Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 30.03.1996, Qupperneq 6

Lesbók Morgunblaðsins - 30.03.1996, Qupperneq 6
! ANNA SVANHILDUR BJÖRNSDÓTTIR Leiftur Hratt flýgur hugur leitar Ijóss í grænum augum. Leiftur og allt virðist mögulegt, fallegt eins og forðum þegar ekkert var orðið og fangið fullt af frelsi. Leiftur Ijóss hvert mun þig bera. Mögulegt. Fallegt. Kveðja Borgarrósin fallin falin jörðu iðagrænni. Sólin skein á bílalestina er liðaðist upp brekkuna og blómin drupu höfði í vegarkantinum. í suðri Ilmurinn líkt og fortíðin vitji mín í landi óraunveruleikans og ilmurinn ber mig áfram í kyrrð sakleysis og fjötra. Eg kveð alla siði og ánetjast öllu nýju þar sem rósailmur fyllir gangstéttirnar og allt breytist á einni örskotsstundu í blómstrandi fíkjutré sem barnið bragðar á í undrun sinni þekkir aftur horfmn heim og saknar. Höfundurinn er skáld í Reykjavík og hefur gefið út fjórar Ijóðabeekur, en sú fimmta er væntanleg í maí. JÓHANN GUÐNI REYNISSON Orðsins eggá sverði Engum ætlað skyldi, af orðstírs fári blæða, lygn og lágvær flæða uns Ijósta orðin. Mildi? Sönnust sagna fylgdi sárust hverjum ræða andar illir græða af árans beisku hildi. Orðsins egg á sverði, eilíf stunga; opið sár, sálarundin aldrei grær. Munaðslaug er merði, metingur og kjaftur grár, sjálfum sér er enginn nær. ína Björk Þú ert blik af bijósti móður. Þú ert brot af nýrri vídd. Þú ert lífsins þráður ijóður. Þú ert allri gæfu prýdd. Þú ert dropi af dásemd vífs. Þú ert dögg að morgni lífs. Höfundur er kennari á Laugum í Reykjadal. Ljósm.:Myndadeild Þjóðminjasafns íslands/ívar. ^ Ljósm.:Myndadeild Þjóðminjasafns íslands/ívar. MARÍUMYND frá Vatnsfirði - eitt af listaverkum séra MARÍUMYND sú frá Vatnsfirði sem nefnd hefur verið Hjalta, nú varðveitt í Þjóðminjasafninu. Maria rustica og eignuð séra Hjalta. En er hann höfund- ur hennar? Tvær myndir Hjalta í Vatnsfirði „Þetta er íslenska sveitakonan uppmál- uð...“ segir hann; enda hefur hann gefið þeirri myndinni nafnið Maria rustica is- Íandica og lýst henni mjög hnyttilega frá því sjónarmiði. Hin myndin, sem kölluð hefur verið María önnur, er nokkuð veðr- uð, því hún var höfð utan dyra á kirkju- gafli árum saman á öldinni sem leið. Samkvæmt biskupsvísitasíu árið 1700 er þá í Vatnsfjarðarkirkju mynd af Maríu með barnið, gerð af síra Hjaíta Þorsteins- syni. Talið er, að það hafi verið Maria rustica. Hún er stærri og þykir tilkomu- meiri, og svo virðist sem henni hafi verið meiri sómi sýndur. Hin myndin kemur ekki til sögunnar í vísitasíu fyrr en 1790. Áður hafði aldrei verið getið um nema eina Maríu-mynd í Vatnsfjarðarkirkju. Lík- legast er talið, að síra Hjalti hafi gert báðar myndimar. Þykir sú tilgáta við það styðjast, hve líkar þær eru að nokkru leyti. En þó að sumt sé býsna líkt með mynd- um þessum, þurfa þær varla af þeim sök- um að teljast verk sama manns. Það þarf naumast að benda til annars en að önnur þeirra sé gerð með nokkurt hop af hinni, jafnvel frekar ólíklegt að sami maður hafi leitazt við að gera tvö Maríu-líkneski sem líkust í hinum auðveldari atriðum. Og þrátt fyrir þá líkingu getur það varla dulizt, að egar gengið er um Þjóðminjasafn íslands, vekja þar athygli meðal annars Maríu-myndir tvær, skornar í tré, þangað komnar úr Vatnsfjarðar- kirkju við Djúp. Báðar eru þær kenndar við Hjalta Þorsteinsson, sem þar var prestur 1692- Erfitt er að ímynda sér, að snillingur sá, sem leyst gat með prýði svo vandasama þraut sem predikunarstólinn hafi gert Maríu rusticu. Til þess er sú mynd of fmmstæð að allri sköpun. Öðru máli gegnir um Maríu aöra, hún er sannkallað listaverk. Eftir HELGA HÁLFDANARSON 1742; en hann var, sem kunnugt er, manna skurðhagastur hérlendis á sinni tíð. Meðal annarra verka síra Hjalta er varðveittur í Þjóðminjasafni prédikunarstóllinn mæti, einn bezti kjörgripur þeirrar tegundar í eigu vorri. Um Maríu-myndir þessar fjallaði Krist- ján Eldjárn afbragðsvel í ritgerð um lista- verk Hjalta Þorsteinssonar og birti í Árs- riti Sögufélags ísfirðinga 1978. Til þeirrar ritgerðar er hér einkum sótt og vísað. Greinilegt er, að önnur hvor þessara mynda er gerð með hliðsjón af hinni; en álitamál má telja, hvor þeirra sé fyrirmynd og hvor síðar gerð. Báðar eru af guðsmóð- ur með barnið Jesúm á hægri handlegg, og á myndunum báðum heldur sveinninn á jarðarhnettinum í hægri hendi. Það eru þó einkum aukaatriði sem taka af skarið um skyldleik myndanna, helzt í klæðnaði, svo_ sem fellingar á kyrtlum og skikkjum. Á það bendir dr. Kristján, að á annarri myndinni er „íslenskur svipur" á Maríu. i 6

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.