Lesbók Morgunblaðsins - 13.03.1993, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 13.03.1993, Blaðsíða 3
TggPáW 11 ® 11 ® S] M 00 B1*] Sl 11 ŒHl S1 Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvstj.: Haraldur Sveinsson. Ritstjór- ar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunn- arsson. Ritstjórnarfulltr.: Gísli Sigurðs- son. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Sími 691100. Wagner er einn af risunum í tónsköpun síðustu aldar, en hann þótti ekki auðveldur í umgengni og skoðanir hans, sem hér eru til umQöllunar, voru nokkuð harð- ar undir tönn, svo sem um andlega yfirburði Þjóð- verja, andúð á gyðingum og franska menningu, sem hann taldi mjög hættulega fyrir „hinn þýzka anda“. Fróðárundur í Eyrbyggju hafa löngum þótt ævintýraleg; selshaus kom t.d. upp úr gólfi og gekk upp við hvert högg sem hann var barinn niður. Á þessum furðusýnum kann þó að vera læknisfræðileg útskýring og hana hefur Hafsteinn Sæmundsson, læknir. Forsíðan Myndin er af kirkjunni á Selfossi, sem stendur á bakka Ölfusár og blasir við þegar farið er yfir Ölfus- árbrúna. Kirkjuna teiknaði Bjami Pálsson frá Hlíð í Gnúpverjahreppi, sem bjó á Selfossi og var þar bæði bankastarfsmaður og byggingarfulltrúi um langt árabil. Bjami teiknaði einnig fjölmörg hús á Selfossi; hann var tæknimenntaður og mikill stærð- fræðingur eins og þeir Hlíðarmenn. Ljósm.:Rafn Hafnfjörð. Borgin Hótel Borg hefur gengið í endumýjun lífdaganna með því að Tómas A. Tómasson hefur lagt um 100 milljónir króna í að færa hótelið til hins upprunalega og gagngerar endurbætur að auki. Borgin hefur nú fengið þá stöðu sem hún hafði í miðbænum og ber aftur keim af gamalli - og sumpart horfinni- Evrópu- menningu. EINAR SIGURÐSSON Gæði íslands - brot - Heilagan anda hjartað mitt af himnum hið eg nú fræða, að mildiverkið mætti þitt fyrir mönnum gerla ræða, því oftlega hefur mig angrið hitt, að ísland margir hæða, en móðurjörð er mér svo kær, mig hefur langað, guð minn skær, að geta þess allra gæða ... Jökull, sandur, aur og grjót er hér mestur á landi, blásin öll í burtu rót, þó byggðin víða standi. Eg kann þar ekki mæla í mót, þó margar nauðir grandi. Því angrar mig það oft til sanns, að enginn talar um gæðin lands; það er hinn mesti vandi... Vor betrast hagur í hverri grein, hér eru listir fleiri, lærðir menn á handverk hrein hafa nú vizku meirí. Vísnasmíð er íþrótt ein, eykst, það eg nú heyrí; dýrleg sálmadiktan sú — drottinn gefi við lærum nú; hún glóir sem gull hjá eirí ... Fæst hér bæði fiskur og hey og fleirí önnur veiði, ef búmannsyrkjan bilaði ei og bænin fyrír þeim greiði og þénarar segðu ei nokkru nei (af nöldran verður leiði). Ef dyggðin engin dregst í hlé, drottinn lætur brauð í té. En letin landið eyðir. Séra Einar Sigurðsson, prestur í Heydölum i Breiðdal (1538-1626) var afkastamikið sálmaskáld, en þekktast af því sem hann orti er Kvæði af stallinum Kristí (Nóttin sú var ágæt ein). Sumt af kveðskap Einars var prentað í vísnabók Guðbrands biskups, en mest er enn í handritum. Úti og inni g hitti góðan vin minn um daginn. Hann er einn fárra manna sem ég þekki sem enn gefur sér tíma til að hugsa enda vitur maður. Hann fór að tala við mig um grein eina sem hann hafði lesið um lýtalækningar og hafði að vanda lagt málið vandlega niður fyrir sér. Raunar hafði hann lagst svo djúpt að hann var, er fundum okkar bar saman, búinn að finna starfsheiti yfír þá lækna sem gera að sérgrein sinni að fletta ístrubelgi beggja kynjanna holdi sínu og sjúga síðan úr þeim fítuhauga mikla með þar til gerðum sugum. Að mati vinar míns skyldi starfsheit- ið vera mörsugur. Að vísu er mörsugur gamalt heiti mánaðar sem raunar hafði sama hlutverki að gegna fyrrum er matar- skortur lék fólk grátt. Enginn notar lengur þetta mánaðarnafn svo það er laust til af- nota. Vini mínum nægði samt ekki orðlistin ein heldur lét lengi gamminn geisa um lýtalækn- ingar og fann þeim auðvitað margt til máls- bóta og annað til foráttu. Hann riíjaði upp orð spekings eins sem eitt sinn hafði þetta að segja: „Guð skapaði manninn í sinni mynd - en síðan tóku lýtalæknar við.“ Þessum vini mínum þykir ekkert mál, sem hann hefur rannsókn á, fullkannað fyrr en hann er kominn að kjarna málsins, heim- spekilegum og siðferðilegum grundvelli. Niðurstaða hans var þessi: „Allt er þetta glíma okkar við tímann." Og sannarlega eru það orð að sönnu. Samkvæmt gömlu norrænu goðatrúnni var heiminum deilt í tvennt. Annars vegar var sá hluti hans sem var „inni“, hins vegar sá sem var „úti“. Inni var Miðgarður. Uti var Útgarður. í Útgarði höfðust þeir við sem ekki voru eiginlegir menn, þursar og jötnar og óvinir manna og guða. í Miðgarði voru menn í nánu sambýli við guði sína. Inni var regla en fyrir utan óregla, kaos. Á fyrri öldum voru það lögin sem ákvörð- uðu hver skyldi fá að búa inni og hverjum var út vísað enda á hið gamla norræna orð útlagi rætur í því viðhorfí. Útlaginn á ekki lengur heima inni; hann er fulltrúi óreglunn- ar og óreiðunnar og verður því að yfirgefa mannlegt og guðlegt samfélag, dveljast úti. Þeir sem inni voru undirgengust agann og lögin og reglubundna tilveru bóndans og þar varð tímahrakið til. Þar var tíminn ekki láréttur eins og nútíminn upplifir hann; fremur hringrás, tími endurtekningar og eilífðar, þar sem allt hafði sinn tíma og sín not, tími sem var miklu nátengdari lífsaf- komu manna en nú er. Á þessum tíma hefur líklega orðið til kveðjan „Ég óska þér árs og friðar", allra kveðjuorða fegurst. En hvað skyldi þessi kveðja hafa merkt. Hætt er við að ýmsum nútímamönnum þyki sýnt, þegar þeim er „óskað árs“, að verið sé að óska þeim þess að þeir lifí næstu 365 dagana en deyi ekki. Þegar sömu mönnum er nú „óskað friðar" kann svo að fara að þeir telji að verið sé að óska þess þeim til handa að írakar ráð- ist ekki inn í Kúveit næsta ár eða þá þess að friður ríki á vinnumarkaðnum einhvern tíma. En þetta er misskilningur. Hugtakið ár merkti líka það sem árið færði, innihald þess og gæði, fijósemi alls svo að árið færði björg í bú svo allt gæti endurtekið sig og svo um alla eilífð. Orðið'friður tengdist náið í þá árdaga ættarböndunum, vináttunni og ástinni. Hugtökin ár og friður og inni og úti hafa síðan brenglast, að ýmsu leyti ekki til góðs. Við heyrum stundum heimska menn segja „tími er peningar". Aðrir, sýnu vitrari, vita að tíminn er allra síst peningar, heldur líf okkar, dagar okkar á jörðinni, hamingja okkar eða ógæfa eftir því sem úr spilast, en venjulega eitthvert sambland þessa tvenns. Enginn heilvita maður, sem finnur dauða sinn nálgast, myndi láta sér til hugar koma að segja „tíminn er peningar“. A.m.k. yrðu það nafntoguð andlátsorð. Nútímamaðurinn hefur slitið vináttu sinni við tímann og gert hann að fjandmanni sín- um og einuni helsta keppinaut, vitaskuld í ævarandi viðleitni sinni að sigra allt sitt umhverfi og gerast herra allra afla tilver- unnar. Innst inni veit hann þó að hann er á villigötum og er að tortíma sjálfum sér á eilífum flótta undan raunverulegu lífi. Tíma okkar á jörðinni notum við til að vinna bug á tímanum. Flestöll tæki okkar og tól eru til þess gerð að sigrast á tímanum, láta hann líða hraðar eða hægar en hann í raun gerir. Sjálfur dauðinn er endahnútur tímans sem okkur er skammtaður og hinn vestræni tæknivæddi maður, homo faber, sem allt þykist sigra, sættir sig ekki við hann eða þá hrörnun sem ellin veldur. Hrömun, elli og dauði eru móðgun við okkur — og ber að uppræta. Hrukkur, grá hár, skalli og ýmsar breytingar kroppsins eru sýnileg staðfesting þess að okkur hefur mistekist glíman við tímann. Okkur hefur farið sem Þór, hinum hraustasta ása, sem féll fyrir elli kerlingu. Eitt ljótasta orðasamband sem við eigum er hugtakið „að drepa tímann“. Af hveiju svo ljótt? Jú, vitaskuld vegna þess að um leið og við drepum tíma okkar erum við að stytta líf okkar. Tímadrápið er e.k. sjálfs- morð. Og hugtökin úti og inni. Hvað með þau? Er jafn eftirsóknarvert nú að vera inni og forðum var? Nei, allt breytist; nú er mönnum stungið inn fyrir misgerðir sínar og látnir út þegar þeir eru fijálsir að nýju. Stundum er nú talað um útilífsmenn og þykir já- kvætt; þegar í stað rennur upp fyrir manni mynd af sólbrúnu, vöðvastæltu fólki ljóm- andi af hamingju og hreysti. Hugtakinu innisetumanni lýsi ég ekki af viðkvæmum persónulegum ástæðum. Seint verður Pressunni þakkað nógsam: lega fyrir greinarflokk sinn Inni og Úti. í fyrsta lagi hefur þar verið endurvakin hin forna merking þess að vera inni og úti. í þessum greinum er í eitt skipti fyrir öll ákveðið hvað þarf að ástunda til að maður sé inni en ekki úti, gjaldgengur í mannlegu samfélagi. Þeir, sem leggja sig eftir því, fá líka umbun sem felst í því að fá nafn sitt og mynd í þætti sem heitir Hveijir voru hvar? Þar er greint frá þeim sem komast í Himnaríki. Sumir eru þar alltaf og virðast hafa það að meginstarfi að sýna okkur hin- um að þeir eru inni en við hinir utangarðs. Allt ber að sama brunni. Tími okkar og rúm eru á villigötum. Einhvern veginn hefur svo æxlast að nútímamaðurinn er útilegu- maður í mörgum skilningi, eða útlagi. Hann hefur reynt i ófullkomleika sínum að bijóta lögmál náttúrunnar, byggt sér tilveru þar sem tíminn er ekki líf og rúmið ekki það rúm sem við fengum í arf í árdaga heldur tilbúið rúm. Við lifum í tveimur heimum, hinum náttúrulega og hinum manngerða. Því eiga þessi lok ljóðsins Vegurinn austur eftir Halldór Laxness vel við í lokin: Stoltara er fátt en fögur ær í haga, fegra er ei neitt en lambið mitt í dalnum, guð lætur viðinn vaxa handa lömbum. Vegurinn austur, ó þú lífs míns saga. Guð gefi bílnum góðan dag í Kömbum. ÞÓRÐUR HELGASON LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 13. MARZ 1993 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.