Lesbók Morgunblaðsins - 13.03.1993, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 13.03.1993, Page 6
Menningarlegt átak á Hótel Bom Byssusafn Jóhannesar á Borg og hnakkur í Jóhannesarstofu inn af and- dyrinu. eir Reykvíkingar þurfa helzt að vera fæddir um og fyrir 1920 og vera komnir á áttræðisaldur, sem muna Reykjavík án Hótel Borgar, sem sett hefur svip á miðbæinn síðan 1930. Það er ótrúlegt, en undirstrikar betur en flest ann- að sorgarsöguna um miðbæ Reykjavíkur, að jafn glæsilegt stórhýsi og Hótel Borg var ekki byggt þar í 6 áratugi. Að sögn Tómasar A. Tómassonar, sem nú hefur eign- ast Borgina og lagt um 100 milljónir króna í endurbætur á hótélinu og veitingasölunum, gekk Borgin gegnum samskonar þróunar- feril og mörg erlend glæsihótel frá sama tíma. Þegar tók að halla undan fæti í rekstr- inum, var gripið til þess ráðs að breyta veitinga- og veizlusölunum í skemmtistaði. Til þess þurfti að gera breytingar og upp- runalegt útlit var látið ijúka. Þessu höfum við fylgst með í áranna rás á Borginni og mörgum hefur þótt sárt að horfa uppá hnignunina. Gyllingamar og annar klassískur glæsileiki Gyllta salarins og veitingasalarins viku fyrir litum, sem Úr einni svítunni, sem gerðar voru með því að tveimur herbergjum var slegið saman. Anddyrið eins og það er núna. Til samanburðar er mynd af því upphaflega á bls 8. Ljósmyndir: Lesbók/Þorkell. Eftir að Hótel Borg hafði gengið í gegnum áratuga langt hnignunarskeið hefur Tómas A. Tómasson gert á „Borginni“ þær endurbætur sem a.m.k. gamlir Reykvíkingar hafa óskað eftir í hjarta sínu að yrðu gerðar. Hótelið hefur sumpart verið fært í upprunalegan búning, en sumpart er það mun fullkomnara og betra en nokkru sinni áður. Gömul húsgögn, sum upprunaleg á Borginni, setja svip á hótelherbergin, sem eru í mjög háum gæðaflokki og litaskalinn er unninn af lofsverðri tilfinningu. voru taldir betur við hæfi á dansstað. Eig- endaskipti og breytingar, venjulega til hins verra, héldust í hendur. Rætt var um þann möguleika að Alþingi. keypti húsið og breytti því til afnota fyrir alþingismenn. Lands- bankinn varð um tíma eigandi og síðan Reykjavíkurborg. Um tíma var Borgin vin- sæll skemmtistaður háskólastúdenta. En jafnframt var næstum ekkert eftir af þeim „klassa" sem tók mið af gamalgróinni Evr- ópumenningu og einkennt hafði húsið í upp- hafi. Sá bláþráður sem tengdi Borgina við það sem hún áður var, má segja að hafi verið hópur kunnra borgara, sem hafði - og hefur enn - fyrir venju að hittast þar á hveijum degi og ræða landsins gagn og nauðsynjar. Sú var tíð að virðulegir borgarar buðu kon- unni sinni í eftirmiðdagskaffi á Borginni; þá fengust þar Napóleonskökur, ef ég man rétt. Þá mátti gjaman sjá Jóhannes Kjarval ganga þar um sali, taka ofan og hneygja sig ef hann var í því skapinu, og síðar var Albert Guðmundsson fastagestur þar með hirðina sína allt um kring. AFREKSVERK JÓHANNESAR Jóhannes glímukappi Jósefsson var enginn meðalmaður; hann vildi vera eins og fom- kappamir og hafði ungur drukkið í sig hug- myndir um garpskap, sem mjög áttu uppá pallborðið hjá íslenzkum ungmennafélögum um og eftir aldamótin. Munurinn á Jóhann- esi og hinum sögulegu görpum fortíðarinnar var sá, að honum tókst að vinna sér inn heilmikið fé erlendis með líkamsatgervi sínu og áræði. Svo er sagt, að honum hafi blöskr- 6

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.