heilum borgum til þess að hjálpa ísraelslýð að komast yflr eyðimörkina til fyrirheitna landsins. Þegar gyðingar stóðu upp gegn valdi hans, sló kassinn þá sjálfa niður líka. Er þessi ógnargripur til ennþá? Og þá hvar? Er hann hættulegur enn? Eins og menn vita hefur dulúðar hans og hryllimátt- ar verið neytt í spennukvikmyndinni um Ránsmenn týndu arkarinnar með Indiana Jones, þar sem hann berst í Egyptalandi við nazista um þessa heilögu leif og ofsæk- ir fjandmennina einn síns liðs um löndin, löginn og loftin. Þegar nazistarnir ná örk- inni, þá rýkur af henni, hún logar, riðar til, hefur sig á loft og drepur alla sem til sést nema Indiana Jones og stúlkuna hans. í LEIT AÐ ÖRKINNI Nú kveðst framtakssamur ævintýramað- ur sem nefnist Graham Hancock hafa kom- izt að því að örkin sé (í raun og veru fyrir hendi) í véum kristinnar kapellu einnar í Axum í Eþíópíu. Þegar hann var að vinna að ferðabæklingi fyrir ríkisstjóm landsins heyrði hann því fleygt að örkin væri á þess- um stað og gerðist nú álíka hughaldinn í eftirleit sinni og Indiana Jones í sinni — enda hafði hann vitanlega séð kvikmyndina. Hann lagði allt fé og tvö ár ævi sinnar í sölumar og neytti ýmissa bragða til þess að fínna örkina og skrifa arkarbók sína. Það er enn hættulegt að leita að örkinni. Prestar börðu Hancock til miska þegar hann hafði reynt að laumast inn í helgidóminn til þess að sjá eftirmynd arkarinnar í Gond- ar. Þá var borgarastríðið í gangi í Eþíópíu. Hancock óttaðist að uppreisnarmennirnir sem þá höfðu Axum á valdi sínu myndu verða sér óþarfir, því að vitanlega hafði hann unnið fyrir ríkisstjóm Mengistus. Því þorði hann varla þangað. En þegar til kast- anna kom vom þeir vinsamlegir og vildu gjama auglýsa það frelsi til trúarbragða sem verða mundi undir stjóm þeirra sjálfra. En nú verður að víkja að sögu arkarinn- ar. Þegar hún hafði verið borin yfir eyði- mörkina til fyrirheitna landsins var hún í Allrahelgasta í musterinu sem Salómon kóngur byggði yfír hana i Jerúsalem um 955 fyrir Krists burð. En til fyrirheitna landsins telst þjóðin eða þjóðarbrotið hafa komið nærri þremur öldum fyrr undir for- ystu snillingsins Móse. En þremur öldum eftir musterisgerðina hverfur hún úr sög- unni, er hvorki nefnd né fjarvist hennar hörmuð. Gyðingar eiga sér sögn um það að hún sé enn grafín undir upphaflega musterinu, undir því sem nú er Hvolfkirkjan á klettinum, þar sem engum leyfíst að grafa af stjómmálaástæðum. Sagnir i Eþíópíu greina frá því um drottn- inguna af Saba, sem reið til Jerúsalems á dögum Salómons „með miklu fylgdarliði og lest úlfalda sem bám dýrar kryddjurtir og mikið af gulli og dýmm steinum", að því er biblían greinir, að hún hafí fætt konungin- um son, Menelik að nafni, sem síðan hafi fært örkina til Axum. Á þessari ósennilegu sögu er tímagalli: Staðurinn Axum var ekki til fyrr en 700 ámm eftir dauða Salómons. Eftirgrennslanir Hancocks sýnast einna helzt benda til að örkinni muni hafa verið bjargað burt úr musterinu á ríkistíma Man- asseh á 7. öld f. Kr., því að sá konungur hafði komið fyrir skurgoðum í musterinu. Hafí hún verið flutt til eyjarinnar Elefantine í námunda við Assúan á Egyptalandi, þar sem vitað er að gyðinglegur helgidómur, sýnagóga, var reistur um þær mundir. Tveimur öldum síðar var sú bygging eyði- lögð, en Hancock telur sig geta rakið slóð helgigripsins þaðan suður, upp með Níl, til eyjarinnar Tana Kirkos í stöðuvatninu Tana í Eþíópíu. Þar hafi örkinni verið fenginn staður í látlausu tafumagli og hennar gætt í 800 ár af mönnum af gyðingatrúflokki, forfeð- mm þeirra Falasha, sem flogið var með að lokum til ísrael á fyrra ári og fréttist um allan heim. Prestur á Tana Kirkos sýndi Hancock ummerki fómarblóðs sem úthellt hefði verið á steina, og koma þau merki nákvæmlega heim við blótathafnir sem lýst er í Torah, helgibók gyðinga. KRISTIN TILBEIÐSLA Þessi megin-helgileif gyðinglegrar trúar varð svo að lokum einnig heilagur hlutur í kristnu trúarlífí og viðfang tilbeiðslu hjá kristnum mönnum. Kristinn konungur nokk- ur hertók örkina, og hún var færð til kirkju Hin fræga sáttmálsörk beint úr hendi Guðs: Móses tekur við sáttmálsörkinni á fjallinu. Lýsing úr biblíu frá 10. öld, varðveitt í bókasafni Vatíkansins. Zíons í Axum, en Haile Selassie endurhýsti hana um síðir í heldur ófagurri kapellu, sem er nútímabygging, og þar mun hún nú vera að gropna eins og annað sem í tímanum á sína veru. Eftirlíking arkarinnar, sem nefn- ist tabot, er nú á dögum höfð í véum hverr- ar einustu kirkju eþíópísks rétttrúnaðar og út borin í litríkri prósessíu í hveijum nýárs- mánuði, á þrettándanum, en þá er Timkat- hátíðin, sem svo er nefnd. Auðvitað var Hancock ekki leyft að koma inn í þau helgustu vé í Axum. En hann tók eftir því við Timkat-hátíðina í fyrra, að þegar tabotið var borið viðhafnarlega út úr kapellunni, þá lét varðmunkurinn sig verða eftir af skrúðgöngunni: nokkuð sannfærandi mark þess, að eftirlíking ein væri nú borin um götur, en frumgerðin — eða einhver önnur ómætisleif ófarganleg — væri kyrr inni fyrir. Ættum við að láta okkur þetta nokkru varða? Það er nú búið að steypa helgileifum af stalli almennrar virðingar, því að þær teljast vera allra hjátrúarkenndustu stoðirn- ar í þeim heildarvígbúnaði skipulegra trúar- bragða sem að okkur snýr; hví ætti þá þessi Hancock, sem ekki segist vera trúaður maður, eða nokkur annar maður að vera að æsa sig út af örkinni þeirri arna? Það eina eða helzta sem gæti verið heillandi við þessa umbærilegu kraftaverkamaskínu virð- ist hljóta að liggja í hinum skuggalegri eig- indum hennar. Til er sú umhugsunarhefð og skynsemd- arafstaða, að örkin hefði í sjálfri sér ekki getað verið neitt meira en tæknileg af- bragðs-hagsmíð Móse. Þeirrar skoðunar getur Hancock án þess að taka neina bind- andi afstöðu til hennar. Móses var að sjálf- sögðu vel menntaður yfírstéttarborgari í Egyptalandi. Það verður að ætla honum að hafa verið kunnugur merkilega háþróaðri (raun)vísindaþekkingu og þar með töfravís- indum aldar sinnar þar. Steintöflurnar gætu hafa verið brot úr geislavirkum loftsteinum, og þær geymdar inni í grip sem Móses hefði smíðað á þeim dularfullu 40 dögum og nótt- um sem hann var einn á Sínaífjalli. En úr því að þangað er nú komið málinu: hví hefði guð átt að þurfa 40 daga til þess að rita boðorðin, og hví skyldi lögmálið ritað á stein hafa verið falið í rammlæstri kistu? GUÐLEGUR KRAFTUR Þegar Móses kom ofan af fjallinu skein hörundið framan í honum af þvílíkri birtu að hann varð að hylja höfuð sitt með slæðu eftir það. Skyldi hann hafa orðið fyrir bruna? Þegar Miriam systir hans vefengdi for- ræði hans, sló örkin á hana blöðrusýki, sem lýst er í fjórðu Mósebók sem holdsveiki, þótt hún yrði síðar heil af henni. I annan tíma er að skilja að drottinn hafi gefíð Mósesi andartaksfrest til að forða sér, áður en örkin „eyddi“ 250 af sonum ísraels sem höfðu gerzt svo djarfír að koma nær. Gripurinn er enn talinn vera hættulegur. Vörzlumunkurinn í Axum sagði Hancock að ekki væri hægt að fara með tabotið út á götur á Timkat-hátíðinni nema hjúpað væri þykkum teppum og prestar gengju á báðar hliðar „til þess að hlífa almenningi". Sennilega verður bók Hancocks ámóta vinsæl og kvikmyndin um arkarræningjana. Auk graalslegrar spennunnar af Iangleiðis- leit hans og raunum, þá hefur hann fundið upp nýja sagnategund, sem er vitsmunaleg sökudólgsleitarsaga, um — og eftir — alls vankunnandi snuðrara sem við getum öll ílífað okkur sjálfum, af því að hann býr ekki yfír neitt meiri sérþekkingu en hvert okkar sem væri. Hann skrifar eins og hann væri að tala frammi fyrir sjónvarpstökuvélum sem beind- ust að honum í sífellu, alla bókina í gegn, og mælir orð eins og: „Ég leit á úrið mitt, klukkan var farin að ganga tvö,“ eða: „Ég skífaði símanúmer Richards Pankhursts prófessors í Addis og spurði hann ..." Það getur orðið þreytandi, þegar þessi óþreyt- andi afhjúpari er að „uppgötva“ hluti sem hann hefði getað gripið upp úr alfræðibók, en það verður að játa, að á endanum heppn- ast honum þessi aðferð. Það verður skemmtilegra að lokum að snuðra út og suður um heiminn eftir týndu örkinni en að leggja belginn við sólu á sandströnd. Snuðrarinn okkar fer til Sínaífjalls og Jerú- salems að athuga upphaflegu staðina, til Egyptalands til að kjafta vitið úr fornleifa- fræðingum sem staðfesta að það hafi verið sýnagóga á Elephantín-eyju á þeim tíma sem við á, til Tana-vatns þar sem hann hneykslast á því að farið með bátnum til eyjarinnar helgu skuli kosta dollara á mín- útu, og loksins til Axum. Hann kemur jafn- vel við í dómkirkjunni í Chartres í Frakk- landi þar sem hann „uppgötvar" líkneski og áletranir frá miðöldum sem virðast tengja 4

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.