Lesbók Morgunblaðsins - 26.11.1994, Síða 8
„Þetta er
mitt mál“
Skólinn hefur vaxið frá
heimilunum en virðist nú
svífa í bæði hugmynda-
fræðilegu og siðfræðilegu
tómarúmi. Hér er um að
ræða tæknilegt kerfi,
frjálslegt og gott á
yfírborðinu en í reynd
ábyrgðarlaust og allt að
því siðlaust.
g býst við að flestir sem hafa alið upp unglinga
eða kennt þeim hafí fengið þetta svar þegar
spurt er hvemig námið gangi. Mörgum ung-
mennum fínnast spurningar af þessu tagi
næsta hvimleiðar. Þeim finnst hinir fullorðnu
vera óþarflega íhlutunarsamir og séu menn
orðnir 16 ára þarf ekki framar vitnanna
við. Maður er vissulega orðinn sjálfráða.
Loksins er hinu eftirsóknarverða frelsi náð,
frelsi og sjálfstæði fullorðinna, þar á meðal
frelsi frá þreytandi boðum og bönnum sem
maður hefur mátt sætta sig við svo lengi.
„Ég á mig sjálf — og þá er það mitt mál
hvað ég geri við líf mitt.“
En fljótlega kemst unga fólkið að raun
um að málið er ekki alveg svona einfalt.
Frelsið getur verið erfitt viðureignar og jafn-
vel haft dökkar hliðar. Fyrstu alvarlegu
átökin við nýfengið frelsi hefst þegar skyldu-
námi lýkur. Þá þarf að taka ákvörðun um
næsta skref. Á ég að fara í skóla eða fara
að vinna? Ef ég vel skólann, hvaða skóla á
ég þá að fara í? Hvaða langar mig að verða?
Hvað þarf ég að læra til að komast í drauma-
starfíð? o.s.frv. Þetta er erfitt. Ungi piltur-
inn og unga stúlkan spyija mömmu og
pabba. Þau eru ekki endilega vel lesin í
uppeldisfræðum en nútímaforeldrar hafa
fengið þau skilaboð víða að, að þau eigi að
vera hlutlaus. Um að gera að hafa ekki
áhrif á val ungmennisins. „Þú ræður því
sjálf, elskan," segja þau. „Þetta er þitt
mál, þú lærir fyrir sjálfa þig en ekki okk-
ur.“ Og ungmennið gengur fyrir fleiri
fullorðna. Hvað segir námsráðgjafinn?
Hann segir það sama um leið og
hann heldur stuttan fyrirlestur um
framhaldsskólakerfíð á íslandi.
„En hvað fínnst þér,“ spyr ungl-
ingurinn, sem er orðinn miður
sín yfír þessari yfírþyrm-
amndi óhlutdrægni sem í
raun er orðin að ópersónu-
leika í anda nytjastefnu
20. aldar (Kristján
Kristjánsson: 92). „Það
má ég ekki segja þér,
ljúflingur, mitt starf
er aðeins að veita
upplýsingar, ekki
að segja þér
hvað mér
fínnst eða hvað
þú átt að
velja," segir
námsráðgjaf-
inn elskulega.
„Þetta er þitt
mál.“
Svo velur
ungmennið
okkar — hún
Anna —
skólann.
Þetta er
stór ijöl-
brauta-
skóli,
stofnaður á
tímum
frelsis og
jafnréttis í
hringiðu hippa-
tímans og að sjálfsögðu
sniðinn að þörfum allra nem-
enda svo að þroski þeirra megi
vaxa í réttu hlutfalli við námsárin í skólan-
um. Þama er um margt að velja, einar
fímmtán brautir og enn fleiri námsgreinar,
auk þess sem nemendur geta ráðið náms-
hraðanum að miklu leyti sjálfir. Anna er
himinlifandi og foreidrarnir einnig. Auðvitað
vildu þeir að Anna færi í skóla. Hún Anna
þeirra, sem á svo auðvelt með að læra þó
að einkunnir hennar á samræmdu prófunum
Eftir HELGU
SIGURJÓNSDÓTTUR
bæru það raunar ekki með sér. Framtíðin
blasti við, björt og fögur, þessir nýju skólar
voru víst miklu betri en skólarnir í gamla
daga, hugsuðu foreldramir með sér og gáfu
Önnu vænan pening fyrir nýja skóladótinu.
Hugsa sér, hún Anna bara komin í mennta-
skóla — eða sama sem. Fjölbrautaskólarnir
vom víst alveg eins góðir og menntaskólarn-
ir. Sama námsefnið og hvaðeina. 0g amma
og afi voru stolt eins og hanar á haug.
Við skulum fylgjast með Önnu um sinn
og sjá hvemig henni vegnar. „Þetta er
æðislegur skóli“ sagði hún eftir fyrsta dag-
inn. „Allir vinimir mættir og ofsagaman."
Allt svo fijálst. „Maður þarf ekki einu sinni
að mæta í alla tímana, aðeins 80% mæt-
ing.“ Já, þetta var nú skóli í lagi. Eitthvað
annað en grunnskólinn. Auðvitað átti þetta
að vera svona. Maður er jú að læra fyrir
sjálfan sig og þess vegna ætti mæting helst
að vera alveg fijáls. „Ekki skyldumæting,
spurði mamma efíns. „Ertu viss?“ Já, Anna
var aldeilis viss í sinni sök og sýndi mömmu
hvað stóð í námsvísinum. Skyldumæting,
stóð þar að vísu, en samt má nota 20% af
tímanum til eigin þarfa. „Þið skiljið þetta
ekki, þetta er allt öðruvísi en í gamla daga.“
Þetta er stór skóli þar sem vinna margir
kennarar. Þeir eru náttúrlega allir ókunnug-
ir, en Önnu finnst bara gaman að hitta
nýtt fólk. Hún er ekkert feimin og er óhrædd
að spytja um hvaðeina. Samt renna á hana
tvær grimur að kvöldi fyrsta kennsludags.
Það verður víst ansi mikið að læra í þessum
nýja skóla og kannski erfítt að ráða við
allar nýju námsgreinarnar. Eða þá
kennslubækurnar, sumar þeirra eru svo
stórar að þær rúmast varla í nýju skólatösk-
unni hennar.
Sjálfsagt Þarf HÚN
aðfánýjatösku
í JÓLAGJÖF
Fyrsta vikan er samt ágæt og Anna
mætir í allar kennslustundir. Flestir kenn-
aranna eru ósköp vingjarnlegir, sumir jafn-
vel kumpánlegir og til í að spjalla um
daginn og veginn ef í það fer. Kennslan
er samt góð, en mikið að læra heima. En
ætli það komi að sök þó að heimanámið
sé látið sitja á hakanum af og til? Nei,
sjálfsagt ekki, að minnsta kosti er sjaldn-
ast verið að rexa í nemendum þó að þeir
komi ólesnir í tíma. Auðvitað, hvers vegna
ættu kennararnir að hafa áhyggjur af
heimanámi? Er maður ekki að læra fyrir
sjálfan sig en ekki þá? Og Anna hættir
smám saman að læra lexíunar sínar heima
og mæting verður stopul, einkum í erfið-
ustu námsgreinunum. (Hún ætlar að sjál-
sögðu að nota allan „kvótann" sinn). Ef
hún er spurð heima hvernig gangi svarar
hún alltaf á sama veg: „Æ, látiði ekki
svona, þetta er mitt mál.“ Og foreldrarnir
þagna, þora ekkert að segja en vona að
allt fari vel. Þetta er víst allt öðruvísi en
í gamla daga, hugsa þau með sér. Þá
þurfti alltaf að læra heima, en þessar nýju
kennsluaðferðir eru víst svo góðar, sjálf-
sagt er það þess vegna sem Anna þarf
ekki að læra mikið heima. Svo voru líka
einhveijir að tala um að nemendur ættu
ekki að vinna nema átta stunda vinnudag.
Líklega voru kennararnir að hugsa um
velferð þeirra með því að gæta sín á að
íþyngja þeim ekki með of mikilli vinnu.
Já, það má nú segja að breytingin er mik-
il frá því var í gamla daga. Samt nagar
efínn mömmu og pabba. Var ekki verið
að tala um mikið fall á fyrsta ári í fram-
haldsskóla? Gat verið að hún Anna væri
í fallhættu?
Efí foreldranna var ekki ástæðulaus,
því að í raun og veru var skólinn ekki svo
ýkja frábrugðinn því sem var í gamla daga.
Eðli náms breytist ekki, hvað sem líður
nýjum straumum og stefnum í kennslu-
fræðum og óðar en varir er Anna lent í
slæmum vítahring. Hún lærir sjaldan
heima, þess vegna er hún utangátta í tím-
um, það er óþægilegt og hún fer að mæta
illa. Við það missir hún fótfestuna og
kemst ekki í takt við bekkinn. Staðan er
að verða vonlaus þegar komið er fram
yfir miðja önn. Sumir kennaranna reyna
að leiðbeina henni og benda henni á að
mæta betur og læra heima. Það fínnst
henni óþarfa afskiptasemi (samviskan er
slæm, kennarinn snertir auman blett í
sálinni) og kvartar við námsráðgjafann
eftir orðasennu við þýskukennarann.
„Hann var alveg kolvitlaus, sagði mér að
lesa upphátt og skammaði mig af því að
ég var ekki með bókina. Hann skipaði mér
að læra heima, annars fengi ég ekki að
handa áfram í áfanganum," segir Anna,
sármóðguð.
Við skulum láta liggja milli hluta hvað
námsráðgjafínn segir og gerir, en að
nokkrum vikum liðnum hefur Anna skróp-
að sig út úr dönsku og stærðfræði og er
illa á vegi stödd í öllum hinum námsgrein-
unum. Sumir kennaranna eru áhyggjufull-
ir hennar vegna, en hún er aðeins ein af
mörgum sem er eins ástatt um. Árlega
hættir og týnist í kerfinu fullur fjórðungur
nemenda á fyrstu önn og þykir engim tíð-
indum sæta. „Þetta er alltaf svona,“ segir
skólameistarinn á kennarafundi og ypptir
öxlum. „Þessir nemendur hafa ekkert að
gera í framhaldsnám,“ bætir einn elsti og
reyndasti kennarinn við. „Þeir eiga að
vera einhvers staðar annars staðar.“
Einhver kennarinn hafði samt minnst á
hana við námsráðgjafann, sem var nýút-
skrifaður úr námi í námsráðgjöf við Há-
skóla íslands. Hann var grunnskólakenn-
ari sem þekkti lítið til í framhaldsskólanum
og var ekki of viss í sinni sök varðandi
frelsi og sjálfstæði unglinga. Hann hafði
lært nýju kennslu- og uppeldisfræðina í
Kennaraháskólanum, þar sem mikil
áhersla var lögð á frelsi nemenda. Hann
var mannúðarmaður fram í fíngurgóma,
hafði andstyggð á valdboði og vildi nem-
endum vel. Anna leitaði til hans þegar hún
var dottin út úr stærðfræðinni. Gæti hann
ekki talað við kennarann, þetta voru bara
tveir tímar sem hún hafði farið yfír mörk-
in. Áttu þeir að verða henni að fótakefli?
Hún skyldi víst bæta sig og mæta í hvern
einasta tíma ef henni yrði bjargað fyrir
horn í þetta sinn. Jú, námsráðgjafinn sagð-
ist skyldu tala máli hennar við kennarann.
Og námsráðgjafínn fór að hugsa af al-
efli. Var þetta framhaldsskólakerfi ekki
allt of stíft og ómannúðlegt fyrir veslings
unglingana? Þeir voru í svo mikilli upp-
lausn á þessum árum, kynþroskinn og
ástin að trufla þá stanslaust og foreldrarn-
ir sjálfsagt svona og svona. Eða þá öll
geðræu vandamálin sem hijáðu þjóðina,
unga jafnt sem aldna. Hann hafði lært
um það í náminu í námsráðgjöfinni. Heill
„kúrs“ um persónuleg og geðræn vanda-
mál unglinga. Sennilega var Anna í svo
miklu andlegu ójafnvægi að hún gat ekki
einbeitt sér að náminu. Hann mundi líka
vel eftir því sem hann las í uppeldisfræð-
inni um jafnaldrahópinn í bókinni Skóli -
nám - samfélag eftir Wolfgang Edel-
stein. Unglingunum leið svo illa í hópi
fullorðinna og svo sem í þessu þjóðfélag-
skerfí yfirleitt. Þurfti ekki fyrst að breyta
því, skapa aðstæður fyrir réttlátt þjóðfélag
og þá kæmi hitt af sjálfu sér? Að vísu
rámaði hann í að Wolfgang hefði einnig
minnst á of mikið frelsi og agaleysi í barna-
uppeldi á íslandi — en hvað um það? Vesl-
ings Anna. Hann skyldi víst gera fyrir
hana það sem hann gæti.
Hann mundi líka það sem einn kennar-
inn í uppeldisfræðinni hafði sagt. (Eða var
það sálfræði, hann mundi það ekki svo
gjörla) „Það skiptir ekki máli hvað lært er
í skólunum, í rauninni ætti bara að kenna
samskipti." Og annar hafði sagt — reynd-
ar var það víst sérkennari: „Það er mál
til komið að kennarar í framhaldsskólunum
fari að kenna nemendum en ekki náms-
greinar; þeir verða að fara að laga sig að
nemendum." Hann mundi þetta vel og
fletti meira að segja upp í gömlu glósunum
sínum til að fullvissa sig um að rétt væri
munað. Já, hvers vegna skyldi skólinn
ekki laga sig að Önnu en hún ekki að
honum? Var það ekki skylda hans að stuðla
að því og standa með Onnu í þessu máli?
Með þessa þanka í farteskinu fékk náms-
ráðgjafinn því til leiðar komið að Anna
fékk enn eitt tækifæri í stærðfræðinni,
kennarnum til sárrar skapraunar. Hann