Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 27.04.1996, Qupperneq 6

Lesbók Morgunblaðsins - 27.04.1996, Qupperneq 6
ÍSLENDIN GAR í LÚXEMBORG FRIÐRIK og írís heima hjá sér. í ! t f \ i Heima hjá Friðrik og íris Friðrik Guðjónsson er einn af þeim sem flýgur um loftin blá, færandi ein- hverjum varninginn heim á flugvélar- bákni sem er á hæð við þriggja hæða hús. Hann er búinn að starfa í Lúxemborg síðan 1974, fyrst sem siglingafræðingur og hleðslustjóri og nú er hann flugstjóri í þess- um eilífu langferðum, oft í kringum hnött- inn. Sá hringur er skemmst floginn á hálfum fimmta degi, en getur tekið uppí 13 daga. Á 16 klukkutíma „leggjum“ eða áföngum, hvíla þeir sig til skiptis. Aftan við stjórnklef- ann er farþegarými með fáeinum sætum og kojur, þar sem menn geta lagt sig. Á lang- ferðum eru aðeins tveir flugmenn við stjórn vélarinnar, en einn hvílir sig. Og er þetta gaman?, spurði sá sem ekki veit, og Friðrik svaraði: „Það verður að vera gaman; annars færi maður að gera eitthvað annað.“ Ef það er rétt að flugmannakonurnar séu eins og sjómannskonur á íslandi, þá er íris ein af þeim. Þau Friðrik og íris búa í einskon- ar sveitaþorpi skammt utan við borgina. Fljótt á litið er þar venjuleg þorpsgata, en húsin eru í rauninni bændabýli og standa þétt samam í þessu nágrenni kunna þau Friðrik og íris vel við sig og hafa útsýni yfír akra og skóga. Lóðin er stór og þar hefur Friðrik gaman af að taka til hend- inni; hann er bæði ræktunarmaður og smið- ur góður. Friðrik er fæddur á ísafírði, en foreldrar hans, Guðjón bankafulltrúi Jónsson og Jensína Jóhannsdóttir fluttu til Reykja- víkur og Friðrik var búinn að marka sér framtíðarbraut innan við þrítugt. Iris er aft- ur á móti úr Hafnarfírði og faðir hennar, Þorkeli prentari Jóhannesson, bróðir Olivers Steins, var talsvert þekktur maður. íris fór ung utan til Lúxemborgar og þá til þess að vinna þar á bar sem hét Loch Ness og var að hluta í eigu Valgeirs T. Sig- urðssonar. Valgeir var umsvifamikill í Lúx- emborg á tímabili en er nú fluttur heim til íslands. Þegar fyrrnefndur bar var seldur, opnaðí Valgeir Cockpit Inn, krá sem enn er starfrækt. íris fór að vinna þar og hún á heiðurinn af uppröðun á stórfenglegu ljós- myndasafni úr flugsögu íslands og af ís- lenzkum bátum, sem þar prýða veggi. Á þessum árum kynntist hún Friðriki, sem þá var fráskilinn með tvær dætur. Þær eru nú uppkomnar; Berglind Sigurveig er mark- aðsfræðingur og búin að gera Friðrik að afa, en Katrín Elísabet hefur verið að fást við myndlist og er greinilega gædd góðum hæfíleikum eftir málverki að dæma, sem prýðir heimili þeirra Friðriks og írisar. IRIS með bókina um landnám íslend- inga í Lúxemborg. Því miður var ekki hægt að hafa meðútgefendur írisar með á myndinni. „Við fórum að búa saman 1982 og þrem- ur árum síðar fluttum við inn í hálfklárað hús og lukum við það sjálf“, segir Friðrik. í árslok 1990 var stofnuð Sögunefnd ís- lendinga í Lúxemborg. Markmið hennar var að skrásetja sögu íslendinga í Lúxemborg. Jóhannes Helgi rithöfundur hófst handa síðla árs 1991, en Heimir G. Hansson sagnfræð- ingur aflaði heimijda og skráði söguna og bókin: Landnám íslendinga í Lúxemborg kom út 1994. Þetta er vönduð og vel út gefin bók með manntali fyrir alla Lúxem- borgar-íslendinga. íris átti sæti í Sögunefndinni ásamt Guð- laugi Guðfinnssyni, Maríu Huesmann og Þorbjörgu .Jónsdóttur. Þau töldust jafnframt vera útgefendur bókarinnar, sem seldist vel í Lúxemborg, en minna en ætlað var á ís- landi. Útgefendumir riðu ekki feitum hesti frá þessari útgáfu, enda þótt allmargir ein- staklingar og fyrirtæki styrktu útgáfuna. „Þetta fékk engan stuðning heima á íslandi og ég tek ekki þátt í útgáfu á fleiri bók- um“, sagði íris. í bókinni er fjöldi mynda og hún hefur ugglaust verið dýr í útgáfu. Eftir stendur, að með þessari bók var bjarg- að margvíslegum fróðleik um íslendinga í Lúxemborg, sem ella hefði gleymst. Varaforstjóri og yfir- flugstjóri hjá Cargolux að ætlaði að verða þrautin þyngri að ná tali af Eyjólfi Haukssyni; hann var annaðhvort að fljúga eða á fund- um. Fundarsetur virðast verða í æ ríkari mæli hlutskipti þeirra sem stjórna fyrirtækj- um og Eyjólfur er einn þeirra. Á síðasta ári náði hann þeim markverða áfanga að fara beint úr flugstjórasætinu í stól aðstoðarfor- stjóra hjá Cargolux, þar sem hann er senior vice president eins og það heitir í skipuriti félagsins. Ekki svo að skilja að Eyjólfur hefði stólaskipti; hann er áfram í flugstjórasætinu þegar hann má vera að og flýgur að minnsta kosti á hveijum laugardegi til Svíþjóðar. Eyjólfur er fæddur og uppalinn í Reykja- vík og um hann má segja, að krókurinn beygðist snemma. Strax eftir fermingu fór hann í svifflugið uppi á Sandskeiði, sem reyndist góður undirbúningur fyrir vélflugið, sem hann fór að læra 16 ára og hann var farinn að fljúga áður en hann tók bílpróf. „Ég var svo heppinn að hitta á rétta menn sem hjálpuðu mér; til dæmis kenndi Þorgeir Pálsson, nú flugmálastjóri, mér svifflug," sagði Eyjólfur. Hann fór að fljúga strax og hann hafði aldur til, fyrst hjá Elíeser Jóns- syni í Flugstöðinni og þá bæði við kennslu- útsýnis- og leiguflug. Árið 1970 hóf Eyjólfur störf hjá Loftleiðum, var þar siglingafræðing- ur og strax um haustið í flugmannsþjálfun á „Monsana“ sem svo voru nefndir, þ.e. skrúfuþoturnar sem Loftleiðir lengdu og nefndu Rolls Royce 400. En þegar Loftleiðir seldu monsana til Cargolux, þá fylgdu Eyjólf- ur og nokkrir aðrir flugmenn með í pakkan- um. Síðan hefur Eyjólfur verið hjá Cargolux og árin eru orðin 25. Hann varð flugstjóri aðeins 27 ára gamall og einhver skaut því að blaðamanni, að það væri met; enginn hefði orðið flugstjóri yngri. Ég minntist á það við Eyjólf og hann hló bara að því og kallaði það „venjulegt, íslenzkt mont“. Eyj- ólfur segir að Cargolux eigi nú 7 flugvélar; þijár nýjar Boeing 747-400 og ijórar af minni gerðinni sem auðkennd er með 200,. ein þeirra er í útleigu. Ekkert vandamál er að fá nógan varning til að flytja og aukning- in er geysileg, um 20% á síðasta ári. Skammt frá Findel-flugvelli í Lúxemborg hefur nú verið byggð risavaxin skemma fyrir flugfragt. Þar fær Cargolux verulegt hús- rými og veitir ekki af, því félagið flytur um 600 tonn á hveijum degi. Hjá Cargolux er æðsti maður kallaður forseti, en síðan eru fjórir aðstoðarforstjórar yfir aðskildum deildum. Ein þeirra er Flug- rekstrardeildin og þar er Eyjólfur aðstoðar- forstjóri. Fyrir utan að taka flugtúra til Sví- þjóðar og víðar, er Eyjólfur líka í því að þjálfa flugmenn og prófa þá hjá Lufthansa í Frank- furt, þar sem hann fær aðgang að flug- hermi. Um flugstjórnartækin segir Eyjólfur að þau séu alltaf að verða betri og betri og það er alltaf jafn gaman að fljúga; þess- vegna heldur hann því áfram. Hjá Cargolux starfa nú 850 manns, þar af 185 flugmenn. Þetta er fjölþjóðlegur hópur, en samskipta- málið er enska. Nú flytja þær mæðgur inn pijónavörur frá Icewear-Drífu; það er vélpijón, en auk þess vinna tvær konur á íslandi við að handptjóna lopapeysur, sem alltaf eru jafn vinsælar. Bjargey og Sigrún fara í fímm vikur fyrir jólin á markað í Trier og árangurinn hefur orðið mjög góður. í tímans rás hafa þær bætt við sig skinnavörum frá fyrirtæki á Á LAGER Saga Iceland Wool: Mæð- gurnar þrjár: Bjargey amma, Sig- rún mamma og Sara. BJARGEY og Pétur ístofunni heima hjá sér. Hagstæð- ur vetur fyrir prjónles Heima hjá þeim hjónum Bjargeyju Ey- jólfsdóttur og Pétri Valbergssyni flugstjóra hjá Cargolux eru hvers- kyns íslenzkar lopapeysur og pijónles í rúm- góðum herbergjum á neðri hæð íbúðarhúss þeirra. Þar er sýningaraðstaða og lager fyrir Saga Iceland wool, fyrirtæki sem Bjargey og Sigrún dóttir þeirra hjóna hafa rekið síð- an 1988. Þær byijuðu raunar á þessu í sölu- bás á markaðstorgi í Trier í Þýzkalandi tveimur árum áður og gekk svo vel að ákveð- ið var að stofna fyrirtæki. 6

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.