Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1993, Side 3
ÓLAFUR JÓHANN SIGURÐSSON
ImI @ ® (ol (u! 0 S! E H ®® Œ1 ® ®
Útgefandi: Hf. Átvakur, Reykjavík.
Framkvstj.: Haraldur Sveinsson. Ritstjór-
ar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunn-
arsson. Ritstjórnarfulltr.: Gísli Sigurðs-
son. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Sími 691100.
Örkin
Merki og tákn trúarinnar er heiti á grein, sem
Davíð Erlingsson hefur þýtt og flallar um sátt-
málsörkina, sem Móses tók við úr hendi Guðs
og er síðan helgigripur bæði í gyðingdómi og
kristinni trú. Þessi ógnarlegi gripur, sem hafði
mátt út af fyrir sig, gat valdið sjúkdómi og jafn-
vel dauða, er nú týndur og veit enginn fyrir víst,
hvar hann er niður kominn.
Laxdæla
hefur göngu sína í Lesbók með þeim hætti, að
Búi Kristjánsson, teiknari hefur gert myndasögu
eftir bókinni og birtist ein síða í hvert skipti.
Það mun taka ár eða liðlega það að birta alla
röðina.
Forsídan
Forsíðumyndin er úr sýningu Þjóðleikhússins á My
Fair Lady, sem frumsýnd var á annan jóladag og
sýnir Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur í hlutverki
Elísu, ásamt félögum úr Þjóðleikhúskómum í hlut-
verkum gesta á veðreiðum. Leikstjóri er Stefán
Baldursson. Leikmynd er eftir Þórunni S. Þorgríms-
dóttur en búningar eftir Maríu Roers. Tónlistar-
stjóri er Jóhann G. Jóhannsson, en lýsingu gerði
Bjöm Bergsteinn Guðmundsson.
Hjálmars-
slódir
Leyfar bæjarins í Bólu hafa verið jafnaðar út,
en rútubíll og óhijálegur skúr gegna hlutverki
sumarbústaða. Smekkleysið æpir á vegfarand-
ann. Blaðamaður Lesbókar skrifar minnispunkta
frá liðnu sumri fyrir norðan, þar sem leiðin lá
um slóðir Hjálmars Jónssonar, allt frá Hallanda
við Eyjafjörð til beitarhúsanna frá Brekku.
Flug vatnsins
Haustkvöld í dalnum. Heiðríkja. Tunglskin og logn.
Og hópar álfta á vatninu fara að syngja.
í húminu stend ég heima á sölnuðu túni
er himinskjöldurinn rís yfir Seyðishóla og hlýði í leiðslu.
Ó hvílíkur söngur á vogum,
ó hvílíkar raddir að flétta kynlega tóna.
Eg veit ekki hversu lengi ég legg við hlustir
í logni og stillu þessa haustmilda kvölds,
í birtu skjaldarins bleika við Seyðishóla
sem baðar nakin kjörrin, vatnið og engin.
En snögglega lyftist hver vængur á víkum og ál
sem verði þeir allir að gegna dulinni skipan —
hver vængur, hver tónn. Á túninu fer um mig skjálfti,
því töfrum sleginn finnst mér sem vatnið rísi
með hylji sína og voga í súlu af söng
við sameining hundrað radda — að skýlausu boði
hins leynda sprota. Og hefjist á hvítum vængjum
til himinskauta í tunglsljósi og stjörnudýrð!
Ólafur Jóhann Sigurðsson, 1918-1988, var frá Torfastöðum í Grafn-
ingi, en bjó lengst ævinnar í Reykjavík. Hann var skáldsagnahöfund-
ur, en sneri sér í vaxandi mæli að Ijóöagerð á síðari árum. Bók-
menntaverðlaun Noröurlandaráðs hlaut hann 1976.
Við strákamir
V'ð konur látum gjaman í
veðri vaka, að við ráð-
um ekki því sem við vilj-
um ráða, við séum
áhrifalitið afl í karla-
samfélagi, þar sem
karlamir séu stjórar,
stýrimenn og stoðir
þjóðfélagsins í einu og öllu. En er það raun-
verulega svo? Stundum finnst mér sem við
konur getum með réttu kvartað yfir ýmsu
þegar karlamir eru annars vegar. Þar á ég
einkum við hin lokuðu karlakerfi, sem meina
konum aðgang, þar sem passað er upp á
það með samtryggingu karlaveldisins, að
halda konunum skör neðar, og sérstaklega
að gæta þess að konur seilist nú ekki til
valda og áhrifa „á kostnað" karlanna. Þessa
tegund valdabaráttu karla, eða öllu heldur
valdaviðhalds karla, nefna Bretamir „Old
Boy Network", og telja sig hafa sannað það
með könnunum, að sá þröskuldur sem kon-
ur eiga hvað erfiðast með að klofa yfir á
framabraut sinni, er einmitt „Old Boy Netw-
ork“.
Konur hér á landi eru sjálfsagt náskyldar
kynsystrum sínum í Bretlandi og má ugg-
laust segja með nokkmm sanni að það séu
ekki heimilisstörfin, eða skortur á dagvistar-
plássum sem hindri starfsframa kvenna á
Islandi, heldur samtrygging karlanna á
hveijum vinnustað fyrir sig. Hveijir þekkja
ekki „karlaklúbbana" á hvaða vinnustað sem
er? Hvaða kona hefur ekki gengið fram á
eða inn á karlafund á sínum vinnustað, þar
sem raddir þögnuðu og við tók þolinmóð
þögn, þar til konan hafði lokið erindi sínu,
hafi hún verið svo lánsöm að eiga erindi á
annað borð?
Karlar fyllast auðvitað heilagri vandlæt-
ingu við áburð sem þennan og þræta fýrir
fram í rauðan dauðan. „Við strákarnir emm
ekki þannig", segja þeir sem hvað heilagast-
ir em til andlitsins, en innst inni vita þeir
auðvitað sem er, að þama era þeir í örvænt-
ingu að veija sín síðustu vígi.
En svo fullrar sanngimi sé nú gætt, má
þá ekki segja að körlunum sé hálfgerð vor-
kunn? Ég hallast að því að þeim sé vor-
kunn, og að þeir eigi að fá að halda ein-
hveiju af titlum sínum og forfrömun í starfi
umfram okkur konur, einfaldlega vegna
þess að þeir þurfa virkilega á því að halda.
Karlarnir era langt því frá jafn ráðandi afl
í íslensku þjóðfélagi í dag og þeir vilja í
mörgum tilvikum gefa til kynna, og það era
ákveðin takmörk fyrir því sem hægt að bjóða
hinni svokölluðu „karlmannsímynd".
Tökum kjama íslensks þjóðfélags, fjöl-
skylduna sem dæmi: Á heimilinu er það
samkvæmt því sem ég best þekki til konan
sem mestu ræður, stundum jafnvel öllu.
Hún ræður útliti heimilisins; hún stýrir inn-
kaupum; hún er ríkjandi aðilinn í barnaupp-
eldinu; hún meira að segja velur sér og
manni sínum eða sambýlismanni, vini og
aðra þá sem helst er blandað geði við. Lítum
á fjölskyldu þar sem foreldrar eiga til dæm-
is tvo syni og tvær dætur. Öll bömin eru
gift, eða komin í sambúð. Hveijir era það
svo sem rækta foreldrana best? Heimsækja
þau, bjóða þeim til sín og gæta þess að þau
verði nú ekki afskjpt, þegar þau nálgast
efri ár? Það era dætumar. Hvers vegna?
Jú, það er vegna þess að dætumar velja
að rækta eigin foreldra og treysta fjöl-
skylduböndin. En hvað með synina? Lítið
bara í eigin barm, lesendur góðir. Ef þið
erað karlkyns, og kvæntir eða komnir í
sambúð, þá hljótið þið í flestum tilvikum
að geta svarað spumingu um það hvort þið
heimsækið nú oftar foreldra ykkar eða
tengdaforeldra, á þann veg að þið heimsæk-
ið tengdaforeldrana oftar - ekki satt? Og
hvers vegna skyldi það nú vera? Jú, það er
vegna þess að konur ykkar hafa valið fyrir
ykkur og þið fylgið konunum.
Hvemig skyldi nú standa á þessu? Er
ástæðan einungis sú að konur séu svona
ráðríkar? Nei, það held ég ekki. Ég held
að það sem búi að baki sé miklu frekar
það, að konur era skylduræknari en karlar,
þær era einnig trygglyndari og meiri tilfinn-
ingaverar en karlar. Þess vegna líta þær á
það sem sjálfsagðan og eðlilegan hlut að
rækta ljölskyldubönd og styrkja og þá er
ósköp skiljanlegt, að þær horfi meira til
eigin fjölskyldu, en þeirrar sem þær með
hjónabandi hafa tengst. Mismunin sem fjöl-
skyldur sonanna verða fyrir, af þessum sök-
um, er tilkomin vegna þess að þeir búa
hvorki yfir viljastyrk né tilfinningalegri
skyldurækni til þess standa uppi á hárinu
á konum sínum, og gæta þess að þeirra
fjölskyldur verði ekki afskiptar, heldur þyk-
ir þeim auðveldara að láta konumar ráða í
þessum efnum og þar með að bera alla
ábyrgð á þessu sviði.
Líklega gegnir sama máli um vinatengsl
og ijölskyldutengslin. í flestum tilvikum sem
ég þekki til, eru það æskuvinkonur eiginkon-
unnar, ásamt mökum þeirra, sem eru uppi-
staðan í gamla vinahópnum sem viðkom-
andi par umgengst, en ekki æskuvinir karl-
anna, ásamt eiginkonum þeirra. Karlarnir,
ef þeir á annað borð kjósa og fá frelsi til
að rækta og viðhalda vinskap frá bemsku-
og æskuáranum, þá gera þeir það miklu
fremur í því formi að „við strákamir ætlum
að hittast", en að um biandaða fundi beggja
kynja sé að ræða. Konumar umbera þetta
líka og geta alveg séð í gegnum fingur sér
við karlana, að þeir skreppi einu sinni á ári
eða svo út á lífið sarnan og verði aftur
„strákar“, enda vita þær sem er, að þessi
fortíðarhyggja varir ekki lengi og fellur í
dvala í heilt ár, eða svo, eftir útrás einnar
kvöldstundar.
Þegar ég skoða málin í þessu ljósi, þá
verð ég að viðurkenna, að ég get ósköp vel
skilið tilhneygingu aumingja karlanna til
þess að mynda „Old Boy Network" á vinnu-
stöðum. Hinn meðvitaði og opinberi tilgang-
ur slíkra karlaklúbba, ef karlarnir á annað
borð viðurkenna tilvist þeirra, er auðvitað
sá að veita skemmtun og félagsskap kyn-
bræðranna. Sennilega er upprani slíkra kar-
laklúbba alveg náskyldur öðrum karlaklúbb-
um, sem eiga þó að vera afskaplega göfug-
ir, að minnsta kosti í augum klúbbfélaga.
Þar á ég við klúbba eins og Frímúrararegl-
una, Oddfellóa, Kiwanis, Rotary, Lions og
hvað þau nú heita öll þessi „Old Boy Netw-
ork“. En hinn ómeðvitaði tilgangur (ég segi
það nú bara af einskærri góðmennsku í
garð karlanna) er sá að bindast samtrygg-
ingarböndum, til þess að hefta frama og
framsókn kvenna í starfi, eða að halda þeim
að minnsta kosti í skefjum, þannig að þær
hrifsi ekki til sín völdin opinberlega einnig
- þær sem öllu ráða sem þær vilja ráða,
a.m.k. á bak við tjöldin.
AGNES BRAGADÓTTIR
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 16. JANÚAR 1993 3